Dagblaðið - 31.10.1980, Side 14
22
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1980.
Veðriðj
Spáð er akhvaasri sunnan- eða suö-l
vastanétt um allt land. Rignlngj
verður vfðast hvar en Uklega hebt
þurrt á Norðausturiandl.
Klukkan 6 var suðaustan 6, rigning!
og 10 stig í Reykjavlt, austan 4, rign-
ing og 9 stig á Gufuskáium, austan 6,
skýjað og 9 stig á Gaharvlta, hssg-
viöri, skýjað og 6 stig á Akureyri, suð-
austan 1, skýjað og 7 stig á Raufar-
hðfn, suðaustan 10, rigning og 10 stig
á Dalatanga, suðaustan 6, rignlng og
9 stig á Httfn, suðaustan 12, rigning
og 9 stig á Stórhöfða.
I Þórshöfn var skýjað og 10 stig,
ióttskýjað og —2 stig ( Kaupmanna-
httfn, láttskýjað og -16 stig í Osló,
heiðsklrt og 6 stiga frost ( Stokk
hólmi, heiðskirt og 3 stig ( London,
láttskýjað og 2 stig ( Hamborg, létt-
skýjað og 1 stig í Parfs, láttskýjað og
4 stig ( Madrld, léttokýjað og 11 stig f
Llssabon og lóttokýjað og 4 stig I
New Yorfc.
Andlát
Ólafur G.H. Þorkclsson, sem lézt 26.
októbersl., fæddist 16. nóvember 1905
á isafirði. Foreldrar hans voru Guðrún
Jensína Halldórsdóttir og Þorkell
Kristján Sigurðsson. Árið 1928 flutti
hann ásamt foreldrum sínum til
Reykjavíkur, fljótlega keypti hann sér'
vörubíl • og starfaði upp frá þvi við
akstur. Ólafur var einn af stjórnendum-
vörubílastöðvarinnar Þróttar og ók þar
eigin bil lengst af. Árið 1932 kvæntisl
Ólafur Höllu Þorsteinsdóttur, eign-
uðust þau 5 börn.
Sigurhans Viglundur Hjartarson, sem
lézt 21. september sl., fæddist 7. apríl
1929 á Hellissandi. Foreldrar hans voru
Sigurrós Hansdóttir og Hjörtur Cýrus-
son. Sigurhans stundaði sjómennsku
framan af ævinni en árið 1948 réðst
hann að smurstöð Esso í Hafnarstræti.
Árið 1962 stofnaði hann ásamt þrem
öðrum smurstööina Klöpp. Árið 1953
kvæntist Sigurhans Helgu Guðmunds-
dóttur. Eignuðust þau 5 börn.
Stefanla Sveinsina Söebech, sem lézt
24. október sl., fæddist 25. april 1897 i
Reykjarftrði. Foreldrar hennar voru
Karólina Febina Thorarensen og Frið-
rik Ferdinand Söebech. Stefanía
starfaði lengi í prentsmiðju Ágústs
Sigurðssonar í Reykjavík en síðar í,
Gutenberg. Árið 1931 giftist hún Hall-
birni Jónssyni, eignuðust þau einn son.
Stefanía verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í dag, 31. okt., kl. 13.30. 1
Kristján Ólafur Guðmundsson verk-,
stjóri, Grænukinn 7 Hafnarfirði, lézt i
St. Jósepsspítala miövikudaginn 29.
október sl.
Stjornmalafundir
Alþýðubandalagsfélag
Héraðsbúa
Almennur félagsfundur verður haldinn sunnudaginn
2. nóvember kl. 20.30 i hreppsskrifstofu Egilsstaða
hrepps. Umræður um vetrarstarfið og undirbúningur
fyrir landsfund. Hjörleifur Guttormsson kemur á
fundinn.
V-Skaftfellingar
Framsóknarfélag V-Skaftfellinga og félag ungra fram
sóknarmanna i V-Skaftafellssýslu halda aðalfundi sína
sunnudaginn 2. nóvember I Leikskálum Vik í Mýrdal*
oghefjast fundirnir kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. önnurmál.
Á fundinn mæta alþingismenn flokksins í kjördæm
inu, Þórarinn Sigurjónsson og Jón Helgason.
Aðalfundur Framsóknar-
fólags Mýrasýslu
verður haldinn I Snorrabúð, Borgarnesi í kvöld, föstu
dag,k 1.21.00.
Dagskrá:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. Alþingismennirnir Alexander og Davið ræða sljórn
málaviðhorfin.
Aðalfundur Framsóknar-
félags Selfoss
verður haldinn laugardaginn 1. nóvember að Eyrar
vegi l5,Selfossi kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjulegaðalfundarstörf.
3. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
4. önnurmál.
Borgarmál
Borgarmálaráðstefna verður haldin laugardaginn I.
nóv. i samkomusal Hótel Heklu, Rauðarárstig 18, og
hefstkl. 10.
Raídd verða fræðslu-. íþrótta- og æskulýðsmál. Frunv
mælendur Kristján Benediktsson, Eiríkur Tómasson,
Gestur Jónsson og Kristinn A. Friðfinnsson.
Félags- og heilbrigðismál. Frummælendur: Gerður
Steinþórsdóttir, Guðrún Flosadóttir og Jón A. Jónas
son.
Atvinnumál. Frummælcndur: Jónas Guðmundsson,
Páll R. Magnússon -»g Páll Jónsson.
Skipulagsmál. Frummælendur Valdimar K. Jónsson,
Gylfi Guðjónsson, Örnólfur Thorlacius og Leifur
Karlsson.
Hittumst, fræðumst og bcrum saman bækur okkar
á miðju kjörtímabilinu.
Aðalfundur sjálfstœðis-
félaganna i Dalasýslu
svo og fulltrúaráðsins verða haldnir i Búðardal sunnu
daginn 2. nóvember 1980 kl. 3 slðdegis.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Al
þingismennirnir Friðjón Þórðarson og Jósef H. Þor
geirsson koma á fundina.
Flokksþing
Alþýöuflokksins 1980
Haldið á Hótel Loftleiðum
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBF.R: Kl. 14.00: Þing
setning, kosning starfsmanna, skýrslur, lagabreytingar
(fyrri umræða). Kl. 20.30: Hátiöarfundur: Ræða for-
manns, ávörp, island árið 2000, dagskráratriði.
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER: Kl. 09.00:
Vinna í starfshópum. Kl. 13.00: Lagabreytingar (siðari
umræða). Almennar umræöur. Kosning æöstu stjórn
ar, verkalýðsmálastjórnar og flokksstjórnar.
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER: Kl. 10.00: Al-
mennar umræður. Kl. 13.00: Álit starfshópa. af
greiðsla tillagna. Kl. 17.00: Þingslit.
Sýningar
Mexikanskur arkitekt
sýnir I Eden
Ég held aö manninum sé það mikilvægt að fá útrás,
fyrir alla þá sköpunarþörf scm hann býr yfir, og fyrir
mig er það mikil ánægja að tjá mig á myndlistar-
sviðinif. Jafnhliða starfi mínu sem arkitekt hef ég
leitaö aö persónulegum stil í myndlist. — Ég nota
sterka liti, — kannski vegna þess að ég er
mexíkanskur, og vel mér myndefni sem heilla mig. —
1 landi minu eru þúsundir kirkna og klaustra með
stórkostlegri list sem ég tek til meðferðar í myndum
mínum. 1 þessum kirkjumyndum er teikningin gróf og
hlutföllin röng, — það sem máli skipti var að tjá^ig*
með þdrri tækni sem fyrir hendi var. Svipað geri ég i
myndum mínum. Ég hef einnig orðið var við mikla
lifsgleði á íslenzkum skemmtistöðum og túlkað hana i
myndum mínum. — Jafnframt sýni ég vatnslita-
myndir — frá fyrstu árum myndsköpunar minnar, af
mexíkönskum sveitaþorpum, sem ég er mjög hrifinn
af. Sýning mín hefst laugardaginn 1. nóvember, i
Eden, Hveragerði og stendur í 2 vikur.
José LuLs Lopez Ayala.
MAUGHAM, SVEINN
OG CIESIELSKI
I Ekki veit ég hversu margir hlusta á
útvarpið á fimmtudagskvöldum, þeg-
ar augað stóra starir ekki lengur á
mann, heldur hímir dapurlegt úti í
horni. Hitt veit ég, að útvarpsdag-
skráin í gær var prýðileg, þótt ekki
væri hún neitt sérstakt skemmti-
prógram. Burðarásinn, eins og
venjulega á fimmtudagskvöldum, var
útvarpsleikritið. í gærkvöldi var það
ekki af verri endanum — Vefur
örlaganna eftir sjálfan William
Somerset Maugham. Ég heyrði
drjúgan fyrri part leiksins en þar sem
ég er með þeim ósköpum gerður að
geta helst ekki hlustað á útvarp nema
í lóðrétti stellingu sofnaði ég um það
bil sem eiginkonan (sem var stórvel
leikin af Kristínu Bjarnadóttur) var
að átta sig á því hvers konar dæma-
laus öðlingur maður hennar var.
Um það bil sem Sveinn Einarsson
þjóðleikhússtjóri var að byrja á
Kvöldstund sinni komst ég aftur til
meðvitundar — sem betur fer, því
fáir þættir þykja mér þægilegri eða
áheyrilegri í útvarpi en einmitt þættir
Sveins. Hann kemur víða við í tónlist
og þykir greinilega afar vænt um
megnið af því sem hann spilar þar.
Það efni útvarpsins sem mesta
athygli mína vakti þó var Vettvangur
Sigmars og Ástu — þegar auglýsinga-
flóðinu var loks lokið eftir kvöld-
fréttirnar. Þar var m.a. stutt viðtal
við Sævar M. Ciesielski, tekið i gegn-
um síma frá Litla-Hrauni og fjallaði
um ágæta bók Stefáns Unnsteins-
sonar, Stattu þig, drengur. Sævar
kvartaði einkum yfir tvennu: að bók-
in seldist ekki nóg — enda fær hann í
sinn hlut um 5% af söluandvirði
hverrar bókar — og svo því hversu
hundleiðinlegt væri að vera í tugthús-
inu. Lái honum það hver sem vill.
En ég vona að fólk lái mér heldur
ekki þótt mér hafi þótt viðtal þeirra
Sigmars og Sævars heldur enda-
sleppt. Um leið og lífstiðarfanginn
hafði lýst því yfir að hann hafi verið
mjög óhress með umfjöllun undir-
ritaðs um bókina hér í DB var klippt
á hann. Mér þótti þetta blaða-
mennskulega mjög endasleppt viðtal:
hvað var það nákvæmlega sem Sævar
var svona óánægður með — var það
ekki rökrétt næsta spurning? ÓV
Tilkynningar
Stofnað styrktar-
féiag Sogns
Nokkrir félagar sem starfað hafa að undirbúningi hafa
ákveðið að gangast fyrir stofnfundi Styrktarfélags
Sogns og verður stofnfundurinn haldinn nk. laugard.
1. nóvember, að Hótel Sögu, Bláa sal, kl. 13.30.
Meðferöarheimilið að Sogni varð fyrir skömmu
tveggja ára og þar hafa þegar um 800 alkóhólistar út
skrifazteftir meðferð.
Eins og kunnugt er er stofnunin sjálfseignarstofnun
innan vébanda SÁÁ, með eigin stjórn, og stendur þvl
alveg undir rekstrarkostnaði og er að þvl mikill sómi.
Tilgangur hins nýja félags verður að efla starf og
uppbyggingu ?ndurhæfingarheimilisins að Sogni með
fjáröflun og vinnu, en einnig að efia samstöðu með
þeim sem hafa áhuga á meðferðarmálum. Það starf
sem verður unnið innan félagsins verður á engan hátt
tengt rckstrinum á Sogni beint, hér er sem fyrr segir
um áhugastarf þeirra að ræða sem hafa áhuga á upp-
byggingu staöarins og vexti hans.
öllum þeim sem útskrifazt hafa af Sogni eftir mefr
ferð hafa verið send bréf þar sem þeir eru boðaðir til
stofnfundarins nk. laugardag. En það skal tekið fram
að félagið stendur opið öllum þeim sem hafa áhuga á
að starfa að þeim málum sem félagið hyggst vinna að.
og eru þeir boðnir velkomnir á stofnfundinn.
Gamlar kvikmyndir frá
íslandi vestan hafs
Kvikmyndasafni Islands hafa borizt sögulega verð-
mætar kvikmyndir frá lslandi, sem varðveitzt hafa
vestan hafs. Hér er um gjafir til íslenzku þjóðarinnar
að ræða, sem mikili fengur er að. Gefendur eru Harald
V. Johnson, Vestur-lslendingur búsettur I Washing-
ton, og ættingjar séra Steingrlms Octavlusar Þorláks-
sonar en hann var konsúll Islands I San Fransisco 125
ár. Hannernúlátinn.
Harald V. Johnson ákvað að gefa kvikmynd, sem
hann tók á Alþingishátiöinni 1930 I tilefni af því að á
þessu ári eru liðin 50 ár frá þvi hátlðin var haldin.
Eftir því sem nú er bezt vitaö eru aðeins til 2 kvik
myndir frá þessum merka atburði I lífi þjóðarinnar, en
það eru Alþingishátiðarkvikmyndir sem Árni
Helgason ræðismaður og Frakkar tóku. Loftur Guð-
mundsson tók kvikmynd á hátíðinni, sem nú er talið
að sé glötuð. Mikill fengur er þvi aö kvikmynd
Haralds V. Johnson. Kvikmynd hans hefur þaðsér til
ágætis að vera að nokkru leyti lýsing á för Vestur
tslendinga á hátiðina frá því aö lagt er af stað frá
vesturströndinni meðjárnbraut.
Fyrir milligöngu önnu Snorradóttur hefur Kvik-
myndasafn tslands veitt viðtöku tslandskvikmynd
Lofts Guðmundssonar, sem frums^d var 2. marz
1948, og stuttri kvikmynd sem Vestur-lslendingur tók
hér á landi árið 1947 á leið til æskustöðvanna. t kvik-
mynd Lofts, sem er um 80 minútur að lengd, eru m.a.
merkir kaflar um sildveiði og af Heklugosi 1947. t
Heklugoskafianum bregður fyrir myndum af fjölda
fiugvéla, sem hefja sig til flugs af Reykjavíkurfiugvelli
á leiö til gosstöðvanna. t kvikmynd Vestur-íslcndings-
inseru prýðisgóðar myndjr frá Heklueldum.
Þess má geta í þessu sambandi, að hér á lslandi
hefur varðveitzt fréttamynd frá atburði sem átti sér
stað vestan hafs árið 1911 og snertir okkur tslendinga,
vegna þess að þá var afhjúpuö stytta Jóns Sigurðs-
sonar I Winnipeg. Kvikmyndin, sem er frá Pathé
News, sýnir þennan atburð. Stefanla Guðmundsdóttir
leikkona var þá I leikför vestan hafs ásamt fieiri íslend-
ingum og kom það I hennar hlut aö afhjúpa styttuna.
Dóttursonur Stefaniu, Gunnar Borg, hefur varðveitt
filmu ömmu sinnar slðan hann var smástrákur. Hann
hefur nú afhent Kvikmyndasafni lslands filmuna tiL
varðveizlu og geymslu I framtiðinni.
Leiðrétting
Eftirnafn Kristinar Hraundal misritaðist
i myndatexta á baksíðu DB í gær. Beðizt
er velvirðingar á mistökunum.
Verkakvennafélagið
Framsökn
Verkakvennafélagið Framsókn heldur basar 8.
nóvember nk. Félagskonur eru beðnar að koma'
basarmunum sem fyrst á skrifstofuna í Alþýðuhúsinu.
Símar 26930 og 26931.
Flugbjörgunarsveitin
í Reykjavík
Hin árlega merkjasala Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík verður nú um helgina, 31. október—2.
nóvember, en það er eina fjáröflunarleið sveitarinnar.
Flugbjörgunarsveitin heldur upp á það á þessu ári
að 30 ár eru liðin frá stofnun hennar, sem var í kjölfar
Geysisslyssins fræga á Vatnajökli. 1 tilefni þessa hefur
nú verið gert sérstakt afmælismerki úr silfri og verður
það boðið til sölu um helgina.
Félagar sveitarinnar munu selja merkið á götum úti
og ganga siðar í hús og er þaö von sveitarinnar að
landsmenn taki vel í þessa beiðni um styrk, sem er
raunar forsenda þess aö hasgt sé að halda uppi nauö-
synlegu starfi.
Reykjavíkurpröfasts-
dœmi fjörutíu ára
Reykjavíkurprófastsdæmi er fjörutiu ára um þessar
mundir og verður þessara timamáta i sögu prófasts
dæmisins minnzt á raargvíslegan hátt. Á sunnudaginn
var voru hátiðarsamkomur á vegum Hallgrims- og
Nessafnaða og á sunnudaginn kcmur, hinn 2. nóvem-(
ber, i Laugarncskirkju.
Þá munu prestar einnig viö guðsþjónustur á sunnu-
daginn kemur minna á málefni prófastsdæmisins og
siðdegis verður efnt til hátiðarsamkomu i
Bústaðakirkju fyrir presta og sóknamefndir auk
nokkurra gesta, þar á meðal kirkjumálaráðherra.
biskups og oddvita borgarstjórnar Reykjavíkur og
bæjarstjóra Kópavogs og Seltjarnamess. Á sam-
komunni verður ýmislegt rifjað upp úr sögu prófast-
dæmis og safnaða, auk þess sem tónlist verður fiutt
og veitingar frambornar.
Hátlóarsamkoma verður á sunnudag i Bústaöakirkju i tilefni fjörutiu ára afmælis Reykjavikurprófastsdæm-
is.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING
Nr. 208 - 30. októbar 1980. gjaid.yrir
Einingkl. 12.00 .-Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadolar 663.70 566.00 610.50
1 8torilngspund 1362.76 1366 J6 1491.54
1 Kanadadoilar 471.20 472.30 619.63
100 Danskar krónur 9627.26 9649.66 10604.61
100 Norskar krttnux 11203.60 11229.80 12362.78
100 Sasnskar krttnur 13066.30 13086.90 14394.49
100 Finnsk mörk 14820.96 14866.46 16340 J9
100 Franskir frsnkar 12738.25 12768.16 14044.96
100 Balg. frankar 183225 1836.66 2020JO
100 Svissn. frankar 32591.90 32668J0 36936.02
100 GyNini 27138.86 27200.66 29620.60
100 V.-þýzk mörk 29348.76 29415.66 32367.21
100 Lfrur 82.01 62.15 68 J6
100 Austurr. Sch. 4146.06 4156.76 4671.32
100 Escudos 1081J0 1064.40 11162-J4
100 Pasatar 738.90 740.70 •14.77
100 Yan 264.14 264.76 291.23
1 frsktpund 1101.15 1103.76 1214.12
1 84ratök dráttarrAttindl 714.67 716J5
* Broyting frá sittustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.