Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 13

Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 13
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1980. DAGBLAÐJÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I „íþróttamaður ársins” Bretinn Sebastian Coe var i gær kjörinn íþrótta- maður ársins af iþróttafréttariturum um allan heim en það voru alþjóðasamtök iþróttafréttaritara, sem gengust fyrir kjörinu. í kvennaflokki sigraði a-þýzka stúlkan - Marita Koch. Sovézka íshokkílandsliðið hlaut verðlaunin i flokkaíþróttum. Inter öruggur meistari Inter Milanó er öruggur sigurvegari í ítölsku 1. deildinni i ár en nú er aðeins ein umferð eftir af keppninni þar. Inter hefur fimm sliga forskot á Juventus en AC Milanó hefur gefið eftir að undan- fömu og er nú komið i 3. sætið. Úrslitin á ítaliu um helgina voru fyrir þær sakir merkileg að skorað var í öllum leikjunum átta og er slikt harla fátitt þarna suðurfrá. Úrslitin urðu annars þessi: Ascoli-Juventus 2—3 Fiorentina-Inter Milanó 0—2 AC Milanó-Pescara 3—1 Napólí-Bologna •—1 Perugia-Avellino 2—1 Roma-Cagliari 1 1 Torino-Lazio 1 Udinese-Cantanzaro 1—3 Toppurinn litur þá þannig út: Inter Milanó Juventus AC Milanó Tórínó Fiorentina 29 14 13 2 42—21 41 29 15 6 8 39—25 36 29 13 8 8 32—18 34 29 10 13 6 24—14 33 29 11 11 7 33—24 33 Hrikaleg spenna á Spáni Hrikaleg spenna er nú á toppnum í spænsku 1. deildarkeppninni og hefur reyndar verið undan- farnar vikur. Real Sociedad lætur engan bilbug á sér finna og liðið hefur enn ekki tapað leik í 1. deildinni í vetur. Ekki þarf að taka það fram að þetta er einstakt afrek og verður vart jafnað í bráð. Úrslit á Spáni um helgina urðu þessi: Barcelona-Rayo Vallecano 2- -1 Real Zarag.-Atl. Bilbao 1- -0 Real Betis-Las Palmas 3- -0 Real Madrid-Atl. Madrid 4- -0 Salamanca-Sevilla 2- -1 Real Sociedad-Malaga 3- -1 Hercules-Burgos 3- -0 Sporting Gijon-Espanol 2- -0 Staðan á toppnum er nú þessi: Real Sociedad 32 18 14 0 51- -18 50 Real Madrid 32 20 9 3 65- -31 49 Sporting Gijon 32 15 7 10 44- -33 37' Barcelona 32 12 11 9 38- -31 35 Atl. Bilbao 32 15 4 13 49- -39 34 Valencia 32 11 12 9 47- -39 34 England velur Mike England, framkvæmdastjóri velska lands- liðsins valdi i gær 16 manna hóp sem hann hyggsl nota í Bretlandseyjakeppninni, sem hefst um aðra helgi. England valdi 6 nýliða i hópinn og þar á meðal er hinn kornungi Ian Rush, sem Liverpool keypti frá Chester fyrir skömmu fyrir 300.000 pund. Þessir eru í hópnum: Daives (Wrexham), Jones (Wrexham), Jones, (Norwich), Price (Luton), Pontin (CardifO, Davies (Newcastie), Flynn (Leeds), Nicholas (Crystal Palace), Yorath (Tottenham), Thomas, (Bristol Rovers), James (Swansea), Rush (Liverpool), Phillips (Swansea), Thomas (Manchester United), Walsh (Crystal Palace) og Giles (Swansea). Liklegt er að flestir þessara leikmanna komi með velska landsliðinu hingað til lands þann 2. júni, en þá fer fyrsti landsleikur sumarsins fram. Slakur endir hjá Liverpool Ijverpool tapaði siðasta leik sinum i 1. deildar- keppninni i gærkvöld er Middlesbrough sigraði 1— 0 á Ayrsome Park. Það var David Shearer sem skoraði eina mark leiksins á lokaminútunni. Blackpool bjargaði sér frá falli i 4. deildina með 2—0 sigri yfir Rotherham á útivelli i gær. Það verður þvi hlutskipti Bury að leika í 4. deild næsta vetur. Docherty hættur Tommy Docherty yfirgaf Quee Park Rangers í gærdag, aðeins tæpu ári eftir að hann tók við stjórn hjá félaginu. Gagnkvæmt samkomulag varð á milli hans og eigenda félagsins um að hann skyldi fara. Docherty hefur áður verlð við stjórn hjá QPR en það var ekki nema i 28 daga árið 1968. Hann var þá látinn fara eftir rifrildi við forseta stjórnar félagsins, Jim Gregory. Svar Ólympíunef ndar til Haf- steins Þorvaldssonar, form. UMFÍ Margt hefur verið skrifað og skrafað um íþróttamál hérlendis. Ýmsar greinar sem birtast í blöðunum lýsa mikilli vanþekkingu á þessum málum og i sumum tilvikum illgirni. Slikt er ekki svaravert. Nýlega ritaði Hafsteinn Þorvalds- son, fyrrverandi formaður UMFÍ, ágæta grein i DB sem fjallaði af. þekkingu og skilningi um afreksíþróttir og ólympíuþátttöku íslendinga. Haf-| steinn segir réttilega að íslenzkt íþrótta- ’ fólk búi við grátlegt misrétti og að- stöðuskort samanborið við afreksfólk annarra þjóða. En hvað er til ráða? íslenzk stjórnvöld gera sér ekki nægi- lega grein fyrir vaxandi þýðingu lík- amsræktar, hvort sem um er að ræða ungt fólk sem þátttakendur i keppnis-' íþróttum eða almennignsíþróttir, öðru nafni trimm. Á þessu þarf að verða hugarfarsbreyting og það fyrr en seinna. íslenzk íþróttahreyfing býr við ótrúlega kröpp kjör, útlendir annað- hvort brosa af vorkunnsemi eða setja upp efasemdasvip þegar þeim er skýrt frá þeim fáu krónum sem ríkissjóður lætur af hendi rakna til íslenzku íþróttahreyfingarinnar. HafsteinnÞorvaldsson átelur skort á upplýsingum frá ólympíunefnd íslands og það er út af fyrir sig rétt. Nefndin. gerir lítið að því að halda blaðamanna- fundi eða senda út fréttatilkynningar og það er auðvitað spurning hvort slíkt sé rétt stefna. Aftur á móti hefur ólympíunefndin gott samband við sér-' sambönd ÍSÍ, sem helzt koma til greina með að eiga fulltrúa í ólympiuliði íslands hverju sinni og sér- samböndin hafa í flestum tilvikum gott samband við iþróttafólkið. En nú er rétt að snúa sér að því að svara nokkr- um spurningum HÞ um störf Ólympiu- nefndarinnar. 1. spurning: Hverjir annast þennan undirbúning sem væntanlega er nú í gangi undir forustu nefndarinnar? , Svar: Þjálfun íþróttafólksins er alfarið i höndum sérsambandanna. Aðferðir þeirra við undirbúning eru margvís-. legar. Sum þeirra ráða sérstaka þjálf- ara en önnur ekki. Sundsambandið er t.d. með landsþjálfara, Frjálsíþrótta- sambandið leggur meiri áherzlu á sam- skipti við útlönd en iþróttafólkið hlýtur sina þjálfun hjá félagsþjálfurum. Ólympíunefnd sér um greiðslu ferða- kostnaðar til ólympíuborgar, uppihalds og dagpeninga. Nefndin greiðir einnig styrk til sérsambandanna vegna undir- búnings en styrkurinn er alltof lágur. 2. spurning: Hafa einhverjir nú þegar unnið til þátttöku eða verið valdir í ólympíulið íslands? Svar: Engir hafa verið valdir en nokkrir hafa vafalaust unnið til þátttöku. 3. spurning: Hefur Ólympiunefnd íslands ákveðið einhver lágmörk sem stuðzt verður við eða eru það aiþjóðleg lágmörk? Svar: Engin lágmörk verða nú en miðað við afrek iþróttamanna i hinum einstöku íþróttagreinum. 4. spurning: Hvaða þjálfarar annast undirbúning þeirra íþróttamanna sem líklegir mega teljast í ólympíulið ís- lands og hvernig er annarri aðstoð við, þetta fólk hagað? Svar: Þessari spurningu hefur að nokkru verið svarað, a.m.k. því sem' snýr að þjálfun. Um aðra aðstoð er ekki að rreða en sum sérsamböndin hafa greitt smávægilega æfingastyrki til þeirra beztu. 5. spurning: Hvernig stendur Ólympíu- nefnd íslands að því að undirbúa væntanlegt þátttökulið á lokastigi til þess að skapa góðan liðsanda og sam- stöðu svo mikilsverðra sendifulltrúa á mestu íþróttahátíð heimsins? Svar: Sérstakur lokaundirbúningur hefur aldrei verið á dagskrá þó að æski- legur væri. Þó hefur ávallt verið hald- inn fundur með ólympíuförum fyrir brottför þar sem rætt er um væntan- lega ferð. 6. spurning: Hvernig er þjálfun og undirbúningi fararstjóra og annars fylgdarliðs hagað og eru einhverjir sjálfkjörnir í þann hóp utan formaður Ólympíunefndar islands? Svar: Aðalfararstjóri íslenzka ólympíu- liðsins hefur verið valinn en það er Sveinn Björnsson, varaformaður Ólympíunefndar íslands. Þau sérsam- bönd sem eiga fulltrúa í ólympiuliðinu skipa flokksstjóra. Enginn er sjálfskip- aður í fararstjórn ólympíuliðs og eng- inn valinn til slíkra starfa nema vera þaulreyndur sem fararstjóri íþrótta- hópa. Ólympiunefnd íslands er það Ijóst, að flest sem hún framkváemir er gert af vanefnum, sértaklega. hvað varðar undirbúning íþróttafólksins, en fjár- munir nefndarinnar eru það litlir að svigrúm til athafna er nánast ekki neitt. Nefndin hefur ávallt efnt til sérstakrar fjáröflunar vegna þátttöku í ólympiu- leikunum og oft fengið jákvæðar undirtektir, bæði frá opinberum aðil- um og einstaklingum, og er ein slík fjáröflun nú farin af stað. Nefndin þakkar Hafsteini Þorvalds- syni grein þá í Dagblaðinu sem hér er til umræðu og vonast til að greinin og þetta stutta svar opni augu manna fyrir því hve erfitt er að vera iþróttamaður og iþróttaleiðtogi á Íslandi. Ólympíunefnd íslands. Fyrsta mark Fylkis i bráðabananum staðreynd. Angistarsvipurinn leynir sér ekki á Jóni Þorbjörnssyni, markverði Þróttar, er hann horfir á eftir knettinum i netið. DB-mynd: Bjarnleifur. Wf Klaufskir Þrótt- arar köstuðu frásérsigri — Fylkir sigraði í bráðabana og aukaleikur verður að fara f ram á milli ÞróttarogVíkings Þróttarar voru bölvaðir klaufar að vinna ekki sigur á Fylkismönnum í síðasta leik Reykjavíkurmótsins í íknattspyrnu. Sigur hefði fært félaginu lyrsta Reykjavíkurmeistaratitilinn í 15 ár en Fylkismenn sáu um að til þess kom ekki — a.m.k. ekki að sinni og sigruðu 4—2 eftir bráðabana. í bráða- !bananum var það markvörður Fylkis, Ögmundur Kristinsson, sem algerlega stal senunni og þrívegis stöðvaði hann skot Þróttara. Eitt fór yfir og það var aðeins Harry Hill, sem náði að brjóta Ögmund á bak aftur. Fylkismenn skor- uðu hins vegar úr þremur fyrstu spyrn- um sinum og það nægði þeim til sigurs. Var furðulegt að sjá hversu sumir leik- manna voru taugaveiklaðir í tilraunum sínum. Þróttarar léku undan vindinum i fyrri hálfleik og þá skoraði Jóhann Hreiðarsson mark og færði þeim |forystu. Leikurinn jafnaðist mjög i síðari og um miðjan hálfleikinn jafnaði Hilmar Sighvatsson með gullfallegu marki. Tók hann knöttinn hátt á lofti og skoraði með fallegu skáskoti upp undir þverslá. Þetta var svo gott sem eina hættulega færi Fylkismanna, sem sluppu tvívegis naumlega fyrir horn í leiknum. í bæði skiptin átti hinn stór- hættulegi Sigurkarl Aðalsteinsson hlut að máli. í fyrra skiptið var honum brugðið innan vítateigs en dómarinn sá ekkert áhugavert. i síðara skiptið stóð hann fyrir opnu marki eftir að iafa leikið á Ögmund í markinu en datt ,'á á afturendann og tækifærið fór for- .örðum. Urslit leiksins í gær hafa það í för með sér að aukaúrslitaleikur verður að fara fram á milli Vikings og Þróttar. Hvenær hins vegar á að koma honum á er erfitt að spá um. Sviss vann Noreg Svisslendingar sigruðu Norðmenn 21—18 í 5-landa keppni i handknatl- leik, sem nú fer fram í Hollandi. í hálf- leik var staðan 12—10 Svisslendingum í vil. HVAÐ SEGJA LEIKMENN UM ÍSLANDSMÓTIÐ í SUMAR? Öm Guðmundsson: Lízt vel á sumarið Marteinn Geirsson: Ef við nýtum 50% færa okkar er ég ánægður „Okkur hefur gengið vel í Reykja- víkurmótinu gegn þeim liðum, sem ég lel að muni ógna okkur í íslandsmótinu og ég á ekki von á öðru en framhald verði á þeirri velgengni,” sagði Marteinn Geirsson, við DB í gærkvöld. „Slagurinn kemur til með að standa á milli Vals, Fram og Skagamanna og Þróttur gæti alveg skotizt inn á milli. Ég er hræddur um að KR blandi sér ekki í baráttuna. Þeir hafa æft linnulitið nú i 2 ár og ég held að þreyta geri vart við sig hjá þeim er á liður sumarið. Blikarnir, FH og Kefla- vík eiga erfitt með að spjara sig en FH hefur fengið góða menn og það gæti lyft þeim upp.” „Leikurinn gegn Akurnesingum leggst vel í mig. Ef við nýtum þó ekki væri nema 50% þeirra dauðafæra, sem við sköpum okkur hef ég engar áhyggjur af okkar gengi i sumar.” -SSv Jón Gunnlaugsson: Okkur vantar meiri breidd „Mér lízt bara nokkuð vel á þetta,” sagði Skagamaðurinn Jón Gunnlaugs- son við DB í gærkvöld. „Annars getur þetta brugðið til beggja vona hjá okkur. Okkur vantar tilfinnanlega meiri breidd en við höfum hins vegar sterkan kjarna. Þá höfum við nóg af efnilegum ungum strákum en þá vantar auðvitað alla reynslu.” „Þetta verður ákaflega jafnt íslandsmót í sumar og það verður ekkert afgerandi lið að mínu mati. Ég tel að 3—4 lið séu algerlega óþekktar stærðír. Þróttur, KR, Fram og ÍBV. Þessi lið gætu öll blandað sér í baráttuna um titilinn og þau gætu líka öll lent í fallbaráttu. í A og Valur verða í efri hluta deildarinnar eins og undan- farin ár.” Hvað um botninn? „FH, Blikarnir og Keflavík gætu lent i basli i neðri hluta deildarinnar og FH virðist vanta stöðugleika eins og áður. Leikurinn gegn Fram leggst vel i mig þrátt fyrir þetta og ég er þess fullviss að George Kirby á eftir að ná upp bar- átluhug í strákunum.” -SSv. Vignir Baldursson: Eigum ekki síðri möguleika en önnur lið ÓmarTorfason: Víkingur ítoppbaráttu „íslandsmótið á eftir að verða afar jafnt í sumar og við Víkingar verðum í toppbaráttunni. Við höfum verið óheppnir með meiðsli framan af tíma- bilinu og þau hafa háð okkur talsvert í Reykjavikurmótinu,” sagði Ömar Torfason við DB í gærkvöld. „Akurnesingar og Valsmenn verða ekki með nein yfirburðalið í sumar og Eyjamenn, meistararnir frá i fyrra, verða ekki með i toppslagnum. Ég tel að baráttan um titilinn komi til með að. standa á milli Vals, í A, Víkings og KR. Þróttur á eftir að dala og ég tel að mölin geti platað menn illilega. Keflvíkingar og Blikarnir eiga eftir að verða i vandræðum í sumar, en ég held að FH spjari sig þokkalega.” „Leikurinn okkar við Keflavík suður frá á eftir að verða gífurlegur baráttuleikur," sagði Ömar er DB lagði fyrir hann þá spurningu hvernig fyrsti leikur íslandsmótsins legðist í hann. Keflvíkingar hafa misst marga menn en þeir eru ódrepandi baráttu- jaxlar.” -SSv. „Ég gel ekki séð að við eigum neitt minni möguleika í mótinu en önnur lið,” sagði Vignir Baldursson, fyrirliði Blikanna, en þeir komu sem kunnugt er upp úr 2. deildinni i fyrra. Blikunum hefur ekki gengið mjög vel í æfingaleikjum í vor en í gær rót- burstu þeir lið Aftureldingar. Er Vignir var spurður um skýringu vegna lélegs gengis í æfingaleikjunum sagði hann: „Við höfum æft geysilega stift allt frá áramótum og hugsanlega hefur þreyta setið í mannskapnum en við eigum eftir að koma sterkir til leiks. Við höfum fengið Einar Þórhallsson til liðs við okkur aftur og að auki höfum við reynda menn eins og Þór Hreiðarsson og Helga Helgason í liðinu. Engu að siður gæti reynsluleysi háð okkur í sumar því þorri leikmanna er mjög ungur.” „Ég hef trú á að það verði 4—5 lið er berjist um toppinn og ég vonast til þess að við verðum í þeim hópi. Um leikinn gegn Eyjamönnum um helgina vil ég aðeins segja það að ég tel okkur eiga góða möguleika og við stefnum að þvi að fara heim með a.m.k. annað stigið.” -SSv. Þórir Jónsson: Alltíhnút „Þetta verður einn allsherjar hnútur, skal ég segja þér,” sagði Þórir Jónsson í FH er DB sló á þráðinn til hans í gærkvöldi. „Ég get ekki séð að neitt lið muni koma til með að skara fram úr í sumar. Það er iitið að marka þessa vorleiki en ég geri mér góðar vonir um að sumarið geti orðið gott fyrir okkur. Okkur hefur gengið ágætlega i æfingaleikjum og við höfum fengið til liðs við okkur sterka menn til viðbótar þeim er voru i liðinu i fyrra. Okkar markmið hlýtur auðvitað að vera það að halda okkur i deildinni fyrst og fremst og allt umfram það tel ég vera bónus. Við frekari athugun tel ég Skagamenn einna líklegasta til að skara fram úr. Valsmenn og Vestmanna- eyingar hafa misst sterka menn og það á eftir að reynast þeim dýrkeypt. Kefl- víkingar hafa misst marga leikmenn en lið þeirra hefur alltaf sýnt miklu meira en fyrirfram hefur verið búizt við. Um leik okkar gegn Val um helgina held ég að við ættum að geta spjarað okkur vel gegn þeim. Okkur hefur gengið vel I leikjum okkar gegn Val I gegnum árin, og ég á ekki von á breytingu i þeim efnum,” sagði Þórir i lokin. -SSv. Halldór Arason: Hef mikla trú á aðviðstöndum okkur í sumar „Ég hef mikla trú á að við náum að standa okkur vel í sumar,” sagði Halldór Arason úr Þrótti grútsyfjaður er við hringdum til hans eldsnemma í morgun. „Við höfum æft mjög vel undir stjórn Ron Lewin og það er mikill hugur i strákunum. Páll Ólafs- son og Baldur Hannesson eiga eftir að koma inn í liðið og styrkja það enn frekar.” Komið þið til með að halda þetta út? „Já, ég held að það sé engin spurning. Við verðum í toppbaráttunni ásamt KR, Akranesi og Fram. Þessi fjögur lið berjast um titilinn. Oþekktustu stærðirnar eru hins vcgar Breiðablik, FH og Keflavík og einkum þeir siðastnefndu. Leikurinn gegn KR um helgina leggst vel I mig og verði leikið á grasi tel ég að það muni koma okkur tvímælalaust til góða þvi við erum með léttleikandi lið,” sagði Halldór. -SSv. „Mér lízt vel á sumarið,” sagði mið- vörðurinn sterki úr KR, Örn Guð- mundsson, er DB spjallaði við hann á Melavellinum í gærkvöld. „Mótið í sumar á eftir að verða mjög jafnt — enn jafnara en t.d. í fyrra.” Örn sagði aðspurður að hann teldi ekkert lið myndu skara fram úr nú í sumar. „Toppbaráttan á eftir að verða mjög jöfn en ég á von á að FH og Breiðablik geti lent í basli ái botninum. Þessi lið komu bæði upp í fyrra og eiga bæði eftir að verða í vandræðum. Okkur i KR gekk e.t.v. ekki eins vel í Reykjavíkurmótinu og við höfum gert okkur vonir um en það er óttalega lítið að marka þessa malarleiki á vorin. Það hefur svo margsýnt sig. Þróttarar hafa komið verulega á óvart í mótinu og virðast vera i mun betri þjálfun en und- anfarin ár og þeir gætu gert góða hluti i sumar,” sagði Örn. Þjálfari Þróttar er Ron Lewin, sem þjálfaði KR um tveggja mánaða skeið fyrir nokkrum árum. Skúli Rósantsson: Ætlum okkur að vinna Víking „Mér lízt bara vel á baráttuna í sumar,” sagði Keflvikingurinn eitilharði, Skúli Rósantsson. „Það eina sem segja má að okkur vanti er einn leikmaður með einhverja reynslu að ráði —áhugann vantar svo sannarlega ekki hjá okkur. Það er erfitt að spá um úrslitin í sumar en ég held að FH-ingar eigi eftir að koma á óvart. Þeir hafa fengið góðan liðsauka og geta orðið sterkir i 1. deildinni.” Eruð þið hræddir við falldrauginn? „Nei, þvi fer fjarri. Þó svo að við höfum misst marga leikmenn ætlum við okkur ekkert annað en sæti ofar- lega I deildinni og við ætlum að vinna Vikingum helgina.” Tómas Pálsson: Lykilmenn haf a horfið „Ég vil segja sem minnsl því við höfum misst marga lykilmenn frá því i fyrra. Ungir menn hafa komið i þeirra stað og þá vantar að sjálfsögðu reynslu. Það var mikil blóðtaka að missa þá Valþór, Örn og Ársæl sem allir gengdu mikiivægum stöðum í liðinu. Við eigum líka titilinn að verja svo sumarið verður erfitt.” „Við höfum þó endurheimt Sigurlás Þorleifsson í staðinn og hann hefur komið mjög vel út i vorleikjunum. Varnarleikurinn gæti þó reynzt okkur þungur ískauti en ég á ekki von á öðru en við spjörum okkur”. „Við spiluðum við Blikana rétt eflir páska og unnum þá 1—0 og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að við sigrum þá aftur í fyrsta leiknum í íslands- mótinu,” sagði Tómas Pálsson og var greinilega bjartsýnn á sumarið. Eyjamenn komu mest allra liða á óvart í fyrra og enginn skyldi vanmeta þá að þessu sinni. -SSv. Dýri Guðmundsson: Baráttan á milli Vals, ÍA og Fram „Við verðum i baráttunni,” sagði miðvörðurinn trausti úr Val, Dýri Guðmundsson. Dýri hefur átt við slæm meiðsl í hné að striða en kvaðst gera sér góðar vonir um að vera mættur út á völl og í slaginn áður en langt um liði. „Ég held að baráttan um titilinn komi til með að standa á milli okkar Valsmanna, Skagamanna og Framara. FH gæti reyndar blandað sér þarna inn í og það hefur fengið sterka menn til liðs við sig. Eina liðið, sem gæti hugsanlega lent í vandræðum svona fyrirfram álitið er e.t.v. Keflavík en það hefur þó alltaf spjarað sig bezt þeg- ar við litlu hefur verið búizt af því. Leikur Vals og FH um helgina gæti orðið jafn og liðin þekkja litið hvort inn á annað svona til að byrja með. Ég verð þvi miður ekki með, en veit að strákarnir spjara sig.” -SSv. i

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.