Dagblaðið - 13.07.1981, Side 18

Dagblaðið - 13.07.1981, Side 18
26 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ1981. og •kýjafl á norflan- vsrflu landimj. HNf vlflaat 8-11 stfg. | Kl. • í morgun voru auatan 3, rigning og 8 atlga hlti ( Raykjavlc.j Qufuakálar auatan 3, rlgning og 11! atig, Qaharviti haagvifld, rignlng og • stig, AkurayH haagvlflri, Hgnkig og 10 stig, Raufarhflfn vaatan 3, akýjafl; og 8 stig, Dalatangi haagvlflH, akýjafl | og 7 atlg, Hflfn í Homarfirfli austan 2, skýjafl og 8 stlg, Stórhflffll I Vast- mannasyjum auatan 8, skýjafl og 8 stlg. Þórshflfn í Fasrsyjum vantar, Kaup- mannahflfn skýjafl og 14 stlg, Osló vantar, Stokkhólmur skýjafl og 18 stlg, London skýjafl og 14 stlg, Ham- borg akýjafl og 15 stlg, Parls skýjaflj og 16 stíg, Madrid vantar, Ussabon léttskýjafl og 18 stlg, Nsw York skýjafl og 28 stíg, MaHorca hsiflsklrt og 16stlg. Andlát Egill Krístjánsson, sem lézt 5. júlf, var fæddur 26. april áriö 1909 að Kálfa- tjörn á Vatnsleysuströnd. Foreldrar hans voru Ástríður Eyjólfsdóttir og Kristján Jóhannsson sjómaður. Árið 1923 fluttist Egill til Reykjavikur og vann fyrst við ýmis verzlunarstörf. Árið 1930 réðst hann til starfa hjá Toll- stjóraskrifstofunni og vann þar til ársins 1943 að hann stofnaði eigið fyrirtæki á sviði umboðs- og heildverzl- unar. Við það vann hann til dauöa- dags. Egill kvæntist árið 1936 Margréti Briem og eignuðust þau tvo syni. Eufemía Ólafsdóttlr, sem lézt 5. júli, var fædd 1. október árið 1909 að Ballará í Dalasýslu. Foreldrar hennar voru Guðrún Lýðsdóttir og Ólafur Ind- riðason. Eufemína giftist árið 1935 eftirlifandi manni sínum, Magnúsi Jóns'syni, og eignuðust þau tvær dætur. Halldór Slgurþórsson, sem lézt 2. júli, var fæddur 14. april árið 1915 í Reykja- vík. Foreldrar hans voru Halldóra Ingi- björg Halldórsdóttir og Sigurþór Sigurösson matsveinn. Halldór fór snemma á sjóinn og tók árið 1941 far- mannapróf frá Stýrimannaskólanum. Árið 1961 hélt hann í land og vann eftir það hjá Kassagerð Reykjavikur sem starfsmannastjóri. Með vinnu gegndi Halldór ýmsum trúnaðarstörfum, sat meðal annars í stjórn Farmanna- og fiskimannasambandsins og Sjó- og verzlunardómi. Árið 1946 gekk Hall- dór að eiga Guðnýju Einarsdóttur og eignuðust þau tvö börn. Útför Halldórs verður gerð i dag klukkan 15 frá Foss- Áslaugur Inglbjöm Stefénsson, sem lézt 1. júli, var fæddur 22. júni árið 1899 i Hraungerði í Álftaveri. For- eldrar hans voru hjónin Guðlaug Einarsdóttir og Stefán Jónsson. Um tvítugt fluttist Áslaugur til Vestmanna- eyja og hóf þar sjósókn. Reri hann síðar frá Austfjörðum og Bakkafirði. Áslaugur kvæntist aldrei. Krístin Ólafsdóttir, sem lézt 4. júli, var fædd 6. maí árið 1903 í Reykjarfirði viö Djúp. Foreldrar hennar voru Ólafur Ólafsson og Jóhanna Þorleifsdóttir. Ung fór Kristin i fóstur til afa síns og ömmu. Síðar dvaldi hún eitt ár í Kaupmannahöfn og lærði fatasaum og aðrar hannyrðir. Kristín giftist árið 1935 Oddi Kristjáns- syni innkaupastjóra. Eignuðust þau 3 börn en Kristín átti einn son fyrir hjónaband. Útför Kristínar fer fram í dag kl. 13.30 frá Fossvogskirkjunni. Jón Auðuns fyrrverandi dómprófastur lézt 10. þ.m. Yngvi Guðmundsson, Sunnubraut 48 Keflavík, lézt 10. þ.m. Guðborg Þorsteinsdóttir talkennari lézt 30. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Haukur Vigfússon, fyrrverandi for- stöðumaður Veðdeildar Landsbank- ans, lézt 9. júlí. Ingibjörg Snorradóttlr, Heiðargerði 21, lézt 4. júlí. Jarðarförin hefur farið fram. Gunnþóra G. Magnúsdóttir frá Efra- Hrepp i Skorradal, Kleppsvegi 90 Reykjavik, lézt 10. júlí. Kristján Eyjólfsson, Miðengi Garða- hverfi, verður jarðsunginn frá Garða- kirkju í dag kl. 14.00. Guðmundur R. Benediktsson bifreiðar- stjóri, spítalastíg 5 Reykjavik, lézt 2. júli. Jarðarförin fer fram í dag kl. 10.30. Fanney Þorsteinsdóttir, Faxabraut 4 Keflavik, vistkona á Hrafnistu, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju á morgun kl. 14. Haukur Jónsson, Stangarholti 22, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju á morgun kl. 10.30. Minningarathöfn um Sigrúnu Magnús- dóttur leikkonu fer fram i Fossvogs- kirkju í dag kl. 16.30. Jarðsett verður frá ísafjarðarkirkju. UM HELGINA Höfum við ekki efni á að takast á við stærsta böl okkar þjóðf élags? „Það er ekki vafi á því, að áfjngis- vandamálið er stærsta bölið sem þjóðfélagiö á viö að etja i dag,” sagði Guðmundur J. Guömundsson, alþm., I umræðuþætti undir stjórn Sæmundar Guðvinssonar síðla sunnudags, en þann þátt vil ég velja sem „þátt helgarinnar” í útvarpinu. „Um 2000 manns leita nú með- ferðar hjá SÁÁ á ári hverju,” sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri SÁÁ, í sama þætti. „Flest af þessu fólki er fólk á vinnu- markaðinum, svo mikið er í húfi að lækning fáist og fólk sinni störfum af fullumkraftiáný.” Þessi hrikalega tala, sem Vilhjálm- ur nefndi, þýðir að rúmlega fimm íslendingar leita efdr lækningu á áfengisneyzlu sinni á hverjum degi ársins að meðaltali. Kannski þurfa enn fleiri hjálpar við. í Ijósi þeirrar staðreyndar má vel skilja orð Guðmundar jaka, að hér sé um stærsta böl þjóðfélagsins að ræða. í þessum sérstaklega vel upp byggða þætti Sæmundar Guðvins- sonar, þar sem hver maður er fram kom þekkti niður í kjölinn þau vandamál sem hann var að ræöa, kom m.a. fram Tómas Helgason læknir. Hann sagði frá könnun þriggja sérfróðra lækna á þróun vandamálsins. Kom fram að könnun- in er unnin sem aukastarf, því sér- stakar fjárveitingar fást ekki. íslend- ingar hafa sem sagt ekki efnl á að fást við stærsta böl þjóðfélagsins á sama tima sem rikissjóður hefur milljarða- ágóða af sölu áfengis! Þessi þáttur var frábær þó niður- staðan sé hrikaleg. Svona umræður, um einstaka þætti vandamálsins, eða umræður um það á svona víðum grundvelli, eru líklegar til að verða liður i þeirri þjóðarvakningu sem nauðsynleg er i þessum málum. Hafi allir er fram komu þakkir fyrir. Margt fleira gott má um útvarpið segja um þessi helgi, þó ég hafi engan veginn setið við það. Má til nefna mjög skemmtilegan þátt Jóns Arnar Marinóssonar á laugardaginn. Þar var fjallaö um sambýlisvanda blokkarbúa og frá upphafi baráttu eins sliks til aö eignast sumarbústað á eigin landi. Skemmtileg kimni Jóns Arnar vó vel upp á móti nokkuð löngum þætti, sem þó aðeins er fyrsti hluti frásagnarinnar, að því er tíl- kynnt var. Afþreyingarþættír síðdegis á helgardögum hafa verið góðir og sízt var undantekning nú. Stóð ég mig að því báða helgardagana aö hætta útí- föndri sem ég dundaði við og fara að hlustaaf athygli. Hvorugt kvöldið sat ég við útvarp og þykir leitt að hafa misst af þættin- um Þau stóðu í sviðsljósinu, þar sem kastljósinu var beint að Lárusi Páls- syni. En nú á tímum verður fólk að velja og hafna og getur ekki náð öllu — nema meö segulböndum og video- tækjum — eða að hlakka til þeirrar stundar að efnið sem fram hjá fór verði endurtekið. Þess óska ég hér með, hvað þennan þátt varðar. _Á.st Fundir j AA-samtökin í dag mánudag vcröa fundir á vegum AA-samtak- anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010) græna húsiö kl. 14, 21 og kvennadeild uppi kl. 21. Tjarnargata 3 (s. 91-16373) rauöa húsið kl. 18 og 21. Langholtskirkja (opinn) kl. 21. Akureyri, (96-22373) Geislagata 39..........21.00 Dalvik, Hafnarbraut4....................... 21.00 Hafnarfjörður, Austurgata 10............... 21.00 Hvammstangi, Bamaskóli..................... 21.00 Mosfellssveit, Brúarland................... 21.00 Raufarhöfn, Hótel Norðurljós............... 21.00 Selfoss, (99-1787) Selfossvegi 9.......... 21.00 Suðureyri Súgandafirði, Aðalgata........... 21.00 Vestm.eyja-', (98-1140) Heimagata 24 ...... 20.30 í hádeginu á morgun, þriöjudag, verða fundir sem hér segir: Tjarnargata S, græna húsiö kl. 14, Tjamargata 3, rauða húsið, samlokudcild kl. 12, Keflavikurflugvöllur kl. 11.30. Söfníii STOFNU.N ARNA MAGNÚSSONAR ÁrmgirOi við Suðurgötu: Handritasýning opin þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga frá kl. 14—16 fram til 15. september. teljast bágbomar. Verður í þvi Ijósi áhugavert að fylgjast vel með afdrifum seiða frá klakinu í vor. Leiöangursmenn voru m.a. Svend Aage Malm- berg leiöangursstjóri, Ingvar Hallgrimsson, Jón ólafsson og ólafur S. Ástþórsson. Skipstjóri var Siguröur Árnason.» Veitinga- og gistihús vilja aukna norræna samvinnu ( ferðamálum Ársþing samtaka veitinga- og gistihúsa á Norður- löndunum (Nordisk Hotel- og Restaurantforbund) var haldið i Finnlandi 13.—16. júni síöastliðinn. Fulltrúar vom mættir frá öllum Noröurlöndunum, fyrir íslands hönd frá Sambandi veitinga- og gisti- húsa. Áslaug S. Alfreðsdóttir formaður Sambands veit- inga- og gistihúsa var kjörin forseti NHR fyrir næsta starfsár. Verður næsta þing haldiö hér á landi 1982. Af skýrslum landanna mátti ráða nokkra bjart- sýni um framtíðina, þó blandna vegna áhrifa þess óstöðugleika sem efnahagslíf almennt er í. Hæst ber á þinginu umræður um norræna sam- vinnu á ferðamörkuðum utan Norðurlandanna. Þótti allmikiö skorta á að hún væri næg. Minningarspjöld Minningarspjöld Kvenfélags Háteigssóknar ( eru afgreidd i Bókabúð Hliðar. Miklubraut 68. sírni 22700. Hjú Guðrúnu Stangarholti 32. 'ími 22501. lngibjörgu, Drápuhlið 38. simi 17883. Gróu. Háaleit^ isbraut 47, sími 31339 og Úra- og skartgripaverzl. Magnúsar Ásmundssonar, Ingólfsstræti 3,simi 17884. Minningarkort Styrktarfóiags vangefinna fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu félagsins, Háteigsvegi 6. Bókabúð Ðraga Brynjólfssonar, Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnar- stræti 4 og 9, Ðókaveizlun Olivers Steins, Strand- götu 31 Hafnarfirði. Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið er á móti minningargjöfum í sima skrifstof- unnar, 15941, og minningarkortin síðan innheimt hjá sendanda með gíróseðli. Þá eru einnig til sölu á skrifstofu félagsins minn- ingarkort Barnaheimilissjóðs Skálatúnsheimilisins. Mánuðina apríl—ágúst verður skrifstofan opin kl. 9—16, opið í hádeginu. Minningarkort Styrktar- félags vangefinna á Austur- landi fást i Reykjavik í verzluninni Bókin. Skólavörðustig 6 og hjá Guðrúnu Jónsdóttur\Snekkjuvogi 5. Simi ,34077. Minningarkort kvenfélagsins Seltjarnar vegna kirkjubyggingarsjóðs eru seld á bæjarskrifstof- unum á Seltjarnarnesi og hjá Láru i sima 20423. Minningarkort Styrktar- \ félags lamaðra og fatlaðra eru til á eftirtöldum stöðum. ! Rcykjavik á skrifstofu félagsins að Háaleitisbraut 13. sími 84560 og 85560, Bókabúð Braga. Lækjargötu 2. simi 15597. og Skó verzlun Steinars Waage, Domus Medica, simi 18519.1 Hafnarfirði Bókabúð Olivers Stdíns, Strandgötu 31 sími 50045. • Niðurstöður úr vorleiðangri Bjarna Sæmundssonar Rannsóknaskipið Bjami Sæmundsson var í árlegum vorleiðangri 20. mai—10. júni. I leiðangrinum var safnað sýnum á 130 stöðum allt í kringum landið, bæöi á landgrunninu sjálfu og utan þess. Helztu niðurstöður, sem nú liggja fyrir, eru þessar: í hlýja sjónum fyrir Suöurlandi og i Faxaflóa var hiti vcl í meðallagi (6—8°) og vorhámark þörungagróðurs var liðiö hjá. Áta var mikil á þessu svæði og langt yfir meöallagi síðustu ára. Út af Vestfjöröum fóru áhrif hlýsjávar dvínandi og var sjávarhiti um 4—5°. Þörungagróður var tölu- verður og átumagn á svæöinu var nálægt meðallagi. Á rækjumiöunum norðan Dohrnbanka var hafis og botnhiti á þeim miðum rétt yfir 0° en á Vest- fjaröamiðum var botnhiti um 3—5°. Fyrir Noröurlandi og Austurlandi var sjór óvenju- kaldur (2—3° fyrir norðan land og 0—2° fyrir austan land) og seltulítill, og var þar nánast um vetrarástand að ræða. Út af vestanverðu Noröur- landi var sums staðar seltulltill pólsjór 1 yfirborði en þó lágu meginmörk pólsjávar djúpt norður af landinu, sem og hafisinn, og engan pólsjó var aö finna í Austur-lslandsstraumnum djúpt út af Langa- nesi eins og á hafisárum. Frá Homi að Eyjafirði var botnhiti á landgrunninum 2—3°, en þar fyrir austan var botnhitialltaðO0. Á Norðurlandsmiðum voru viðast kaldsjávarþör- ungar og áta var talsvert undir meðallagi. Djúpt undan Austfjörðum gætti hins vegar hlý- sjávar að sunnan meira i vor en á undanförnum ár- um og var hitastig þar allt að 5°. í þessum sjó var vorhámarki þörunga lokið og áta var þar mikil. Suö- urmörk landsjávar við Suðausturland voru á móts viö Eystra-Hom og var sjávarhiti sunnan markanna, ,t.d. á humarmiöum, 6—7°. 1 heild sýna niðurstöður vorleiðangurs 1981 tiltölulega gott ástand í hlýja sjónum út af Suður- og Vesturlandi en litið hefur hins vegar borizt af þessum hlýsjó fyrir Horn inn á norðurmið og ríkir þar enn nánast vetrarástand sem er nær einsdæmi fyrir þennan árstima. Niðurstööur vorleiðangurs 1981 minna vel á legu landsins við mót heitra og kaldra loft- og haf- strauma eins og landsmenn hafa fundið fyrir undan-; farið. Verður ekki annað sagt að sinni en aö horfur á bættu ástandi á norðurmiöum i sumar veröi að JVIinningarkort Sambands dýraverndunarfélaga íslands fást á eftirtöldum stöðum: REYKJAVlK: Loftið Skólavörðustig 4, Verzlunin Bella Laugavegi 99, Bókaverzlun lngibjargar Einars dóttur Kleppsvegi 150, Flóamarkaður SDl, Laufás vegi 1, kjallara, Dýraspitalinn Víðidal. KÓPAVCXiUR: Bókabúðin Veda Hamraborg. HAFNARFJÖRÐUR: Bókabúð Olivers Steins ^trandgötu 31. AKUREYRI: Bókabúð Jónasar Jóhannssonar Hafn arstræti 107. VESTMANNAEYJAR: Bókabúðin Heiðarvegi 9. SELFOSS: Engjavegur 79. Minningarkort Styrktar- og minningarsjóðs Samtaka gegn astma og ofnæmi fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu samtakynna að Suðurgötu 10. simi 22153, á skrifstofu SÍBS, siini 22150, hjá Magnúsi. simi 75606. hjá Mariasi, sim 32354, hjá Páli, simi 18537 og i sölubúðinni á Vifils stöðum.simi 42800. Haukafólagarl Munið minningarkort Minningarsjóðs Garðars Gíslasonar. Kortin fást i Bókabúö Böðvars, Spari- sjóði Hafnarfjarðar Norðurbæ, Haukahúsinu og hjá Jóni Egilssyni og Guðsveini Þorbjörnssyni. GENGIÐ GENGISSKRÁNING Ferflamanna- NR. 127 — 9. JÚLÍ1981 gjaldoyrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandaríkjadollar 7/448 7,469 8,216 1 Sterlingspund 14,034 14,072 16,479 1 Kanadadollar 6,184 6,200 8,820 1 Dönsk króna 0,9664 0,9690 1,0659 1 Norsk króna U186 1,2229 1,3452 1 Sænsk króna 1,4339 1,4377 1,5815 1 Finnskt mark 1,6386 1,6430 1,8073 1 Franskur franki 1,2701 1,2735 1,4009 1 Belg. franki 0,1849 0,1854 0,2039 1 Svissn. franki 3,5400 3,5495 3,9045 1 Hollenzk florina 2,7186 2,7259 2,9986 1 V.-þýzkt mark 3,0253 3,0336 3,3389 1 itölsk líra 0,00608 0,00610 0,00671 1 Austurr. Sch. 0,4293 0,4305 0,4736 1 Portug. Escudo 0,1153 0,1156 0,1272 1 Spánskurpeseti 0,0769 0,0761 0,0837 1 Japansktyen 0,03261 0,03270 0,03597 1 (rsktound 11,062 11,091 12,200 SDR (sérstök dráttarréttindi) 8/1 8,4624 8,4852 Simsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.