Dagblaðið - 25.04.1980, Page 24
Þátltakendunum í annarri skrúð-
göngunni í Reykjavík í gær brá heldur
en ekki í brún er þeir komu á móts við
verzlunina Stúdíó að Laugavegi 27.
Stefán Magnússon, verzlunarstjóri í
Stúdíó, sagði við DB að ekki hefði
verið laust við að nokkurt los hefði
komið á göngumenn er þeir gengu
framhjá verzluninni. Ástæðan var sú,
að i búðarglugganum höfðu tvær ungar
stúlkur komið sér fyrir, í sundbolum
einum klæða. Þarna flatmöguðu þær í
sólstólum, horfðust í augu við göngu-
menn og fögnuðu sumarkomunni.
- GAJ
DB-mynd: Ragnar Th.
Stúlkurnar I sýningargtugga verzlunarinnar Stúdló á Laugavegi 27 vöktu óskipta athvgliIgœr.
Steinullarverksmiðja fyrir norðan eða sunnan:
FRUMVARPID TILBÚIÐ
ÁBORÐIRÁÐHERRANS
—en engin veit hvar verksmiðjan rís
Þó frumvarp um aðild ríkisins að
steinullarverksmiðju liggi I handriti á
borði iðnaðarráðherra, bíði þar
komu hans frá útlöndum og síðan
umfjöllunar í ríkisstjórn, áður en það
verður lagt fram á Alþingi, eru menn
ennþá engu nær um það hvort þessi
verksmiðja rís sunnan fjalla á íslandi
eða norðan.
Gísli Einarsson, lögfræðilegur
deildarstjóri ráðuneytisins, og Árni
Árnason, skrifstofustjóri ráðuneytis-
ins, vildu hvorugur tjá sig um efni
frumvarpsins um steinullarverk-
smiðjuna, enda efni þess ekki kunn-
ugt ráðherrum ennþá.
Árni skýrði DB svo frá að iðnaðar-
ráðherra hafi skipað nefnd til að
kanna „forsendur fyrir athugun á
staðarvali”. Tveir aðilar hafa lýst sig
fjálga til að reisa steinullarverk-
smiðju. Er það Steinullarfélagið i
Skagafirði og félagið Jarðefnaiðn-
aður á Suðurlandi. Þessir aðilar hafa
hampað á víxl Sauðárkróki og Þor-
lákshöfn sem hentugasta stað fyrir
verksmiðjuna.
í staðarvalsnefndinni eru Vilhjálm-
ur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Rannsóknarráð ríkisins, formaður,
Hörður Jónsson, framkvæindastjóri
Iðntæknistofnunar, Bjarni Einars-
son, framkvæmdastjóri byggða-
deildar Framkvæmdastofnunar rikis-
ins, Svavar Jónatansson verkfræð-
ingur og Þorsteinn Þorsteinsson
bæjarstjóri Sauðárkróki.
Verksvið nefndarinnar er ,,að gera
tillögur til ráðuneytisins um for-
sendur fyrir samanburði á staðarvali
steinullarverksmiðju. í þvi sambandi
á nefndin að hafa í huga áhrif stað-
setningar á stofnkostnað, hag-
kvæmni i rekstri og samkeppnis-
hæfni, svo og að gera samanburð út
frá þjóðhagslegum viðhorfum,
mannafla og áhrifum á byggðaþró-
un.
Að fengnum tillögum nefndarinnar
mun ráðuneytið athuga hvort fela
eigi nefndinni að hafa umsjón með
gerð samanburðarkönnunar á stað-
selningunni.”
Svona einfalt er þetta. Og að sjálf-
sögðu var nefndin beðin að hraða
störfum sínum. -A.St.
Samkomulag náðist á Isafðrði í gær:
Ekki síöur samiö upp
á loforö stjómvalda
— segir Pétur Sigurðsson. Félagsf undir í dag
Samkomulag tókst í sjómannadeil-
unni á isafirði í gær kl. 5 eftir mara-
þonfund með sáttasemjara frá því kl.
10 í fyrradag. Samkomulagið verður
borið undir félagsfundi útgerðar-
manna og sjómanna i dag.
„Hér er bæði um samning við út-
gerðarmenn að ræða og einnig loforð
stjórnvalda, sem við leggjum ekki
minna upp úr,” sagði Pétur Sigurðs-
son formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða í morgun. „Það sem náðist
fram voru fæðispeningar, þ.e. frítt
fæði, og höfum við ákveðið loforð
frá sjávarútvegsráðherra og útgerðar-
mönnum. Við fáum þetta í gegn fyrir
alla útilegubáta á landinu og greiðir
aflatryggingasjóður fæðið.
Þá höfum við loforð ráðherra um
að ríkisstjórnin beiti sér fyrir lögum
um lögskráningu og breytingu á sjó-
mannalögum um slysa- og veikinda-
greiðslur, þ.e. tryggingaatriði. Þetta
á að taka fyrir á þessu þingi.
Hvað snertir samningana við út-
gerðarmenn, þá fengum við inn kröf-
una um hlífðarfatapeninga til ann-
arra en háseta, sem er í raun hækkun
á kauptryggingu. Þá fékkst einnig
5% hækkun á ákvæðisvinnu við beit-
ingu og stytting á uppgjörstíma úr 15
dögum í 9 daga. Tímabil það sem
landróðrabátar mega ekki róa var
lengt.
í sambandi við línubátana var út-
gerðinni leyft að hafa 12. manninn á
bátnum og lengja þar með línuna um
1/5, sem á að gefa áhöfninni meiri
tekjumöguleika. Háseta sem er á sjó
er bætt þetta upp með 1/8 háseta-
hlut. Þá var og samið um hafnarfrí á
netabáta og hafnarfríum á skuttogur-
um breytt úr 24 tímum í 30 tima.
Gengið var frá3 daga jólafríi og lengt
áramótafrí.
Þetta samkomulag eiga öll félög á
Vestfjörðum að geta samþykkt,
nema e.t.v. félagið á Súgandafirði,”
sagði Pétur.
„Það er mín skoðun að þegar búið
er að gera samninga séu allir
ánægðir,” sagði Guðmundur Guð-
mundsson formaður Útvegsmanna-
félags Vestfjarða. Ég legg engan dóm
á það hvort við höfum orðið að gefa
meira eftir en Bolvíkingar. Verði
samkomulagið samþykkt á fundun-
um i dag, ættu fyrstu skipin að geta
haldið út i kvöld.”
- JH
SKRÚÐGANGAN RIÐLAÐIST
hjálst, úháð dagblað
FÖSTÚDAGUR 25. APRlL 1980.
Helgigrip-
um stolið
úr Frí-
„Að því er bezt verður séð hafa horf-
ið tveir höklar, þar af hátíðahökull Frí-
kirkjunnar, tvö rykkilín, prestshempa
og silfurkross sem ég hef borið með
messuskrúða. Tveir kertastjakar hurfu
af altari, en annar þeirra fannst
reyndar utan dyra, þegar að var gáð,”
sagði séra Kristján Róbertsson, prestur
fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík, i
samtali við DB í morgun.
Brotizt var inn í Fríkirkjuna aðfara-
nótt sumardagsins fyrsta. Var það um
klukkan hálffimm um nóttina sem lög-
reglumenn tóku eftir að brotin hafði
verið rúða í kirkjunni. Höfðu þeir sam-
band við aðila sem hafa lyklavöld og
kom þá hvarf kirkjumunanna í ljós.
Gerð hafði verið tilraun til að
komast inn um suðurdyr á kirkjunni en
innbrotsmaður orðið frá að hverfa eftir
að hafa verið búinn að eyðileggja lás á
ytri dyrum og kominn að öflugum innri
dyrum. Siðan virðist hafa verið farið
inn um gluggann þar sem rúðá var
brotin.
Innbrotið i Fríkirkjuna ber tilgangs-
leysið i sér eins og raunar fyrra innbroj
í kirkjuna fyrir um það bil tveimur ár-
um. Hefur það aldrei upplýstst en þýfið
fannst í Hallargarðinum suður af kirkj-
unni nokkrum mánuðum siðar. Ljóst
var að það hafði ekki verið þar lengi.
Höklarnir voru illa farnir og krump-
aðir, einn þeirra rifinn og allir þörfn-
uðust gagngerðrar viðgerðar.
- ÓG
Skólaskák 1980:
Úrslitakeppnin
byrjarídag
Landsmót Skólaskákar 1980 hefst i
dag að Varmalandi í Borgarfirði og
lýkurá sunnudaginn.
A þessu móti keppa fulltrúar kjör-
dæmanna, tveir frá Reykjavik en einn
frá hverju hinna í yngri og eldri flokki,
um titilinn Skólaskákmeistari íslands
1980.
Mótstjórar verða Bergur Óskarsson
og Jenni R. Ólason.
- GAJ
LUKKUDAGAR:
24. APRÍL: 20361
Kodak Pocket A-1 myndavél.
25. APRÍL: 2081
Sharp vasatölva CL8145.
*
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.
TÖGGUR
UMBOÐIÐ <
SÍMI A
^81530
I