Dagblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980. I DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Sþróttir Iþróttir íþróttir 13 I Enski Sheffield-stúdentinn, Sebast- ian Coe, hljóp glæsilegt 1500 m hlaup I Ziirich I gærkvöld. Var aðeins sekúndu- broti frá heimsmetinu i 1500 m hlaup- inu eftir að hafa haft forustuna siðustu sjö hundruð metrana i hlaupinu. Coe varð ólympiumeistari á þessari vega- lengd i Moskvu. Coe rétt við heimsmetið — Hljóp 1500 m á 3:32,19 í Sviss í gær. Heimsmet í1500 m hlaupi kvenna Ólympiumeistarinn ensld, Sebastian Coe, var rétt vlð heimsmet sitt og Steve Ovett i 1500 m á miklu frjálsiþrótta- móti i Zurich i sviss i gær. Hljóp vega- lengdlna á 3:32,2 min. — sekúndubroti lakara en metið og sigraði þá Steve Scott, USA, og Johnny Walker, Nýja- Sjálandi, auðveldlega. írinn Ray Flynn hélt uppi hraðanum framan af og 800 m voru hlaupnir á 1:52,55 min. Siðan varð Coe að hlaupa á eigin spýtur þvi Flynn hætti. Coe tók siðan endasprett 200 metra frá markinu en tókst ekki að bæta heimsmetið. Tatyana Kasankina, Sovétríkjunum, setti glæsilegt heimsmet i 1500m hlaupi kvenna, hljóp á 3:52,47 mín. Hafði forustu allt hlaupið. Bætti heimsmetið um 2,53 sek. Bandariska stúlkan, Mary Decker, sem setti heimsmet i mílu- hlaupi fyrr á árinu, var langt á eftir. Setti þó bandarískt met, 3:59,43 mín. Bandariski spretthlauparinn Stanley Floyd tókst nú loks að sigra skozka ólympíumeistarann Allan Wells. Hljóp á mjög góðum tíma, 10,19 sek., í 1,2 sm mótvindi. Wellshljópá 10,30. Úrslit i mótinu urðu annars þessi: 1500 m hlaup 1. Sebastian Coe, Bretl., 3:32,19 2. Steve Scott, USA, 3:33,33 3. John Walker, N-Sjál., 3:33,49 100 m hlaup: 1. Stanley Floyd, USA, 10,19 2. Allan Wells, Bretl., 10,30 3. Harway Glance, USA, 10,34 4. Mel Lattany, USA, 10,36 5. Steve Williams, USA, 10,37 400 m hlaup: 1. Billy Kochellan, Kenýa, 45,69 2. Walter McCoy, USA, 45,85 3. James Atuti, Kenýa, 45,93 UOmgrindahlaup: 1. Renaldo Nehemiah, USA, 13,21 2. Greg Foster, USA, 13,36 3. Rod Milburn, USA, 13,67 Langstökk: 1. Larry Myricks, USA, 8,31 2. Frank Paschek, A-Þýzk., 8.05 3. Arnie Robinson, USA, 7,95 Spjótkast 1. Michael O’Rourke, N-Sjál., 82,66 2. Rod Ewaliko, USA, 82,28 3. Miklos Nemeth, Ungverjal., 80,34 Valur vann á Seyðisfirði Valur, Reykjavik, varð íslands- meistari i 2. flokki kvenna á útimótinu f handknattleik, sem háð var á Seyðis- firði um siðustu helgi. Aðeins þrjú félög tóku þátt i mótinu, auk Vals Fim- leikafélag Hafnarfjarðar og Huginn, Seyðisfirði. Tvöföld umferð var leikin. Úrslit i fyrri umferðinni. Valur — FH FH — Huginn Valur — Huginn 10—4 8—6 8—2 Sex ár í spilavítum — Vikan rœðir við íslenska stúlku sem vann í spilavítum í Afríku ★ Hverjir vetða eiturlyfjaneytendur? ★ Pönnusteikt smálúða í eldhúsinu ★ Hin spennandi framhaldssaga: HOLOCAUST, 4. hluti Jafntefli Einn leikur var háður i 2. deild íslandsmótsins i knattspyrnu i gær. Sel- foss og Völsungur gerðu jafntefli 0-0 á Selfossi. Selfoss misnotaði vítaspyrnu i leiknum. Síðari umferð: Valur — FH FH — Huginn Valur — Huginn 13—6 6—4 8—1 -VS 3% V* Oddur bætti 23 ára met Hilmars — og Helga Halldórs- dóttir setti þrjú íslandsmet Oddur Sigurðsson, hlauparinn snjalli i KA, setti i gær nýtt íslandsmet i 300 m hlaupi á innanfélagsmóti KR á Fögruvöllum. Hljóp á 34.0 sek. og bætti 23ja ára gamalt íslandsmet Hilm- ars Þorbjörnssonar, Ármanni, um þrjú sekúndubrot. Stefán Hallgrimsson, UÍA, náði einnig ágætum tima i hlaup- inu. Hljóp á 35.6 sek. sem er nýtt Aust- fjarðamet. Á sama móti setti Helga Halldórs- dóttir, KR, þrjú ný íslandsmet. Hljóp 60 m á 7.6 sek. en eldra metið átti Lára Sveinsdóttir, Á, 7.7sek. 80metrahljóp Helga á 9.9 sek. Met Láru var þar 10.1 sek. og loks hljóp Helga 200 m grinda- hlaup á 28.6 sek. Bætti met Ingunnar Einarsdóttur, ÍR, verulega. Það var 30.6 sek. Logn var á vellinum en hins vegar vantaði vindmæli — og ekki er víst að þessi met fái staðfestingu sam- kvæmt reglanna hljóðan. >að væri þó heldur kjánalegt. FH-KR íkvöld Fram sigraði Öðin með 35-15 á íslandsmótinu i útihandknattleik i gær- kvöld. í kvöld verður úrslitaleikur FH og KR i öðrum riðlinum i karlaflokki. Leikurinn hefst kl. 19 við Austurbæjar- skólann. Þá leika einnig FH og Breiða- blik i meistaraflokki kvenna. Sigurlás Þorleifsson, nr. 9 í hvíta búningnum, stekkur upp og skallar knöttinn í mark Breiðabliks. Fyrsta markið í leiknum 1 gærkvöld. DB-mynd Einar Ólason. Þrenna lása kom IBV í úrslit bikarkeppninnar ,,Þetta var stórskemmtilegur leikur og það er alltaf notaleg tilfinning að hafa með þremur mörkum lagt drögin að sigrinum,” sagði Sigurlás Þorleifs- son, hinn snjalli miðherji ÍBV, eftir að Vestmannaeyingar höfðu sigrað Breiðablik 3-2 f undanúrslitum bikar- keppni KSÍ. Vamarmenn Blikanna réðu bókstaflega ekkert við landsliðs- miðherjann Sigurlás, sem var stöðugur ógnvaldur ef knötturinn nálgaðist vita- teig Breiðabliks. Þrivegis sendi Lási knöttlnn i mark mótherjanna eins og ekkert væri auðveldara i helminum. Fékk fjögur tækifæri i leiknum — auk markanna þriggja skaut hann rétt framhjá stöng i erfiðri stöðu. Vest- mannaeyingar eru þvi komnir i úrslit bikarkeppninnar. Leika þar annað hvort við Fram eða FH sunnudaginn 31. ágúst, FH og Fram leika i undanúr- slitum i kvöld Id. 19.00 á Kaplakrika- velli. Vestmannaeyingar hafa tvivegis orðið bikarmeistarar — sigruðu FH 2-0 i úrslitum 1972 og B-lið KR i úrslitum 1968 2-1. Þá komst ÍBV i úrslit 1970 en tapaði fyrir Fram 2-1. Leikurinn í gaerkvöld var mjög skemmtilegur. Fyrri hálfleikur mjög vel leikinn — einn bezti leikur íslenzkra liða í sumar, ef ekki sá bezti. Hins vegar var spennan talsvert ráðandi i síöari hálfleiknum. Gæðin ekki ei.ns HEiH Sigurður Grétarsson jafnar fyrir Breiðablik i 2—2. Páll Pálmason, markvörður ÍBV, kom ekki við neinum vörnum. DB-mynd Einar Ólason. mikil og dómarinn, Eysteinn Guð- mundsson, kallaði þá fyrirliða liðanna til sín. Bað þá um að reyna aö róa menn sína. Sigur Vestmannaeyinga var verðskuldaöur — þeir voru betri — og nokkuð fljótt komst maður á þá skoðun, að þeir myndu sigra i leiknum. Það byggðist á þvi hve auðveldlega Lása tókst að komast frá gæzlumanni sínum — og leika á aðra varnarmenn Blikanna. Breiðablik byrjaði þó betur. Fékk nokkrar hornspyrnur en Páll Pálmason var vel á verði í marki ÍBV. Svo fóru Vestmannaeyingar að hræra í vörn Blikanna. Einari Þórhallssyni tókst á síðustu stundu að hindra fyrirliða ÍBV, Tómas Pálsson, að skora. Sigurlás tók síðan aukaspyrnu og knötturinn fór rétt framhjá stöng Blika-marksins eftir að hafa snert varnarmann. Horn- spyrna. Knötturinn barst fyrir mark Blikanna. Sveinn Sveinssonskallaði inn í markteiginn og þar var Lási fyrir. Skallaði glæsilega í mark. Þetta var á 21. min. Tveimur min. síðar höföu Blikarnir jafnað. Siguröur Grétarsson tók aukaspyrnu um 35 metra frá marki. Spyrnti í átt að markinu. Knötturinn kom í höfuð eins varnarmanns ÍBV, breytti um stefnu og í markið. Páll á leiö í hitt horniö. Fallegt mark Sigurðar með nokkrum heppnisstimpli. Ingólfur Ingólfsson var klaufi að ná ekki forustu fyrir Blikana á 30. mín. Náöi knettinum eftir að Páll hafði varið hörkuskot Einars Þórhallssonar. Spyrnti yfir. Þetta var ekki dagur Ing- ólfs. í byrjun s.h. komst hann 1 opið færi — spyrnti knettinum beint í Pál. En Sigurlás fór ekki þannig með færi sín. Hann fékk mjög góða sendingu frá Snorra Rútssyni á 35. mín. Komst frir inn í vítateiginn. Skoraði auðveldlega — renndi knettinum undir Guðmund Ásgeirsson. Sigurður Grétarsson jafnaði óvænt í 2-2 á lokamínútu hálf- leiksins. Komst frír inn i vítateig eftir sendingu Ingólfs. Síðari hálfleikurinn var ekki í sama gæðaflokki enda hugsuðu leikmenn þá oft meira um mótherjana en knöttinn. Ingólfur fékk fyrsta tækifærið, sem hann misnotaði. Sigurlás átti skot framhjá eftir að knötturinn haföi farið í stöng Blika-marksins — og það var ekki fyrr en níu mín. fyrir leikslok, að Lási skoraði sigurmarkið. Eftir snöggt upphlaup fékk hann knöttinn frá Omari Jóhannssyni og skoraöi auð- veldlega. Litlu munaði að Vestmanna- eyingar bættu við marki í lokin —■ Gunnlaugur bjargaði á marklínu. Sigurlás var yfirburöamaður á vellin- um. Frábær leikmaður — Páll góður í I marki ÍBV, Tómas átti spretti og Óskar jog Gústav standa alltaf fyrir sínu. Tveir menn báru af í Blikaliðinu, Einar Þór- hallsson og Sigurður Grétarsson. hsím. DÚKKAN Lifandi, falleg og sórlega meðfærileg. Skemmtíleg húsgögn og föt í úrvali. Fæstí flestum leikfangabúðum. Pétur Pétursson heildverzlun Suðurgötu 14. Símar 21020—25101. Morgunverður — hlaðborð - kr '. 1500^\ Hádegisverður frá kr. 2900.- Súpa kr. 850.- Síðdegis- og kvöldkaffi — Alltaf nýjar kökur og kaffi. Morgunverður og hádegisverður aðeins virka daga. BANKASTRÆTI H iOPHJ TIL KL í23.30 ALLA DAGA Dularfull fjar- vera sovézkra Sovézka frjálsiþróttasambandið tilkynnti því hol- lenzka i gær, að það hefði hætt við að senda þátttak- endur i fyrsta heimsmeistaramót kvenna i 400 m grindahlaupi og 3000 m hlaupi, sem á að hefjast i Sittard f Hollandi i dag. Efnt er til þessa heimsmeist- aramóts i þessum greinum, þar sem ekki er keppt i þeim áólympiuleikum. Hollenzka frjálsiþróttasambandið KNAU sagði i gær, samkvæmt fréttum frá Reuter, að þetta væri hefnd sovézkra vegna mótmæla Hollendinga i sam- bandi við ólympiuleikana i Moskvu. Hollendingar gengu þar undir ólympiufánanum. Hins vegar til- kynnti sovézka frjálsiþróttasambandið fram- kvæmdanefnd keppninnar i Sittard, að hinir sex keppendur, sem valdir hefðu veriö til þátttöku af háifu Sovétrikjanna, gætu ekld keppt vegna veik- inda eða meiðsla. Formaður framkvæmdanefndar- innar, Franz Jutte, fyrrum formaður KNAU, sagðist ekki taka þá skýringu trúanlega. Skýringuna væri ef- laust að finna i þvi, að hollenzka stjórnin fór fram á við hollenzku ólympiunefndina f sumar að ekki yrðu sendir þátttakendur á Moskvu-leikana. Nefndin hafnaði þeirri beiðni — sendi liö til Moskvu en hins vegar ákváðu hokkey- og hestamenn að keppa ekki á ólympfuleikunum. Frans Jutte var á leikunum og þar fullvissuðu frjálsiþróttaleiðtogar sovézkir að sent yrði fullt lið til keppninnar i Sittard. Sl. fimmtu- dag var svo sendur nafnalisti um þátttakendur Sovétrikjanna og flugnúmer flugvélar þeirrar sem flytja mundu þá til Hollands. í gær kom svo tilkynn- ing um að ekkert yrði af þátttökunni. Jutte og for- maður KNAU, Adriaan Paulen, hafa reynt að fá sovézka til að senda aðra þátttakendúr án árang- urs. Þá tilkynnti framkvæmdanefndin f gær, að tvær kunnar hlaupakonur, Grete Waitz, Noregi, og Nat- alia Maracescu, Rúmenfu, gætu ekki keppt f 3000 m hlaupinu vegna meiösla. Einnig hefðu Beigar hætt viö þátttöku. 20 keppendur verða í 3000 m — 28 í igrindahlaupinu. Talið er að austur-þýzkar stúlkur verði mjögsigursælari Sittard. Blackpool komst í aðra umferðina Nokkrir leikir voru i enska deildabikarnum i gær- kvöld. Úrslit urðu þessi: Blackpool — Walsall 3—1 (6—3) Bradford — Rotherham 0—0 (3—1) Cardiff — Torquay 2-1 (2-1) Oxford — Southend 2—0 (2—1) Reading — Northampton 2—3 (4—3) Crewe — Wigan 2-2 (3-4) Þá var fyrsta umferðin i skozka deildabikarnum. Úrslit: Ayr — Morton 1—2 East Fife — Dundee Utd. 2—5 Kilmarnock — Ardrie 1—0 Queens Park — East Stirling 1—0 Raith Rovers — Falkirk 3—2 St. Johnstone — Clydebank 0—2 Sigurlás lék með Beveren „Ég lék einn leik með Beveren. Var driflnn beint i leikinn og gekk engan veginn nógu vel. Það varð þvi ekkert af drögum að samningi en kannsld athuga ég þetta nánar i haust,” sagði landsliðsmiðherjinn snjalli, Sigurlás Þorieifsson, ÍBV, þegar DB ræddi viðhannfgærkvöld. Sigurlás fór i fyrri viku tll Dortmund i Vestur- Þýzkalandi og siðan til Belgiu, þar sem hann lék með meistarallðinu Beveren frá 1979. Siguriás hefur sama umboðsmann og AtU Eðvaldsson, sem nú er atvinnumaður hjá Dortmund. „Þetta var heldur leiðinleg ferð og bókstaflega enginn fyrirvari með leiklnn. Það var þvi ef til vill ekki furða þó ég léki illa,” sagði Slgurlás ennfremur. „Þetta var hins vegar stórkostlegt i kvöld," bætti hann við brosandi. Hafði skorað þrennu gegn Blik- unum f bikarkeppni KSÍ. - hsim. Arsenal og Palace skiptuá leikmönnum Lundúnafélögin Arsenal og Crystal Paiace gengu frá samningi f gær um skipti á Clive Alien og Kenny Sansom en auk þess keypti Palace varamarkvörð Arsenal, Paul Barron, fyrir 400 þúsund sterlings- pund. Arsenal keypti Allen fyrir rúma milljón sterl- ingspunda i sumar frá QPR. Selur hann aftur án þess hann hafi leikið einn einasta leik fyrir Arsenal. Slikt mun einsdæmi f enskri knattspyrnu. Clive er 19 ára, sonur Les Allen, sem lengi gerði garðinn frægan hjá QPR hér á árum áður. Sansom er tvltugur og hefur leikið i enska landsliðinu. Félögin skiptu á þessum leikmönnum á jöfnu en Palace borgaði markvörðinn út i hönd. Markvörður Palace á síðasta leiktímabili, John Burridge, hefur verið sett- ur á sölulista. Reiknað er með, að Arsenal muni nota peningana, sem félagið fékk fyrir Barron til að kaupa Paul Reid, varnarmann Boiton, og George Wood, markvörð Everton, Wood lék hér á Laugardalsvelli i stjörnu- liði Bobby Charlton og hefur leikið i skozka lands- liðinu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.