Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980. 13 Ath. ''-^annaex, l V' Innritun 16. oa 17. sept. n í Félagsheimilinu frá kl. 5-8. Kennsla hefst 18. september á sama stað. Konu-beat fyrir dömur, 20 ára og eldri sérhjóna- og einstaklingsflokkar. Komið og iærið nýju disco-dansana. Kenndir verða: Barnadansar, yngst 3ja ára Samkvæmis- og gömlu dansarnir Rokk Discodansar Aðeins messur ná meiri aðsókn en f lóabáturinn Atli Heimir Sveinsson tónskáld lék á orgelið og jafnframt var frumflutt eftir hann lítið en fallegt tónverk i Flateyjarkirkju. Eftir messu virtu þeir prestur og tðnskáld fyrir sér listaverk Baltasars i lofti kirkjunnar. Stykkishólmi þjóni Flateyjarsöfnuði þar sem samgöngur milli þeirra staða eru auðveldari og tiðari ferðir í Stykkis- hólm en að Reykhólum. Þó hittist svo á um síöustu mánaðamót að báðir prest- arnir voru við messu í Flateyjarkirkju. Séra Gísli Kolbeins prestur í Stykkis- hólmi fór sér að engu óðslega klukkan tvö á sunnudeginum þá er hringt hafði muna sinn fífil fegri frá því að hún var ein helzta menningarmiðstöð landsins um miðja síðustu öld þá er hún ekki dauð úr öllum æðum. Menn meðtaka þar guö sinn, liklega ekki síður nú á haustdögum en munkar þeir sem settu á stofn klaustur í eyjunni fyrir rétt rúm- um 800 árum. - JH Flatey á Breiðafirði er þekkt að fornu og nýju fyrir auðuga menningu. Þrátt fyrir fámenni síðustu ára þrifst þar fagurt mannlíf. Bændur sitja eyj- una veturlangt og halda í heiðri alda- gamla hefð gestrisninnar. Þegar sumra tekur færist líf í gamla þorpið og listamenn og heimspekingar taka að ganga þar um götur, eða götu öllu heldur því lítt fer fyrir gatnamótunum í plássinu þvi. Raunar verða allir heim- spekingar um stund er þeir koma til Flateyjar og færast öld aftur í tímann. Það eina sem minnir á nútímann er glansandi nýr traktor af gerðinni Massey Fergusson er þykja ómissandi til sveita. Þegar flóabáturinn Baldur kemur til eyjarinnar sést farartækið fara með ógnarhraða til hafnar, gjarn- an með einn eða tvo farjrega. En traktorinn er ekki sá eini er fer niður á bryggju þegar Baldur kemur. Þangað fara allir íbúar eyjarinnar, a.m.k. þeir sem eiga heimangengt. Baldur er tengi- liðurinn við umheiminn og sá hlekkur má ekki bresta. Þetta skilja allir í Flat- ey, enda er það ekki aðeins mannfólk, sem fagnar Baldri og kveður. Þangað koma líka hundar og ekki færri en þrír heimaalningar, allir mórauðir. Aðeins messur ná meiri aðsókn en Baldur. Og svo sem vera ber er messað endrum og sinnum í Flateyjarkirkju. Þá situr enginn heima. Og þótt söfn- uðurinn sé fámennur er gestkvæmt á sumrin þannig að lítil hætta er á messu- falli meðan sumar er i Flatey. Kirkjan í Flatey er merkileg og frægar eru myndir Baltasars í lofti kirkjunnar. Þær hafa þó látið verulega á sjá og er það miður. Flateyjarsókn heyrir undir prestinn á Reykhólum, en algengara mun að sóknarpresturinn i Breiðfirzka sólinskeinörlát á hjörð þeirra Valdimars og Gisla að lokinni guðsþjðn- ustunni. DB-myndir: Jónas Haraldsson. Séra Valdimar Hreiðarsson og séra Gisli Kolbeins stinga saman nefjum áður en þeir ganga til kirkju. verið til helgra tíða. Það var raunar eðlilegt því hann vænti annars kenni- manns og kollega, séra Valdimars Hreiðarssonar á Reykhólum. Séra Valdimar var á leið til eyjarinnar á litlum báti og sjóferðin tók heldur lengri tíma en ætlað hafði verið. Það kom þó ekki að sök því veðrið var gott og kirkjugestir biðu rólegir. Messan hófst því þegar þriöji tíminn var hálfn- aður. Kennimennirnir skiptu með sér verkum og þjónaði séra Gísli fyrir alt- ari en séra Valdimar predikaði yfir hjörð sinni. Eiginlegur kirkjukór er að sjálfsögðu ekki í Flatey og söng þvi hver með sínu nefi eins og ráð er fyrir gjört i sálma- bókum. Orgelleikur var þó ekki af lak- ara taginu því um hann sá Atli Heimir tónskáld með meiru og gætti hann þess að menn færu ekki lengra út af laginu en góðu hófi gegndi. Atli Heimir setti raunar punktinn yfir i-ið í messunni því þarna var frumflutt eftir hann lítið en fallegt verk. Því er það svo að þótt Flatey megi VANTAL FRAMRUÐU? Ath. hvort við getum aðstoðað. ísetningar ó staðnum. ríi m'inAM skúlagötu 26 DILnUUHra SlMAR 25755 0G 25780 JONAS HARALDSSON Prestarnir skiptu með sér verkum. Sr. Gisli þjðnaði fyrir altari. Með tveimur prestum og tónskáldi við messu í Flatey:

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.