Dagblaðið - 23.07.1980, Síða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. JCLÍ1980.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
-micro
Sýningarskúta okkar, GEM, er til sölu.
Sýningarskúta okkar, GEM, er nú til sölu. Hún er búin öllum þeim seglum er þarf til
keppni og fjölskyldusiglinga. GEM er með uppdraganlegan stálkjöl og er því auðveld í
flutningum. Flutningavagn með bremsu- og Ijósabúnaði fylgir.
í siglingakeppni sem haldin var vegna Íþróttahátíðar 1980 var GEM í ööru sæti, þ.e. 40
sek. á eftir fyrsta báti.
istækni llf. Ármúla 22 — Símar 34060— 34066.
Vladimir Sainikov, (vítugur hrokkin-
hærður stúdent frá Leningrad, sigraði
með gífurlegum yfirburðum í 1500 m
skriðsundi á ólympluleikunum i
Moskvu í gær. Setti heimsmet. Synti á
14:58.27 mín. og er fyrsti maðurinn i
heiminum, sem syndir vegalengdina
innan við 15 minútur. Innan við min-
útu hverja 100 metra. Undravert.
Bandariski ólympiumeistarinn og
Sundkeppnin á ólympíuleikunum í Moskvu:
Hrokkinhærður Leningradbúi
stakk aðra af í 1500 metrum
—Setti heimsmet og synti innan við 15 mínútur. Breti ólympíumeistari í 100 m
bríngusundi og sigurganga austur-þýzku stúlknanna heldur áf ram
heimsmeistarinn 1978, Brian Goodell,
USA, átti eldra heimsmetið 15:02.40
min. sett i Montreal fyrir fjórum árum.
Áður en Bandarikjamenn ákváðu að
keppa ekki á ólympiuleikunum var
talið að keppni Salnikov og Goodell
yrði einn af hápunktum Moskvu-leik-
anna. í gær synti Salnikov hverja 100
m á nákvæmlega 60 sekúndum en gaf
svo vel i á síðustu 200 metrunum og
bætti heimsmetið. „Tíminn sannar að
ég er bezti sundmaðurinn i heiminum á
þessari vegalengd,” sagði sovézki ris-
inn eftirsundið.
| Gífurleg keppni var um annað sætið
|og þar sigraði Alexander Chaev, Sovét-
irikjunum, Ástralíumanninn Max
Metzker. Það var fyrst á ólympíuleik-
(unum í MUnchen 1972, sem 1500 m
voru syntir innan við 16 mín. af Mike
Burtun, USA. Nú syntu allir átta kepp-
endurnir í úrslitasundinu langt innan
við lómínútumar.
Bretinn Duncan Goodhew sannaði,
(að hann er fljótasti bringusundsmaður
heims, þegar hann sigraði örugglega í
100 m bringusundinu í Moskvu í gær.
.Sigur, sem nær allir höfðu reiknað
með. Alexander Fedorovsky, Sovét-
rikjunum, hafði forustu fyrstu 50
metrana en Goodhew, sem er 23ja ára,
náði forustunni strax eftir snúninginn.
Eftir það voru gullverðlaunin örugg-
jega hans, þó annar Sovétmaður, Arsen
(Miskarov, veitti honum um tíma
nokkra keppni.
j Yfirburðir austur-þýzku stúlknanna
jhéldu áfram í sundlauginni. Voru í
þremur fyrstu sætunum í 400 m skrið-
Jsundi. Hin 16 ára Ines Diers sigraði.
Tvær þær fyrstu syntu á betri tíma en
Igamla ólympíumetið.
j í undanúrslitum í 100 m flugsundi
náði hollenzki risinn Kees Vervoorn
beztum tíma, 55.02 sek., — aðeins
betri en sænski heimsmethafinn Per
Arvidsson, sem synti á 55.05 sek.
David Lopez, Spáni, varð þriðji á 55.47
sek. og Bretinn Gary Abraham fjórði á
;55.53 sek. Þrátt fyrir þessa tíma er Sví-
inn talinn hafa mesta möguleika að
hljóta gullverðlaunin í úrslitasundinu í
dag. í riðlakeppni í 100 m baksundi
kvenna náðu tvær austur-þýzkar stúlk-
ur beztu tímunum. Rica Reinisch setti
nýtt heimsmet — 1:01.50 mín.
1500 m skriösund, úrslit:
Ólympíu- og heimsmet 15:02.40 mín.
Briun Goodell, USA, 1976.
1. Vladimir Salnikov, Sovét, 14:58.27
2. Alexander Chaev, Sovét, 15:14.30
,3. Max Metzker, Ástralíu, 15:14.49
4. RainerStrohbach, A-Þýzkl. 15:15.29
5. Borut Petric, Júgóslavía, 15:21.78
6. Rafael Escalas, Spáni, 15:21.88
7. Zoltan Wladar, Ungverjal. 15:26.70
8. Eduard Petrov, Sovét, 15:28.24
100 m bringusund karla,
úrslit:
1. Duncan Goodhew, Bretlandi.l :03.34
2. Arsen Miskarov, Sovét, 1:03.82
3. Peter Evans, Ástraliu, 1:03.96
4. Alexander Ferorovsky, Sov. 1:04.00
5. Janos Dzvonyar, Ungverjal. 1:04.67
6. Lindsay Spencer, Ástralia, 1:05.04
7. Pablo Restrepo, Kolombíu, 1:05.91
Alban Vermes, Ungverjalandi,
var dæmdur úr leik.
400 m skriösund kvenna,
úrslit:
Ólympiumet 4:09.89 min. Petra Thue-
mer, A-Þýzkalandi 1976. Heimsmet
4:06.28 Tracey Wickham, Ástraliu,
1978.
1. Ines Diers, A-Þýzkalandi, 4:08.76
2. Petra Schneider, A-Þýzkal. 4:09.16
3. CarmelaSchmidt, A-Þýzkal. 4:10.86
4. Micheile Ford, Ástraliu, 4:11.65
5. Irina Aksynovoa, Sovét, 4:14.40
6. Annelies Maas, Hollandi, 4:15.79
7. Reggiede Jong, Hollandi, 4:15.95
8. Olga Klevakina, Sovét, 4:19.18
Nú lágu Danir í því!
Danir lágu óvænt fyrir Spánverjum á
ólympiuleikunum i gærdag er þjóðirn-
ar mættust i handknattleikskeppni leik-
anna. Spánverjar sigruðu 20—19 i æsi-
spennandi leik og er nú hætt við að
Dönum hafi mislikað. Júgóslavár unnu
Ungverja 19—10, sfðan Svlss 26—21.
Þá slgruðu A-ÞJóöverJar Tékka 16—
10.
í knattspyrnunni unnu Sovétmenn
Zambfu 3—1, Spánverjar og Sýrland
gerðu jafntefli 0—0, Kúba sigraði
Venezúela 2—1.
í körfuknattleikskeppninni sigruðu
Júgóslavar Pólverja 129—91 og aðrir
leikir voru ekki á dagskrá.
í blakkeppninni unnu Búlgarir Kúbu
3—1, ítalir Tékka 3—2 og Pólverjar
unnu Rúmena 3—1 en Pólverjar eru
núverandi ólympiumeistarar i blaki.
Blikar sluppu naumlega
fyrir horn á Siglufirði
—sigruðu 3. deildarlið staðarins 2-0 í bikamum í gærkvöld
Breiðabliksmenn komust heldur
betur i krappan dans norður á Siglu-
firði i gærkvöld er þeir mættu 3. deild-
arliði staðarins i 8-liða úrslitum bikar-
keppni KSÍ. Þeim tókst að sigra 2—0
eftir mikinn barning þar sem heimalið-
ið átti sizt minna i leiknum. Gffurlegur
áhugi 'var fyrir leiknum á Siglufirði og
lætur nærri að allir þeir sem vettlingi
gátu valdið hafi verið saman komnir á
vellinum. Leikurinn hófst kl. 20 í gær
en kl. 18 voru öll bflastæði i kringum
völlinn full. Menn komu einfaldlega
snemma og lögðu bilum sinum og löbb-
uðu svo heim i mat, til að vera nú
öruggir um að enginn stæli stæðinu.
KS sótti mikið allan leikinn en tókst
illa að opna Blikavörnina. Þó virtist
sem mikillar taugaveiklunar gætti hjá
þeim og ekki er gott að segja hvernig
farið hefði ef Breiðablik hefði ekki
fengið vítaspyrnu á 9. mínútu. Úr
henni skoraði Sigurður Grétarsson af
öryggi að vanda.
Mjög umdeilt atvik gerðist um miðj-
an fyrri hálfleikinn. Þá myndaðist
mikil þvaga fyrir framan mark Blik-
’anna. Upp úr henni átti einn Siglfirð-
ingurinn skot á mark en Einar Þór-
|hallsson bjargaði á marklínu. Margir
vildu halda því frám að hann hefði
spyrnt knettinum fyrir innan marklinu
en ágætur dómari leiksins, Guðmundur
Sigurbjörnsson, var ekki ásama máli.
Þegar liðið var fram yfir venjulegan
leiktíma bætti Þór Hreiðarsson svo við
öðru marki Blikanna og innsiglaði sig-
urinn, sem var þó á tæpasta vaði.
Minnir leikur þessi í alla staði mjög svo
á heimsókn Valsmanna í bikarnum
1978. Valur sigraði þá 2—0 í hörkuieik.
-BÁ.
Þór Hreiðarsson (t.v. á myndinni) og
félagar hans komust í krappan dans á
Siglufirði i gærkvöld. Þór skoraði sið-
ara mark liðs sins er komið var fram
yfir venjulegan leiktíma.
Övænt tap Reynismanna í B-riðlinum
— keppnin í 3. deildinni komin vel á veg í öllum riðlunum og víðast hvar hörkukeppni að vanda
eina markið og var þar að verki Sig-
urður lllugason. Heimaliðið sótti mjög
stíft allan fyrri hálfleikinn og fékk færi
á að jafna er dæmd var vítaspyrna á
Magna. Hún nýttist ekki sem skyldi og
því var staðan óbreytt í hálfleik.
Hringur Hreinsson bætti síðan við
tveimur mörkum í síðari hálfieiknum
og tryggði Magna góðan sigur. Stefnir
nú í hörkueinvígi KS og Magna þar sem
Árroða-menn virðast vera að leysast
upp í einum allsherjar glundroða.
-GSv.
KS-Árroðinn 3—0 (0—0)
KS sigraði Árroðann 3—0 í frekar
jöfnum leik á Siglufirði á laugardag.
öll mörk SiglFirðinga voru skoruð á sjö
mínútna kafla um miðjan síðari hálf-
leik. Jafnræði var með liðunum lengi
vel en á 65. mín. skoraði Sigurjón Er-
iendsson fyrsta mark KS beint úr horn-
spyrnu. Það setti leikmenn Árroðans
heldur betur úr sambandi um stund því
rétt á eftir renndi Þorgeir sér í gegnum-
vörn þeirra og skoraði. 2—0. Á 72.
mín. skoraði Björn Sveinsson þriðja
mark KS — komst frír að markinu.
Síðan jafnaðist leikurinn aftur og fleirij
mörk voru ekki skoruð. Dómgæzla
Rafns Hjaltalín var sæmileg.
-BÁ.
Staðan í riðlinum:
Magni 6 3 12 15- 9 7
KS 5 2 2 1 11- 6 6
HSÞb 5 2 2 1 8- 7 6
Árroðinn 6 2 2 2 9-12 6
Leiftur 6 114 5-14 3
E-riðill
Reynir-USAH 5-1 (2-1)
Reynismenn höfðu tögl og hagldir
allan tímann og aldrei var vafi um sig-'
urinn. Felix Jósafatsson skoraði strax í
upphaFi fyrir heimamenn og Jens Sig-
urðsson bætti öðru marki við. Siðan
lagaði Hafliði Kristmundsson stöðuna
en í síðari hálfleik jókst sóknarþungi
Reynismanna enn um allan helming.
Garðar Níelsson, Björn Friðjónsson 2,
skoruðu hin mörk Reynismanna.
-GSv.
Dagsbrún-Efling 6—1 (3—1)
Þar kom að því að Dagsbrúnarmenn i
unnu enda var mótstaðan í algeru lág-,
marki. Lítið er um leikinn að segja ann-
að en það að heimaliðið hafði yfirburði |
eins og tölumar gefa glöggt til kynna. i
Zophonías Árnason skoraði þrennu,
Björgvin Steindórsson 2 og Hafþór
Helgason 1 fyrir Dagsbrún en Þórarinn
Iilugason skoraði fyrir Eflingu.
-GSv.
Staðan í riðlinum:
Reynir 6 5 0 1 18- 6 10
Tindastóli 5 5 0 0 13- 1 io;
Efling 6 2 0 4 8-24 4|
Dagsbrún 6 1 0 5 9-10 2
USAH 5 1 0 4 6-13 2i
F-riðill
Einherji-Leiknir 2-0 (0-0)
Sennilega er það einsdæmi hérlendis
að þrír leikmenn úr sama liðinu séu í
leikbanni í sama leiknum. Það henti lið
Leiknir gegn Einherja og var því
bjartsýnin ekkert yFirgnæfandi í þeirra
herbúðum að vonum. Einherji sótti
mjög allan fyrri hálfleikinn og voru
Leiknismenn þá heppnir að fá ekki á
sig mark eða mörk. M.s. small knöttur-
inn í þverslá marks Leiknis og víta-
spyrnu var sleppt á gestina.
í upphafi síðari hálfleiks gerðist
síðan nokkuð umdeilt atvik. Einn leik-
manna Leiknis brunaði þá upp völlinn,
lék á eina 4 leikmenn áður en hann gaf
á Ólaf Ólafsson. Hann lék á tvo tU við-
bótar en var þá illa hrint innan víta-
teigs, nálægt vítapunkti. Allir bjuggust
við vítaspyrnu en síðan var aðeins
dæmd aukaspyrna og brotið fært út
fyrir teig!!! Á 60. minútu kom svo
fyrra mark Einherja. Ólafur Ár-,
mannsson, sennilega hæsti leikmaður
íslandsmótsins, 2,05 m, stökk þá hæst
allra eftir hornspyrnu og skaliaði í
netið. Er um 10 mín. iifðu af leiktím-
anum skoraði Aðalbjörn Björnsson
síðara mark Einhverja.
Súlan-Valur 2—1 (0—0)
Óheppnin ríður ekki við einteyming
jhjá þeim Valsmönnum. Þeir tóku for-
;ustu í leiknum með marki Rúnars Sig-!
úrjónssonar og fengu rétt á eftir víta-í
spyrnu. Jens Einarsson, landsUðsmark-
vörður úr handknattleiknum, gerði sér
þá lítið fyrir og varði með tilþrifum.
Síðan jafnaði Súlan með marki hand-
knattleiksmannsins Ársæls Hafsteins-
sonar (úr ÍR) og sigurmarkið skoraði
Öttar Ármannsson en ekki er hægt að:
segja annað en Stöðfirðingar hafi
isloppið naumlega fyrir horn þarna. \
Pétur kemur
—Péturfer
— Pétur Bjarnarson
verður þjálfari
Aftureldingar
íhandknattleiknum
Pétur Bjarnarson, kunnasti hand-
knattleiksþjálfari á íslandi, mun þjálfa
leikmenn Aftureldingar, sem leika i 2.}
deild, næsta keppnistímabil. Æfingar
eru meira að segja þegar hafnar hjá
Aftureldingu — æft á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 19.30 i iþróttahúsinu
| að Varmá. Stefnan sett á 1. deildina.
Pétur Jóhannesson, sem hefur þjálf-
að og leikið með Aftureldingu, mun
leika með Fram næsta keppnistímabil.
Hefur tilkynnt félagaskipti.
Stefán Gunnarsson, leikmaðurinn
kunni f Val, mun þjálfa og leika með
Árbæjarliðinu Fylki í 1. deild næsta
keppnistimabil. -hsíni.
mínútu er Jósep Ólafsson kom gestun-
úm á bragðið með ágætu marki. Var
það eins og vítamínsprauta á Grindvík-
ingana, sem höfðu dyggan stuðning að-
dáenda sinna að heiman. Þrátt fyrir
það tókst Helga Þorvaldssyni að jafna
fyrir Hveragerði á 6. mínútu. Það var
þó allt sem heimaliðið megnaði því
mörkunum rigndi niður. Haukur And-
résson bætti öðru markinu við á 38.
mín., hörkunegling í vinkilinn. Einar J.
Ólafsson kom UMFB í 3—1 á 40. mín-
útu og mín. síðar skoraði Sigurgeir
Guðjónsson sitt fyrsta mark af fjórum.
Síðari hálfleikurinn var varla hafinn
er Sigurgeir bætti enn stöðuna, 5—1.
Haukur Andrésson var aftur áferðinni
á 62. minútu og Sigurgeir átti svo tvö
síðustu mörkin á 67. og 82. mínútu.
Hefur hann nú skorað 10 mörk í
þremur ieikjum, en lengst af á ferlinum
lék hann stöðu miðvarðar.
-gh/-SSv.
Víðir-Afturelding 1 -0 (0-0)
j Með þessum sigri sínum hafa Víðis-
,menn að öllum líkindum tryggt erki-
óvinum sínum úr Grindavik sigurinn í
B-riðlinum. Víðir átti mun meira í
þessum leik allan tímann en tókst
aðeins að skora eitt mark þrátt fyrir
mýgrút tækifæra. Mark þetta var af
allra ódýrustu gerð. Daníel Einarsson
miðherji var eitthvað að gaufa með
knöttinn við vítateigslínu og fann eng-
an samherja. Sendi hann þá knöttinn
laust frá sér i átt að markinu og varð
vafalítið enn meira undrandi en allir
aðrir til samans er hann uppgötvaði að
tuðran lá í netinu. Hafði markvörður
Aftureldingar, sem átti annars góðan
Jleik, misreiknað sig illa þarna.
'-emm.
Grótta-Njarðvik 0—0
Þessi leikur var ekki tíðindamikill og
Gróttumenn sýndu hæfilegt kæruleysi
að þessu sinni. Skröpuðu rétt svo í lið
og Árni Guðmundsson, miðherji,
plantaði sér í markið. Það kom sér þó
ekki illa því hann gerði sér lítið fyrir og
varði vítaspyrnu frá Hauki Jóhanns-
syni um miðjan fyrri hálfleikinn. Þetta
var bezta tækifæri leiksins til að skora
og gerðist fátt markvert í síðari hálf-
leik.
Staðan i riðlinum:
Grindavík 8 7 0 1 24- 7 14
Njarðvík 7 4 3 0 15- 6 11
Afturelding 8 5 1 2 16- 9 11
Víðir 8 4 1 3 23-12 9
Grótta 8 1 3 4 9- 15 5
Stjarnan 7 2 0 5 13-22 4
Hveragerði 8 1 0 7 7-36 2
C-riðill
H ÞV-Skallagrímur 2-2 (1-2)
Þetta var tækifæri HÞV-manna til
að komast í efsta sæti riðilsins en
Skallagrímsmenn voru ekki á þeim
buxunum að láta toppsætið af hendi
átakalaust. Gunnar Jónsson náði for-
ystunni fýrir Skallagrim um miðjan
fyrri hálfleikinn en Sæmundur Víg-
lundsson jafnaði skömmu síðar fyrir
HÞV. Gunnar var aftur á ferðinni litlu
síðar og kom gestunum í 2—1. Elís Víg-
lundsson, bróðir Sæmundar, jafnaði
fyrir HÞV um miðjan síðari hálfleikinn
eftir slæm mistök markvarðar. Undir
lokin fékk HÞV tvö dauðafæri, sem
ekki nýttust.
b./-SSv.
Snæfell-Reynir 5—0 (5—0)
Þrátt fyrir látlausa sókn allan leikinn
tókst Snæfellingum aðeins að skora í
fyrri hálfleik og notuðu þar að auki
ekki vítaspyrnu er þeir fengu. Reynis-
liðið hafði lítið i heimamenn að segja
og áður en yfir lauk voru mörkin orðin
Fimm en hefðu þó getað orðið mun
fleiri. Þau skoruðu: Pétur Rafnsson 2,
Sævar Gunnleifsson, Davíð Sveinsson
og eitt var sjálfsmark.
ÞIN/-SSv.
i Staðan í riðlinum:
Skallagrímur
Bolungarvík
HÞV
Víkingur
Snæfell
Reynir
D-riðill
Leiftur-Magni 0-3 (0-1)
Magnamenn léku gegn sterkum vindi
í fyrri hálfleik en skoruðu engu að síður
50 f rumreglur í golf i
athugaðar með aðstoð
Bogga blaðamanns
Teiknarinn snjalli, Ragnar Lár, sem
er mikill golfáhugamaður, hefur gefið
út bók i nafni vinar sins Bogga — 50
frumreglur i golfleik. Litla bók, sem fer
þægilega i rassvasa golfmanna.
Eins og nafnið ber með sér er þarna
farið yfir frumreglur golfíþróttarinnar
og teikning af Bogga á öllum blað-
síðum. Bókinni er ætlað að auðvelda
kylfingum íþrótt sína en fáar eða engar
íþróttagreinar byggja á jafn-flóknum
reglum og einmitt golfið. Fyrirmynd að
bókinni er amerisk en Boggi gerir hana
isienzkarí en flest.
Frímann Gunnlaugsson, formaður
Golfklúbbs Akureyrar, las handrit að
bókinni. Hann er vei að sér í golfregl-
um og Konráð Bjarnason, formaður
Golfsambands íslands, hefur fagnað
útgáfu þessa litla, smekklega kvers.
•hsím.
Jæja, góðir hálsar, þá er það þríðja
deildin rétt eina ferðina. Um helgina
voru leiknir einir 15 leikir viðs vegar
um landið og að vanda birtum við úr-
slitin i þeim hér á eftir svo og stöðuna i
riðlunum. Einu viljum við þó koma á
framfæri áður en lengra er haldið og
það er ábending til þeirra Óðinsmanna
að hafa endilega samband við iþrótta-
síðuna þótt þeir tapi leikjum sínum.
Einu úrslitin sem komu verulega á
óvart um helgina var tap Reynis fyrir
Leikni en þeir Breiðholtsbúar eru svo
sannarlega undarlegir á mörgum
sviðum. Eru búnir að missa af öllum
möguleikum i riðlinum en taka svo upp
á þvi að vinna efsta liðið. En hvað um
það.hér byrjumvið.
A-riðill
ÍK-Óðinn 5-3 (1-1)
Þetta var hrökuleikur. Tvívegis var
jafnt — síðast 2—2 en síðan tóku ÍK-
menn leikinn í sínar hendur. Kópa-I
vogsliðið hefur nú náð Reyni, Sand-,
gerði, að stigum en harla verður það að|
teljast ólíklegt að þeir vinni riðilinn. Tilj
gamans má geta þess að í fyrri leik lið-
anna, sem fram fór I Sandgerði, sigraði
Reynir 8—0!!! Hvað um það, mörk ÍK,
gegn Óðni skoruðu þeir Jóhann Sæv-
arsson 2, Ólafur Pedersen 2 og Ingimar|
Bjarnason. Þá brenndi ÍK af víta-
spyrnu að auki.
-SSv.
Leiknir—Reynir 2—1 (0—1)
Þetta var hðrkuleikur og voru 4 gul
spjöld á lofti áður en yfir lauk. Gestirn-
ir höfðu undirtökin t fyrri hálfleiknum
og náðu þá forystunni. Leiknismenn
voru þó ekki á því að gefa sig í s.h. og
náðu að skora tvívegis. Fyrst jafnaði
Þorsteinn ögmundsson metin og síðan
skoraði Kjartan (hvers föðumafnið
vantar) sigurmarkið.
-SSv.
Katla—Léttir 2—6 (1—3)
Þeir vom „léttari á sér gestirnir
framan af og komust þá í 3—0. Um
miðjan fyrri hálfleikinn tóku heima-
menn við sér og skoruðu eitt mark sitt
hvorum megin við hálfleik og minnk-
uðu muninn í 2—3. Árreynslan hafði
hins vegar farið endanlega með úthald-
ið og það sem eftir lifði skoruðu Léttis-
menn þrivegis til viðbótar án svars frá
heimamönnum. Það er því hægt að
segja um Kötlu-menn að þeir eru eins
og eldfjallið fræga — algerlega óút-
reiknaniegir. Mörk Kötlu skoruðu Sæ-
mundur Runólfsson og Salvar Júlíus-
son. Fyrir Létti skoruðu Svavar
Guðnason 2, Þórir Jóhannsson, Sig-
urður örn Sigurðsson, Kristinn Hjalta-
son og Sverrir Gestsson.
Staðan í riðlinum er þá þessi:
Reynir
ÍK
Leiknir
Léttir
Óðinn
Katla
Hekla
Briðill
Hveragerði-Grindavflc 1—8
(1-4)
Ekki hafði þessi leikur staðið nema
frískandi
jógurtdiykkur
hollur
svaíandi
Skiptingverðlauna
íMoskvu til þessa
Skipting vcrðlauna á ólympiuleikunum hefur
verið þannig til þessa: gull silfur brons alls
Sovétrikin 10 8 3 21
A-Þýzkaland 5 8 5 18
Ungverjaland 2 1 2 5
Bretland 1 2 — 3
Kúba 1 — — 1
Grikkland 1 — — 1
ítalia 1 — — 1
Sviþjóð 1 — — 1
Búlgaría — 1 2 3
Norður-Kórea — 1 1 2
Rúmenia — 1 1 2
Ástralia — — 4 4
Pólland — — 2 2
Tékkóslóvakfa — — 1 1
Jamaic — — 1 1
Sovétmenn sigruðu
með yf irburðum
íflokkafimleikum
Sovétmenn sigruðu með yfirburðum i flokka-
keppni karla I fimleikum, sem lauk í gær. Hlaut
sovézki flokkurinn rúmlega 8 stigum meira en næsta
lið, sem var A-Þýzkaland en þessar tvær þjóðir
einoka algerlega verðlaunin á leikunum. Sovétmenn
hlutu 589,6 stlg, A-Þjóðverjar 581,15, Ungverjar
575,00 Rúmenía, Búlgaria 571,55, Tékkóslóvakia
569,8, Kúba 563,2, Frakkland 559,20, Noröur-
Kórea 551,35.
Landsliðið ífrjálsum
valið fyrir
Kalott-keppnina
Landslið íslands i frjálsíþróttum sem keppa mun i
Kalottkeppninni hefur nú verið valið. Alls eru i lið-
inu 23 karlar og 16 konur. Nýllðar i karlaliðinu eru
þeir Magnús Haraldsson, Unnar Vilhjálmsson, Kári
Jónsson, og Krístján Gissurarson. Nýliðar i kvenna-i
liðinu eru Sigurbjörg Karlsdóttir, Helga Unnarsdótt-
ir, og Elín Gunnarsdóttir.
Þeir sem mesta reynsluna hafa eru hins vegar Val-
björn Þorláksson og Erlendur Valdemarsson, i
karlaliðinu en Guörún Ingólfsdóttir og Lilja Guð-
mundsdóttir i kvennaliðinu.
Kalottkeppnin fer fram i Reykjavik 9. og 10. ágúst
nk. og verða keppendur 240. Keppnin er landshluta-
keppni f frjálsiþróttum milli Norður-Finna, Noröur-
Svia, Norður-Norðmanna og íslendinga.
Liðstjóri islenzka liðsins er Magnús Jakobsson og
er hann einnig einvaldur við val þess.
Landslið — karlar:
100 m: Oddur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson. 200
m: Oddur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson. 400 m:
Oddur Sigurðson, Aðalsteinn Bernharðsson. 800 m:
Jón Diðriksson, Gunnar PáU Jóakimsson. 1500 m:
Jón Diðriksson, Gunnar PáU Jóakimsson. 5000 m:.
Jón Diðriksson, Ágúst Þorsteinsson. 10000 m:
Gunnar Snorrason, Magnús Haraldsson. 110 m gr.:
Elías Sveinsson, Stefán Hallgrímsson. 400 m gr.: j
Aðalsteinn Bernharðsson, Stefán hallgrímsson. 3000
m hindr.: Sigurður P. Sigmundsson, Ágúst Ásgeirs-
son. Hástökk: Unnar VUhjálmsson, Stefán Friðleifs-
son. Langstökk: Jón Oddsson, Friðrik Þór Óskars-
son. Þrístökk: Friðrik Þ. Óskarsson, Kári Jónsson.
Stangarstökk: Kristján Gissurarson, Valbjörn Þor-
láksson. Kúluvarp: Hreinn Halldórs-
son, Óskar Jakobsson. Kringlukast: Óskar Jakobs-
son, Erlendur Valdemarsson. Spjótkast: Sigurður
Einarsson, Einar Vilhjálmsson. Sleggjukast: Er-
lendur Valdemarsson, Óskar Jakobsson. 4x100 m
boðhlaup: Oddur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson,
Aðalsteinn Bernharðsson, Vilmundur Vilhjálmsson.
4 x 400 m boðhlaup: Oddur Sigurðsson, Aðalsteinn
■Bernharðsson, Stefán Hallgrímsson, Þorvaldur
Þórsson.
Landslið — konur:
100 m: Helga HaUdórsdóttir, Oddný Árnadóttir.
200 m: Helga Halldórsdóttir, Oddný Árnadóttir.
400 m: Sigríður Kjartansdóttir, Rut Ólafsdóttir. 800
m: Rut Ólafsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir. 1500
m: Ragnheiður Ólafsdóttir, LUja Guðmundsdóttir.
3000 m: Lilja Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Karls-
dóttir. 100 m gr: Helga Halldórsdóttir, Þórdís Gísla
dóttir. 400 m gr.: Sigurborg Guðmundsdóttir,
Hrönn Guðmundsdóttir. Hástökk: Þórdís Gísla-
dóttir, María Guðnadóttir, Langstökk: Helga HaU-
dórsdóttir, Þórdís Gísladóttir. Kúluvarp: Guðrún
Ingólfsdóttir, Helga Unnarsdóttir. Kringlukast:
Guðrún Ingólfsdóttir, Elin Gunnarsdóttir. Spjót-
kast: DýrFinna Torfadóttir, íris Grönfeldt. 4x100
m boðhlaup: Helga Halldórsdóttir, Oddný Árna-
dóttir, Sigríður-Kjartansdóttir, Þórdís Gisladóttir.
4 x 400 m boðhlaup: Helga Halldórsdóttir, Sigríður
Kjartansdóttir, Oddný Árnadóttir, Rut Ólafsdóttir.