Dagblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980. Kid Jensen ásamt Guðrúnu konu sinni. Hann gerír nú einn þátt i viku fyrír Radio Luxemburg, en heldur sig þar fyrir utan að amerískum stjórnmálum, fjármálum og náttúruvernd. Kid Jensen plötusnúa ur er nú David Allan Jensen fréttastióri Kid Jensen, plötusnúðurinn vinsæli i Luxemburg og einn af tengdasonum íslands, giftur Guðrúnu Þórarinsdött- ur, gerir það gott í Handaríkjunum núna. Hann er aðalmaðui inn á klukku- stundarlangri fréttadagskrá, þeirri fyrstu sem sjónvarpað er um alla Norður-Ameríku með gervihnetti. Hann hefur þannig breytzt úr hressum dægurlagakynni í fréttastjóra, sem mark er á takandi. 1 stað þess að eyða öllum sínum tíma í að hlusta á plötur og fylgjast með vin- sældalistum hljómplötumarkaðarins grúfir hann sig nú niður í lesningu um amerísk stjórnmál, fjármál og náttúru- vernd. Hann er hættur að ganga í galla- buxum og jerseybol og kominn í dökk jakkaföt og röndótta skyrtu. Og honum gengur svo vel að ráðningartími hans, sem upphaflega var tvö ár, hefur verið lengdur upp i sex. Frá poppstjörnum til fylkisstjóra og þingmanna „Áður átti ég viðtöl við popp- stjörnur, nú ræði ég við þingmenn og fylkisstjóra um viðhorf þeirra til væntanlegra forsetakosninga. Og ég spyr sérfræðinga spjörunum úr um styrjöldina milli íraks og írans. Til þess að geta gert þetta þarf ég að lessa mér svo mikið til að ég má aldrei vera að þvi að hlusta á plötur nema í bílútvarpinu mínu á leið til og frá vinnu.” Það sem hann heyrir þá notar hann til að gera einn þátt í viku fyrir Radio Luxemburg” um vinsælustu 45-snún- inga plöturnar í Bandarikjunum. ,,Það er ekki vinna, bara tómstundagaman. Þá slepp ég líka við að skrifa bréf, því ég get sent vinum mínum kveðjur með lögunum.” Hann á marga vini í Luxemburg þar sem hann hóf feril sinn sem kornungur plötusnúður, nýkominn frá heimalandi sinu, Kanada. „Luxemburg er lítið og vinalegt ríki, en það gerist ekki sérlega mikið þar. Þó rataði ég í eitt ævintýri, það var þegar ég kynntist konunni minni, Guðrúnu, í jólaveizlu fyrir sex árum. Hún var þá flugfreyja í förum milli New York og Luxemburg. Þau Guðrún búa núna í gömlu stór- hýsi frá dögum þrælastríðsins nokkuð fyrir utan borgina Atlanta og eiga tveggja áradóttur.Önnu Lísu.og von á öðru barni í næsta mánuói. Og hafa prýðilegar tekjur. ,,En ég réð mig ekki vegna peninganna. Það sem freistaði mín var ameríski lífsstillinn. Ef þú gerir lukku þar í landi þá eru þér allir vegir færir eftir það!” Hann bætir við: „Kanadíski hreim- urinn í rödd minni hefur komið sér vel fyrir mig. Það gefur mér visst hlutleysi að vera ekki frá einhverju fylki innan Bandarík janna sjálfra. ” Fyrstir með fréttirnar af Carter „Það tekur talsvert á taugarnar að fréttadagskrárnar eru allar í beinni út- sendingu. Áður talaði ég alltaf inn á band og hafði þá tækifæri til að leið- rétta,” segir Kid Jensen, sem vann nokkur ár hjá BBC eftir að hann var í Luxemburg. „Mér fannst spennandi að vita að allt er sent út beint, en það er víst áreiðanlegt að adrenalínið í blóð- inu í mér gusast fram. Og við höfum verið fyrstir með ýmsar góðar fréttir. Það var til dæmis i viðtali við okkur sem Billy Carter sagði fyrst frá hinum umdeildu viðskiptasamböndum sínum við Líbýumenn.” Og plötusnúðuririn sem varð frétta- maður á heimsmælikvarða er ekki lengur kallaður Kid (þ.e. krakkinn) sem festist við hann sem gælunafn af því hann byrjaði svo ungur í fjölmiðla- bransanum. Hann gengur nú undir nafninu David Allan Jensen, eins og vera ber. Og þótt hann sé fæddur i Kanada, kvæntur íslenzkri konu og eigi ljósan háralit sinn og eftirnafn dönskum föðurafa frá Kaupmannahöfn að þakka, þá segir hann að rætur sínar og mest af blóðinu í æðum sé brezkt. „Flestir forfeður mínir voru frá Bretlandseyjum, afi og amma frá Glas- gow og afi frá Lincoln, og við hjónin eigum hús í Surrey sem við ætlum ekki að farga að svo stöddu.” Hollandsdrottning ísínafyrstu opinberu heimsókn Hollenzka stjórnin kallar hana tíu daga opinbera heim- sókn, en tíu daga sumarauki 4 Beatrix druttning og Claus prins maður hennar. Þau geta að öllum lik> indum skilið skiðin eftir með góðri samvizku, þegar þau fá sér tíu daga sumaraiika á hollenzku Antillaeyj- um. væri nær lagi. Beatrix drottn- ing og Claus prins eiginmaður hennar halda í opinbera heim- sókn til hollenzku Antillaeyja í lok mánaðarins. Eyjar þess- ar eru sex talsins, Curacao, Aruba, Bonaire, Sint Maarten, Saba og Sint Eustatius. Þetta verður fyrsta opin- bera heimsókn Beatrix drottningar frá því að hún tók við völdum, þann 30. apríl, úr hendi móður sinnar, sem nú nefnist Juliana prinsessa. Bandaríkin: Queen varö fyrst til að eiga sam- tímis vinsælasta lag og hljómplötu Hljómsveitin Queen mátti vera stoit af sjálfri sér kvöldið sem hún efndi til hljómleika í Madison Square Garden í New York. Nokkrum klukkustundum áður en þeir hófust var tilkynnt, að í fyrsta skipti á ný- höfnum áratug flestra þjóða annarra en fslendinga, hefði sama hljómsveit- in átt bæði vinsælasta lagið og viri- sælustu LP plötuna í Bandarikjun- um. Það er að sjálfsögðu nýjasta plata Queen, The Game, sem komst i topp- sætið og lagið Another Bites The Dust af henni sem var í fyrsta sæti lagalistans. Alls komu um tuttugu þúsund aðdáendur Queen til að sjá og heyra goðin flytja dagskrá sína. Hljóm- sveitin hefur undanfarnar vikur verið á hljómleikaferðalagi um Bandarík- in og komið við á 33 stöðum. Loka- hljómleikarnir voru í Madison Square Garden. — Queen verður á hljómleikaferð í heimalandi sínu, Bretlandi, í desember. Freddie Mercury og Brian May á sviði i Madison Square Garden. Sennilega hefur hljómsveitin Queen aldrei veríö jafnvinsæl og einmitt núna. DaudaorsökJohns Bonham var ofneyzla áfengis Ofdrykkja var dánarorsök Johns Bonham, trommuleikara hljóm- sveitarinnar Led Zeppelin. Við réttar- farslega llkskoðun í Windsor kont fram að hann hafði neytt um það bil fjórum sinnum meira magns en mönnum er leyfilegt að gera hyggist þeir aka bíl. Samkvæmt framburði vitna drakk Bonham að öllum líkind- um sem nemur fjörutíu einföldum sjússum af vodka og blandaði áfengið í appelsinusafa. Þetta drakk hanná tólf timum. Líkskoðarinn i Windsor, Robert Wilson, úrskurðaði þvi að John Bon- ham hafi látizt af ofneyzlu áfengis. John Bonham á hljómleikum I Þýzkalandi sfðastliðið sumar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.