Dagblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MAl 1980. 5 Þota með 150 manns „fórst” á Keflavíkurflugvelli Af slvsstaðnum. Slökkviliðið á Keflavfkurflugvelli var eldsnöggt á slysstaðinn og fljót-lega tóku að tfnast að bflar frá nálxgum slökkvistöðvum. Fólkinu var bjargað úr flakinu á skömmum tfma. DB-myndir: Ragnar Th. Sigurðsson. Mikil vinna var lögð f að farða hina slösuðu, svo að flugslysið liti sem raunverulegast út. Hér hefur einn meiðzt Iftillega á auga. Farþegaþota fórst á Keflavíkurflug- velli á slaginu klukkan þrjú í gærdag. Innanborðs voru 150 manns. Slökkvilið og björgunarsveitir komu þegar í stað á vettvang. Greiðlega gekk að slökkva í þotunni og var þegar í stað tekið til við að bjarga farþegunum út. Þeir voru umsvifalaust fluttir i slökkvistöð vallarins þar sem læknar og hjúkrunarlið tóku við þeim. Þar fór fram greining á farþegunum. Níutíu manns voru fluttir í sjúkrahús í Kefla- vík og Reykjavík, 45 létust, en fimmtán reyndust ómeiddir. Að sjálfsögðu gerðist þetta ekki í raunveruleikanum heldur var þarna um æfingu á viðbrögðum við flugslysi að ræða. Að æfingunni stóðu Almanna- varnanefnd Keflavíkurflugvallar í sam- vinnu við nefndirnar á Reykjanesi. Hundrað manns tóku þátt í æfingu þessari, mest sjálfboðaliðar sem ekki höfðu frétt af henni fyrirfram. Björgunar- og hjálparsveitir af Reykja- nesi og úr nágrannabyggðarlögum skunduðu þegar í stað til hjálpar og tóku þátt i að flytja hina slösuðu í sjúkrahús. þeirra hefðu brugðizt hárrétt við hefði um raunverulegt slys verið að ræða. Undirbúningur þessa flugslyss tók langan tíma. Ástæðan fyrir því að ein- mitt gærdagurinn var valinn til æfing- arinnar er sú að hér voru staddir sjötíu slökkviliðsstjórar af flugvöllum banda- ríska sjóhersins á ráðstefnu. Þeir fylgdust vandlega með björgunar- aðgerðunum, sem lauk um fimmleytið. Virtust þeir mjög ánægðir með störl þeirra, sem þar komu viðsögu. Að sögn Guðjóns Petersen fram- kvæmdastjóra Almannavarna liðu þrjár klukkustundir frá því að þotan fórst þar til allir hinir slösuðu voru komnir á sjúkrahús. Fimm voru fluttir á sjúkrahúsið i Keflavík, fjórtán í Landakot, 46 á Borgarspítalann og 22 i Landspítalann. Sjúkraflutningarnir gengu greiðlega, nema hvað nokkrar tafir urðu á vegarkaflanum milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur vegna mikillar umferðar. -ÁT- Farþegana léku dátar, skátar og fleiri sjálfboðaliðar. Sumir lifðu sig alveg inn I hlut- verk sin eins og þessar móðursjúku stúlkur, sem allt eins hefðu getað veríð að koma úr alvöru flugslysi. Hópur slökkviliðsstjóra af flugvöllum bandaríska hersins voru viðstaddir æfinguna. Hér fylgjast nokkrir þeirra með þvi er fólki var bjargað úr þotunni. „Við erum mjög ánægðir með viðbrögðin við þessu slysi,” sagði Sveinn Eiriksson slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli að æflngunni lokinni. ,,Viö gerðum auðvitað mistök, ein fimmtán hundruð, en af þeim lærum við. Við í slökkviliðinu vorum nánast þeir einu sem vorum í vinnunni við þessa æfingu. Flestir hinna urðu að fara úr vinnunni til hjálpar og tapa af þeim sökum af launum sínum þann tíma, sem björgunin stóð yfir. Þessu fólki erum við mjög þakklátir.” tslenzkir læknar tóku í fyrsta skipti þátt í flugslyssæfingu. Þeir voru ekki alveg reiðubúnir að leika hlutverk sin undirbúningslaust og kvörtuðu yfir þvi að enginn í slökkvistöð flugvallarins hefði sagt þeim hvað þeir ættu að gera. Bandarisku læknarnir gerðu lítið úr þessum vanda og kváðust þess fullvissir að islenzkir starfsbræður t slökkvistöó Keflavlkurflugvallar fór fram greining á hinum slösuðu og önnuðust hana bandarískir og fslenzkir læknar. Þaðan var fólkið slðan flutt með sjúkra- og hjálparsveitarbllum til Keflavikur og Reykjavikur. Markús Sigurður Jönas Ragnar Frelsieöa einokun! Framsögumenn: Markús öm An- tonsson útvarpsráðsmaður og Sig- urður G. Ólafsson útvarps virki. Fundarstjóri: dr. Jórtas Bjarnason, varaformaður Neytendasamtak- anna. Fundarritari: Ragnar Magnús- son, frá Fólagi farstöðvaeigenda. Borgarafundur um sjónvarpskerfi í fjölbýlishús- um. Á ríkið að stjóma tómstundum á heimilum fólks? Hótel Borg, laugardag 31. maf kl. 2. Undirbúningsnefnd félags um frjálsan útvarpsrekstur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.