Dagblaðið - 31.10.1980, Side 24
■2?
Hópar útlendinga sækja ísland heim á haustin:
Með ólögleg vopn og
veiða án byssuleyfa
ný auðsuppspretta fyrir veiðiþjófa og bændur
Mikil brögð eru sögð að þvi að út-
lendingar komi hingað til lands til
fuglaveiða, aðallega gæsaveiða.
Greiða þeir offjár fyrir þjónustu og
aðstoð, sem veitt cr af íslendingum.
Reka tveir menn í Borgarnesi sérstakl
fyrirtæki, Veiðiþjónustuna, til
aðstoðar útlendingum við laxveiðar á
sumrin og gæsaveiðar á haustin og
fara sögur af því að þjónustugjaldið
sé riflegt. Veiðarnar eru hins vegar
ólöglegar vegna ólöglegra vopna.
Stefán Jónsson (Abl.) flutti þetta
mál inn i þingsali með fyrirspurn til
dómsmálaráðherra. Spurði hann
hver heimilaði útlendingum fugla-
veiðar hér, hver veitti þeim heimild til
að nota hlaupvíðari byssur en cal. 12
(útlendingarnir eru með cal. 10 og
það sjálfhlæðar byssur) og loks
hver veitti þeim byssuleyfi.
Svör ráðherra voru stutt. Heimilt
væri að veita útlendingum byssuleyfi
en samkvæmt skyndikönnun hefðu 6
útlendingar fengið leyfi 10 sinnum, 3
Norðmenn, Bandaríkjamaður og
tveir Englendingar.
Ráðherrann taldi hugsanlegt að
reglur um meðferð skotvopna og
veiðar fugla kynnu að vera brotnar
en þá bæri mönnum að tilkynna slíkt
lögregluyfirvöldum.
Stefán staðhæfði og bauðst til að
nefna votta að því að margir flokkar
útlendinga hefðu verið hér og fyrst og
fremst stundað veiðar í kjördæmi
dómsmálaráðherrans. Kvaðst Stefán
reiðubúinn að skrifa kæru og krefjast
lögreglurannsóknar.
Stefán kvað veiðimannaflokkana
komast gegnum toll með vopn sem
ólögleg væru samkvæmt ísl. lögum,
einhver veitti þeim byssuleyfi hér, án
uppfyllingar skilyrða laga, og ísl.
aðilar þægju stórfé fyrir aðstoð við
útlendinga á þessum veiðum. Hús
væri leigt undir þá við Hítará.
-A.St.
frjálst, áháð dagblað
FÖSTUDAGUR 31. OKT. 1980.
Loðnubátamir HUmlr og öm f Sundahöfn f
Reykjavfc. Heildaraflamagnið á loönuvertlðinnl
var í morgun oröið 215.000 tonn, tœplega heim-
ingur aflakvótane á vertfðinni.
9 loðnuskip með 6.700 tonna afla til-
kynntu sig til loðnunefndar á siðasta
sólarhring. í nótt og í morgun hafa 3
skip tilkynnt tæplega 2.000 tonna afla.
Er þá heildarloðnuafli á vertíðinni
orðinn um það bil 215.000 tonn, tæp-
lega helmingur af veiðikvóta loðnu á
vertíðinni,
Fá skip eru á miðunum þessa
stundina, enda veður slæmt. F.r þvi
sólahringsaflinn snöggt um ntinni en á
næstsíðasta sólarhring þegar 33 skip
fengu 22.680 tonn.
- ARH
Loðnuveiðin:
ABC lögbannið:
Bankatrygging
nú fyrir hendi
Bíl var veK einn hring 6 homi Fiikirkjuvegar og Skothúsvegar réttfyrir kkikk-
an sjö i morgun. Ástæða veltunnar er ekki Ijós en Kkur benda til hraðaakst-
urs. Eitthvafi viifiast þeir þrir menn sem i bilnum voru hafa átt litifi vantalafi
vifi lögregluna þvi er hún kom á stafiinn sáust þeir hlaupa út i myrkrið og
rigninguna. Billinn er mjög illa tarinn ettir veltuna en ettir niaupamgi nnanrv
anna afi daama hafa þeir ekkert slasazt afl ráfii. Ekki haffii tekizt afi hafa upp
á þeim er DB fór i prentun í morgun.
- DS / DB-mynd: S.
Stérmeistaramótið
íArgentínu:
Loks sigur
hjá Friðrik
I 10. umferð slórmcistaramótsins i
skák i Buenos Aircs sigraði Friðrik
Ólafsson Panno frá Argentinu. Var
þetta fyrsta vinningsskák Friðriks i
mótinu. Hann tapaði fyrir Larsen og
Kavalek i tveimur f>Tstu umfcrðun-
um en geröi siðan jafntefli i öllum
skákunum þar til hann vann Panno
nú.
Larsen hefur enn forystu f mótinu
með 7 vinninga og 2 biðskákir.
Ljubojevic er meö 6 vinninga og bið-
skák. Anderson er með 6 vinninga.
Kavalek hefur 5,5 vinninga og bið-
skák. Heimsmeistarinn Karpov hefur
5 vinninga. Næstir koma þrir góð-
kunningjar íslendinga þeir Najdorf,
Timman og Hort með 4,5 vinninga
og eina biöskák hver. Friörik er í 9.
sæti með 3,5 vinninga og biðskák.
Panno, Balashov og Browne hafa 3
vinninga og eina biðskák hvcr og lest-
ina reka Argentinumennirnir
Quinteros og Giardelli með 2,5 vinn-
inga. -GAJ
Símalyfseðlarnir:
„Betra kerfi hef-
ur ekki fundizt”
— segir Ólafur Ólafsson Bandlæknir.
—Tek fegins hendi tillögum um betra kerfi
„Misnotkun á símalyfseðlum er
mikill höfuðverkur erlendis, sérstak-
lega í stórborgum, en hefur ekki verið
mikið vandamál hérlendis,” sagði
Ólafur Ólafsson landlæknir í viðtali
við DB. Svo sem fram hefur komið í
DB gekk það átakalaust fyrir sig er
maður nokkur pantaði lyf í gegnum
síma í apóteki, gaf upp læknisnafn
og sótti lyftð síðan.
,,Það er ekkert kerfi sem stenzt
mannlega snilli,” sagði landlæknir.
,,En viðkomandi lýfjafræðingur á að
tryggja að það sé réttur læknir sem
hringir inn lyfseðilin.n: Það fer ekki
hjá því að eftir margra ára starf
þekkja lyfjafræðingarnir læknana i
sima.
En þvi ber ekki að neita að þetta er
höfuðverkur. Það hefur verið legið
yfir þessu kerfi og lögin tvivegis
endurskoðuð, en betra kerfi hefur
ekki fundizt. Það er ekki leiðin að
banna slíka lyfseðla. Það kæmi sér-
staklega niður á mörgu gömlu fólki.
Þau átta ár sem ég hef gegnt starfi
landlæknis man ég aðeins eftir örfá-
um skiptum þar sem misbrestur hefur
orðiðá þessu kerfi.
En viö erum mjög á varðbergi
gagnvart sterku lyfjunum og þau eru
ekki afgreidd í gegnum sima nema í
,,akút”tilfellum og þá aðeins örfáar
töflur, 3—4. En ég tek fegins hendi
góðum tillögum um betra kerfi.”
- JH
ABC hf., auglýsingastofa, hefur nú
aflað sér bankatryggingar hjá Útvegs-
bankanum fyrir lögbanni á barna-
blaðið ABC, að sögn Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, eiganda auglýsingastofunnar, i
morgun. Gert er ráð fyrir að tryggingin
verði lögð fram hjá fógeta í dag. Sam-
þykki fógeti trygginguna, sem nemur
fjórum milljónum króna, tekur gildi
lögbann á nafn barnablaðsins.
Svo sem fram hefur komið í DB hóf
barnablaðið nýlega göngu sína og hafa
komið út tvö tölublöð af því, en það er
gefiðút af Frjálsu framtaki. -JH
ölvaður af tan
á kyrrstæðan
Ölvaður maður ók aftan á kyrr-
stæðan bíl á Nýbýlavegi í Kópavogi í
nótt. Hann slasaðist ekkert og bílarnir
skemmdust hvorugur mikið og má það
mesta mildi kallast í eins lélegu skyggni
ogþarvarínótt. -DS
LUKKUDAGÁR:
31. OKTÓBER 23219
Sharp vasatölva CL 8145.
Vinningshafar hringi
í síma 33622.
rirþá^
A jT „sem meta
O fa£ra muni y®
IEKl^
KR18M1L
Laugavegi 15, Reykjavik
simi Í4320
Fáskipá
miðunum
s