Dagblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 1
I
I
f
i
\
í
\
i
\
7. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 - 54. TBL.
RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
Bandaríkjaforseti
herskár:
Stóraukinn
herskipa-
ríkjanna
og Noregs
— floti Bandaríkja-
manna tafinn
veikari þar en floti
Sovétmanna.
NATO mun sterk-
ara ílofti, m.a.
vegna Keflavíkur-
stöðvarinnar
Frá Sigurjóni Jóhannssynl
fréttaritara DB i Osló:
Fréttaritari norska blaðsins
Aftenposten í Washington skýrði
frá því í gær, að ríkisstjórn
Reagans Bandaríkjaforseta hafi
nú i hyggju að auka mikið her-
skipa- og kafbátaflota sinn á
hafinu milli íslands og Noregs til
,->ess að styrkja stöðu sína á
Norður-Atlantshafssvæðinu.
Hernaðaráætlunin gengur út á
það að loka sovézka flotann inni
við nyrztu mörk Noregs ef til
striðsátaka kæmi og hindra að
sovézkur her gæti ráðizt inn í
Norður-Noreg. Að auki skal
flotinn vera nægilega sterkur til
að gera atlögu að Kolaskaga, þar
sem Sovétríkin hafa öflugar her-
stöðvar.
Gert er ráð fyrir að Bandaríkin
auki herskipaflota sinn á svæðinu
úr 456 herskipum og kafbátum í
600 fyrir árið 1989. Sérstaklega er
talin þörf á aö bæta við þremur
flugvélamóðurskipum, þ.e. að
fjölgaþeimúr 12 i 15.
Formaður varnarmáladeildar
Norska stórþingsins, Per Hysing
— Dahl frá Hægri flokknum,
fagnaði þessari ákvörðun þar sem
hann telur að Sovétrikin séu nú
sterkari aðilinn hvað skipasfól
snertir á þessu svæði, en . NATO
hafi yfirburði i lofti, ekki sizt
vegna flugstöðvanna ' á
Grænlandi, Íslandi og i
Skotlandi.
-JH.
Umfangsmikil leit að línubát frá Sandgerði:
TVEGGIA MANNA SAKN-
AÐ Á TÓLFTONNA BÁT
sem ekkert hef ur spurzt til síðan kl. 16 í gær
Leit stendur nú yfir að 12 tonna
bát sem gerður er út frá Sandgerði,
Báru VE-141. Um borð eru tveir
menn, báðir úr Garðinum.
Síöast spurðist til hans kl. 16 í gær
en þá hafði báturinn samband við
Keflavikurradió. Var hann þá
staddur um 32 sjómílur vest-norð-
vestur af Garðskaga og var allt í stak-
asta lagi. Báturinn var á línuveiðum.
Er hann kom ekki fram í gær-
• kvöldi var haft samband við Slysa-
varnafélagið og skipuleg leit hafin. 10
bátar af Suðurnesjum leituðu í nótt
auk radarvélar frá Keflavíkurflug-
velli. í morgun bættust fleiri bátar í
leitina og er blaðið fór í prentun voru
um 30 bátar á leitarsvæðinu.
Fokkervél frá Landhelgisgæzlunni
hélt einnig til.leitar í morgun og leysti
Varnarliðsvélina af hólmi.
1 gærdag voru 7—8 vindstig af
austan á svæðinu þar sem báturinn
var staddur er síðast spurðist til hans.
Veður fór hins vegar lægjandi og í
gærkvöldi og nótt voru ákjósanleg
skilyrði til leitar, 5—6 vindstig, heið-
skírt og ekki mikill öldugangur. KMU
Litlar grýlur og púka gat að lita vfós vegar um borg og bi i gær — á öskudaginn.
Krakkar áttu fri i skólum og notuðu tækifærið til að klæða sig f skrfpabúninga og
leika lausum hala. 1 Breiðholti buðu hestamenn krökkum á bak klárum sfnum og svo
hámuðu þau f sig fs og gosdrykki f nepjunni. DB-mynd: Sig. Þorri.
Hitnar heldur betur í kolunum á Ólafsfirði:
Harkalegar ásakanir ganga milli fógeta og varðstjóra
— fógeti vék lögregluvarðstjóra úr starfi — sjá bls. 10-11
Skíðadagur fjölskyldunnará laugardaginn:
BURSTIÐ RYKIÐAF SKÍDUN-
UMOGKOMIÐ UTAÐ GANGA
A
Veðurguðirnir voru skíða-
mönnum hliðhollir í gær og settu
niður snjó á Suðvesturlandi. Margir
bruðu fyrir sig betri fætinum og
skelltu sér á skiöi, ekki sízt skóla-
nemendur, sem áttu frí frá daglegri
setu á skólabekkjum.
En þegar snjórinn er nægur
innan borgarinnar þá þurfa þeir
sem stunda skíðagöngu ekki að leita
langt yfír skammt og halda til fjalla
til að iðka skiðaíþróttina, heldur
eru næg tækifæri til að skella á sig
skíðunum innan borgarinnar og í
nágrenninu.
Eins og við sögðum frá í blaðinu
í gær ætlum við að kynna
skíðagöngu sérstaklega á sérstökum
„Skíðadegi fjölskyldunnar” á
Miklatúni á laugardaginn kemur.
Undanfarnar helgar hafa veðurguð-
irnir verið okkur lítt hliðhollir, en
nú hafa þeir bætt úr og sett niður
nægan snjó. Ef veðrið helzt fram
að helginni ætti ekkert að vera því
til fyrirstöðu að halda skíðadaginn.
Egill Skúli Ingibergsson borgar-
stjóri mun setja skíðadaginn klukk-
an tvö á laugardaginn. Lúðrasveit
Reykjavfkur mun blása til leiks og
gestir og gangandi munu fákakó og
kex úr pylsuvagni sem verður við
Kjarvalsstaði.
Fyrir þá sem eru að byrja að
spreyta sig á göngulistinni verða
þaulvanir skíðamenn til taks og
munu þeir veita fólki leiöbeiningar
um hvemig bezt sé að bera sig að
því að njóta þeirrar hollu útiveru
sem skíðagangan er. Göngubraut
verður merkt um Miklatún frá
Kjarvalsstöðum. Þar verður upp-
lagt tækifæri fyrir fjölskyldurnar
að sameinast í hollri útivem á laug-
ardaginn.
-JR.
sjá nánarábls.5
og DB á neytenda-
markadi á bls. 4