Dagblaðið - 25.04.1980, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1980.
19
Misjafnir hljómleikar
Tónleikar Sinfónluhljómsveitar islands ( Há-
skólabfói 17. apri.
Hljómsveitarstjóri: James Blair.
EinleHcari: Osian Ellis.
Efnisskrá: Pjotr Tsjaikovsky: Rómeó og Júlla,
hijómsveitarforieikur; Georg Friedrich Httndel:
Hörpukonsert í B-dúr op. 4 nr. 6; Þjódtaga-
flokkur frá Wales, Mussorgsky-Ravel: Myndir
á sýningu.
Ekki leist mér nema rétt mátulega
vel á framhaldið þegar ég sá og
heyrði hvernig þeir byrjuðu þennan
konsert, vinirnir í hljómsveitinni.
James Blair hefur greinilega ekki
stjórnað sig inn að hjartarótum
meðlima hljómsveitarinnar og því var
spilamennskan í Rómeó og Júlíu þurr
og hlutlaus. Hljómsveitin okkar er
samt blessunarlega svo þroskuð að
hún leikur þolanlega, undir þannig
kringumstæðum, þótt ekki sé leikur
hennar spennandi. Hornin voru
nánast ein um að vera beinlínis ósam-
taka. Hinir sluppu betur.
Eins og upphaf-
lega var ráð
fyrir gert
Osian Ellis hreif íslenska
áheyrendur eftirminnilega þegar
hann var hér á ferð síðast. Hann
flutti smá fraeðandi tölu um
Hörpukonsert Hándels, sem ekki
veitti af, því að svo er útgefendum
fyrir að þakka að margir halda að
hann sé orgelkonsert, eða jafnvel
gítarkonsert, eftir að John Williams
tók sér fyrir hendur að leika hann. En
fallegastur er konsertinn leikinn á
hörpu eins og upphaflega var ráð
fyrir gert. Osian Ellis lék hann líka
aldeilis stórkostlega, svo að menn
undruðust hvernig ná mætti slíkri
fyllingu í hljómi einnar fínlegrar
hörpu. Lítil hljómsveitin lék líka fá-
dæma vel með honum. Ég er ekki frá
því að einleikari og hljómsveit hefðu
náð enn betur saman án stjórnanda
þvi greinilegt var að tengslin voru
einstaklega góð þar á milli, og hefði
þá reynt enn betur á þau.
Rímur næst?
Þjóðlagaflokkurinn frá Wales var
dálítið sérstætt fyrirbæri. Með þeim
hélt Osian Ellis einnig smáskýringar-
tölu og veitti ekki af því að hann söng
Tónlist
þau á Cimru, þjóðtungu sinni. Þetta
framlag Osian Ellis var svolítið
skondið en vel gert. Ekki getur
þjóðlagasöngur talist algengt atriði á
efnisskrá sinfóníuhljómsveitar. í
þetta sinn reyndist það ágætis,
saklaus tilbreyting. En ætli það færi
ekki um suma ef slikt yrði fastur liður
og á næsta misseri birdst til dæmis
rímnakappi sem kvæði við eigin lang-
spilsundirleik og hljómsveitarinnar.
Myndir á sýningu voru svo lokaat-
riðið. Mér finnst þetta stórkostlega
verk alltaf bæði eðlilegra, fallegra og
skemmtilegra i hljómsveitarundir-
búningi Ravels en i frumgerð
Mussorgskys fyrir píanó. Með
flutning þess var ég bæði ánægður
og vonsvikinn. Mér líkaði til dæmis
'prýðisvel að heyra hvernig Hafsteinn
Guðmundsson lék saxófóneinleik
með beinum og eðlilegum
saxófóntóni. Ailtof lengi hafa menn
reynt að þóknast hefðbundnum
grillum fordómafullra tónlistar-
manna og unnenda gegn þessu
vanmetna hljóðfæri með því að leika
á það með óþarfa vibratói og væmni í
tóni. Sumir hafa gengið svo langt í‘
hræsninni að kalla slíkt „Konsert-
saxófóntón.” Dans unganna i
eggjunum var líka fjörlega leikinn og
Samuel Goldenberg og Schmuyle
voru býsna vel túlkaðir. Á köflum
hljómaði blikkið líka eins vel og hægt
er að krefjast, já, eins og orgel. En á
viðkvæmustu augnablikum, þegar
síst skyldi, brugðust flestir málm-
blásaranna. Þannig klúðruðu
trompetar innganginum, hornið
fyrsta millispilinu og áfram mætti því
miður telja. Það sem verra var, að
það sem vel var gert nægði ekki til að
yfirskyggja þessi einstöku klúðursat-
vik.
Of upptekinn
af eigin
sviðsímynd
Hljómsveitarstjórinn James Blair
glímdi við hljómsveit, sem hann fann
að' mínum dómi ósköp lítinn
samvinnugrundvöll við. Enda
kannski ekki að furða. James Blair er
ákaflega kappsfullur, ungur stjórn-
andi, sem er mjög svo upptekinn af
P.I. Tshaikovsky.
eigin sviðsimynd. Hann gerir sig
jafnvel beran að álíka barnaskap og
að stjórna pákum í einleik. Slag hans
virðist yfirdrifið og leikið og á
köflum meira fyrir augað en til að
stýra hljómsveidnni. Vel má vera að
ennþá sitji i gömlum hljómsveitar-
jöxlum að hafa verið kallaðir æfinga-
hljómsveit ungra og metnaðargjarnra
evrópskra hljómsveitarstjóra Týrir
rúmum hálfum öðrum áratug, og því
hafi farið sem fór. James Blair á eftir
að lenda í fleiri hljómsveitum, sem
ekki taka ungæðishætti hans með
þegjandi þögninni. Endalok þeirrar
glimu skera svo úr um hvort hann
verður dugandi stjórnandi eða ekki.
Þjónusta
Þjönusta
Þjónusta
Jarðvinna-vélaleiga
j
Loftpressur Vélaleiga Loftpressur
Tek að mér múrbrot, borverk og sprengingar,
einnig fleygun í húsgrunnum og holræsum,
snjómokstur og annan framskóflumokstur.
Uppl. í síma 14-6-71.
STEFAN ÞORBERGSSON
$
$
LOFTPRESSUR - GRÖFUR
Tökum að okkur allt múrbrot, y
sprengingar og fleygavinnu í hús-
grunnum og holræsum.
Einnig ný „Case-grafa” til leigu í öll
verk. Gerum föst tilboð.
Vélaleiga Símonar Símonarsonar,
Kríuhólum 6. Sími 74422
C
MURBROT-FLEYGUM
MEÐ VÖKVAPRESSU
HLJÓÐLÁTT RYKLAUST
! KJARNABORUN!
NJúll Harðarton Vélalelga
SIMI 77770
Pípulagnir - hreinsanir
j
Er stíflað? Fjarlægi stíflur
úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niður-
föllurfi. Hreinsa og skola út niðurföíl i bila-
plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tank&l
með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki, raf—
magnssnigla o.fl. Vanir menn.
jValur Helgason, slmi 77028.
Er stíflað?
Fjarlægi stiflur úr vöskum. wc rörum.
baðkerum og niðurföllum. notum ný og
fullkomin læki. rafmagnssnigla. Vanir
mcnn. Upplýsingar i sima 43879.
Stífluþjónustan
Anton AOabteinsaon.
c
Önnur þjónusta
j
SPRUNGUVIÐGERÐIR
MÁLNINGARVINNA
Tökum að okkur alla meiri háttar sprungu- og málningarvinnu, leitið
tilboða. Einnig leigjum við út körfubila til hvers konar viðhaldsvinnu.
Lyftigeta allt að 23 metrar.
Andrés og Hilmar, símar 30265 og 92-7770 og 92-2341.
Sprunguviðgerðir -
Málningarvinna
ITökum að okkur alla meiri háttar sprungu- og
málningarvinnu. Leitið tilboða. Einnig ieigjum við
út körfubila til hvers konar viðhaldsvinnu. Lyftigeta
allt að 23 metrar.
Andrés og Hilmar, slmar 30265 og 92-7770 og 92-
2341.
30767 HÚSAVIÐGERÐIR 71952
Tökum að okkur ailar viðgerðir á húseignum, stórum
sein smáum, svo sem múrverk og trésmíðar, járn-
klæðningar, sprunguþéttingar og máiningarvinnu.
Girðum og lögum lóðir, steypum heimkeyrslur.
HRINGIÐ Í SÍMA 30767 og 71952.
Innréttingasmíði
Smíða fataskápa, baðinnréttingar, sólbekki o
fl. eftir máli. Trésmiðjan Kvistur, sími 33177,
ISúðarvogi 42 (Kænuvogsmegin).
K/æðum oggerum við e/drí húsgögn
Ák/æði í miklu úrvali.
Síðumúla 31, sími37780, 2. hæð.
Húsaviðgerðir
Tökum að okkur allar mciriháttar viðgerðir, s.s.
þakrennuviðgerðir, múrviðgerðir, viðgerðir gegn
raka i veggjum, meðfram gluggum og á þökum.
Hreinsum einnig veggi og rennur með háþrýsti-
tæki.
Uppl. í síma 18034 og 27684.
Fljót og góð þjónusta. — Fagmenn.
Húsaviðgerðaþjónustan í Kópavogi
Tökum að okkur allar viðgerðir á húseignum, stórum sem smáum, svo
sem múrviðgerðir, járnklæðningar, sprunguþéttingar og málningar-
vinnu. Lögum grindverk og steypum þakrennur og berum í þær
gúmmíefni.
Uppl. í sima 42449 efdr kl. 7 á kvöldin.
c
Viðtækjaþjónusta
j
RADÍÓ fr TV„
gegnt Þjóðleikhúsinu.
ÞJÓNUSTA
Sjónvarpsviðgerðir — sækjum/sendum.
Hljómtækjaviðgerðir — magn. spil. seguibönd.
Bfltæki, loftnet og hátalarar — ísetning samdægurs.
Breytum bíltækjum fyrir langbylgju.
Miðbæjarradíó
Hvcrfisgötu 18, sími 28636.
— LOFTNET S
önnumst uppsetningar á útvarps- og sjónvarps-
loftnetum fyrir einbýlis- og fjölbýlishús.
Fagmenn tryggja örugga vinnu og árs ábyrgð.
MECO hf., slmi 27044. eftir kl. 19: 30225 - 40937.
Sjónvarpsloftnet.
Loftnetsviðgerðir.
Skipaloftnet,
íslenzk framleiðsla.
Uppsetningar á sjónvarps- og
útvarpsloftnetum.
öll vinna unnin af fagmönnum.
Árs ábyrgð á efni og vinnu.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF.f
Sfðumúla 2,105 Reykjavik.
Simar: 91-3^090 verzlun — 91-39091 verkstæði.
'AJÍ
Verzlun
auðturlenök unbrabErnlb
JasmÍR M
Grettisgötu 64 s:u625
j nýtt úrval af mussum, pilsum, blúss-
\ um og kjólum. Eldri gerðir á niður-
\ settu verði. Einnig mikið úrval
'fallegra muna til fermingar- og tœki-
fœrisgjafa.
ÍOPÍÐ A LÁUGARDÖGUM
SENDUM í PÓSTKRÖFU
áuóturlensík unbraberolö
FERGUSON
Einnig stereosamstæður,
' kassettuútvörp
m og útvarpsklukkur.
litsjónvarpstækin
20" RCA
22" amerískur
26" myndlampi
Orrí
Hjaltason
Hagamel 8
Sími 18139