Dagblaðið - 31.10.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Við borðum alltof mikinn sykur:
Tómatsósa inniheldur 28,9%
sykur en rjómaísinn ekki nema 23%
Þótt fólk sé allt af vilja gert að'
forðast of mikið sykurát, þá sýnist
þaö mjög erfitt. Fæstir hafa tækifæri
til þess að vita nákvæmlega hve
mikill sykur er i almennum mat. Mat-
vælaframleiöendur virðast. á þeirri
ikoðun að fólk vilji sykur i allt.
Veiztu t.d. hvort inniheldur meiri
iykur Heinz tómatsósa eða rjómaís,
Wishbone salatsósa eöa Coca cola,
Coffee-mate rjómaduft eða Hersey’s!
súkkulaði?
Ekki er nokkur leið fyrir neytendur
að komast aö nákvæmu sykurinni-
haldi þessara vörutegund nema þeir;
hafi rannsóknarstofu heima hjá sér. í'
bandariska neytendablaöinu Con-
sumers Report eru þessu efni gerð
góð skil og greint frá sykurinnihaldi
margra bandarískra vörutegunda.
Þar sem margar af þeim eru einnig á
markaðinum hér eru birtar nokkrar
af niðurstöðunum. Við ræddum
einnig við Ingibjörgu Halldórsdóttur
matvælafræðing hjá Mjólkursamsöl-
unni, sem gaf okkur upp sykurinni-
haid (kolvetnis) nokkurra mjólkur-
vara.
56.9% 65.4% ^ 8.8% —_ 9.2%
ff iQffeeinah m i ir-n /Sý
10-7% _ 17.9% 13.7% 14.8%
hucHis i ) bo<MHont?'Z* ^
23.9% xpwih,. í iun \.u, . | V ' V- * . 23.0% , „ ssr* Éfc v L - 6.2% ^ ,% r-
7.3% « 23.0% 0 30.2% p-
mm #1
88 | >Á cr> fW ðj 35.9% 51.4% * 21.4%
. i
28.9% ^ 14.7% 17.4% 50.9%
M §§*
m IjÍ
»6? &
S k. V* •' ; ^
Hlargar af þessum vörutegundum fást hér i landi. Neytendur ættu að gefa gaum að sykurinnihaldi hinna ólfklegustu fæðu-
tegunda, eins og t.d. súputeninga, tómatsósu, salatsósu og ýmissa fleiri sem daglega eru á borðum neytenda.
FARANDFISKSALAR
ÁHELLU
Húsmóðir á Hellu hringdi:
,,Mér datt i hug að segja ykkur frá
fisksala á bil meö Reykjavikurnúmeri
sem kom hér á dögunum og bauð
ibúunum saltfísk til kaups á 1800 kr.
kílóið.
Mér þótti þetta nokkuð dýrt þar
sem ég vissi.aðsaltfiskurinn er háður
verölagsákvæðum og að hámarks-
verð á saltfiski er 1290 kr.
Reyktur fiskur er einnig boðinn
hér til sölu af „farand-fisksölum” og
seljaþeir hann á 1500 kr. kílóið.
Annars höfum við fiskverzlun hér
á Hellu þar sem hægt er að fá fisk í
soðið”.
Hámarksverðið
á saltf iskinum
Það er rétt hjá húsmóðurinni á
Hellu aö hámarksverð sé á saltfiski
Skrum-auglýsingar
Kvöld eftir kvöld verða íslenzkir
sjónvarpsáhorfendur að horfa á aug-
lýsingu um Heinz tómatsósu. í aug-
lýsingunni er tekið fram að „engum
efnum sé bætt í tómatsósuna frá
Heinz. Þar sé ekki um neitt að ræða
annað en tómata”.
f fyrsta lagi er tekið fram utan á
flöskunni að ýmsum efnum sé bætt í:
tómatsósuna. Þar að auki er sykur-
innihald hennar 28,9%. Aftur á móti
er sykurinnihald rjómaíss 23%.
Gervirjóminn Coffee-mate inni-
heidur 65,4% sykur en Coca cola
ekki nema 8,8%, samkvæmt banda-
ríska blaðinu. Hersey’s súkkulaði
inniheldur 51 % sykur.
Blaðið rannsakaði tuttugu
og fjórar vörutegundir
Blaðið lét rannsaka sykurinnihald
tuttugu og fjögurra vörutegunda sem
aigengar eru á bandariskum markaði.
Þá var ekki aöeins tekið tillit til
,,sykur”innihaldsins, heldur einnig
til annarra efna sem innihalda sykur,
eins og t.d. sýróps, hunangs, ávaxta
og grænmetis.
Hvað varðar sykurinnihald mat-
væla almennt virðist sem matvæla-
framleiðendur telji aö bragðskyn
neytenda krefjist aðeins þess að
maturinn sé sætur, sætari og sæt-
astur!
Dæmi er tekið. Ef neytandinn
veltir kjúklingalærínu sínu upp úr
raspi er nefnist „Shake’n bake” er
yfirborð kjúklingalærisins hjúpað í
51 % sykri! í bandariska blaðinu segir
einnig aö þegar þú snæðir Ritz kex-
köku vitir þú að vísu að þú sért ekki
að boröa sæta smáköku en sennilega
ekki að sykurinnihald kexins er 12%.
f Bandaríkjunum virðist ekki vera
hægt að finna fæðutegundir sem ekki
innihalda meiri eöa minni sykur. í
blaðinu er getið um ákveðna tegund
af „morgunverðarkorni” þar sem
sykur er talinn upp sem innihald nr.
þrjú, korn-sýróp númer fimm,
hunang númer sjö. Allt þetta sykur-
magn getur hæglega orðið að því efni
sem ætti að vera númer eitt (í Banda-
rikjunum á að vera rétt röð á inni-
haldslýsingunni, það efni sem mest er
af er númer eitt o.s.frv.). Framleið-
endur hafa því gripið til þess ráðs að
„falsa” skilgreiningu á sykri með því
að sundurgreina sykurinnihald með
ýmsu móti.
I
óhugnanleg aukning á
•ykurframleiðslunni
Vitað er að sykur var framleiddur á
Indlandi áríð 325 fyrir Kríst. Hann
var sjaldséður í gamla heiminum þar
til Kólumbus kom með sykurreyr til
Evrópu árið 1493. — Þess eru jafnvel
dæmi að sykuruppskeran í Vestur-
heimi hafi verið lögð til jafns við
silfur og gull á þeim árum. Sykur-
rófnaræktin í Evrópu komst ekki á
verulegt skrið fyrr en lokað var fyrir
sykurinnflutning frá Vesturheimi til
Frakklands á dögum Napóleonsstyrj-
aldanna. Napóleon hvatti til mjög
aukinnar sykurrófnaræktar árið
1811. — Það voru því eiginlega
Kólumbus og Napóleon sem lögðu
grundvöllinn að sykurneyzlu síðari
tima.
Á fyrstu sjötíu árum þessarar aldar
jókst sykurframleiðslan úr 8 milljón
tbnnum upp í 70 milljón tonn. Talið
er að Bandarikjamenn fái um 24% af
hitaeiningum sínum úr sykri. Þar af
eru 3% úr ávöxtum og grænmeti,
önnur 3% úr mjólkursykri mjólkur-
vara. Meirihlutann, eða 18% af öll-
um hitaeiningunum, fá Bandaríkja-
menn úr sykri sem er bætt út í mat-
vælin, hvort sem þeim líkar betureða
verr.
- A.Bj.
Hvað kostar mjólkin,
rjóminn ogskyrið?
Eitt af því sem flest heimili kaupa daglega er mjólk og mjólkurvörur. Ef
fólk er spurt á götum úti hvað einn lftri mjólkur kostar, hafa fæstir hug-
mynd um það. Hér á eftir fer smásöluverð á nokkrum algengum mjólkur-
vörutegundum.
Mjólk í eins I pökkum.................353 kr.
í fernum 357 kr.
Mjólk í pela pökkum...................101 kr.
Mjólk I tveggja I pökkum..............706 kr.
Undanrenna I eins I pökkum............321 kr.
Peli af rjóma......................... 643 kr.
1/21 rjóma............................ 1273 kr.
Peli kaffirjómi ...................... 365 kr.
Súrmjólk i I pakka.................... 380 kr.
Kg af skyri (sama verð i iausu)....... 683 kr.
en það er 1.450 kr. Hins vegar er
reyktur fiskur seldur á 2.200 kr. í
fiskverzlunum í höfuðborginni,
þannig að hann er þá seldur langt
undir borgarverði hjá „farandflsk-
sölunum”.
Kílóið af ýsuflökum kostar í
höfuðborginni 1.430 kr. en kíló af
heilli ýsu kostar 780 kr.
-A.Bj.
Sykurinnihald nokk-
urra innlendra afurða
Mjólkuris
Rjómais
Hnetujógúrt
Kaffijógúrt
Ávaxtajógúrt
Mjólk
Ýmir
inniheldur
19% sykur (kolvetni)
23% -
14% -
13%
12% —
4,8% -
um 4% —