Dagblaðið - 23.06.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
3
Forsetaembættið: æðsta
stjómmálastaða landsins
Spurning
dagsins
Finnst þér aö kaup þing-
manna ætti að hækka?
ustu
reynsl
Kristján Sigurðsson, Melhaga 15,
skrifar:
Gœfa fslenzku þjóðarinnar er m.a.
i þvi fólgin að maður með stjórn-
málareynslu og löggjafarþekkingu
veljist að Bessastöðum og sitji for-
setastól lýðveldisins Ísland — sá
fjórði i röðinni.
Þessi gæfa er í höndum okkar
kjósendanna hinn 29. júní næstkom-
andi. Og við réttum fram höndina og
heilsum henni á hátíðlegri stundu
með kosningu Alberts Guðmunds-
sonar.
Pétur hefur fengizt við stjórnmála-
menn allra flokka, starfað með
ráðherrum fjölmargra rikisstjórna
m.a. segir bréfritari.
DB-mynd Bjarnleifur.
Pétur
hefur
víðtæk-
Fyrsti forseti lýðveldisins, Sveinn
Björnsson var maður sem setið hafði
á Alþingi íslendinga, virtur stjórn-
málamaður, einn af stofnendum
Eimskipafélags íslands, sendiráðu-
nautur þjóðarinnar sinnar erlendis
og sonur merks stjórnmálamanns.
Þannig hafði hann öðlast viðtæka
þekkingu á löggjöf, stjórnsýslu og
réttarfari.
Annar forseti lýðveldisins Ásgeir
Ásgeirsson var maður vel menntur,
maður sem setið hafði um 35 ára bil á
Alþingi, maður sem verið hafði
forseti sameinaðs Alþingis á hátíð-
legri stundu 1930, maður sem gegnt
hafði stöðu fjármálaráðherra og
forsætisráðherra, bankastjórastöðu
og stöðu fræðslumálastjóra og var
því gjörkunnugur högum og þörfum
þjóðarinnar bæði á- veraldlega og
andlega visu. Og mikill stjórnmála-
friður rikti í landinu i forsetatið
Ásgeirs Ásgeirssonar — sem allir
þökkuðu þekkingu hans og reynslu af
stjórnmálum.
Það dylst væntanlega engum sem
um þetta hugsa að staða forseta
íslands er æðsta stjórnmálastaða
landslns, stjórnmáiastaða sem vissu-
lega á ekkert skylt við flokkastjórn-
mál en er aftur á móti svo þýðingar-
Albert Guðmundsson, mun gera forsetastólinn að Bessastöðum að virðingar- og
valdasæti, segir bréfritari.
DB-mynd Hörður.
mikil á stjórnmála- og stjórnsýslu- virðingar- og valdasæti, þar sem rétt-
sviðinu að framhjá þeirri staðreynd
verður ekki horft þó að sumir reyni
að gera svo.
Albert er vísastur til að gera
forsetastólinn á Bessastöðum að þvi
sýni og löghlýðni sitja í fyrirrúmi.
Af framansögðum ástæðum skora ég
á íslenzku þjóðina að kjósa Albert
Guðmundsson fjórða forseta íslands
hinn 29. júni næstkomandi.
Nú eru i framboði til forsetakjörs
fleiri frambjóðendur en nokkru sinni
fyrr, og er hér um valinkunna menn
að ræða. En hvað skal hafa í huga
þegar að kjörborðinu kemur?
Við viljum öll fá hæfan forseta og
fáum það vafalaust, burtséð frá þvi
hver frambjóðendanna verður
kosinn. Þá vaknar sú spurning,
hverjum þeirra treystum við bezt?
Forsetinn á að vera sterkur per-
sónuleiki, maður sem vaxið hefur af
verkum sínum, sjálfstæður, gæddur
skipulagsgáfu, staöfastur, með viðan
sjóndeildarhring og vel heima í þjóð-
málum og alþjóðamálum.
Fólk á að hafa meðal annars þessa
þætti í huga, þegar það ákveður
hvern af frambjóðendunum þeir ætla
að styðja, en ekki, af hvaða kyni þeir
eru, eða hver sé hæð, þvermál eða
þyngd. Það er maðurinn sjálfur, sem
skiptir öllu máU.
En ein spurning vekur oft
aðra, eins og til dæmis hver fram-
bjóðendanna hafi víðtækustu
reynsluna og hver þeirra hafi mestu
reynsluna í að starfa með stjórnmála-
mönnum allra flokka og að skilja
póUtískar veðurfarsbreytingar og
sigla þar á milli skers og báru, í þeim
krappa sjó sem islenzk póUtík er.
Svar mitt við þessum spurningum
er,- Sendiherrann og ráðuneytis-
stjórinn, sem um 36 ár hefur fengizt
við stjórnmálamenn allra flokka, og
starfað með ráðherrum fjölmargra
rikisstjórna og greitt götu þeirra
bæði hérlendis og erlendis, og komið
margsinnis fram fyrir hönd islenzku
þjóðarinnar.
Stuðlum að kjöri trausts skipstjóra
á þjóðarskútuna.
Styðjum Pétur og Oddnýju.
Kristján Sævar Pálsson,
Bolungarvík.
HSH precision
= Hjöruliðir
<onlinenlal
I
Viftureimar
Einnig eru tímareimar og tímakeðjur fáanlegar í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla.
Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliði og skildar vörur. Sendum
land allt.
FAG
Kúlu- og rúllulegur
TIMKEN
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Jónas Bjarnason, rukkari: Er ekki bezt
að spyrja þá sjálfa.
Hörður Ingvason, trésmlður: Nei, það
held égekki.
Bjarnfriður Ámadóttir, bankastarfs-
maður: Nei, alls ekki.
Guðmundur ÓU Ólason, prentari: Ertu
vitlaus maður, þau eru alltof há.
í .
Sigurbjörg Elnarsdóttir, verzlunar-
stúlka: Nei, mér finnst ekki rétt að þeir
fái hærra kaup.
Stefán Sigurðsson, vlnnur i Alþingi:
Nei, mér finnst ekki ástæöa til þess eins
og stendur.