Dagblaðið - 19.09.1980, Qupperneq 16
24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1980.
I
Menning
Menning
Menning
Menning
NÝTT SIÁLFSTRAUST
Sýning Amar Inga í FIM-salnum
Samskipti Akureyringa og Reyk-
víkinga á myndlistarsviðinu voru til
skamms tíma ýmsum vandkvæðum
bundin. Akureyringar virtust, ein-
hverra hluta vegna, ekki fúsir að
kaupa verk af þeim sunnanmönnum
sem sóttu þá heim með list sina og
fóru margir þaðan með sárt ennið.
Ekki tóku svo Reykvíkingar norðan-
mönnum með opnum örmum heldur1
þegar þeir komu hingað með sínar
listir og sjálfsagt sárnaði mörgum
þeirra sú gagnrýni sem þeir urðu
fyrir.
Margir hefur nú breyzt — nú er
t.d. myndlistarskóli á Akureyri og
Gallerí Háhóll hefur haft talsverð
áhrif á almenningsálit og smekk
Akureyringa og vilja sunnlenskir
listamenn nú gjarnan sýna þar. Hins
vegar hafa listamenn frá Akureyri,
lítið verið á ferðinni hér fyrir sunnan
og er það miður, því hafi þeir tekið
eins stórstígum framförum og Örn
Ingi sem nú sýnir í FlM-salnum, eþ
full ástæða til að gefa þeim gaum.
Að mestu
sjálflærður
Þetta er fyrsta einkasýning Arnar
í Reykjavík, en áður hefur hann tekið
þált í samsýningum hér, bæði akur-
eyrskum og Haustsýningum FÍM.
Örn Ingi er að mestu sjálflærður
og forðum sýndist mér hann draga
dám af Sverri Haraldssyni þar sem;
hann er beiskastur í lit og smámuna-
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
m0
Teikning eflir örn Inga.
samastur í myndbyggingu, auk þess
sem teikning hans var annað hvort
hikandi eða þá að henni var ofgert.
Eftir það virðist Örn Ingi hins vegar
hafa hert á sjálfsnáminu og m.a.
þakkar hann ýmsum þeim lista-
mönnum sem gist hafa Akureyri þær
breytingar sem orðið hafa á verkum
sínum. Hringi Jóhannessyni þakkar
hann nýtt sjálfstraust í teikningu,
Gunnari Hjaltasyni kann hann þakk-
fyrir ábendingar varðandi pastel og
loks telur Örn Ingi sig hafa lært heil-
mikið af Peter heitnum Schmidt,
vatnslitamálaranum snjalla sem
sýndi í Suðurgötu í fyrra.
Mest er um vert að Örn Ingi hefur
kunnað að nýta sér öll þessi heilræði.
Mýkt
Verk hans hafa enn sem komið er
ekki sterkan persónulegan karakter,
þ.e. svipmót sem tilheyrir Erni Inga
og engum öðrum og þekkist sem
slikt, en þau eru á góðri leið með að
verða sér úti um slík einkenni.
Merkilegt fannst mér hve mikil mýkt
er nú komin inn í málverk hans, án
þess þó að gengið sé á myndbygging-
una og sú mýkt kemur ekki einasta
fram í pensildráttum, heldur í því lit-
rófi sem örn Ingi hefur nú tileinkað
sér. Kannski leggur náttúran sitt af
mörkum í því tilfelli, því Örn lngi
velur sér tíðum eldsumbrota eða
hverasvæði sem viðfangsefni, —
reykur, gufa eða mislur mýkja
útlínur, tempra mótífið. „Orkandi
land”, stærsta myndin á sýningunni,
er eitt veglegasta verkið sem ég hef
Orn Ingi á sýningu sinni.
séð ef'tir örn Inga til þessa. Sömu
mildina og þokkann er að finna i
mörgum minni olíumyndum hans.
Teikningar hans sýna að hann hefur
tekið sér tak á því sviði. Þær eru
e.t.v. i stífara lagi, en alveg brúklegar
sem formyndir að málverkum.
Pastellitum beitir Örn Ingi kunn-
áttusamlega, en þó örlar þar á
skreytikennd sem hann má gæta sín
á. Það má að vísu þekkja læriföður-
inn, Peter Schmidt í vatnslitamynd-
um Arnar Inga, en svo fljótur er læri-
sveinninn að tileinka sér tæknina að
undrum sætir.
En Örn Ingi lætur sér ekki nægja
hinar hefðbundnu fagurlistir, sýnir
hér skrýtilega tréskúlptúra og enn-
fremur fara sögur af gjörningum sem
hann hefur framið. Fyrir nokkrum
árum var lýsingarorðið „Akureyrar-
malerí” notað sem hnjóðsyrði í
„kreðsum” sunnlenskra myndlistar-
manna. Örn Ingi gerir sitt til að draga
úr þvi merginn.
S
DAGBLADIO ER SMAAUGLYSIIMGABLAÐIÐ
SIMI 27022
ÞVERHOLT111
8
1
Til sölu
B
Til sölu nýlegt og litið notað
Ifö wc og handlaug, hvitt að lit. Verð:
70 þús. Uppl. í sima 44681.
Góð kaup.
Til sölu 10 gira karlmannsreiðhjól. Ný'
Minolta XL sound 64, kvikmynda |
tökuvél og furusófaborð, kringlótt..
Uppl. í síma 22575 eftir kl. 17.
Bilskúrshurð með gönguhurð
á samt járnum til sölu. Hæð 205 cm og
breidd 257 cm. Verðkr. 150 þús. Uppl. í
sima 40647.
------—---------------------------- !
Til söiu nýtt mjög fallegt
stakt teppi frá Teppalandi, stærð 3x3
1/2; einnig felgur á Volvo 244 ásamt
snjódekkjum. Uppl. í sima 99-2337, eftir
kl. 7 á kvöldin í síma 74691.
6,14 tommu Ford
felgur og 4,14 tommu snjódekk og
Chrysler utanborðsmótor, 35 ha, til
sölu. Uppl. i sima 15097 eftir kl. 7.
Radiófónn með innbyggöum
hátölurum, barnarúm, barnaborð og
stóll, Volvo felga á 244 ’75 ásamt ýms-
um varahlutum, til sölu. Uppl. í sima
84019 eftir kl. 6.
AEG eldavél og ofn,
2ja hólfa stálvaskur og notuð eldhúsinn-
rétting til sölu. Tilboð óskast. Uppl. i
sima4l870.
Saumastofa.
Til sölu lítil saumastofa, góð sníðaað
staða, öll verkfæri. Verðca 2,5 milljónir.
Uppl. hjá auglþj. DB i síma 27022 eftir
kl. 13.
H—164.
Til sölu rennibekkur,
Emco Junimat SL 3. Uppl. I sima 24015.
Til sölu borðstofuborð
og 4 stólar, skenkur og sófasett með hús-
bóndastól og sófaborði. Uppl. í sima
83237 millikl. 3og7.
Til sölu málverk
eftir Matthías síðan ’47. Uppl. í sima
28376 eftirkl. 17ídagognæstudaga.
Tökum I umboðssölu
búslóðir og vel með farnar nýlegar'
vörur, s.s. isskápa, eldavélar, þvotta-
vélar, sófasett o.fl. Einnig reiðhjól og
barnavagna. Sala og skipti, Auðbrekku
63, simi 45366 og 21863 alla daga.
Skólaritvélar.
Margar gerðir skólaritvéla til sölu. Hag-
stætt verð. Uppl. í síma 83022 milli kl. 9
og 18.
IHansahillur.
Hansahillur til sölu á 3500 kr. stk.,
uppistöður og festingar fylgja. (1/3
• búðarverðs). Uppl. í sima 36363.
Til sölu skilrúm
(stuðlaskilrúm) úr lituðu mahoni, hentar
til skiptingar stofu eða kringum stigaop.
Uppl. fsíma 74446.
Terylene herrabuxur
á 14 þús. kr. dömubuxur á 13 þús. kr.
Saumastofan, Barmahlíð 34, sími 14616.
Stór og vandaður
peningaskápur til sölu. Uppl.
27283 á skrifstofutíma.
t sima
Óskast keypt
8
Vinnuskúr óskast.
Uppl. í síma 33600 á daginn og 44466'
eftir kl. 20.
26 tommu litsjónvarpstæki
óskast, ekki eldra en 3ja ára. Uppl. i'
síma 27267 eftir kl. 20.
Óskum eftir að kaupa
bækur eftir Guðrúnu frá Lundi, helzt
Dalalíf og Tengdadótturina. Aðrar
bækur vel þegnar. Uppl. hjá auglþj. DB i
síma 27022 eftirkl. 13.
H—316.
Litil frystikista
óskast til kaups.Uppl. í síma 32813 eftir
kl. 19.
Kaupi bækur,
gamlar og nýjar, heil söfn og einstakar
bækur, islenzk póstkort, tréskurð, silfur
og gamla smærri muni og myndverk.
Aðstoða við mat bóka og listgripa fyrir
skipta- og dánarbú. Bragi Kristjánsson,
Skólavörðustíg 20, sími 29720.
c
Þjónusta
Þjónusta
Þjónusta
)
c
Viðtækjaþjónusta
)
Sjón varpsviögerðir
Heima eöa á Verkstæði.
Allar teRundir.
3ja mánaða ábyrgð.
Skjárinn, Bergstaðastræti 38.
I)ag-, kvöld- og helgarsimi
21940. ,. ____...
Sjónvarpsloftnet.
Loftnetsviðgeröir.
Skipaloftnet,
íslenzk framleiðsla.
; Uppsetningar á sjónvarps- og
' útvarpsloftnetum. ^
öll vinna unnin af fagmönnum. m‘
Árs ábyrgð é efni og vinnu.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF.
Síðumúla 2,105 Reykjavik.
rSímar: 91-3^090 verzlun — 91-39091 verkstæði.
8U
c
Jarðvinna-vélaleiga
)
jVéla- og tækjaleiga Ragnars
Guðjónssonar, Skemmuvegi 34,
simar 77620, heimasími 44508
Loftpressur
Hrœrivélar
Hitablésarar
Vatnsdœlur
Slipirokkar
Stingsagir
Heftibyssur
Höggborvélar
Beltavélar
Hjólsagir
Steinskurðarvél
Múrhamrar
Traktorsgrafa
til leigu
Traktorsgrafa til leigu í stærri sem minni verk. Auðbert 4
-Högnason, sími 44752 og 42167.
Kjarnaborun!
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, glugga, loftræstingu og
(ýmiss konar lagnir.’2". 3”, 4”, 5", 6”, 7”,borar. Hljóðlátt ogi
ryklaust. Fjarlægum múrbrotið, önnumst ísetningar hurða og glugga
ef óskað er, hvar sem er á landinu. Skjót og góð þjónusta.
KJARNBÖRUN SF.
Slmar: 28204 — 33882.
LOFTPRESSU-
TEK AÐ MÉR MÚRBROT,
FLEYGANIR OG BORANIR.
MARGRA ÁRA REYNSLA.
LEIGA
Vélaleiga HÞF. Sími52422.
Traktorsgrafa til leigu
Traktorsgrafa til leigu í stærri sem minni verk.
Sími 72540.
4’