Dagblaðið - 02.01.1981, Síða 3

Dagblaðið - 02.01.1981, Síða 3
Hvað er á seyðium helgina? Tilkynningar GANGLER HAU’íT «980 Timaritið Gangleri, Timaritið Gangleri. siðara hefti 54. árgangs. er komið út. Meðal greina i þessu hefti má nefna Hvert stefnir mannkymð. eftir hinn þekkta sagnfræðing Arnold Toynbee. Hvað er maðurinn? eftir Rögnvald Finnbogason, greinar eru um fornsögulega leyndar- dóma og Halldór Haraldsson kynnir Svami Vivekan- anda. Hvert hefti Ganglera er 96 siður og i þessu hefti eru rúmlega 15 greinar. Allar upplýsingar eru gefnar i sima 39573. Hannyrðaverzlun i Breiðholti í nóvember sl. var opnuð fyrsta hannyrðaverzlunin i efra Breiðholti, verzlunin Mamma að Drafnarfelli 6.1 verzluninni eru seldar hannyrðavörur. vefnaðarvörur. nærföt. náttföt, ungbarnaföt, gjafavörur o. fl. Eigandi Mömmu er Vigdis Stefánsdóttir t.v. Með henni á myndinni er Gróa Friðjónsdóttir afgreiðslustúlka. Skipin Skip Sambandsins munu ferma til íslands á naKtunni sem hér segir: Antverpen: Arnarfell..........................8/1.22/1.5/2 Rotterdam: Arnarfell........................7/1.21/1.4/2 Goole: Arnarfell........................5/1. 19/1.2/2 Larvik: Hvassafell..................... 2/1. 12/1.26/1 Gautaborg: Hvassafell.................... 31/12. 13/1.27/1 Kaupmannahöfn: Hvassafell.................... 30/12. 14/1.28/1 Svendborg: Hvassafell....................... 29/12.15/1.29/1 Dísarfell...........................2/1.30/1 Helsinki: Disarfell........................... 29/12.26/1 Clouchester, Mass.: Skaftafell.......„..................19/1.20/2 Halifax: Skaftafell............................21/1.23/2 Dómaranámskeið í knattspyrnu Upp úr miðjum janúar hyggst knattspyrnudeild Breiðabliks standa fyrir dómaranámskeiði i knatt- spyrnu. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku hafi samband við Jón Inga Ragnarsson formann deildarinnar í síma 40394. Úr uppfærslu Lcikfélags Eskifjarðar á Þorláki þrcytta. Frá vinstri á m.vndinni cru Ilalldóra Svcinsdóttir, Halla Oskars- dóttir. Gunnlaugur Ragnarsson og Margrct Svcinsdóttir. Ljósm: Vilbcrg Guðnasoni Leiksýningar um helgina: ÞORLAKUR ÞREYTTI Á AUSTFJÖRDUM Þorlákur þreytti er viðar á ferli en í Kópavogsleikhúsinu. Leikfélag Eski- fjarðar hefur sýnt þennan vinsæla gamanleik sjö sinnum á undanförn- um vikum. Sýningar hafa verið víða um Austurland og aðsókn verið góð. Leikurinn var síðast sýndur á Eski- firði á gamlársdag. í kvöld verða Þorlákur og félagar á Norðfirði og á Seyðisfirði á morgun, laugardag. Að sögn hins dugmikla formanns Leikfélags Eskifjarðar, Gunnlaugs Ragnarssonar, hefur Þorláki þreytta alls staðar verið vel tekið og leik- endur verið konunglega trakteraðir með mat og drykk að loknum sýning- um. — Það er einmitt formaðurinn sem fer með hlutverk Þorláks. Meðal annarra leikara má nefna Margréti Sveinsdóttur, Halldóru Ósk Sveins- dóttur, Jón Garðar Helgason og Guðmund Gíslason. Leikstjóri Þorláks þreytta er Jónína Kristjánsdóttir. Hún hefur einu sinni áður sett upp leikrit með Leikfélagi Eskifjarðar, Skjaldhamra Jónasar Árnasonar, síðastliðið vor. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Jólatrésskemmtun Jólatrésskemmtun verður haldin að Hólel Söpu. Súlnasal. laupardaginn 3. janúar 1981 og hefst kl. 15.00 siðdegis. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavikur. Hagamel 4. Miðaverð. Börn. Gkr. 3000,- nýkr. 30. FullorðnirGkr. l000.-nýkr. 10.- Tckið verður á móti pöntunum i simum 26344 og 26850. Fáksfélagar Fögnum nýju ári með danslcik i félagsheimilinu laugardaginn 3. janúar. Sluðlatrió lcikur. Húsið opnað kl. 21.00. Aðgöngumiðar scldir fösludag kl. 17-19. Samtök herstöðvaandstæð- inga á Akureyri Starfsemin á nýja árinu hefst með þvi að haldin verður fjölskylduskemmtun i Alþýðuhúsinu á morgun, laugardaginn 3. janúar kl. 14. Menn geta komið og kynnt sér starfsemi herstöðvaandstæðinga og tekið börn sin með. Óháði söfnuðurinn í Reykja- vík Jólatrésfagnaður fyrir börn verður sunnudaginn 4. janúar kl. 15. i Kirkjubæ. Hver fann „cape" í Sörlaskjólinu? Klukkan rúmlega þrjú á nýársnótt týndist á móts við Sörlaskjól 9 og 11 i Reykjavik skinnkragi, svokallaður „cape". Hér er um ættargrip að ræða og hefur kraginn fyrst og fremst ómetan- legt tilfinningagildi fyrir eiganda sinn. Lögreglan sá ungan mann taka kragann upp úr götunni og vefja honum um háls sér, en það var áður en tilkynning hafði borizt um að hann væri týndur. Eigandi skinnsins óskar nú eftir að finnandi hafi samband við sig i síma 19019. og skili cape-inum. Bókvikunnar: UÓD VEGA MENN —eftir Sigurð Pálsson Ljóðabækur Sigurðar Pálssonar eru ekki nema tvær, Ljóð vega salt og nú Ljóð vega menn, en þær hafa nægt til að búa höfundi sess meðal athyglisverðustu skálda af yngri kynslóð. Hin nýja ljóðabók Sigurðar, Ljóð vega menn, er nú loksins komin í hendur lesenda eftir talsverða hrakninga, tvíprentun og prentsmiðjubruna og fleira getur varla komið fyrir bókina úr þessu. Nema þá að við kjósum hana bók vikunnar á DB, þá fyrstu á hinu nýja ári. Ekki er auðhlaupið að hafa hendur á skáldinu Sigurði eins og hann birtist i ljóðum sínum. Honum er mikið niðri fyrir, þó agaður í málflutningi sinum en jafnskjótt og lesandi þykist hafa komið auga á kjarna máls í ljóðum hans, snýr Sigurður upp á sig og umturnar fyrri niðurstöðum. Leikur hugans, leikur ljóðsins skiptir hann kannski mestu máli og sá leikur er ekki alveg án ábyrgðar. Lesandinn hefur á tilfinningunni að frelsi ljóðsins, eins og Sigurður meðhöndlar það hugtak, endurspegli siðferðilegan fastapunkt, mannlegt frelsi, frelsi til að ærslast. Eins og segir í Á hringvegi ljóðsins VI:.........til þess er áþjánin of grimmileg / og baráttan of hörð / að sömu tuggnu orðum verði hún sögð og sigruð / heldur nýjum orðum / og gerðum”. Ný orð eru undanfari nýrra gerða. Sigurður skrifar mikið í ljóða- bálkum og í Ljóð vega menn eru a.m.k. fjórir slíkir auk ljóða úr leik- verkunum Undir suðvesturhimni og Hlaupvídd Sex, sem eru reyndar á- berandi léttvæg í þessu samhengi. Fyrsti bálkurinn, Á hringvegi ljóðsins, er nákvæmlega það, ferð ljóðs um landið, hugarflugi er teflt gegn íslenskum veruleika og sem fyrr er líkingamál Sigurðar skemmtilega frísklegt. Sólin er t.d. allt í senn, ,,sú gamla kattfrísk enn að klifra”, „gamla grjónan”, „logagyllta fluga á kúplinum”, „gamla geislakýr”. Bálkur númer tvö kallast Nocturnes handa sólkerfinu, tileinkaðar J.S. Bach, og inniheldur næturstemmur, kannski Ijóðrænar fúgur, hugsanir í óljósum tíma og rúmi, án upphafs og endis, uppfullar af spurninga- merkjum um eðli tilverunnar. Mest er hún tilviljunarkennd, segir skáldið: „Hipsumhaps hvernig fer / eða hvað gerist næst” (Nocturne handa Úranusi). í þriðja bálki, Það eitt til sex, virðist lagt út af ýmiss konar vé- fréttum eða tilbúnum munnmælum um mannlega náttúru, stundum eins og af tilviljun, stundum eftir tenings- kasti (eins og Mallarmé?) og eins og fyrri daginn fer Sigurður undan í flæmingi þegar hanka á hann á meiningum, í mesta lagi læðir hann út úr sér einhverri bölsýninni: „Það batnar ekki neitt það versnar versnar”. Loks rekur hann endahnút á bókina með borgarlífsmyndum, ekki ósvipuðum þeim, sem finna mátti í fyrri bók hans. Hér er sagt frá mannlífi á einni götu í París (hvar annars staðar?), Rue Vielledu- Temple, sem í munni íslensks orðháks heitir Sú gamla frá Hofi. Þótt þar séu dregin fram sérkenni Parísarbúans, þá má áskáldinu skilja að kannski séu nú hjörtun eins í Monteparnasse og Tómasarhag- anum: á báðum stöðum hoppa börnin í paris. Með Ljóð vega menn, styrkir Sigurður Pálsson stöðu sína meðal íslenskra skáldmenna. Bókin er alltént í léttþungavigt. Hún kostar nýkr. 98,80. .AI. Sigurður Pálsson — „Það batnar ekki neitt, það versnar vernsar / vongóðu blindingjar”

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.