Dagblaðið - 16.10.1980, Side 11

Dagblaðið - 16.10.1980, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980. Flugleiðir og Iscargo í samkeppni um Amster- damflug Útlit er fyrir harða samkeppni á fiugleiðinni Reykjavík-Amsterdam- Reykjavík, því um sama bil og Iscargo fékk flugleyfi á leiðinni tilkynntu Flugleiðir að Amsterdam-ferðir yrðu á næstu sumaráætlun. Iscargo leitar nú að flugvél til kaups eða leigu í Hollandi og er útlit fyrir að fyrir valinu verði Boeing 737-200 frá KLM. Verður hún búin bæði til frakt- og farþegaflugs og telja Iscargo-menn að flugið gæti hafizt fyrir áramótin. Flugleiðir tilkynntu að flogið yrði til Amsterdam síðdegis á hverjum föstudegi. Amsterdam liggur vel miðsvæðis í Evrópu og hefur verulegur hópur bandarískra ferðamanna árlega hafið Evrópuferðir sínar þaðan. -ÓV. Karpov og Friðrik meðal keppenda í Clarin-skák mótinu í Sigurvegarinn á Clarin-skákmótinu í Buenos Aires i Argentinu, fær 5 þúsund dollara verðlaun, eða um það bil tvær og hálfa milljón króna. Stórblaðið Clarin efnir til þessa alþjóðlega skákmóts. Margir fremstu skáksnillingar heimsins taka þátt í mótinu. Má þar til nefna heims- meistarann, Anatoly Karpov, Larsen, Anderson, Spasský, Timman, Kavalek, Ljubojevic, Najdorf, Friðrik Ólafsson og Panno. Aðeins 185 Elo-stig eru á milli Karpovs, og Panno, það er að segja þess, sem flest stig hefur og þess, sem fæst stig hefur allra þessara meist- ara. Auk þeirra, sem getið var, taka þátt í mótinu þrír argentínskirskák- meistarar. 6 Argentínumenn verða þá meðal keppenda. Mótið hófst í gær og stendur til 3. nóvember. -BS. Hiibner og Kortsnoj ídesember: 35 milljónir króna í verðlaun 35 milljóna króna verðlaun standa til boða fyrir þá Húbner og Kortsnoj, ef þeir fallast á að heyja einvígi sitt um áskorunarréttinn gegn Karpov i annaðhvort Merano á Ítalíu eða Velden í Austurríki. Þetta kemur fram í fréttum frá FIDE. Auk áðurgreindra staða, sem til greina koma, eru Barcelona á Spáni, sem býður litlu lægri verðlaun, og Dortmund og Köln í Vestur-Þýzka- landi. Fyrirhugað er, að þeir hefji einvígið um miðjan desember næstkomandi. Þá má geta þess, að þeir tefla 16 skákir. Nægi það ekki til að skera úr um réttinn, geta skákirnar orðið 20. -BS. £ SKIPAUTGCRÐ RÍKISINSj Ms. Coaster Emmy fer frá Reykjavik 21. þ.m. vestur um land til Akureyrar og snýr þar við. Ms. Hekla fer frá Reykjavik 23. þ.m. austur um land til Vopnafjarðar og snýr þar við. Ms. Esja fer frá Reykjavik 24. þ.m. vestur um land I hringferð — Viðkomur samkvæmt áætlun. Litur: Antikþrúm Stærðir 36—42 f Verðkr. 49.950 Teg. 7009 LitáffAntik irúntleðuh trð kr. 46.670 Nýkonac/ömur og herra aiiwith realleather uppers JSrjS* Teg. 7008 Litur: Antikbrúnt Postsendum SKO VERZL UN ÞORDAR PETURSSONAR Laugavegi 95 — Sími 13570 — Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.