Dagblaðið - 25.04.1980, Blaðsíða 14
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1980.
Leikrit á menningarvöku
Á Menningarvöku Suðurnesja,
sem bar heitið Fiskur undan steini
voru þrjár frumsýningar á leikverk-
um, ein hjá Leikfélagi Keflavíkur,
Sjóleiðin til Bagdad eftir Jökul
Jakobsson, hjá Leikfélagi Sand-
gerðis, Möppudýragarðurinn ,
höfundur Óttar Einarsson, og hjá
Litla leikfélaginu i Garðinum tveir
einþáttungar, Gullbrúðkaupið og
Tertan , og þar er Jökull Jakobs-
son aftur á ferðinni en allt eru þetta
innlend verk, svo að íslenskir
höfundar mega vel við una. Barna-
leikritið Spegilmaðurinn var
einnig sýnt á vökunni og það meira
að segja í öllum byggðarlögum á
Suðurnesjum, enda vel til þess fallið,
leikið á miðju salargólfi með þátt-
töku áhorfenda.
Leiklistarstarfsemin á Suðurnesj-
um er því i fullu fjöri, nema i Grinda-
vik. Þar tókst ekki að færa upp sýn-
ingu i vetur vegna manneklu. Var það
sannarlega miður en vonandi er
aðeins um stundarvandamál að ræða
hjá þeim.
Sjóleiðin til Bagdad var frum-
sýnd i Stapanum daginn fyrir
skírdag en var síðan sýnd í Félagsbíói
i Keflavík og verður áfram. Tókst
sýningin mjög vel og fer þar saman
góð leikstjórn Þóris Steingrímssonar,
táknræn leikmynd unnin i hópvinnu
upp úr aðfengnum hlutum norðan
frá Sauðárkróki og skinandi leikur
allra i sýningunni.
Leikurinn gerist á kreppuárunum í
vesturbænum og fjallar um ást og
erfiðleika einnar fjölskyldu. Reynir
mikið á hæfni leikaranna til að ná
réttu andrúmslofti í verkið og tókst
það með ágætum. Sérstaklega er
Jóhann Gíslason minnisstæður í hlut-
verki Eiríks, kaldrifjaða drykkju-
sjúklingsins sem alltaf er að sjá nýjar
leiðir til skjótfengins gróða. Árni
Ólafsson náði sinum besta leik til
þessa í gamla manninum, sjúkum og
með andarteppu. Voru gervi hans og
hreyftngar mjög sannfærandi. Ingi-
björg Haraldsdóttir lék með miklum
tilþrifum Þuriði, mömmuna sem
ávallt glataði eða sleppti tækifærun-
um til að sanna hæfileika sína.
Dagný Haraldsdóttir, í hlutverki
Hildar, 14 ára stúlkunnar, Hrefna
Traustadóttir og Þór Helgason, fóru
vel með sín hlutverk, sérstaklega
Hrefna í leikslok i uppgjörinu við
Eirík. Magnús Jónsson slapp einnig
vel frá Halldóri, rómantíska far-
manninum.
Möppudýragarðurinn
Sandgerðingarnir brugðu nokkuð
út af vana leikfélaganna á Suðurnesj-
um með verkefnaval. Völdu refíu-
kenndan leik sem reyndar er saminn
fyrir hérað þar sem kaupfélagsvaldið
er meira en á Suðurnesjum. En það
kom ekki að sök. Með mátulegri
staðfæringu komst allt til skila, i
bráðfyndnum texta, Ijóðum og sigild-
Sviðsmynd úr „Tertunni”.
um lögum. Höfundurinn að
Möppudýragarðinum er Óttar
Einarsson, Norðlendingur, en tveir
aðrir úr sama landshluta komu einnig
þar við sögu, Aðalsteinn Bergdal
1 leikstjóri og Hallmundur Kristinsson,
sem teiknaði leikmynd og vann að
miklu leyti. Norðanþrenningin stóð
sig sannarlega vel og vakti kátinu á
meðal leikhúsgesta í Sandgerði fyrra
fimmtudag. Fengu þeir mikið klapp
fyrir skemmtilega sýningu, einkum
Aðalsteinn fyrir sitt framlag þvi ekki
er heiglum hent að færa upp sýningu
við jafnerfiðar aðstæður og i Sand-
gerði, á dvergsviðinu, enda varð að
smíða pall fyrir framan sviðið svo
allir kæmust fyrir í hópatriðunum.
Ómar Bjarnþórsson fór með aðal-
hlutverkið, Vermund Magnússon
samvinnufélagsforstjóra. Tókst
honum að skapa mjög skýra persónu
og látbragð hans og söngur vöktu
mikla kátinu sýningargesta sem fylltu
húsið. Einnig mæddi mjög á „reviu-
stjóranum”, Ólafi Gunnlaugssyni, i
sínum konunglegu klæðum, há-
rauðum úr silki, og einnig á Ingibirni
Jóhannessyni, sem brá sér í gervi
þriggja persóna. Alls komu fram 17
leikarar og þrír tónlistarmenn i 33
hlutverkum. Yfirleitt skiluðu þeir
hlutverkum sínum vel. Ef nefna ætti
einn fremur en annan, þá voru þau
Heimir Morthens og Hjördís Óskars-
dóttir skemmtileg í hlutverkum
læknis og lögregluvarðstjóra. Tónlist
þeirra Sigurðar Guðjónssonar, Krist-
jáns Gíslasonar og Heimis Sigur-
sveinssonar.
Magnús Gíslason
Gullbrúðkaupið
og Tertan
Litla leikfélagið í Garðinum frum-
sýndi þessa tvo einþáttunga Jökuls
Jakobssonar fyrra föstudag. í Gull-
brúðkaupinu lék Bjarni Guðmunds-
son Ananías gamla sem hefur flest á
hornum sér. Bjarni leikur þarna
mann sem er á svipuðum aldri og
hann sjálfur, eða nærri áttræður.
Þrátt fyrir litla sviðsreynslu var það
furða hvað honum tókst vel. Anna
Magnúsdóttir lék Guðbjörgu, konu
Ananiasar.Raddblær hennar og gervi
var gott. Á hreyfingarnar reyndi
minna, þar sem hún liggur allan
timann í rúminu. Jóhannes Eyfjörð
og Þórdis Jónsdóttir koma svo lítils-
háttar við sögu, mjög þokkalega.
Tertan beið eftir piltinum sent
ætlaði að koma til dótturinnar, en
rafmagnsaflesningarmaðurinn ,,að
austan” át hana nú samt. Margrét
Sæbjörnsdóttir fór með hlutverk
dótturinnar nokkuð vel, var svolítið
taugaóstyrk fyrst. Auður Sigurðar-
dóttir lét sér hins vegar hvergi bregða
í hlutverki móðurinnar lúmsku og
ýtnu og tjáði persónuna mjög vel.
Mátulega vandræðalegur var Sigur-
jón Skúlason, maðurinn að austan,
sem tróð heilli tertu ofan í sig á 30
minútum. Leikstjóri var Sævar
Helgason.
- emm
BRESK
X/ll/A
AÐ HOTEL
LOFTLEIÐUM
25.APRÍL
TIL 2. MAÍ
1980
I VÍKINGASAL,
BLÓMASAL, VÍNLAN
OG RÁÐSTEFNUSAL
Breskur matreiðslumeistari frá
Mayfair Hotel.
Fjórréttaður matseðill öll kvöld.
Breskir skemmtikraftar
Magnús Magnússon, hinn kunni
sjónvarpsmaður, ræðir við gesti.
Matargestir fá happdrættismiða.
Vinningur vikudvöl í London fyrir tvo,
fargjöld, gisting og matur innifalinn.
Stuðlatríó leikur fyrir dansi.
Ókeypis kvikmyndasýningar um helgar.
Magnús Magnússon flytur tvo fyrirlestra um
Víkingasýninguna í London.
Sjáið gimsteina bresku krúnunnar!
Kynningarrit um Bretland liggja frammi.
Borðapantanir og nánari upplýsingar hjá
í símum 22321 og 22322.
Verið velkomin
aagft imasr....
HÓTEL LOFTLEIÐIR
BRESKA FERÐAMÁLASTJÓRNIN
Ritari
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utan-
ríkisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu öðru
tungumáli, auk góðrar vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að
ritarinn verði sendur til starfa í sendiráðum Islands er-
lendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu,
Hverfisgötu 115 Reykjavík, fyrir 10. maí 1980.
Utanríkisráðuneytið.
Fmlux
LITSJONVARPSTÆKI
22" 699.000,- (664.000.- staðgr)
26" 773.000.- (734.000.- staögr)
SJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTUNI-18 REYKJAVIK SIMI 27099
Stuðningur við
æskulýðsstarfsemi
Samkvæmt 9. gr. III. kafla laga um æskulýðsmál hefur
Æskulýðsráð ríkisins heimild til þess að veita stuðning við
einstök verkefni í þágu æskufólks. Stuðningur þessi getur
bæði orðið beinar fjárveitingar af ráðstöfunarfé ráðsins
og/eða ýmis önnur fyrirgreiðsla og aðstoð.
Æskulýðsráð samþykkti á fundi sínum 19. april sl. að óska
eftir umsóknum frá æskulýðssamtökum og öðrum aðilum
er að æskulýðsmálum vinna um stuðning við einstök verk-
efni er fallið gætu undir þessa grein laganna. Slíkar um-
sóknir ásamt upplýsingum og áætlunum um verkefnin
þurfa að berast Æskulýðsráði ríkisins, Hverfisgötu 4—6,
fyrir 1. júnínk. ^
Æskulýðsráð ríkisins.