Dagblaðið - 21.02.1981, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981.
►
2
t
•
Í
!
!
í
Sjónvarp:
Ástandið
óþolandi
—ekki verður lengur við það unað
Hallbjörn J. Hjaltason, Skaga-
strönd, hringdi:
Okkur Skagstrendingum og Hún-
vetningum er ekkert öðruvísi farið en
öðrum landsmönnum, við viljum
fylgjast með því sem er að gerast,
m.a. í sjónvarpi sem við borgum fyrir
eins og aðrir.
En svo er mál með vexti að við
erum sáróánægðir með viðhald og
eftirlit sjónvarpsendurvarpsstöðvar-
innar við Hnjúka á Blönduósi. Því er
þannig farið að við það verður ekki
lengur unað.
Það má segja að eftirlit með henni
sé ekkert. Ef hún er ekki algjörlega
biluð eru meiri eða minni truflanir á
útsendingu svo litil unun er á að
horfa.
Þriðjudaginn 17. þ.m., eftir
óveðrið, var rafmagnslaust á köflum
hér eins og reyndar víða. Þegar út-
sending sjónvarps hófst kl. 20 um
kvöldið var Hnjúkastöðin ekki inni.
Þegar leitað var eftir ástæðum fyrir
því var sagt að það stafaði af raf-
magnsleysi á Blönduósi en það voru
ósannindi því rafmagn hafði komið
aftur á Blönduósi kl. 11.30 um morg-
uninn og haldizt síðan.
Það virðist sem enginn ábyrgur
aðili sjái um viðhald á þessari endur-
varpsstöð síðan fyrrv. rafveitustjóri,
Ásgeir Jónsson, yfirgaf Blönduós,
síðan þá hafa þéssi mál verið í sí-
felldri óreiðu.
Við íbúar á þessu svæði, sem eig-
um að njóta sjónvarpssendingar frá
Hnjúkastöðinni, viljum að þessum
málum verði kippt i lag og það strax.
Annars verðum við að grípa til rót-
tækari aðgerða.
Bréfritari er óánægður með að sjá ekkert I sjónvarpi langtimum saman. Hann
hefur t.d. misst af sýningu hins frábæra handboltaleiks íslendinga ög Austur-
Þjóðverja sl. þriðjudagskvöld. Hér er Bjarni Guðmundsson landsliðsmaður að
skora eitt af mörkum sinum.
LOKUÐU HUÐ-
INU MEÐ SNJÓ
Hestamaður i Garðabæ skrifar:
Eitt er það fyrirtæki í Garðabæ
sem nefnist Olíumöl hf. Mikið hefur
verið um það rætt og ritað og þarf
því ekki frekari kynningar við, enda
frægt að endemum bæði í heima-
byggð og að heiman.
Innræti, hugarfar og smekkleysi
ráðamanna á þeim stað blasa hvar-
vetna við augum vegfarenda. Þegar
gengið er þar um garða blasa við
hálfhrundir skúrar og alls kyns járna-
rusl á við og dreif um starfssvæði
fyrirtækisins
Nokkrar ótiðarvikur nú undanfar-
ið hafa hestamenn i Garðabæ, sem
eiga hesthús sín hjá Gusti í Kópavogi,
lagt leið sína eftir vegatroðningum,
sem liggja í gegnum starfssvæði fyrir-
tækisins, þar sem aðrar leiðir hafa
ekki verið færar vegna snjóa, og
meðal annars framkvæmda hjá
Garðabæ, sem stöðvuðust vegna
vetrarveðráttunnar.
Nýjasta dæmið um ómannlega
starfshætti á þessum stað er að eftir
síðustu hríðargusu tóku þeir sig til,
Olíumalarfurstarnir, og lokuðu þess-
ari leið fyrir okkur hestamönnunum
með því að ýta snjó i hliðið sem
liggur út úr svæði Olíumalar og upp á
vegarkafla þar meðfram til hesthús-
anna. Þetta kostaði þá ærna fyrir-
höfn og fjármuni því snjónum urðu
þeir að ýta talsvert langa leið til þess
að fá nægjanlegan snjó til að loka
leiðinni tryggilega. Okkur hesta-
mennina kostar það að fara fyrst í
Kópavog til þess að komast í hesthús-
in. Þetta er táknrænt dæmi um
stjórnun, starfshætti og innræti
þeirra sem þarna ráða ríkjum og er
sjálfgefin skýring hvers vegna helzt
enginn heiðvirður maður vill láta
kenna sig við þetta löngu gjaldþrota
óreiðufyrirtæki. Það er von og ósk
okkar hestamanna og áreiðanlega
margra annarra að nýr og betri andi
svífi þar yfir vötnum með nýjum eig-
endum og starfsmönnum.
Bréfritara finnst illa komið fram við hestamenn I Garðabæ.
Frábært:
UTANGARÐSMENN -
r r
W%ÆTi flffFAf — góðskemmtunfyrir
r/CLI/ I Erf lítinn pening
Garri skrifar:
Leikrit á útsölu. Það var það sem
mér datt í hug þegar ég fór í Alþýðu-
leikhúsið og sá leikritið Pæld’i’ðí. Það
kostaði ekki nema 60 nýkr. að sjá
leikritið og svo voru hljómleikar með
Utangarðsmönnum á eftir.- Þetta
kalla ég sko ekki dýrt, ég varð meira
að segja hálfhneykslaður þegar ég
heyrði verðið. Leikritið var alveg frá-
bært.mjög fyndið og fóru leikararnir
alveg á kostum. Þetta eru greinilega
mjög efnilegir leikarar.
Ég lýsi furðu minni á því að
sumum krökkum er meinað að sjá
þetta leikrit. Það ætti ekki að
hneyksla neinn heldur er það mjög
fræðandi.
Það er víst alveg öruggt að ungling-
arnir nú til dags eru ekki mikið
fræddir um kynlif.
Hljómleikarnir á eftir voru líka
mjög góðir. Utangarðsmenn voru
hressir og sýndu að þeir eru langbezta
hljómsveitin sem við eigum.
Bubbi Morthens er greinilega
orðinn hálfgerður íslenzkurTravolta,
hvað vinsældirnar varðar, því þarna
var mikið af stelpum á aldrinum 10—
14 ára, burstaklipptar og i leðurjökk-
um. Þær görguðu og létu öllum illum
látum þegar Bubbi sýndi sinn vöðva-
stælta kropp. En sem sagt, þetta var
ódýr og frábær skemmtun sem ég
hefði ekki viljað missa af.