Dagblaðið - 30.06.1981, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 30.06.1981, Blaðsíða 24
Herra Sigurbjörn Einarsson, biskup íslands, sjötugur í dag: „Þakklæti fyrir að hafa notíð heilsu og krafta” „Efst f huga er mér þakklæti fyrir að hafa notið heilsu og krafta þetta lengi og fengið tækifæri til að vinna Guði mínum og kirkju hans. Þetta er þakkarefni mitt, fyrst og fremst. t öðru lagi, það er þvi nátengt, er ég þakklátur þeim ástvinum sem mér hafa verið gefnir. Konu á ég ágæta og börn. Samfylgd hennar og barn- anna er ómetanlegt þakkarefni.” Svo komst herra Sigurbjörn Einarsson, biskup íslands, að orði í morgun. Eins og væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum, er hann sjötugur í dag. Hann var spurður hvað sér væri eftirminnilegast á biskupsferli sínum. „Það er nú svo margt sem gæti komið í hugann en líklega ber vígslu Skálholtsdómkirkju einna hæst.” Herra Sigurbjörn hefur gegnt biskupsembættinu frá árinu 1959 en lætur, sem kunnugt er, af því 1. október næstkomandi. Þá tekur nýr biskup við og var herra Sigurbjöm spurður hvaða óskir hann ætti eftir- manni sínum tii handa: „Ég óska honum þess að hann fái að sjá kirkjuna styrkjast, skilning þjóðarinnar á gildi hennar fara vax- andi og hann njóti til þess Guðs handleiðslu, þvi allt er ónýtt án hennar, og skilnings og góðvildar Herra Sigurbjöm Elnarsson: „Hef fengifl tæklfæri til að vinna Guði mfnum og klrkju bans.” presta og annarra að gegna sinu for- ystuhlutverki á farsælan hátt.” -KMU Fjárlög í Luxemborg: EKKIGERT RAÐ FYRIR STYRK TIL FLUGLEIÐA —samgönguráðherra Luxemborgar væntanlegur hingað til viðræðna „Á fjárlögum Luxemborgar er ekki gert ráð fyrir styrk eða öðrum framlögum til Flugleiða hf. eins og þó hefði að margra mati mátt vænta. Af þessu tilefni hefur komið fram fyrirspum á Luxemborgarþingi um það, hvað stjórnin hyggist fyrir í málinu,” sagði Steingrímur Her- mannsson samgönguráðherra i viðtali við DB í morgun. „Það hefur í öllum viðræðum um þetta mál verið gert ráð fyrir sam- starfi ríkisstjórna íslands og Luxem- borgar i þessu máli. Við höfum fyrir okkar leyti athugað flestar hliðar málsins,” sagði Steingrímur,” en við bíðum eftir þvi að Luxemborgar- menn skoði þetta betur.” Steingrimur kvað samgöngu- ráðherra væntanlegan hingað til lands til viðræðna við (slenzk stjórn- völd. Hann kvaðst fyrir sitt leyti ekki tjá sig um málið, og þá ekki heldur skýrslu þá sem verið hefði til skoðun- ar frá hinu bandariska ráðgjafar- fyrirtæki, fyrr en ljósar lægi fyrir hver afstaða Luxemborgarmanna væri.Eftirhenniværinúbeðið. -BS. Dottaði við stýrið — bfllinn ónýtur Svona lauk æviskeiðifallegrar Volvo-bifreiðar í morgun. Ökumaður I vegarkantinn og öllu var lokið hvað bílinn snertir. Ökumaðurinn hennar var á leið upp Ártúnsbrekkuna þegar hann mun hafa dottað slapp furðulega vel miðað við aðstœður. Var ekki talin ástœða til að við stýrið með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á Ijósastaur við | fara með hann á slysadeild. Slysið varð um hálfáttaleytið. fijálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1981. Læknadeilan áAkureyri: SAM- KOMU- LAG í DAG „Ég tel mjög líklegt að samkomu- lagið sem gert var í Reykjavík á dögun- um, á milli lækna og stjómvalda, verði samþykkt hér á fundi í dag,” sagði Ólafur Hákansson, læknir á Akureyri, í samtali við DB í morgun. Stjórn sjúkrahússins á Akureyri og læknar hafa setið á samningafundum að undanförnu og sagði Ólafur að höfuðáherzla hefði verið lögð á ýmis atriði sem snertu Akureyri sérstaklega, en ekkert rætt um launaleg atriði. T.a.m. vildu læknar fá skýrari línur um aðgerðir til að auðvelda nýjum læknum að setjast að á Akureyri. Ólafur sagði að stjórn sjúkrahússins hefði sýnt þessu máli mikinn skilning og undirtektir hefðu verið jákvæðar. Gunnar Ragnars, formaður sjúkra- hússtjórnar á Akureyri, tók mjög í sama streng og Ólafur er DB ræddi við hann i morgun. „Þetta hafa verið mjög jákvæðar viðræður og reyndar er vart hægt að kalla þetta læknadeilu. Málið er að læknar á Akureyri hafa aldrei haft neinn samning heldur hefur alltaf verið miðað við Borgarspítalann i Reykjavík i þessum efnum,” sagði Gunnar Ragnars. -ESE IVIKU HVERRI Vinningur vikunnar: Crown-sett frá Radíó- búðinni Vinningur í þessari i iku er Crown-sett frá Raitíóbúðinni. Skipholti 19. Reykjavik. t vikunni verður birt, á þessum stað í hlað- inu, spurning tengd smáuuglýsing- um Daghlaðsins. Nafn heppins áskrifanda verður síðan birt daginn eftir í smáauglýsingum og gefst honum tœkifæri á að svara spurningunni. Fylgizt vel með, áskrifendur. Fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glœsilegu Crown-setti, ríkari. hressir betur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.