Dagblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981.
(m Erlent Erlent Erlent Erlent g)
1 1 *
Reagan biður um aukaf járveitingu til hermála:
„vm HÖFUM DREGIZT
HÆTTULEGA AFTUR
ÚR SOVÉTMÖNNUM”
- segir varnarmálaráðherrann, Caspar Weinberger
- Reagan f er f ram á 32,6 milljarða $ hækkun til hermála
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
fór í gær fram á 32,6 milljarða doll-
ara aukafjárveitingu við Bandaríkja-
þing. Fjármagni þessu hyggst hann
verja til hermála á næstu átján mán-
uðum. í beiðni forsetans felst 33 pró-
sent hækkun til smíða á nýjum vopn-
um.
Hann fór fram á aukningu út-
gjalda á nær öllum sviðum hermála
ef miðað er við eyðslu stjórnar
Carters forseta til þessa málaflokks.
Caspar Weinberger, varnarmála-
ráðherra Bandarikjanna, studdi
beiðni ríkisstjórnarinnar meðal ann-
ars með þessum orðum: „Við höfum
dregizt hættulega aftur úr Sovét-
mönnum og verðum aö grípa til
naúðsynlegra ráða til að ná þeim . . .
Það er höfuðnauðsyn að við gerum
eitthvað I þessu eins fljótt og mögu-
legt er . . . Við förum hér fram á það
sem við teljum algjöra nauðsyn.”
Weinberger sagði að fyrirhuguð út-
gjaldaaukning Bandaríkjanna til her-
mála á næstu fimm árum væri ætluð
til þess að stuðla að valdajafnvægi.
Ronald Reagan og Margaret Thatcher er brezki forsætisráðherrann sótti Reagan
heim á dögunum. Fór að sögn ákaflega vel á með þeim og kvaðst Thatchcr styðja
afstöðu Bandarikjanna i málum El Salvador.
Allmikil hækkun varð nýverið á bjór i Noregi og hefur hún að vonum mælzt misjafnlega fyrir. Nú kostar hálfur litri af bjór
28—29 krónur norskar á veitingahúsum. Hækkunin er liður i tilraun rikisstjórnarinnar til að sporna við áfengisbölinu í land-
inu. I sama tilgangi hefur áfengisverzlunum nú verið lokað á laugardögum.
Flugræningjamir
hóta að sprengja
Foringi flugvélaræningjanna sem
halda 121 farþega I gíslingu í Kabúl
hefur sett fram kröfur ræningjanna
gagnvart samningamönnum, sem
komnir eru frá Islamabad, að því er út-
varpið í Kabúl segir.
í gær slepptu ræningjarnir 27 far-
þegum; konum og börnum, úr flug-
vélinni, sem er frá Pakistan.
Talsmaður ríkisstjórnar Pakistan
sagði að þrátt fyrir írekaðar tilraunir
hefði stjórnarerindrekum Pakistans og
samningamönnum ekki tekizt að fá
Ieyfi til að hitta konurnar og börnin,
sem látin hafa verið laus úr vélinni.
Hann sagði að Afganir hefðu neitað
Pakistönum um að hafa beint samband
við ræningja flugvélarinnar og krafizt
þess að þeir hefðu milligöngu í málinu.
Bmndtiand skip-
ar efsta sætið
Forsætisráðherra Noregs, Gro
Harlem Brundtland , hefur verið út-
nefnd i efsta sæti á framboðsUsta
Verkamannaflokksins við næstu þing-
kosningar í Noregi. UppstUlingar-
nefndin var einhuga við þessa á-
kvörðun, sem tók ekki meira en hálf-
tíma.
Verkamannaflokkurinn hefur sjö
fulltrúa í Osló á þessu kjörtimabUi.
Tryggve Bratteli og Halldis Havroy
gefa ekki kost á sér á næsta kjörtíma-
bili.
Sjö efstu sæti framboðsUstans
skipa: 1. Gro Harlem Brundtland, 2.
Reiulf Steen, 3. Thorbjörn Berntsen, 4.
Sissel Ronbeck, 5. Knut Frydenlund, 6.
Ivar Odegaard, 7. Ingrið Eide.
í síðustu kosningum fékk Verka-
mannaflokkurinn sjö þingmenn kjörna
í Noregi en er nú talinn mega þakka
fyrir fimm og er utanríkisráðherrann
Knut Frydenlund jafnvel talinn I
fallhættuí5. sætinu.
81 árs gamall maður dæmdur
fyrir ölvun á hestakerru
—Yf irheyra varð gamla manninn með aðstoð hátalara vegna heymarleysis hans
Hinn 81 árs gamli Jens Peter
Kamp, hefur sett þorpið Skjern á
Vestur-Jótlandi á annan endann.
Þorpsbúar tala ekki um annað en
Jens Peter Kamp.
Hann hefur hlotið ölvunar-
akstursdóm, ekki fyrir að aka bifreið
ölvaður, heldur hestakerru. Áfengis-
magn í blóði gamla mannsins
mældist 1.37%. Sjálfur tekur hann
þessum tíðindum með stakri ró, en
hann losnaði lika við að greiða sekt
upp á 200 kr. fyrir að hafa ekki ljósin
ilagi.
Þegar dómarinn í Skjern ætlaði að
I
Hinn 81 árs Jens Peter Kamp tekur
hlutunum með stóiskri ró. Hann
hefur nú fengið nýjan hest.
yfirheyra Jens Peter um slysið, sem
kostaði líf hestsins, var vandamálið
það að gamli maðurinn heyrði sama
og ekkert. Heyrnartæki myndi hann
ekki fá fyrr en eftir átta mánuði.
Larsen dómari var ekki til
viðræðu um það að fresta yfir-
heyrslunni. Hjá lögreglunni fékk
hann lánaðan hátalara og með aðstoð
hans yfirheyrði hann gamla
manninn.
Gamli maðurinn hafði eftirfar-
andi að segja varðandi aðdraganda
slyssins: „Ég keyrði með hestvagn
minn til Egeris sem er 18 km héðan til
að láta járna hestinn minn. Enginn
smiður í Skjern fæst til þess lengur,”
sagði hann.
,,Á leiðinni heim, var Lydo, hinn
14 ára gamli hestur minn, eitthvað
pirraður út i nýju járnin og ég
stansaði því í Fastekjær og gaf
honum hálft rúgbrauð. Sjálfur fékk
ég mér nokkra bjóra, vegna blóðrás-
ar minnar, sem er léleg. Á leiðinni
heim skall á mikU úrhellisdemba svo
ég varð að leita mér skjóls. Lydo fékk
hálft rúgbrauð í viðbót og ég nokkra
bjóratilaðhressa okkurvið.
„Vegna þessara tafa náði ég ekki
heim til Skjer fyrr en skollið var á
myrkur og hafði ég enga ljósalukt og
enginn endurskinsmerki,” sagði
hann.
„Tveim km frá húsi mínu keyrði
bíll aftan á kerruna og gjöreyðilagði
hana. Við ákeyrsluna missti ég
meðvitund og var fluttur á sjúkrahús-
ið í Tarm, hvar ég lá svo í þrjá
mánuði. Lydo var svo illa farinn að
hann var skotinn á staðnum,” sagði
gamli maðurinn er hann rifjar upp at-
burði þessa.
„En fyrir hálfum mánuði fékk ég
nýjan hest, sem er blanda af
íslenzkum hesti og smáhesti,” sagði
gamli maðurinn kampakátur. Hann
segist frekar vilja fara leiðar sinnar á
hesti og kerru, en að notast við vél-
knúin ökutæki.