Dagblaðið - 23.07.1980, Page 12

Dagblaðið - 23.07.1980, Page 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. JCLÍ1980. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir -micro Sýningarskúta okkar, GEM, er til sölu. Sýningarskúta okkar, GEM, er nú til sölu. Hún er búin öllum þeim seglum er þarf til keppni og fjölskyldusiglinga. GEM er með uppdraganlegan stálkjöl og er því auðveld í flutningum. Flutningavagn með bremsu- og Ijósabúnaði fylgir. í siglingakeppni sem haldin var vegna Íþróttahátíðar 1980 var GEM í ööru sæti, þ.e. 40 sek. á eftir fyrsta báti. istækni llf. Ármúla 22 — Símar 34060— 34066. Vladimir Sainikov, (vítugur hrokkin- hærður stúdent frá Leningrad, sigraði með gífurlegum yfirburðum í 1500 m skriðsundi á ólympluleikunum i Moskvu í gær. Setti heimsmet. Synti á 14:58.27 mín. og er fyrsti maðurinn i heiminum, sem syndir vegalengdina innan við 15 minútur. Innan við min- útu hverja 100 metra. Undravert. Bandariski ólympiumeistarinn og Sundkeppnin á ólympíuleikunum í Moskvu: Hrokkinhærður Leningradbúi stakk aðra af í 1500 metrum —Setti heimsmet og synti innan við 15 mínútur. Breti ólympíumeistari í 100 m bríngusundi og sigurganga austur-þýzku stúlknanna heldur áf ram heimsmeistarinn 1978, Brian Goodell, USA, átti eldra heimsmetið 15:02.40 min. sett i Montreal fyrir fjórum árum. Áður en Bandarikjamenn ákváðu að keppa ekki á ólympiuleikunum var talið að keppni Salnikov og Goodell yrði einn af hápunktum Moskvu-leik- anna. í gær synti Salnikov hverja 100 m á nákvæmlega 60 sekúndum en gaf svo vel i á síðustu 200 metrunum og bætti heimsmetið. „Tíminn sannar að ég er bezti sundmaðurinn i heiminum á þessari vegalengd,” sagði sovézki ris- inn eftirsundið. | Gífurleg keppni var um annað sætið |og þar sigraði Alexander Chaev, Sovét- irikjunum, Ástralíumanninn Max Metzker. Það var fyrst á ólympíuleik- (unum í MUnchen 1972, sem 1500 m voru syntir innan við 16 mín. af Mike Burtun, USA. Nú syntu allir átta kepp- endurnir í úrslitasundinu langt innan við lómínútumar. Bretinn Duncan Goodhew sannaði, (að hann er fljótasti bringusundsmaður heims, þegar hann sigraði örugglega í 100 m bringusundinu í Moskvu í gær. .Sigur, sem nær allir höfðu reiknað með. Alexander Fedorovsky, Sovét- rikjunum, hafði forustu fyrstu 50 metrana en Goodhew, sem er 23ja ára, náði forustunni strax eftir snúninginn. Eftir það voru gullverðlaunin örugg- jega hans, þó annar Sovétmaður, Arsen (Miskarov, veitti honum um tíma nokkra keppni. j Yfirburðir austur-þýzku stúlknanna jhéldu áfram í sundlauginni. Voru í þremur fyrstu sætunum í 400 m skrið- Jsundi. Hin 16 ára Ines Diers sigraði. Tvær þær fyrstu syntu á betri tíma en Igamla ólympíumetið. j í undanúrslitum í 100 m flugsundi náði hollenzki risinn Kees Vervoorn beztum tíma, 55.02 sek., — aðeins betri en sænski heimsmethafinn Per Arvidsson, sem synti á 55.05 sek. David Lopez, Spáni, varð þriðji á 55.47 sek. og Bretinn Gary Abraham fjórði á ;55.53 sek. Þrátt fyrir þessa tíma er Sví- inn talinn hafa mesta möguleika að hljóta gullverðlaunin í úrslitasundinu í dag. í riðlakeppni í 100 m baksundi kvenna náðu tvær austur-þýzkar stúlk- ur beztu tímunum. Rica Reinisch setti nýtt heimsmet — 1:01.50 mín. 1500 m skriösund, úrslit: Ólympíu- og heimsmet 15:02.40 mín. Briun Goodell, USA, 1976. 1. Vladimir Salnikov, Sovét, 14:58.27 2. Alexander Chaev, Sovét, 15:14.30 ,3. Max Metzker, Ástralíu, 15:14.49 4. RainerStrohbach, A-Þýzkl. 15:15.29 5. Borut Petric, Júgóslavía, 15:21.78 6. Rafael Escalas, Spáni, 15:21.88 7. Zoltan Wladar, Ungverjal. 15:26.70 8. Eduard Petrov, Sovét, 15:28.24 100 m bringusund karla, úrslit: 1. Duncan Goodhew, Bretlandi.l :03.34 2. Arsen Miskarov, Sovét, 1:03.82 3. Peter Evans, Ástraliu, 1:03.96 4. Alexander Ferorovsky, Sov. 1:04.00 5. Janos Dzvonyar, Ungverjal. 1:04.67 6. Lindsay Spencer, Ástralia, 1:05.04 7. Pablo Restrepo, Kolombíu, 1:05.91 Alban Vermes, Ungverjalandi, var dæmdur úr leik. 400 m skriösund kvenna, úrslit: Ólympiumet 4:09.89 min. Petra Thue- mer, A-Þýzkalandi 1976. Heimsmet 4:06.28 Tracey Wickham, Ástraliu, 1978. 1. Ines Diers, A-Þýzkalandi, 4:08.76 2. Petra Schneider, A-Þýzkal. 4:09.16 3. CarmelaSchmidt, A-Þýzkal. 4:10.86 4. Micheile Ford, Ástraliu, 4:11.65 5. Irina Aksynovoa, Sovét, 4:14.40 6. Annelies Maas, Hollandi, 4:15.79 7. Reggiede Jong, Hollandi, 4:15.95 8. Olga Klevakina, Sovét, 4:19.18 Nú lágu Danir í því! Danir lágu óvænt fyrir Spánverjum á ólympiuleikunum i gærdag er þjóðirn- ar mættust i handknattleikskeppni leik- anna. Spánverjar sigruðu 20—19 i æsi- spennandi leik og er nú hætt við að Dönum hafi mislikað. Júgóslavár unnu Ungverja 19—10, sfðan Svlss 26—21. Þá slgruðu A-ÞJóöverJar Tékka 16— 10. í knattspyrnunni unnu Sovétmenn Zambfu 3—1, Spánverjar og Sýrland gerðu jafntefli 0—0, Kúba sigraði Venezúela 2—1. í körfuknattleikskeppninni sigruðu Júgóslavar Pólverja 129—91 og aðrir leikir voru ekki á dagskrá. í blakkeppninni unnu Búlgarir Kúbu 3—1, ítalir Tékka 3—2 og Pólverjar unnu Rúmena 3—1 en Pólverjar eru núverandi ólympiumeistarar i blaki. Blikar sluppu naumlega fyrir horn á Siglufirði —sigruðu 3. deildarlið staðarins 2-0 í bikamum í gærkvöld Breiðabliksmenn komust heldur betur i krappan dans norður á Siglu- firði i gærkvöld er þeir mættu 3. deild- arliði staðarins i 8-liða úrslitum bikar- keppni KSÍ. Þeim tókst að sigra 2—0 eftir mikinn barning þar sem heimalið- ið átti sizt minna i leiknum. Gffurlegur áhugi 'var fyrir leiknum á Siglufirði og lætur nærri að allir þeir sem vettlingi gátu valdið hafi verið saman komnir á vellinum. Leikurinn hófst kl. 20 í gær en kl. 18 voru öll bflastæði i kringum völlinn full. Menn komu einfaldlega snemma og lögðu bilum sinum og löbb- uðu svo heim i mat, til að vera nú öruggir um að enginn stæli stæðinu. KS sótti mikið allan leikinn en tókst illa að opna Blikavörnina. Þó virtist sem mikillar taugaveiklunar gætti hjá þeim og ekki er gott að segja hvernig farið hefði ef Breiðablik hefði ekki fengið vítaspyrnu á 9. mínútu. Úr henni skoraði Sigurður Grétarsson af öryggi að vanda. Mjög umdeilt atvik gerðist um miðj- an fyrri hálfleikinn. Þá myndaðist mikil þvaga fyrir framan mark Blik- ’anna. Upp úr henni átti einn Siglfirð- ingurinn skot á mark en Einar Þór- |hallsson bjargaði á marklínu. Margir vildu halda því frám að hann hefði spyrnt knettinum fyrir innan marklinu en ágætur dómari leiksins, Guðmundur Sigurbjörnsson, var ekki ásama máli. Þegar liðið var fram yfir venjulegan leiktíma bætti Þór Hreiðarsson svo við öðru marki Blikanna og innsiglaði sig- urinn, sem var þó á tæpasta vaði. Minnir leikur þessi í alla staði mjög svo á heimsókn Valsmanna í bikarnum 1978. Valur sigraði þá 2—0 í hörkuieik. -BÁ. Þór Hreiðarsson (t.v. á myndinni) og félagar hans komust í krappan dans á Siglufirði i gærkvöld. Þór skoraði sið- ara mark liðs sins er komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Övænt tap Reynismanna í B-riðlinum — keppnin í 3. deildinni komin vel á veg í öllum riðlunum og víðast hvar hörkukeppni að vanda eina markið og var þar að verki Sig- urður lllugason. Heimaliðið sótti mjög stíft allan fyrri hálfleikinn og fékk færi á að jafna er dæmd var vítaspyrna á Magna. Hún nýttist ekki sem skyldi og því var staðan óbreytt í hálfleik. Hringur Hreinsson bætti síðan við tveimur mörkum í síðari hálfieiknum og tryggði Magna góðan sigur. Stefnir nú í hörkueinvígi KS og Magna þar sem Árroða-menn virðast vera að leysast upp í einum allsherjar glundroða. -GSv. KS-Árroðinn 3—0 (0—0) KS sigraði Árroðann 3—0 í frekar jöfnum leik á Siglufirði á laugardag. öll mörk SiglFirðinga voru skoruð á sjö mínútna kafla um miðjan síðari hálf- leik. Jafnræði var með liðunum lengi vel en á 65. mín. skoraði Sigurjón Er- iendsson fyrsta mark KS beint úr horn- spyrnu. Það setti leikmenn Árroðans heldur betur úr sambandi um stund því rétt á eftir renndi Þorgeir sér í gegnum- vörn þeirra og skoraði. 2—0. Á 72. mín. skoraði Björn Sveinsson þriðja mark KS — komst frír að markinu. Síðan jafnaðist leikurinn aftur og fleirij mörk voru ekki skoruð. Dómgæzla Rafns Hjaltalín var sæmileg. -BÁ. Staðan í riðlinum: Magni 6 3 12 15- 9 7 KS 5 2 2 1 11- 6 6 HSÞb 5 2 2 1 8- 7 6 Árroðinn 6 2 2 2 9-12 6 Leiftur 6 114 5-14 3 E-riðill Reynir-USAH 5-1 (2-1) Reynismenn höfðu tögl og hagldir allan tímann og aldrei var vafi um sig-' urinn. Felix Jósafatsson skoraði strax í upphaFi fyrir heimamenn og Jens Sig- urðsson bætti öðru marki við. Siðan lagaði Hafliði Kristmundsson stöðuna en í síðari hálfleik jókst sóknarþungi Reynismanna enn um allan helming. Garðar Níelsson, Björn Friðjónsson 2, skoruðu hin mörk Reynismanna. -GSv. Dagsbrún-Efling 6—1 (3—1) Þar kom að því að Dagsbrúnarmenn i unnu enda var mótstaðan í algeru lág-, marki. Lítið er um leikinn að segja ann- að en það að heimaliðið hafði yfirburði | eins og tölumar gefa glöggt til kynna. i Zophonías Árnason skoraði þrennu, Björgvin Steindórsson 2 og Hafþór Helgason 1 fyrir Dagsbrún en Þórarinn Iilugason skoraði fyrir Eflingu. -GSv. Staðan í riðlinum: Reynir 6 5 0 1 18- 6 10 Tindastóli 5 5 0 0 13- 1 io; Efling 6 2 0 4 8-24 4| Dagsbrún 6 1 0 5 9-10 2 USAH 5 1 0 4 6-13 2i F-riðill Einherji-Leiknir 2-0 (0-0) Sennilega er það einsdæmi hérlendis að þrír leikmenn úr sama liðinu séu í leikbanni í sama leiknum. Það henti lið Leiknir gegn Einherja og var því bjartsýnin ekkert yFirgnæfandi í þeirra herbúðum að vonum. Einherji sótti mjög allan fyrri hálfleikinn og voru Leiknismenn þá heppnir að fá ekki á sig mark eða mörk. M.s. small knöttur- inn í þverslá marks Leiknis og víta- spyrnu var sleppt á gestina. í upphafi síðari hálfleiks gerðist síðan nokkuð umdeilt atvik. Einn leik- manna Leiknis brunaði þá upp völlinn, lék á eina 4 leikmenn áður en hann gaf á Ólaf Ólafsson. Hann lék á tvo tU við- bótar en var þá illa hrint innan víta- teigs, nálægt vítapunkti. Allir bjuggust við vítaspyrnu en síðan var aðeins dæmd aukaspyrna og brotið fært út fyrir teig!!! Á 60. minútu kom svo fyrra mark Einherja. Ólafur Ár-, mannsson, sennilega hæsti leikmaður íslandsmótsins, 2,05 m, stökk þá hæst allra eftir hornspyrnu og skaliaði í netið. Er um 10 mín. iifðu af leiktím- anum skoraði Aðalbjörn Björnsson síðara mark Einhverja. Súlan-Valur 2—1 (0—0) Óheppnin ríður ekki við einteyming jhjá þeim Valsmönnum. Þeir tóku for- ;ustu í leiknum með marki Rúnars Sig-! úrjónssonar og fengu rétt á eftir víta-í spyrnu. Jens Einarsson, landsUðsmark- vörður úr handknattleiknum, gerði sér þá lítið fyrir og varði með tilþrifum. Síðan jafnaði Súlan með marki hand- knattleiksmannsins Ársæls Hafsteins- sonar (úr ÍR) og sigurmarkið skoraði Öttar Ármannsson en ekki er hægt að: segja annað en Stöðfirðingar hafi isloppið naumlega fyrir horn þarna. \ Pétur kemur —Péturfer — Pétur Bjarnarson verður þjálfari Aftureldingar íhandknattleiknum Pétur Bjarnarson, kunnasti hand- knattleiksþjálfari á íslandi, mun þjálfa leikmenn Aftureldingar, sem leika i 2.} deild, næsta keppnistímabil. Æfingar eru meira að segja þegar hafnar hjá Aftureldingu — æft á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19.30 i iþróttahúsinu | að Varmá. Stefnan sett á 1. deildina. Pétur Jóhannesson, sem hefur þjálf- að og leikið með Aftureldingu, mun leika með Fram næsta keppnistímabil. Hefur tilkynnt félagaskipti. Stefán Gunnarsson, leikmaðurinn kunni f Val, mun þjálfa og leika með Árbæjarliðinu Fylki í 1. deild næsta keppnistimabil. -hsíni. mínútu er Jósep Ólafsson kom gestun- úm á bragðið með ágætu marki. Var það eins og vítamínsprauta á Grindvík- ingana, sem höfðu dyggan stuðning að- dáenda sinna að heiman. Þrátt fyrir það tókst Helga Þorvaldssyni að jafna fyrir Hveragerði á 6. mínútu. Það var þó allt sem heimaliðið megnaði því mörkunum rigndi niður. Haukur And- résson bætti öðru markinu við á 38. mín., hörkunegling í vinkilinn. Einar J. Ólafsson kom UMFB í 3—1 á 40. mín- útu og mín. síðar skoraði Sigurgeir Guðjónsson sitt fyrsta mark af fjórum. Síðari hálfleikurinn var varla hafinn er Sigurgeir bætti enn stöðuna, 5—1. Haukur Andrésson var aftur áferðinni á 62. minútu og Sigurgeir átti svo tvö síðustu mörkin á 67. og 82. mínútu. Hefur hann nú skorað 10 mörk í þremur ieikjum, en lengst af á ferlinum lék hann stöðu miðvarðar. -gh/-SSv. Víðir-Afturelding 1 -0 (0-0) j Með þessum sigri sínum hafa Víðis- ,menn að öllum líkindum tryggt erki- óvinum sínum úr Grindavik sigurinn í B-riðlinum. Víðir átti mun meira í þessum leik allan tímann en tókst aðeins að skora eitt mark þrátt fyrir mýgrút tækifæra. Mark þetta var af allra ódýrustu gerð. Daníel Einarsson miðherji var eitthvað að gaufa með knöttinn við vítateigslínu og fann eng- an samherja. Sendi hann þá knöttinn laust frá sér i átt að markinu og varð vafalítið enn meira undrandi en allir aðrir til samans er hann uppgötvaði að tuðran lá í netinu. Hafði markvörður Aftureldingar, sem átti annars góðan Jleik, misreiknað sig illa þarna. '-emm. Grótta-Njarðvik 0—0 Þessi leikur var ekki tíðindamikill og Gróttumenn sýndu hæfilegt kæruleysi að þessu sinni. Skröpuðu rétt svo í lið og Árni Guðmundsson, miðherji, plantaði sér í markið. Það kom sér þó ekki illa því hann gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu frá Hauki Jóhanns- syni um miðjan fyrri hálfleikinn. Þetta var bezta tækifæri leiksins til að skora og gerðist fátt markvert í síðari hálf- leik. Staðan i riðlinum: Grindavík 8 7 0 1 24- 7 14 Njarðvík 7 4 3 0 15- 6 11 Afturelding 8 5 1 2 16- 9 11 Víðir 8 4 1 3 23-12 9 Grótta 8 1 3 4 9- 15 5 Stjarnan 7 2 0 5 13-22 4 Hveragerði 8 1 0 7 7-36 2 C-riðill H ÞV-Skallagrímur 2-2 (1-2) Þetta var tækifæri HÞV-manna til að komast í efsta sæti riðilsins en Skallagrímsmenn voru ekki á þeim buxunum að láta toppsætið af hendi átakalaust. Gunnar Jónsson náði for- ystunni fýrir Skallagrim um miðjan fyrri hálfleikinn en Sæmundur Víg- lundsson jafnaði skömmu síðar fyrir HÞV. Gunnar var aftur á ferðinni litlu síðar og kom gestunum í 2—1. Elís Víg- lundsson, bróðir Sæmundar, jafnaði fyrir HÞV um miðjan síðari hálfleikinn eftir slæm mistök markvarðar. Undir lokin fékk HÞV tvö dauðafæri, sem ekki nýttust. b./-SSv. Snæfell-Reynir 5—0 (5—0) Þrátt fyrir látlausa sókn allan leikinn tókst Snæfellingum aðeins að skora í fyrri hálfleik og notuðu þar að auki ekki vítaspyrnu er þeir fengu. Reynis- liðið hafði lítið i heimamenn að segja og áður en yfir lauk voru mörkin orðin Fimm en hefðu þó getað orðið mun fleiri. Þau skoruðu: Pétur Rafnsson 2, Sævar Gunnleifsson, Davíð Sveinsson og eitt var sjálfsmark. ÞIN/-SSv. i Staðan í riðlinum: Skallagrímur Bolungarvík HÞV Víkingur Snæfell Reynir D-riðill Leiftur-Magni 0-3 (0-1) Magnamenn léku gegn sterkum vindi í fyrri hálfleik en skoruðu engu að síður 50 f rumreglur í golf i athugaðar með aðstoð Bogga blaðamanns Teiknarinn snjalli, Ragnar Lár, sem er mikill golfáhugamaður, hefur gefið út bók i nafni vinar sins Bogga — 50 frumreglur i golfleik. Litla bók, sem fer þægilega i rassvasa golfmanna. Eins og nafnið ber með sér er þarna farið yfir frumreglur golfíþróttarinnar og teikning af Bogga á öllum blað- síðum. Bókinni er ætlað að auðvelda kylfingum íþrótt sína en fáar eða engar íþróttagreinar byggja á jafn-flóknum reglum og einmitt golfið. Fyrirmynd að bókinni er amerisk en Boggi gerir hana isienzkarí en flest. Frímann Gunnlaugsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, las handrit að bókinni. Hann er vei að sér í golfregl- um og Konráð Bjarnason, formaður Golfsambands íslands, hefur fagnað útgáfu þessa litla, smekklega kvers. •hsím. Jæja, góðir hálsar, þá er það þríðja deildin rétt eina ferðina. Um helgina voru leiknir einir 15 leikir viðs vegar um landið og að vanda birtum við úr- slitin i þeim hér á eftir svo og stöðuna i riðlunum. Einu viljum við þó koma á framfæri áður en lengra er haldið og það er ábending til þeirra Óðinsmanna að hafa endilega samband við iþrótta- síðuna þótt þeir tapi leikjum sínum. Einu úrslitin sem komu verulega á óvart um helgina var tap Reynis fyrir Leikni en þeir Breiðholtsbúar eru svo sannarlega undarlegir á mörgum sviðum. Eru búnir að missa af öllum möguleikum i riðlinum en taka svo upp á þvi að vinna efsta liðið. En hvað um það.hér byrjumvið. A-riðill ÍK-Óðinn 5-3 (1-1) Þetta var hrökuleikur. Tvívegis var jafnt — síðast 2—2 en síðan tóku ÍK- menn leikinn í sínar hendur. Kópa-I vogsliðið hefur nú náð Reyni, Sand-, gerði, að stigum en harla verður það að| teljast ólíklegt að þeir vinni riðilinn. Tilj gamans má geta þess að í fyrri leik lið- anna, sem fram fór I Sandgerði, sigraði Reynir 8—0!!! Hvað um það, mörk ÍK, gegn Óðni skoruðu þeir Jóhann Sæv- arsson 2, Ólafur Pedersen 2 og Ingimar| Bjarnason. Þá brenndi ÍK af víta- spyrnu að auki. -SSv. Leiknir—Reynir 2—1 (0—1) Þetta var hðrkuleikur og voru 4 gul spjöld á lofti áður en yfir lauk. Gestirn- ir höfðu undirtökin t fyrri hálfleiknum og náðu þá forystunni. Leiknismenn voru þó ekki á því að gefa sig í s.h. og náðu að skora tvívegis. Fyrst jafnaði Þorsteinn ögmundsson metin og síðan skoraði Kjartan (hvers föðumafnið vantar) sigurmarkið. -SSv. Katla—Léttir 2—6 (1—3) Þeir vom „léttari á sér gestirnir framan af og komust þá í 3—0. Um miðjan fyrri hálfleikinn tóku heima- menn við sér og skoruðu eitt mark sitt hvorum megin við hálfleik og minnk- uðu muninn í 2—3. Árreynslan hafði hins vegar farið endanlega með úthald- ið og það sem eftir lifði skoruðu Léttis- menn þrivegis til viðbótar án svars frá heimamönnum. Það er því hægt að segja um Kötlu-menn að þeir eru eins og eldfjallið fræga — algerlega óút- reiknaniegir. Mörk Kötlu skoruðu Sæ- mundur Runólfsson og Salvar Júlíus- son. Fyrir Létti skoruðu Svavar Guðnason 2, Þórir Jóhannsson, Sig- urður örn Sigurðsson, Kristinn Hjalta- son og Sverrir Gestsson. Staðan í riðlinum er þá þessi: Reynir ÍK Leiknir Léttir Óðinn Katla Hekla Briðill Hveragerði-Grindavflc 1—8 (1-4) Ekki hafði þessi leikur staðið nema frískandi jógurtdiykkur hollur svaíandi Skiptingverðlauna íMoskvu til þessa Skipting vcrðlauna á ólympiuleikunum hefur verið þannig til þessa: gull silfur brons alls Sovétrikin 10 8 3 21 A-Þýzkaland 5 8 5 18 Ungverjaland 2 1 2 5 Bretland 1 2 — 3 Kúba 1 — — 1 Grikkland 1 — — 1 ítalia 1 — — 1 Sviþjóð 1 — — 1 Búlgaría — 1 2 3 Norður-Kórea — 1 1 2 Rúmenia — 1 1 2 Ástralia — — 4 4 Pólland — — 2 2 Tékkóslóvakfa — — 1 1 Jamaic — — 1 1 Sovétmenn sigruðu með yf irburðum íflokkafimleikum Sovétmenn sigruðu með yfirburðum i flokka- keppni karla I fimleikum, sem lauk í gær. Hlaut sovézki flokkurinn rúmlega 8 stigum meira en næsta lið, sem var A-Þýzkaland en þessar tvær þjóðir einoka algerlega verðlaunin á leikunum. Sovétmenn hlutu 589,6 stlg, A-Þjóðverjar 581,15, Ungverjar 575,00 Rúmenía, Búlgaria 571,55, Tékkóslóvakia 569,8, Kúba 563,2, Frakkland 559,20, Noröur- Kórea 551,35. Landsliðið ífrjálsum valið fyrir Kalott-keppnina Landslið íslands i frjálsíþróttum sem keppa mun i Kalottkeppninni hefur nú verið valið. Alls eru i lið- inu 23 karlar og 16 konur. Nýllðar i karlaliðinu eru þeir Magnús Haraldsson, Unnar Vilhjálmsson, Kári Jónsson, og Krístján Gissurarson. Nýliðar i kvenna-i liðinu eru Sigurbjörg Karlsdóttir, Helga Unnarsdótt- ir, og Elín Gunnarsdóttir. Þeir sem mesta reynsluna hafa eru hins vegar Val- björn Þorláksson og Erlendur Valdemarsson, i karlaliðinu en Guörún Ingólfsdóttir og Lilja Guð- mundsdóttir i kvennaliðinu. Kalottkeppnin fer fram i Reykjavik 9. og 10. ágúst nk. og verða keppendur 240. Keppnin er landshluta- keppni f frjálsiþróttum milli Norður-Finna, Noröur- Svia, Norður-Norðmanna og íslendinga. Liðstjóri islenzka liðsins er Magnús Jakobsson og er hann einnig einvaldur við val þess. Landslið — karlar: 100 m: Oddur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson. 200 m: Oddur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson. 400 m: Oddur Sigurðson, Aðalsteinn Bernharðsson. 800 m: Jón Diðriksson, Gunnar PáU Jóakimsson. 1500 m: Jón Diðriksson, Gunnar PáU Jóakimsson. 5000 m:. Jón Diðriksson, Ágúst Þorsteinsson. 10000 m: Gunnar Snorrason, Magnús Haraldsson. 110 m gr.: Elías Sveinsson, Stefán Hallgrímsson. 400 m gr.: j Aðalsteinn Bernharðsson, Stefán hallgrímsson. 3000 m hindr.: Sigurður P. Sigmundsson, Ágúst Ásgeirs- son. Hástökk: Unnar VUhjálmsson, Stefán Friðleifs- son. Langstökk: Jón Oddsson, Friðrik Þór Óskars- son. Þrístökk: Friðrik Þ. Óskarsson, Kári Jónsson. Stangarstökk: Kristján Gissurarson, Valbjörn Þor- láksson. Kúluvarp: Hreinn Halldórs- son, Óskar Jakobsson. Kringlukast: Óskar Jakobs- son, Erlendur Valdemarsson. Spjótkast: Sigurður Einarsson, Einar Vilhjálmsson. Sleggjukast: Er- lendur Valdemarsson, Óskar Jakobsson. 4x100 m boðhlaup: Oddur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson, Aðalsteinn Bernharðsson, Vilmundur Vilhjálmsson. 4 x 400 m boðhlaup: Oddur Sigurðsson, Aðalsteinn ■Bernharðsson, Stefán Hallgrímsson, Þorvaldur Þórsson. Landslið — konur: 100 m: Helga HaUdórsdóttir, Oddný Árnadóttir. 200 m: Helga Halldórsdóttir, Oddný Árnadóttir. 400 m: Sigríður Kjartansdóttir, Rut Ólafsdóttir. 800 m: Rut Ólafsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir. 1500 m: Ragnheiður Ólafsdóttir, LUja Guðmundsdóttir. 3000 m: Lilja Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Karls- dóttir. 100 m gr: Helga Halldórsdóttir, Þórdís Gísla dóttir. 400 m gr.: Sigurborg Guðmundsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir. Hástökk: Þórdís Gísla- dóttir, María Guðnadóttir, Langstökk: Helga HaU- dórsdóttir, Þórdís Gísladóttir. Kúluvarp: Guðrún Ingólfsdóttir, Helga Unnarsdóttir. Kringlukast: Guðrún Ingólfsdóttir, Elin Gunnarsdóttir. Spjót- kast: DýrFinna Torfadóttir, íris Grönfeldt. 4x100 m boðhlaup: Helga Halldórsdóttir, Oddný Árna- dóttir, Sigríður-Kjartansdóttir, Þórdís Gisladóttir. 4 x 400 m boðhlaup: Helga Halldórsdóttir, Sigríður Kjartansdóttir, Oddný Árnadóttir, Rut Ólafsdóttir.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.