Dagblaðið - 19.09.1980, Page 12

Dagblaðið - 19.09.1980, Page 12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBF.R 1980. Coca Cola-keppniní hefst á morgun Elzta opna mótið í golfi, Coca C'ola-keppnin, verður haldin á Grafarholtsvellinum um helgina. Er þetta i 20. skipti, sem mótið er haldið og er búizt við að þátttakendur verði hátt á annað hundrað. Rétt ; til þátttöku hafa allir karlar með 23 eða minna í for-i gjöf og allar konur með 29 eða minna i forgjöf. Skráningu í keppnina lýkur í dag kl. 18 en hún fer fram hjá Golfklúbbi Reykjavikur í síma 84735. Ræst; verður út báða dagana klukkan 8 að morgni ogi verða rástímar tilbúnir í kvöld, en þrír keppendur verða ræstir út íéinu. -SA. Maraþonhlaup frá Kambabrún Haustmaraþonhlaup fer fram laugardaginn 4. október og verður þá hlaupið frá Kambabrún til Reykjavíkur. Vmsir af helztu hlaupurum landsinsl taka þátt í þessu maraþonhlaupi, sem er hið fyrsta,| sem fer fram hérlendis í langan tíma, en ástæða cr fil að skora á alla langhlaupara að vera með. Skráning fer fram í síma 16371 alla virka daga til 26. þessa mánaðar, en fundur með þátttakendum verður síðan haldinn mánudaginn 29. september í matstofu NLEÍ að Laugavegi 20B. Að hlaupinuj standa íþróttafélag Reykjavíkur, Hlaupaklúbbur Sri Chinmoy og Náttúrulækningafélag íslands. A-stigs námskeið í körfuknattleik Menntunardeild körfuknattieiksins heldur þjálf-; aranámskeið, Á-stigs námskeið, í Reykjavík dagana^ 20. og 21. september. Léiðbeinandi á námskeiðinu verður Einar Bollason, landsliðsþjálfari. Allar frek-, ari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu KKÍ í síma 85949 á venjulegum skrifstofulíma, en þátttöku skal| lilkynna á sama stað i síðasta lagi i dag. Úrslit í 3. deild kl. 14 á sunnudag Úrslitaleikurinn í 3. deild verður leikinn á Laug-j ardalsvelli á sunnudag og eigast þá við Reynir Sand- gerði og Skallagrímur Borgarfirði. Hefst leikurinnj kl. 14. Reynir sigraði örugglega í sínum riðli í úr-| slitakeppninni, en Skallagrímur komst í úrslita- ieikinn, þar sem liðið hafði hagstæðari markatölu en! hin liðin i riðlinum, Tindastóll og Grindavík. Án efa verður hart barizt á sunnudag, en hvernig sem! Icikurinn fer leika bæði liðin í 2. deild næsta ár, þvíj tvö lið færast milli deilda. Exeter bætti sjgri í sarpinn Nokkrir leikir voru háðir í ensku deildakeppninní í fyrrakvöld, en vegna þrengsla í blaðinu í gærj gátum við ekki birl úrslitin. En betra erseint en aldFÍi og hér koma þau: 3. deild ExeterCity-Fulham 1—0: Reading-Plymouth Argyle 1—l1 4. deild Bradford-Nothamton 3—1 Herford-Rochdale 3—0 ‘Lincoln-Aldershot 0—lí Dómaranefnd HSÍ! boðar námskeið Námskeið fyrir Landsdómara í handknattleik hefsl föstudaginn 26. sepfember kl. 14. á Hótel Loft- leiöum. Leiðbeinandi verður Carl E. Wang,for- maður dómaranefndar IHF. Öllum þjáífurum deild- arliða er einnig boðin þátttaka og eru þeir hvattir til að mæta. - KA varð Akureyrarmeistarir KA vann Þór 3—2síðari leik liðanna í Akureyrar-I mótinu i knattspyrnu í fyrrakvöld". KA vann fyrrl* leik liðanna með sömu markatölu og telst því Akur-j eyrarniei'tari 1980. Öll mörk leiksins voru skoruð t fyrri hálfleik, sem| var mjög fjörugur og skemmtilegur. Hafþór Hegla- son skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Þór, en þeir* Óskar Ingimundarson og Gunnar Gíslason breyttu; stöðunni í 2-1 fyrir KA. Árni Stefánsson jafnaðij metin fyrir Þór, en á 40. mínútu skoraöi Eyjólfur Ágústsson sigurmark leiksins úr vítaspvrnu. í síðari hálfleik datt leikurinn nokkuð niður, en hann var í; heildina góður ogjafnlefli hefðu verið sanngjöm úr- slit. - Gsv.i Valur og KR háðu marga skemmtilega hildi í körfunni í fyrravetur og þessi mynd er einmitt úr leiknum sem dró að .lóhannes Eðvaldsson er hér í búningi Celtic, þar sem ha.nn átti sín beztu ár í knattspyrnunni. sér 1400 manns. KKÍ á nú í „strögli” með ÍBR vegna Laugardalshallarinnar og telur að með dræmum undirtektum séu ÍBR hreinl <>g beint að leggjast gegn íþróttinni. „BEIN ANDSTAÐA VIÐ KÖRFUKNATTLEIKINN” — sagöi Stefán Ingolfsson formaður á blaðamannafundi í gær vegna viðbragða ÍBR við óskum um fleiri tíma til handa körfuboltanum í Höllinni í vetur „Við ætlum okkur ekki að fara að bera okkur saman við handboltann — höfum aldrei gert það — og munum ekki gera. Við viljum veg hans sem mestan, rétt eins og veg okkar íþrótt- ar,” sagði Stefán Ingólfsson, formaður Körfuknattleikssamhands íslands, á blaðamannafundi er sambandiö boð- aði til í gærdag. Ástæðan fyrir boðun fundarins var að vekja máls á þeim sofandahætti sem ríkt hefur af hálfu IBR í garð sambandsins. Þrátt f.vrir margítrekaðar fyrirspurnir hafa enn ekki borizt nein skrifleg svör varðandi beiðnir KKÍ og félaganna Vals, KR og IR um heimaleiki sína í Laugardalshöll- inni í vetur. ,,Ég get ekki skilið þessi vinnubrögð á annan hátt en þann að þeir hjá ÍBR vilji sem minnst af okkur vita,” sagði Stefán ennfremur. „Við niðurröðun í keppnissali í vetur var Val úthlutað 5 leikjum, KR 4 og ÍR 1 leik. ÖIl félögin sóttu upphaflega um alla sina heima- leiki i höilinni en munu nú, að því er bezt er vitað,- vera reiðubúin til að fallast á að fá 6 heimaleiki hvert í Höllinni. Eftir þvi sem þeir KKÍ-menn segja var þeim tjáð að til þess að leikir fengjust leiknir í Höllinni yrðu að hafa verið a.m.k. 300 áhorfendur á tilsvar- andi leik árið áður. Samkvæmt þessu hefðu leikirnir átt að vera 11 því áhorfendur voru yfir 300 i ellefu Ingimar og félagar í Helsingör höf nuðu í þriðja sætinu Ingimar Haraldsson, fyrrum leik- maður Hauka, var í sviðsljósinu um sl. helgi með liði sínu, IF Helsingör, er hann og félagar hans tóku þátt í 48 stunda móti sem haldiö var i Vásteraas i Svíþjóð. Alls tóku 16 liö þátt í mótinu og hafnaði Helsingör í 3. sæti. Sigur- vegarar urðu sænsku Allsvenskan-liðið Heim. Leikið var í fjórum riðlum og vann Helsingör alla leikina í sínum riðli. Danska liðið Sanna 19—18, LUGI 17—16 og síðán gestgjafana Vasteraas 14—13. í milliriðlinum gerði Helsingör fyrst jafntefli við Kroppskultur, lið sem komst upp í Allsvenskan á siðasta keppnistímabili 17—17, vann síðan Helgingfors 28—16, en tapaði svo fyrir Heim 18—26. Mörg þekkt lið s.s. Drott, Hellas, Lugi, Saga, Heim, Helsingör, o. fh tóku þátt í mótinu svo og GUIF, sem Andrés Kristjánsson kemur til með að leika með í vetur. Hann er enn ekki farinn út til Sviþjóðar en mun fara um mánaðamótin. Ingimar er tiltölulega nýbyrjaður að æfa með Helsingör-liðinu en lék engu að síður með í fjórum leikja liðsins. í spjalli við Dagblaðið sagði hann keppnina hafa verið geysilega erfiða því liðið lék 6 Ieiki á aðeins 48 stundum Búbbi varð markahæstur Jóhanncx Eðvaldsson sem leikur með handariska félaginu Tulsa Roughnecks var í lok keppnislíma- hilsins hjá félaginu kjörinn bezti leik- maður þess. Var það vissulega rós í hnappagalið hjá honum því hann varð einnig markahæsli maður liösins þó svo að hann léki slöðu miðvarðar. Tulsa hóf timabiliö af miklum krafli en dalaði svo verulega er á leið og há- markið var 1—8 skeliur gegn Cosmos er Chinaglia skoraði 7 mörk. -SSv. og var leikið á öllum mögulegum tím- um sólarhrings, m.a. fóreinn leikurinn fram kl. 5 að morgni. -SSv. tilvikum í fyrra. Þessi bið eftir svörum hefur gert það að verkum, að KKÍ hefur orðið að fresta útgáfu leikjabókar um einar 3 vikur og verður ekki tilbúin fyrr en i næstu viku. Að sögn Stefáns var það ætlun KKSÍ að reyna að skera niður reksturskostnað sinn í ár en ekki gengur það eifiðleikalaust með slíku'm seinagangiaf hálfu ÍBR. „RAKARINN” SIGR- AÐI „BAKARANN” — firmakeppng GS lauk á miðviku- dagskvöldi með æsispennandi keppni Það var „rakarinn" eins og Hörður Guðmundsson er kallaður á meöal klúbbfélaga sinna í Golfklúbbi Suðíir- nesja sem bar sigur úr býtum í firma- keppni GS sem lauk í fyrrakvöld. Rélt- ara er þó að segja að það hafi verið Rakarastofa Harðar Guðmundssonar, sem sigraði þ'ví um firmakeppni var að ræða. Keppt var með hoiukeppni-fyrir- komulagi og í úrslitunum sigraði „rak- arinn” „bakarann” eða Gunnars- bakarí. Fyrir „rakarann" keppti Magnús Jónsson en fyrir „bakarann” Sigurður Alberlsson. Jafnir I 3.—4. sæti urðu svo Páll Ketilsson, sem keppti fyrir Smith og Norland, og Marteinn Guðnason, sem keppti fyrir Njarðvíkurbæ (aiian eins og hann lagði sig). Alls voru eitt hundrað fyrirtæki, sem tóku þátt í keppninni og var hún mjög skemmtileg og vel heppnuð. Um sl. helgi fór fram tvímennings- keppni og var leikinn „greensome”, þ.e. tveir léku með einn bolta. Var dregið saman í pör og öllum á óvart voru það nýliðarnir Rósant Aðalsteins- son og Geirmundur Sigvaldason, sem sigrðu á 71 höggi nettó. í 2. sæti urðu þeir Magnús Jónsson og Ástþór Val- geirsson á 72 höggum nettó og í 3. sætinu urðu þeir félagar Garðar Jónsson og Annel Þorkelsson á 73 höggum nettó. Á morgun verður flaggakeppni h'já GS en þar fá menn í nesti SSS vallarins, sem er 70, að viðbættri eigin forgjöf. Siðan er slegið eins og menn komast í sinum höggafjölda og þegar ekkert högg er eftir I pokahorninu stinga þeir niður flaggi til merkis um endanlegan ákvörðunarstað boltans. - SSv. A fundinum í gær voru lagðar fram tölur um áhorfendafjölda í úrvals- deildinni í fyrra. Ekki lágu fyrir tölur úr Njarðvík og íþróttahúsi kennarahá- skólans. Meðalaðsókn að leikjum KR, Vals, ÍR og Fram var í fyrra 330,7 áhorfendur en til gamans má geta þess að fyrir þemur árum var meðaltalið 40 á leik! í Njarðvík er ekki fjarri lagi að áætla meðaltal áhorfenda á bilinu 400—450 manns. Hins vegar hafa áhorfendur vart verið yfir 150 að meðaltali í kennaraháskólanum. Gott dæmi um þá aukningu áhorfenda sem orðið hefur í körfuknattleiknum er leikur KR og Vals haustið 1978. Þann, leik sáu 400 manns. í fyrrahaust sáu þann leik 1400 manns og á 4 viðureignir liðanna í fyrra komu að meðaltali 737 manns. Aðsóknin í 1. umferð mótsins í fyrra var að meðaltali 430 manns. „Við höfum aldrei fengið nein rök frá ÍBR varðandi úthlutunina og það virðist engin ákveðin stefna hafa verið mörkuð hjá ÍBR varðandi úthlutun tíma til einstakra íþróttagreina,” sagði Stefán. ,,Er naumast hægt að Iesa annað en beina andstöðu við körfuknattleiksíþróttina af undir- tektum ÍBR,” sagði Stefán. -SSv. Blaklandsliðið æfði af fullum krafti i tþróttahúsi Háskólans. DB-mynd Ragnar Th. Víkingamir út en Stef- án Konráðsson er heima Borðtennisdeild Víkings hefur ráðisl í það slórvirki að senda lið sitt lil þáll- töku í Evrópukeppni félagsliða í borð- tennis þótt bezli maður félagsins, Slefán Konráðsson, geti ekki komizt með til að keppa vegna vinnu sinnar. Víkingarnir Hilmar Konráðsson, Kristján Jónasson, Þorfinnur Guð- mundsson og Kjartan 'Ingason (vara- maður) héldu út til Bergen í morgun til keppni við norska félagið Heraas. Fer leikur liðanna fram í kvöld kl. 18 í Bergen og verður þetta þvi- strembið fyrir Vikingana því þeir koma ekki til Bergen fyrr en kl. 151 dag. KR átti rétt- inn til að taka þátt i keppninni í ár en nýtti hann ekki. Aðeins einu sinni áður hefur íslenzkt félagslið ráðizt i þátttöku í Evrópukeppni en það var 1977 er KR- ingar reyndu fyrir sér. -SSv. Blaklandslið í vígahug — halda í viku í æfingabúðir fyrír NM í Finnlandi Islenzka landsliðið i blaki undirbýr nú af krafti þátltöku sína í Norður- landamótinu sem fram fer í Finnlandi dagana 3.-5. október. Liðið hefur æft vel að undanförnu undir sljórn Kínverjans Ni Fongguo. íþróttir Reykjavíkur- mótið- í handbolta Vikingur sigraði ÍR í Reykjavíkur- mótinu í handbolta í gærkvöldi. Úr- slitatölurnar urðu 29—22: KR-ingar báru sigurorð af Ármenningum, 29— 21, og að lokum lauk leik Fram og Þróttar með sigri Þróttar 24—22. Liðið mun halda út föstudaginn 26. september til Svíþjóðar þar sem það mun dvelja í æfingabúðum fram að mótinu. Þar munu þrír íslendingar sem leika með erlendum liðum bætast í hópinn. Þeir eru Kristján Óskarsson sem leikur í Svíþjóð (áður Þrótti), Tómas Jónsson sem leikur með KFUM Ósló og Böðvar Sigurðsson sem er við nám í Kaupmannahöfn. Blaksambandið er eins og fleiri íþróttasamtök ekki of fjársterk og því þurfa leikmennirnir sjálfir að taka á sig verulegan hluta af ferða- kostnaðinum eða um 150 þúsund á mann. Nokkrir leikmenn sem upphaflega voru valdir í landsliðshópinn gefa ekki kost á sér til fararinnar. Ber þar fyrst að telja Þróttarana Valdemar Jónasson og Benedikt Höskuldsson. Benedikt er farinn til Bandaríkjanna í nám en Valdemar stendur í íbúðakaupum og treystir sér ekki til að fara. Framarinn Baldur Tumi Baldursson er í erfiðum prófum í læknisfræði og ákvað því að sleppa landsliðinu í bili. Þrátt fyrir þessa blóðtöku er óhætt að fullyrða að blaklandsliðið hafi aldrei verið sterkara. Engu að síður er það óiiklegt að þvi takist að vinna leik en það hefur aldrei gerzt á Norður- landamóti. Reyndar þætti það mjög góður árangur ef liðinu tækist að vinna hrinu og er vonandi að svo verði. -KMU. Panathinaikos rak stjórann Framkvæmdastjóri gríska félagsins Panalhinaikos Ronnie Allen var rekinn í gærkvöldi, eflir 0-4 tap liðsins fyrir Juvenlus í UEFA-keppninni í fyrra-' kvöld. Talsmenn Panathinaikos sögðu að þeir leldu Allen einan bera sök á hinu. mikla tapi og var honum því skipað að laka pokann sinn og hafa sig á burl. Allan lék fimm landsleiki fyrir England á árunum 1952—55, en hann lék með félaginu WBA. ARGENTINA Osvaldo Ardiles Huracan ; Ricardo Villa fíacing ! Alex Sabella River Plate Sheff. Utd. . Claudio Marangoni San Lorenzo ! Pedro Verde Hercules/1 II Spurs Spurs Sheff. Utd. Leeds Sundertand Sheff. Utd. £325,000 £375,000 £80,000 £400,000 £320.000 Free BELGIA 1 Roger Van Gool fT Cologne Coventry £250,000 Johnny Ostergaard Ikast Viggo Jacobsen Kestrup DANM0RK Charlton Charlton £40,000 combined FINNLAND Pertti Jantunen IFK Eskiltuna Bristol C. £95,000 HOLLAND Frans Thijssen FC Twente Arnold Muhren FC Twente Loek Ursem AZ '67 Pat Van den Hauwe JJemfernmnde _______________C'________i : Ipswich Ipswich Stoke Birmingham £200,000 £200,000 £60,000 £100,000 ISRAEL Avi Cohen Moshe Garayani Maccabi Tel Aviv Liverpool Maccabi Netanya Brighton £200,000 £40,000 35 ÚTLENDINGAR FRÁ11LÖND- UMIEKA MED ENSKUM UDUM Frá því enska knattspyrnusambandið aflétti banni sínu á kaupum enskra liða á erlendum leikmönnum fyrir tveimur ár- um hafa 35 útlendingar verið keyptir til Englands. Toltenham Hotspur reið á vaðið, er það keypti Argentínumennina Osvaldo Ardiles og Ricardo Villa í júlí 1978. I dag leika útlendingar méð 14 af 22 liðum í 1. deild og með sanni má segja að útlendingarnir setji sinn svip á deilda- keppnina. Eins og gerist og gengur hefur sumum gengið erfiðlega að festa sig í sessi, meðan aðrir hafa blómstrað. Sem dæmi um leikmenn af fyrrnefnda taginu má nefna Argentínumanninn Alberto Taran- tini, sem lék með Birmingham. Hann náði aldrei að sýna sinar beztu hliðar og var á endanum seldur aftur lil Argentínu. Aðrir hafa reynzt reyfarakaup, svo sem Argentínumennirnir hjá Tottenham, og hollenzka parið hjá Ipswich, Frans Thijs- sen og Arnold Múhren. Flestir útlendinganna koma frá Júgó- slavíu, eða 10, og leika með ekki ófræg- ari liðum en Manchester United, Man- chester City og Southampton. Athygli vekur. að þrír leikmenn frá Norðurlönd- unum eru skráðir leika með enskum deildafélögum, tveir hjá Charlton og koma báðir frá Danmörku, og einn með Manchester City og er sá Svíi. Efiaust munu njósnarar og útsendarar ensku félaganna beina augum sínum æ oftar yfir Ermarsundiðí leit sinni að efni- legum leikmönnum og sjálfsagt verður þess ekki langt að bíða að íslenzkir leik- menn geri samning við ensk félög. Samkvæmt reglum EBE er hæsta verð, sem greiða má fyrir leikmann 500.000 sterlingspund og er þá átt við þegar leik- maður er seldur frá einu landi til annars. Verð á leikmönnum í Englandi er hins vegar mun hærra, þeir beztu eru metnir á eina og hálfa milljón sterlingspund, og það er því mikill fjárhagslegur ávinn- ingur fyrir ensku félögin áð kaupa sína menn frá öðrum löndum. Báðir Hol- lendingarnir hjá Ipswich kostuðu félagið |aðeins 500.000 pund, en í dag gæti félagið selt þá báða til annars ensks félags fyrir fjórum sinnum hærri upp- hæð. Ljóst má því vera að útlendingunum í Englandi á enn eftir að fjölga á komandi mánuðum, en hér á eftir fer listi yfir þá erlendu leikmenn er nú leika með enskum liðum. Fyrst kemur nafn leikmannsins, síðan fyrrverandi félag, þá núverandi félag og loks kaupverðið. Peter Borota, júgóslavneski markmaðurinn hjá Chelsea, hefur gert mikla lukku, enda þykir hann mikill „sýningamarkvörður” og fellur æsileg markvarzla hans vel i kramið hjá áhorfendum á Stamford Bridge. P0LLAND Kazimierz Deyna Legia Warsaw Man. City £100,000 Tad Nowak Legia Warsaw Bolton £50,000 Ryszard Kowenicki Widzew Lodz Oldham £10,000 Adam Musial Arka Gydinia Hereford £4,000 SVIÞJOD I Kurt Bergstrand Halmstad Man. City SVISS Raimondo Ponte Grasshoppers N. Forest £230,000 URUGUAY Rafael Villasanz Huelva Wolves £160,000 s JUGOSLAVÍA Petar Borota Dragoslav Stepanovic Ivan Golac Ivan Katalinic Bosco Jankovic Nicky Jovanovic Raddy Avromovic Raddy Antic Dzemai Hadziabdic Drazen Muzinic Partizan „Wormancia Partizán Hajduk Split Partizan Red Star M.K. Rijeka ,Rea| Zaragoza ‘NeTénllostar Hajduk Split Chelsea Man. City Southampton Southampton Middlesbro' Man. Utd. ( Notts. C. Luton Swansea Norwich 00,000 £150,000 £50,000 £100,000 £80,000 £300,000 £100,000 £50,000 £160,000 £300,000 Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir íþróttir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.