Dagblaðið - 28.01.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1981.
Járnblendiverksmiðjan á Grundartantia.
DÆMUMEKKIÆSKU LANDS-
INS TIL FÆRIBANDAVINNU
Spurning
dagsins
Ætlarðu að fá þér
þorramat?
Hjörleifur Friðriksson sjómaður, Vest-
mannaeyjum: Það geri ég örugglega og
það verður mjög fljótlega.
Auróra Fríðriksdóttir umbi, Vest-
mannaeyjum: Já, auövitað. Ég fæ mér
þorramat með félögum minum í
hjálparsveit skáta i Vestmannaeyjum.
Garðar Björgvinsson, útgerðar-
maður, Raufarhöfn, skrifar:
Núverandi efnahags- og stjórn-
kerfi þjóðarinnar er að líða undir
lok, og er það vonum seinna. Þreytu-
hljóð kveða við úr öllum burðarbit-
um þjóðfélagsins. Flótti fólks úr
landinu eykst með degi hverjum. Það
er mjög alvarlegt að missa fólk úr
hinni fámennu sjómannastétt og
færa þannig keppinautum okkar í
fiskiðnaði dýrmæta þekkingu og
reynslu.
„Nýtum vatnsaflið til að bæta af-
komu fólksins í landinu,” segir Jón
Sigurðsson forstjóri Járnblendi-
félagsins i Vísi 19. jan. sl. Þetta er
hraustlega mælt hjá Jóni, í framtíð-
inni getum við svo sannarlega notað
vatnsaflið til að bæta lífskjörin hér á
landi. En rétta leiðin er ekki sú að
hleypa inn í landið erlendum auð-
hringum. Við vitum öll hvaða mark-
mið þessir erlendu auðhringar hafa
og vonandi vill ekkert okkar vitandi
vits hneppa æsku þessa lands við
færibönd auðhringanna. Allt tal for-
söngvara auðhringanna hér á tandi
um styttri vinnutíma og betri lífskjör
er blekking ein, nema þeir hafi sjálfir
verið slegnir blindu af einhverjum
annarlegum orsökum. Frumforsenda
þess að fólk sé hamingjusamt er sú að
það sé ánægt í vinnu sinni og finni til-
gang í henni.
Þeir menn sem hyggjast standa
fyrir því að tekin verði erlend lán til
að fjármagna stóriðju á íslandi eru
vægast sagt grunnhyggnir, þessi lán
þarf að borga og það verður æska
Iandsins að gera. Hlekkjum ekki
æsku landsins við færibönd auð-
hringanna.
GdP*
gerid
9óð
kaup
Smáauglýsingar
WBIABSINS
Þverholtili sími 2 7022
Alfreð Kristjánsson verkstjóri: Já, það
held ég nú. Maður fer svona að athuga
hvar bezt er að kaupa hann.
Benedikt Benediktsson bllstjóri: Nei,
ég fæ mér ekki sérstakan þorramat.
Maður er alltaf að éta góðan íslenzkan
mat sem flokkast undir þorramat, eins
og hákarl.
Ásdis Rós Magnúsdóttir nemi: Nei, ég
ætla ekki að fá mér þorramat.
Guðriður Jónsdóttir húsmóðir: Nei,
ætli það verði ekki eitthvað lítið.