Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980. Amerísk vörubíla- og jeppadekk 77/. SÖLU STÆRD TEGUND L78x15 Snjódekk 10x16,5 Sendibiladekk 750x16 MaxiTrac 11x15 MaxiTrac 1000x20 Framdekk 1100 x 20 Framdekk 1100x20 Afturdekk , 900x16 Gröfudekk 1400 x 24 Hefil-og skófludekk. 700 x 15 Premium Traction 700 x 16 Premium Traction Upplýsingar í símum 92-2348 92-2495 HÁRGREIÐSLUSTOFAN SPARTA Norðurbrún 2. - Simi 31755 Nýjungarí klippingu, permanent glansskol o.fl. OPIÐ LAUGARDAGA Gústa Hreins, Inga Gunnars ;on1 ^ GÖMLUDANSA NÁMSKEIÐ Þjóðdansafélags Reykjavíkur fyrir full- orðna og börn hefjast mánudaginn 29. september í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu, R. Innritun og upplýsingar í síma 76420. VÉLAVERKSTÆÐI Egils Vilhjálmssonar H/F SMIÐJUVEGI9 A - KÓP. - -SÍMI44445 • Endurbyggjum vélar • Borum blokkir • Plönum blokkir og head • Málmfyllum sveifarása, tjakköxla og aðra slitfleti m/ryðfríu harðstáli • Rennum ventla og ventilsæti. • Slípum sveifarása. SÍMI' 44445 FULLKOMIÐ MÓTOR- OG REIMIMIVERKSTÆÐI SÚLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágúst- mánuð 1980, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 4.75% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 18. sept. 1980. /". Japan: Ferð til Banda- ríkjanna orðin að stöðutákni Baldur Hjaltason skrifar frá Japan — en bifreiöaframleiösla, útgjöld til hermála og flug- samgöngur eru meöal deilumála ráðamanna ríkjanna Hér í Japan eru Bandaríkin og Bandaríkjamenn allt að þvi dýrkaðir. Bandarísk hamborgara- og kjúkl- ingamenning er búin að koma sér vel fyrir í flestum stærri borgum Japans og blómstrar þar. Bandarískar popp- og rokkstjörnur njóta einnig mikilla vinsælda ungdómsins. Það að fara til Bandaríkjanna til náms eða í sumar- leyft er orðið stöðutákn og enginn er maður með mönnum nema hann hafí heimsótt þetta land a.m.k. einu sinni. Sérstaklega keppast stúdentar við að komast þangað. Þrátt fyrir þetta eru samskipti bandarískra og japanskra stjórnvalda ekki eins góð og búast mætti við. Flest eru þessi deilumál viðskiptalegs eðlis. Það stærsta er hinn gífurlega mikli bilaútflutningur Japana sem hefur um árabil skapað hausverk hjá bandarískum bílaframleiðendum. í ár er spáð metútflutningi eða um 6 milljónum bíla þótt þeir fari nú ekki allir til Ameriku. Lokaður markaður Japanir hafa verið ákaflega tregir til að takmarka sinn útflutning og Bandaríkjastjórn hikað við að setja innflutningshömlur þótt forsvars- menn verkalýðsfélaganna í bílaiðn- aðinum og nýlega sum bílafram- leiðslufyrirtækin sæktu málið fast. Lausnin sem báðir aðilar virðast geta sætt sig við er sú að japanskir bíla- framleiðendur reisi verksmiðjur sinar i Bandaríkjunum og skapi þannig at- vinnu og verðmætasköpun innan- lands. Fleiri alvarleg deilumál eru á ferð- inni. Bandarikjamenn eru ævareiðir yfir því hve stór hluti japanska mark- aðsins er verndaður og lokaður fyrir þeim. Það mál sem sett hefur verið í brennidepilinn er útboð á tækjum og verklegum framkvæmdum hjá NTT (Nipon Telegraph and Telephone Public Corporation) sem er ríkisfyrir- tæki og sér um fjarskiptamál innan- lands. Þetta fyrirtæki veltir miklum fjármunum og hefur mikil umsvif. Það ræður mikinn fjölda undirverk- taka til að framleiða hin ýmsu tæki sem notuð eru. Hingað til hafa verk- lýsingar eingöngu verið á japönsku og erlendum fyrirtækjum meinað að gera tilboð. Hér er um stórar upp- hæðir að ræða og mikið í húfi. Á sama tíma selja japanskir framleið- endur sams konar framleiðslu til Bandarikjanna. Þetta mál hefur verið sett á oddinn sem nokkurs konar prófmál og allt bendir til þess að bandarísku fyrirtækin fái sitt fram. Að minnsta kosti er farið að prenta útboðsgögnin á ensku. Aukin hernaðar útgjöld Þriðja stóra deilumálið er hernaðarútgjöld Japans. Bandaríkja- menn vilja að Japanir eyði meiru til hernaðar og taki á sínar herðar stærra hlutverk í varnarsamningi þjóðanna. Japanir hafa hingað til eytt litlu til hernaðarútgjalda miðað við aðrar þjóðir enda sterk andstaða meðal þjóðarinnar. Þó hefur hin íhaldssama stjórn LDP (frjálslyndra lýðræðissinna) veitt á undanförnum árum aukið fjármagn til hernaðarog Bandarikjamenn eru ævareiðir yfir þvi hve japanski markaðurinn er þeim lok- aður. Hingað til hafa til dæmis allar verklýsingar verið á japönsku og erlendum fyrírtækjum meinað að gera tilboð f verkefni f Japan. Myndin er úr einu hinna japönsku stórfyrirtækja — Nikon. Starfsmennirnir eru við likamsæfingar. j hvert sem er með viðkomu í Tokyo eða Osaka. Dæmið snýst við Síðastliðin 10 ár hafa Japanir margsinnis reynt að knýja fram breytingar, sérlega á fyrri hluta síðasta áratugar þegar flugsamgöng- ur milli þessara landa voru í örum vexti. En nýlega tóku málin nýja stefnu. í febrúar sl. undirritaði Banda- ríkjaforseti ný lög um flugsam- göngur. Þau afléttu flestum hömlum sem gilt höfðu og stefndu í átt til auk- innar frjálsrar samkeppni. Nú vilja bandarísk flugfélög að Japanir létti af einokunaraðstöðu sinni með JAL. Japanska stjórnin telur hins vegar að JAL hafi nú meiri þörf fyrir vernd vegna hækkandi eldsneytiskostnaðar og færri farþega. Því eru Japanir komnir á þá skoðun að best sé að hreyfa ekki við loftferðasamningnum frá 1952 og hafa því vent kvæði sínu í kross. Helst er þeim í nöp við kröfu Air Microindonesia sem er dótturfyrir- tæki Continental Airlines. Þeir vilja auka áhrif sín á Saipan-Tokyo flug- leiðinni. Nú er flogið 14 sinnum í viku og skiptist þetta flug jafnt milli JAL og Continental. Þetta hefur verið gífurlega arðbær flugleið vegna hins mikla fjölda japanskra karl- manna sem hafa skroppið þangað til að kynnast hinu ljúfa lífi. Continent- al hefur kært til bandarískra flug- málayfirvalda og krafist þess að bann verði lagt á ferðir JAL til New York þangað til samningum verði náð. Japanir eru að vonum uggandi þvi þetta er nokkurs konar prófmál og bíða spenntir efdr úrslitum. á fjárlögum 1981 hækkuðu hernaðar- framlög meira en nokkuð annað, m.a. til að friða Bandaríkin. Þeir eru samt sem áður ekki ánægðir og vilja hraðari uppbyggingu. 5 ára áætlun er í gangi um uppbyggingu hersins og samkvæmt henni verður veitt mun meiri peningum til hans á næstu árum. Nú er í uppsiglingu enn nýtt mál sem er loftferðasamningur landanna. Um árabil hafa Japanir viljað fá endurskoðaðan þennan samning sem þeir telja að beri merki eftirstríðsár- anna. Samkvæmt samningum frá 1952 er JAL, ríkisrekna flugfélaginu, leyft að fljúga til 7 staða í Bandaríkj- unum og nota aðeins New York til að fljúga til 3 viðkomustaða í Evrópu. jretta hefur Japönum þótt hart því bandarísk flugfélög hafa getað flogið

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.