Dagblaðið - 21.02.1981, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981.
'
Eyjólfur Friðgeirsson f iskif ræðingur í áliti um loðnustof ninn:
LOÐNAN NU EKKIMINNI
EN A UNDANFÖRNUM ÁRUM
—túlkar á engan hátt skoðanir Haf rannsóknastof nunarinnar, segir Jón Jónsson f orstjóri
„Það sem Eyjólfur hefur tjáð sig
um i þessu áliti sínu túlkar á engan
hátt skoðanir stofnunarinnar eða
leiðangursstjóra rannsóknarferða við
loðnurannsóknir,” sagði Jón Jóns-
son, forstjóri Hafrannsóknastofnun-
arinnar, í viðtali við DB. „Þetta mál
hefur verið afgreitt innan stofnunar-
innar og er því lokið,” sagði Jón
Jónsson.
Sú er skoðun leiðangursstjóra og
fiskifræðinga, t.d. Hjálmars Vil-
hjálmssonar, að loðnan sem nú
mælist sé mun minni en verið hefur
undanfarin ár. Sé því skynsamlegt að
minnka veiðimagnið frá því sem
verið hefur talsvert mikið.
Mikið ber á milli í mati flestra
fiskifræðinga Hafrannsóknastofnun-
arinnar á magni loðnustofnsins og
Eyjólfs Friðgeirssonar fiskifræðings
hjá Hafrannsóknastofnun. Hann
telur að gangan fyrir austan land sé
nú sennilega 5—600 þúsund tonn,
allavega ekki innan við 500 þúsund
tonn. Sé þetta þvi svipað magn og
verið hefur nokkur undanfarin ár.
„Þetta er „sjónmat” mitt og auð-
vitað loðnuskipstjóranna,” segir Eyj-
ólfur, „og sennilega Hjálmars Vil-
hjálmssonar líka þótt hann hafi látið
annað í veðri vaka í fjölmiðlum.”
„Mælingin staðfestir „sjónmatið”
og er miklu skárri en við var að búast
eftir mælinguna í haust,” segir Eyj-
ólfur.
Þá segir Eyjólfur að í fyrri mæling-
unni, sem eingöngu hafi verið gerð af
Bjarna Sæmundssyni, hafi stofninn
mælzt nær 450 þúsund tonn. „í
þeirri mælingu var komið að ís
austan við Kolbeinsey. ísinn og veður
komu í veg fyrir að hægt væri að
Ijúka mælingunni vestar. Þar sem
komizt var norðvestast fundust enn
torfur rétt við ísinn. í hvorugri mæl-
ingunni var mæld loðna uppi á land-
grunninu en þar höfðu fundizt stakar
torfur,” segir Eyjólfur Friðgeirsson
fiskifræðingur.
Bæði Árni Friðriksson og Bjarni
Sæmundsson framkvæmdu fyrri
hlutann af seinni mælingunni, að
sögn Eyjólfs. Hann segir og að
Bjarni Sæmundsson hafi hætt í miðri
mælingunni til að mæla magnið sem
bátarnir voru að veiða úr syðst í
göngunni. Árni Friðriksson hafi því
einn lokið seinni hluta þeirrar mæl-
ingar.
„Ekki var mælt vestan við 17
gráður og mælingunni því ekki full-
lokið að vestan. Svæðið við Kol-
beinsey og vestar var enn skilið út-
undan og raunar aldrei kannað fylli-
lega og ekkert kannað síðari hluta
janúar,” segir Eyjólfur Friðgeirsson.
Þá telur Eyjólfur að allan fyrir-
vara verði að gera á niðurstöðum
Árna Friðrikssonar af ýmsum ástæð-
um.
„Gangan fyrir austan núna er
svipuð og 1978. Þá var sennilega veitt
allt of mikið úr loðnugöngunni fyrir
austan. Er það sennilegasta orsökin
fyrir því hversu árgangurinn frá 1978
er lélegur. 1/3 eða 1/2 af veiðinni
1978 ætti að tryggja að hvorki verði
tekið of lítið úr göngunni né ofveiðin
1978 endurtekin,” segir Eyjólfur,- BS
Tillaga stjórnvalda á ári fatlaðra:
Afsláttarbíl-
ar fyrir fatí-
aða verói
SOOáári
—Albert flytur breytingartillögu og
vill að þeir fái af sláttarbíl sem trún-
aðarlæknar telja að þess þurf i
I vikunni mælti fjármálaráðherra unarhátt að takmarka fjölda bifreið-
fyrir frumvarpi um að lækkuð yrðti anna við 500. „Ég sé ekki af hverju á
eða fclld niður gjöld af allt að 500
fólksbifreiðum árlega fyrir bæklað
fólk og lamað svo og fólk mcð
Itingnasjúkdóma, hjartasjúkdóma og
aðra hliðstæða sjúkdóma, allt á svo
háu stigi að það á erfitt með að fara
ferða sinna án farartækis. Lækkun
gjalda af hvcrri bifreið má nema allt
að 12000 krónum og heildarlækkun
að meðtöldu innflutningsgjaldi allt
að24 þúsund krónum.
Þá eru í frumvarpinu ákvæði um
að lækka megi gjöld af 25 bifreiðum
um allt að 24 þúsund kr. fyrir þá sem
mestir eru öryrkjar en geta þó ekið
sjálfir sérstaklega útbúinni bifreið.
Heildarlækkun með innflulnings-
gjaldi má af þcssum 25 bilum nema
•48 þúsund kr. á bifreið.
I.oks gerir fruntvarpið ráð fyrir að
ráðuneytinu sé heimilt að lækka eða
fella niður fyrir framangreint fólk
gjöld af gervilimum, sem ekki verða
geröir hér á landi, svo og af áhöldum
og hjálpartækjum sem sérstaklega
eru gerð með tilliti til þarfa þess og
hentaekkiöðru fólki.
í umræðum um málið laldi Albert
Guðmundsson (S) það sntáan hugs-
að takmarka fjölda bifrciða sem ár-
lega er úthlutað til fólks, sjúklinga á
einn eða annan hátt. Auðvitað á að
afgreiða slík mál til allra sent eiga rélt
á því hver sem fjöldi þeirra er,”
sagði Albert.
Albert benti á að frumvarpið gerði
ráð fyrir að 5 manna nefnd ætti að
úrskurða umsóknir um eflirgjöf bif-
reiðagjalda. Skulu 4 í nefndinni vera
læknar og skipaöir af öryrkjabanda-
lagi íslands.
„Af hverju nægir þetta, fjórir
iæknar trúnaðarmenn um úthlut-
un?” spurði Albert. „Þessunt mönn-
um er gert að gera upp á milli fólks
sent allt á sama rétt og er hreyfi-
hamlað cf það fær ekki bifreið.”
Loks vildi Albert ekki una við að
það væri heimildarákvæði ráðherra
að fclla niður gjöld af gervilimum og
hjálpartækjum. „Auövitaö á skil-
yrðislaust að fella slík gjöld niður en
ekki heimila aö slíkt verði hugsanlega
gert.”
Albert hefur nú lagt fram breyl-
ingartillögur varðandi umræddar
þrjár breytingar á stjórnarfrumvarp-
inu. -A.St.
ATVINNUHÚSNÆÐI
TIL LEIGU
Höfum til leigu á Skemmuvegi 6 Kópavogi at-
vinnuhúsnæði 130—170 m2 á 1. hæð. Hentar
vel fyrir hvers konar skrifstofur, léttan iðnað eða
verzlun. Möguleikar á að skipta húsnæðinu
niður í 2 eða 3 sjálfstæða hluta.
Upplýsingar gefur Páll Hannesson í síma 75722
HLAÐBÆR H.F.
Rétti tíminn til að
snyrta í garðinum
„Nú er bezti tíminn til að klippa tré
og runna. Allur gróður er alveg í dvala
og blæðir ekkert þó klippt sé nú,”
sagði Björn Hallgrimsson á skrifstofu
garðyrkjustjóra borgarinnar í samtali
við DB í gær.
Starfsmenn garðyrkjustjóra fara nú
vítt um borg og bí og klippa trjágróður
á opinberum svæðum —einkum stærri
stofna, sagði Björn Hallgrimsson.
Hann sagði það gera minna til með
hekk og runna, slíkan trjágróður mætti
í rauninni klippa hvenær sem væri, en
bezt væri að taka allt á meðan það lægi
i dvala. Þegar kemur fram í apríl og sól
fer að hækka verulega á lofti byrjar
gróður að lifna við aftur og þá er rétt
að fara sér hægt við snyrtingu lægri
trjáa þar til fullri rækt er náð.
Þessir heiðursmenn voru að klippa á
Miklatúni í gær þegar DB-menn áttu
Ieið þar um.
- ÓV / DB-mynd Sig. Þorri.
Laun teljara í
manntali berast
í pósti fljótlega
— skólanema
farið að
lengja eftir
greiðslunum
Óþolinmæði ýmissa teljara í mann-
talinu er farið að gæta vegna þess að
greiðslur hafa ekki borizt fyrir við-
vikið. Þarna er að miklu ieyti um
nemendur í hinum ýmsu skólum að
ræða og því þörfin brýn fyrir launin.
„Þetta er talsvert stór hópur, í
upphafi 1200 manns, en urðu fleiri,
þannig að þetta hefur tekið tíma,”
sagði starfsmaður aðalmanntals.
„Þetta eru góðar greiðslur og teljur-
um var gerð grein fyrir því í upphafi
að ekki væri ljóst hvenær greiðslur
yrðu inntar af hendi. Það eru nú ekki
nema tvær vikur frá því að talningu
lauk.
Meiningin er að senda greiðslurnar
í pósti og það verður alveg á næst-
unni. Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um ætti að vera hægt að póstleggja
greiðslurnar á mánudag. Skólanem-
endur eru bráðlátir en okkur sem
erum á mánaðarlaunum þætti gott að
fá launin þó þetta fljótt. Þetta hefur í
raun gengið fljótar en' gert var ráð
fyrir.”
- JH