Dagblaðið - 22.09.1980, Síða 5

Dagblaðið - 22.09.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980. 5 „Furðulegt að ekki skuli boðað til hluthafafundar" - sagði Steingrímur um þau áform Flugleiða að taka ákvörðun um Atlantshafsflugið á stjómarfundi ,,Mér finnst það nánast furðulegt, að Flugleiðamenn virðast ekki ætla að halda hluthafafund um þær miklu á- kvarðanir sem þeir standa frammi fyrir, þ.e. að taka ákvörðun um hvort þeir samþykki að taka 3 milljón dollara styrk frá ísl. ríkinu árlega í næstu þrjú ár og sömu fjárhæð til eins árs í styrk frá Luxemborgurum,” sagði Steingrimur Hermannsson sam- gönguráðherra í samtali við fréttamann DB í Luxemborg. ,,Þeir tala um fund sérfræðinga á markaðssviði og siðan stjórnarfund í félaginu á föstudaginn og að eftir þann fund muni ákvörðun félagsins liggja fyrir.” Steingrímur sagði að lausafjárstaða Flugleiða væri svo slæm, að félagið yrði að fá peninga fyrir næstu mánaða- mót, annað hvort að fá styrkinn greiddan eða annað fé. í síðustu viku sendu Flugleiðir bréf- lega beiðni til ríkisstjórnarinnar um bakábyrgð fyrir 12 milljarða króna rekstrarfjárláni og samtímis beiðni unt að lausaskuldum yrði breytt í föst lán til lengri tíma. Ríkisstjórnin hefur enn enga af- stöðu tekið til þessarar nýjustu beiðni Flugleiða. Á bls. 6 er rætt um samkomulagið í Luxemborg og þau skilyrði sem Luxemborgarar setja fyrir fjár- stuðningi sínum. Þau byggjast á sam- komulagi i isl. ríkisstjórninni sl. þriðjudag m.a. um nýja og sérstaka rekstrarstjórn hins nýja Atlantshafs- flugs. -A.SI. Ungur Keflvíkingur hryggbrotnaði í bílveltu Tuttugu og eins árs gamall Kefl- viltingur liggur hryggbrotinn í sjúkra- húsi eftir bílveltu á Reykjanes- brautinni. Að sögn lögreglunnar í Kefiavik er taiið að um tvær klukku- stundir hafi liðið frá því að slysið varð þar til það uppgötvaðist. Það var laust fyrir klukltan sjö i gærmorgun, sem lögreglunni var til- kynnt um slysið. Bíllinn, sem er aí Volvo gerð hafði lent út af á Stapan- um skammt sunnan við Grindavíkur- afleggjarann. Ökumaðurinn var einn i bílnum. Að sögn lögreglunnar mun hann ekki hafa verið undir áhrifum vins. -ÁT- Friðsamlegt í miðborg Reykjavíkur um helgina Mikill fjöldi fólks var i miðborg gerandi. Ein stór rúða brotnaði í Reykjavíkur aðfaranætur laugardags Austurstræti, en það verk mun ekki og sunnudags. Að sögn lögreglunnar hafa verið unnið með vilja. bar þar ekkert út af, svo að orð sé á -ÁT- Keflavík: Innbrotsþjófur handtekinn í Verzluninni Nonna og Bubba Piltur á sautjánda ári var hand- hafði rétt haft tíma til að troða inn á tekinn i verzluninni Nonni og Bubbi i sig sígarettum og öðrum smávarningi Keflavík aðfaranótt laugardagsins. og hugði á útgöngu þegar snarlega var Sézt hafði til ferða hans og var lög- bundinn endi á innbrotsferðina hans i reglan þegar kvödd á staðinn. Hann þetta skiptið. -ÁT- Bandaríski freðfiskmarkaðurinn: Gallar í stórri send- ingu frá Útgerðar- félagi Akureyrar Gallar komu fram í stórri sendingu af frystri fiskblokk frá hraðfrystihúsi Útgerðarfélags Akureyrar nýlega. Hef- ur blaðið íslendingur á Akureyri eftir Gísla Konráðssyni forstjóra ÚA, að ormar og bein hafi fundizt í stórri sendingu af fiskblokk. Er reiknað með að hinir erlendu kaupendur muni fara fram á afslátt af allri sendingunni, þannig að fjárhagslegt tjón ÚA verður talsvert. íslendingur hefur eftir Gísla, aðeina ráðið til að koma í veg fyrir að vinnu- brögð af þessu tagi endurtaki sig, sé að herða enn framleiðslueftirlit. Gísli telur að þótt fjárhagslegur skaði sé nokkur. þá sé hitt mun verra, að ,,hið góða orð sem farið hefur af framleiðslunni, kynni að biða hnekki vegna þessarar sendingar,” eins og blaðið segir. -ÓV. Göngum ávallt vlnstra megin á móti akandi umferð.. uar- Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra, Þorsteinn Ingólfsson frá utanrikisráðuneyti og Birgir Guðjónsson frá sam- gönguráðuneytinu, koma frá Luxemborgarviðræðunum. DB-mynd Sig. Þorri. Veröí Ijós! Gottúrval af allskonar bílaperum. Höfum fengið allar gerðir af perum í bíla, bifhjól og vinnuvélar 6, 12 og 24 volta. Allar tegundir festinga (perusæta). Heild- sala, smásala. Mjög hagstætt verð. Fást á öllum bensínstöðvum okkar. Perurnar frá Dr. G. Fischer í V-Þýskalandi eru viðurkennd gæðavara. STOÐVARIMAR

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.