Dagblaðið - 09.06.1980, Síða 20

Dagblaðið - 09.06.1980, Síða 20
„Voruð þið að skipta” — spurði annar línuvarð anna í leik Fylkis og ÍBÍ Sókndjarfir og baráttublaóir leikmenn Breiðabliks unnu Vikinga i Laugardal í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn einu og gat sigurinn orðið stærri því lokamínútur leiksins bókstaflega óðu Blikarnir í marktækifærum, enda Víkingar þá orðnir einum færri. Með sama áfram- haldi þurfa Blikarnir vart að óttast fall í aðra deild. Þvert á móti eiga þeir að geta unnið hvaða lið sem er, og ef þcir ráða bót á veilum sem eru i varnarleik þeirra ættu þeir að geta barizl um eitthvert ef efstu sætunum í deildinni. Breiðablik tók forystuna þegar á 6. minútu leiksins og var það marka- kóngur liðsins, Ingólfur Ingólfsson sem skoraði markið með skalla. Markið kom eftir slæm varnarmistök Vikinga. Róbert Agnarsson hugðist senda boltann á Magnús Þorvaldsson, sem þarna lék sinn 250. leik. Heigi Bentsson náði hins vegar knettinum af Magnúsi og komst einn innfyrir vörn Víkings. Diðrik hálfvarði skot hans, en Ingólfur Ingólfsson fylgdi vel eftir og skallaði knöttinn í netið, 1—0. Aðeins fjórum mínútum siðar jöfnuðu Víkingar. Þórður Marelsson skoraði þá gott mark með föstu skoti eftir sendingu frá Hinrik Þórhallssyni, 1 — 1. Eftir mörkin dofnaði yfir leiknum, liðin skiptust á um að sækja og um tíma leit út fyrir að leikurinn ætlaði að leysast upp i sama miðjuþófið og i hin- um hörmulega leik KR og Víkings á dögunum. Aðeins lifnaði yfir leiknum á lokamínútum hálfleiksins og þá fékk Aðalsteinn Aðalsteinsson gott marktækifæri við mark Blikanna og Vignir komst í gott færi hinum megin en hvorugt færanna tókst að nýta. Blikarnir komu mjög ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og einnig lifnaði nokkuð yfir framlínu Víkings en þeir Heimir Karlsson og Lárus Guðmunds- son komu inn á i staðinn fyrir Helga Helgason og Gunnlaug Kristmundsson. Sú ákvörðun þjálfara Víkings að skipta báðum varamönnunum inn á í hálfleik átti þó eftir að reynast mjög vafasöm því þegar nokkrar minútur voru til leiksloka meiddist Róbert Agnarsson og Vikingar léku þvi einum færri loka- mínúturnar. Fylkir og ísafjörður skildu jöfn, 0— 0, í leik liðanna I 2. deildinni á föstu- dagskvöld og voru þau úrslit i hæsta máta sanngjörn. Geta ísfirðingar vel við unað og hafa nú krækt sér i 5 stig úr fyrstu þremur leikjum sínum. Það voru varnir liðanna er réðu gangi leiksins á föstudag og ekki skapaðist oft veruleg hætta við markið. Tvivegis nötruðu þverslárnar þó eftir þrumuskot leikmanna úr aukaspyrn- um. Áttu ísfirðingar fyrst hörkunegl- ingu i þverslána en Fylkismenn svöruðu fyrir sig er Hilmar Sighvatsson skók þverslá marks ísfirðinga. Annars vakti það mesta athygli blaðamanns að annar línuvörðurinn virtist alls ekki starfi sínu vaxinn. Fylgdist illa með leiknum og virtist með hugann við flest annað en það sem gerðist á vellinum. Gáði hann til veðurs á milli þcss sem hann spókaði sig i blið- unni og spjallaði við nærstadda. Gekk svo langt að hann tók yfirhöfuð ekki eftir því er Fylkismenn skiptu einum af leikmönnum sínum útaf. „Strákar, voruð þið að skipta?” spurði hann undrandi er hann áttaði sig á því að einn leikmanna bar óþekkt númer. Varð piltur að gera svo vel að gefa skýringu á því hvi i ósköpunum hann hefði vogað sér inn á völlinn án þess að iáta línuvörðinn vita. Þarna hefði dómarinn átt að gripa inn i og gefa gult spjald. Góður sigur Þórsá65ára afmælinu Þórsarar hófu loks að leika í 2. deild- inni á föstudag og yfirspiluöu þá slaka Ármenninga á Akureyri. Sigurinn varð hins vegar ekki nema 3—0 og var það í minnsta lagi eftir gangi leiksins. Þór sótti stift ailt frá byrjun en Ármenningar áttu ekki minna í leiknum til að byrja með. Vörn þeirra og markvarzla var hins vegar óörugg og á 13. minútu kom fyrsta markið. Var það Óskar Gunnarsson er það skoraði eftir góða fyrirgjöf Guðmundar Skarp- héðinssonar. Annaö markið kom á 24. minútu og var þar Rúnar Skarphéðins- son að verki. Þriðja markið kom siöan strax i upphafi siðari hálfleiks og var í cign Guðmundar Skarphéðinssonar. -GS. Vafasamt víti Þróttur sigraði nágranna sina úr Austra 2—1 i hörkuleik á föstudag þar sem jafntefli hefði að flestra mati verið sanngjarnast. Björgúlfur Halldórsson skoraði fyrir Þrótt á 15. mínútu en Austramenn jöfnuðu metin eftir að markvöröur þeirra hafði varið vita- spyrnu. Var þar Hjálmar Ingvarsson að verki. Sigurmark Þróttar kom stöan um 5 min. fyrir leikslok úr vitaspymu. Þórhallur Jónasson skoraði úr því af öryggi. Réttlætinu fullnægt —er Haukar og KA skildu jöf n á laugardag Haukar og KA deildu með sér stigun- um í viðureign liðanna i 2. deild á laugardag. Lokatölur urðu 1—1 og verða að teljast sanngjörn úrslil þegar á heildina er litið. Telja má vist að bæði þessi lið komi til með að berjast um sigurinn i deildinni ásamt Fylki og ís- firðingum, sem virðast vera að ná sér aftur á strik eftir magurt sumar i fyrra. Það var Jóhann Jakobsson sem skoraði fyrra mark leiksins er skammt var til leikhlés. KA hafði sótt mun meira í fyrri hálfleiknum og forysta þeirra fyllilega verðskulduð. í siðari Heimsmet í sparakstri Óvenjulegt heimsmet var setl i Sydney i Ástralíu i gærdag. Carol Darwin, 20 ára símadama, setti þá. heimsmet í sparaksri er hún ók ökutæki sinu 2699 milur á einu galloni af bensini. Það þýðir að hún ók 950 kilómetra á hvcrjum lítra. Ærið merkilegur árangur atarna. Vélin var aðeins 10 kúbika mótor úr módelflug- vél. Gamla heimsmetið i slikum spar- akstri átti Breti siðan í fyrra. Meðalhraði Darwin var um 25 km/klsl. hálfleiknum sóttu Haukar mjög í sig veðrið og Ólafur Jóhannesson jafnaði metin með hálfgeröu heppnismarki. Hann spyrnti af um 20 metra færi. Knötturinn fór í einn varnarmanna KA og hoppaði síðan I markið án þess að Aðalsteinn markvörður, sém var kominn úr jafnvægi, fengi rönd við reist. Óskar Ingimundarson skoraði mark fyrir KA í fyrri hálfleiknum, sem virtist gott og gilt, en var dæmdur rang- stæður. Virtust menn ekki á eitt sáttir við þann dóm því um millimetraspurs- mál var að ræða í því tilviki. Þó hefði verið ósanngjarnt ef KA hefði farið norður með bæði stigin þannig að rétt- lætinu var fullnægt í leikslok. -SSv. Völsungur á topp 2. deildar Völsungar tylltu scr á toppinn í 2. deildinni um helgina með góöum sigri yfir Selfyssingum á Húsavík. Loka- tölur urðu 2—0 eftir að heimaliðið hafði leitl 1—0 i leikhléi. Völsungur hafði tögl og hagldir allan timann og sótti stíft. Selfyssingar fengu sárafá tækifæri sem eitthvað var spunnið i en létu samt ekki deigan síga. Það var fyrrum Fylkismaðurinn, Ómar Egilsson, sem skoraði fyrra mark Völsungs í fyrri hálfleiknum en í þeim siðari bætti Gisli Haraldsson öðru við. Völsungur hefur nú hlotið 6 stig úr fyrstu þremur leikjum sinum en þess ber þó að gæta að liðið hefur leikið við fremur létta mótherja til þessa. Staðan í 2. deildinni er annars þessi eftir þrjár umferðir: Völsungur 3 3 0 0 4—0 6 ísafjörður 3 2 1 0 7—4 5 KA 2 110 5—1 3 Haukar 3 111 5—6 3 Þór 1 1 0 0 3—0 2 Fylkir Þróttur Ármann Selfoss Austri 3 111 3—3 3 2 10 1 4—4 2 3 0 1 2 3—7 1 3 0 1 2 3—6 1 2 0 0 2 1—3 0 -GS/SSv. Smythe var sterkastur Des Smyth frá írlandi varð hlut- skarpastur i Newcastle 900 golfmótinu sem lauk um helgina. Hann kom inn á 276 höggum — höggi á undan Burroughs frá Englandi og Grcg Norman frá Ástraliu. Margir frægir kappar voru á meðal þátttakenda og má þar nefna Sandy Lyle (278), Peter Townsend (279) Hugh Baiocci (279), Brian Barnes (281), Tony Jacklin (282) og Bakdovina Dassau (283). Hinn marksækni framherji Breiðabliks Ingólfur Ingólfsson er nú næstmarkahæstur í 1. deild með 4 mörk. Hér er hann á fullri ferð í átt að marki Vikings í gærkvöldi. m -i)B-ni\nd:SS\. Barattuglaðir Blikar sigruðu Víkinga 2-1 —Sigurinn gat allt eins orðið stærri og Breiðablik virðist ekki líklegt til að standa í f allbaráttu í sumar Á 64. minútu komst Heimir Karlsson i dauðafæri við mark Breiða- bliks en Guðmundur Ásgeirsson mark- vörður Blikanna varð vel. Blikarnir brunuðu upp og endaði sókn þeirra með því að Sigurður Grétarsson skoraði mjög glæsilegt mark, þrumuskot í stöng og inn eftir slæm varnarmistök Víkinga. Tvívegis rétt á eftir fékk Sigurður góð marktækifæri sem ekki tókst að nýta. Eftir þetta tóku Víkingar að sækja meira en von þeirra um að ná jafntefli varð að engu þegar Róbert Agnarsson varð að yftrgefa völlinn á 83. minútu. Blikarnir voru óheppnir að bæta ekki við mörkum á lokamínútunum. Vignir, Sigurður og Ingólfur fengu þá allir tækifæri til að auka muninn en tókst ekki að nýta færin. Lið Breiðabliks er léttleikandi og skemmtilegt, skipað ungum og bar- áttublöðum leikmönnum. Sérstaklega eru framlínumennirnir Ingólfur Ing- ólfss., Sig. Grétarsson og Helgi Bentsson skemmtilegir leikmenn og Vignir er einnig mjög góður á miðjunni. Þór Hreiðarsson og Einar Þórhallsson, gömlu mennirnir í liðinu, láta ekki heldur sinn hlut baráttulaust. Guðmundur Ásgeirsson stóð fyrir sínu í markinu. Veikleiki liðsins virðist eink- um fólginn í bakvarðarstöðunum Iveimur. Lið Vikings olli vonbrigðum eins og , i leiknum gegn KR um daginn og virðist satt að segja ekki liklegt til afreka i sumar. Þórður Marelsson einn stóð upp úr með baráttu og dugnaöi, auk l þess sem mark hans var mjög fallegt. -GAJ. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.