Dagblaðið - 18.08.1981, Side 12

Dagblaðið - 18.08.1981, Side 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981. Iþróttir gþróttir Iþróttir Iþrótti Sterkt Evrópulið í álfukeppni ífrjálsum Evrópuliðið f frjálsum iþróttum, sem keppir i Róm i september i álfukeppninni, var vaiið i gær. það er skipað mörgum frábærum afreksmönnum eins og Englendingunum Sebastian Coe og Steve Ovett. Þeir eru báðir heimsmethafar. Þá verður skozki ólympiumeistarinn Allan Wells i liðinu og grindahlauparinn Mark Holton, sem sigraði svo óvænt i 110 m grindahlaupi i Evrópubikarkeppninni í Zagreb á sunnudag. Hins vegar var David Moor- croft, Bretlandi, ekki valinn i 5000 metra hlaupið i Róm, þrátt fyrir sigur í Zagreb á vegalengdinni, heidur írinn Eamon Coughlan. Vestur-Þjóðverjar eiga fimm menn í Evrópu- liðinu. Harald Schmidt var valinn i 400 m grinda- hlaupið, Ralf Reichenbach i kúluvarp, Hartmurt Weber i 400 m hlaupið, Karl-Heinz Riehm i sleggju- kast og Gerd Nagel i hástökk. Það gæti þó breytzt hvað þeim siðastnefnda viðkemur. DB hefur ekki fengið fregnir af öðrum keppendum Evrópu en þess má geta að Allan Wells var valinn i 4x100 metra boðhlaupið þannig að pólska sigursveitin frá Zagreb (38,66 sek.), hefur ekki verið valin í heild. - hsim. Mark Lawrenson tilLiverpool írski landsliðsmaðurinn hjá Brighton, Mark Lawrenson, var f gær seldur til Liverpool og er hér um „milljón-punda” söiu að ræða. Brighton, sem rétt slapp við fall niður f 2. delld i vor, fékk meðal annars Jimmy Case, framvörðinn snjalla, upp i kaupverðið, auk þess sem Liverpool þurfti að greiða Brighton mikla fjárhæð. Mark Lawrenson hefur verið orðaður við mörg félög siðustu vikurnar. Fyrst Man. Utd. en það mál féll niður þegar United sneri athygli sinni að enska landsliðsmanninum, Brian Robson hjá WBA. Þá kom Arsenal inn i myndina og fleiri félög en írinn hafði mestan áhuga á að fara til Llverpool — skiljanlega. Mark Lawrenson er framvörður og var keyptur til Brighton frá Preston fyrir um fjórum árum. Siðan hefur hann verið einn af máttarstólpum Brighton- liðsins og fastamaður i frska landsliðinu, fririkinu. Jimmy Case hefur verið einn af þekktustu leikmönn- um Liverpool um langt árabil, framvörður, sem þekktur er fyrir sin þrumuskot. Hefur skorað mörg gullfalleg mörk af löngu færi. Var talinn skotharð- asti leikmaður Englands eftir að Bobby Charlton og Peter Lorimer lögðu skóna á hilluna. Jimmy Case hefur leikið 245 leiki með Liverpool — fæddur i Liverpool — en á sfðasta leiktfmabili missti hann stöðu sina i liðinu tll Sammy Lee. - hsim. Jimmy Case, frá Liverpool til Brighton. Bikarkeppni FRÍ Bikarkeppni FRÍ i I. og II. deild verður háð dag- ana 29. og 30. ágúst nk. Þeim sem eiga lið i þessum deildum er bent á að hafa samband vlð rétta aðila. Það er HSÞ, sem sér um framkvæmd II. deildar á Húsavfk en FRÍ sér um framkvæmd I. deildar. Bikarkeppni FRÍII. deild verður haldin á Blöndu- ósi laugardaginn 29. ágúst og hefst kl. 14. Þeim féiögum og héraðssamböndum sem hyggja á þátttöku ber að snúa sér til Inglbergs Guðmunds- sonar, simi 95-4625 eða 95-4642, i sfðasta lagi þriðjudaginn 25. ágúst. Stefán Jóhannsson ver vel frá Guðmundi Steinssyni, sem liggur á jörðinni. Guðmundi tókst ekki að skora frekar en öðrum Frömurum og KR-ingar nældu i dýrmætt stig. DB-mynd Einar Óiason. KR þokar sér af mesta hættusvæðinu f 1. deild — Gerði jafntef li við Fram á Laugardalsvelli í gærkvöld, 0-0, i slökum leik KR-ingar kræktu i dýrmætt stig i fallbaráttuslagnum er þeir gerðu markalaust jafntefli við bikarmeistara Fram á Laugardaisvelli i gærkvöldi. Hafa nú 10 stig en Þór 8 og FH 7. Sanngjörn úrslit i siökum leik. Úrslitin settu heldur betur strik i meistaravonir Fram, sem nú er þremur stigum á eftir Viking, þegar einungis þrjár umferðir eru eftir. Fyrri hálfleikur var einhver sá tíð- indasnauðasti er sögur fara af. Lang- tímu saman barst knötturinn mótherja á milli á vallarmiðjunni, lítil hugsun var í leik liðanna og vel uppbyggðar sóknarlotur voru álíka sjaldséðar og sólskinsdagar í Reykjavík. Framarar voru þó öllu sterkari aðilinn og Halldór Arason fékk tvívegis góð marktæki- færi. Hið fyrra kom á 32. mínútu eftir aukaspyrnu. Viðar skallaði knöttinn niður til Halldórs, sem skaut yfir á markteig. Á síðustu sekúndum hálf- leiksins komst Halldór síðan í gegnum vörn KR en laust skot hans fór beint i Stefán markvörð. Helzt að hálfleikur- inn verði minnisstæður fyrir slælega dómgæzlu Óla Olsen. Viðari og Atla Þór lenti saman eftir að Atli hafði tæklað Framarann. Viðar sló til Atla og hefðu sumir dómarar rekiö hann út af fyrir það, en Óli gaf hins vegar báðum gultspjald. í síðari hálfleik hríðbatnaði leikur- inn. Sem fyrr var Halldór Arason skæður við mark KR og Stefán mátti taka á honum stóra sínum er hann varði vel skot Halldórs á 55. minútu með góðu úthlaupi. Rétt á eftir fékk Sigurður Indriðason gult spjald fyrir að rífa í Framara og halda honum. Framarar tóku auka- spyrnuna en KR-ingar sneru vörn í sókn og skyndilega var Atli Þór Héðinsson kominn einn inn fyrir vörn Fram. Trausti reif í hann og hélt honum, en engu var líkara en Trausti væri heilög kýr í augum Óla Olsen því hann fékk ekki gult spjald fyrir vikið. Var brotið þó engu léttvægara en brot Sigurðar Indriðasonar mínútu áður. Rétt á eftir fékk Sigurður Pétursson í KR einnig gult spjald. KR átti einnig sín færi, Helgi Þor- bjðrnsson var frir inni í teignum en Guðmundur Baldursson varði laust skot hans. Hinum megin skallaði Pétur Ormslev í stöngina á 80. mínútu og á síðustu mínútunum brenndi Óskar Ingimundarson af í sannkölluðu dauðafæri. Þar hefði Óskar getað krækt í bæði stigin fyrir KR. Leikmenn beggja liðanna geta mun meira en þeir sýndu í þessum leik, og því er erfitt að hrósa einum umfram aðra. Stefán var góður í marki KR og vörnin var einnig nokkuð traust. Atli Þór var líflegur frammi og Helgi Þor- björnsson átti góða spretti. Marteinn var aligóður í liði Fram og Hafþór Sveinjónsson, Viðar Þorkels- son og Halldór Arason voru einnig þokkalegir. Óli Olsen átti einn af sínum verstu dögum í hiutverki dómara. - SA EM unglinga í f rjálsum íþróttum hefst á f immtudag: Ragnheiður gæti komizt í úrslit í 1500 metrum íslenzku keppendurnir héldu til Hollands í morgun „Þetta er bezti hópur, sem ísland hefur sent á Evrópumeistaramót ungl- inga i frjálsum iþróttum. Ég er hæfi- lega bjartsýnn á árangur þeirra, nokkrir hafa möguleika á að komast i milliriflla, Ragnhelður Ólafsdóttir, FH, jafnvel i úrslit i 1500 metra hlaupinu. Hún hefur lengi æft i Köln i Vestur- Þýzkalandi og setti þar ágæt íslandsmet ekki alls fyrir löngu,” sagfli Ólafur Unnsteinsson, annar af farar- stjórum fslenzka hópsins og þjálfari, þegar Dagblaðið ræddi við hann i gær. Evrópumótið verður f Utrecht i Hol- landi og hefst á fimmtudag. íslenzki hópurinn hélt utan snemma f morgun. í honum eru Helga Haildórsdóttir, KR, sem keppir i 100 m grindahlaupi og 200 metra hlaupi Ragnheiður Ólafs- dóttir, sem keppir í 1500 m og 3000 m hlaupum, fris Grönfeldt, UMSB, sem keppir i spjótkasti, Egill Eiðsson, UÍ A, íþróttir HALLUR RÍMDMA sem keppir í 400 m hiaupi og Kristján Harðarson, UBK, sem keppir i lang- stökki. Sigurður Einarsson spjótkastari úr Ármanni, átti einnig að vera meðal keppenda. Hins vegar tóku mciðsli, sem þjáðhafahann í allt sumar.sig upp, þegar hann var að undirbúa sig fyrir Reykjavíkurleikana. Sigurður getur því ekki keppt í Utrecht. Vegleg setning Á Evrópumótinu verða þátttakendur frá 28 iöndum og mótið stendur yflr i fjóra daga, frá fimmtudeginum 20. ágúst til sunnudags 23. ágúst, en þá lýkur mótinu. Mótiö verður sett með mikilli viðhöfn á nýjum leikvangi i Utrecht og verður það jafnframt vígslumót ieikvangsins. Claus prins verður verndari leikanna og greinilegt að Hollendingar leggja mikinn metnað í, að mótið heppnist sem bezt. Fyrsti íslendingurinn, sem hefur keppni á mótinu, er Egill Eiðsson, Austfirðingurinn sprettharði. Hann keppir í undanrásum 400 metra hlaupsins á fimmtudagsmorgni. Ragn- heiður keppir svo í undanrás 1500 m hlaupsins eftir hádegi á fimmtudag. Þetta eru þeir keppendur isiands, sem hvað mestar vonir eru bundnar við. Egill ætti að komast í milliriðil þó margir góðir keppendur á þessari vega- lengd séu i hópi ungra manna 1 Evrópu. Helga keppir á föstudag i grinda- hlaupinu og ef að líkum lætur ætti hún að komast í milliriðil. Hún var með sjöunda bezta árangur stúlkna í Evrópu DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981. Iþróttir Iþróttir Sþróttir Iþróttir Atvinnumenn Dana gegn íslendingum íKaupmannahöfn! — Allan Simonsen hefur ákveðið að leika gegn íslandi 26. ágúst í Idretsparken og svo er um fleiri atvinnumenn „Ég verfl að fá alla mfna beztu leik- menn f leikinn við ísland. Þafl verður hlegið afl okkur um alian heim ef vifl töpum fyrir íslendlngum,” var haft éftir danska landsliðsþjálfaranum, Sepp Piontek, hér i Dagblafllnu i gær. Svo virflist sem iandsliðsþjálfaranum ætli að verða afl ósk sinni — nokkrir af frægustu atvinnumönnum Dana i knattspyrnunni munu taka þátt i lands- leiknum við ísland, sem háflur verflur á Idretsparken i Kaupmannahöfn mið- vikudaginn 26. ágúst. „Sepp Piontek getur reiknað með mér í landsleikinn gegn Islandi — það er að segja ef hann hefur stöðu fyrir mig í liðinu,” voru skilaboð, sem Allan Simonsen sendi landsliðsþjálfaranum frá Spáni. Þar leikur þessi frægasti knattspymumaður Dana í dag með stórliðinu Barcelona. Frábær Ieik- maður þó lítill sé, eldsnöggur og verður áreiðanlega erfiður íslenzku varnar- mönnunum á Idretsparken. Simonsen ALLAN HJEM TIL KAMPEN MODISLAND klub var fyrir nokkrum árum valinn „knatt- spyrnumaður Evrópu”. Sepp Piontek hefur leitað til margra atvinnumanna Dana i sambandi við landsleikinn við fsland. Yfirleitt fengið jákvæð svör. Þó eru litlir möguleikar á að Frank Amesen, sem nú leikur með Valencia á Spáni, leiki gegn íslandi. Allan Simonsen, til vinstri, ásamt Udo Lattek, þjálfara Barcelona, sem var þjálfari hjá Borussia Dortmund á sfðasta leiktfmabili, þegar þeir Atli Eðvaldsson og Magnús Bergs gengu til liðs við þýzka liðið. „Ég vildi mjög gjarnan leika landsleik- inn við ísland. En ég get varla verið þekktur fyrir að fara heim og leika við íslendinga, þegar lið mitt, Valencia, leikur sama kvöld æfingaleik á velli sínum, æfingaleik til að fá peninga í sjóð gjaldkera félagsins,” sagði Frank Amesen. Danska knattspyrnusam- bandið er þó mjög stíft á að leikmenn komi i landsleiki og er nú í hörkumáli við Hamburger SV vegna framherjans snjaiia, Lars Bastrup, sem er einn bezti leikmaður danska landsliðsins i HM- leiknum við ítalfu á Idretsparken. Þar unnu Danir frægan sigur. Danir sigruðu Finna nýlega í lands- leik, sem háður var í Finnlandi. Naumur sigur 2—1 og danski landsliðs- þjálfarinn var allt annað en ánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum, þrátt fyrir sigurinn. í danska liðinu léku þá þessir leikmenn: Jens Jörgen Berthelsen, John Lauridsen, Frank Olsen, Per Röntved, Henning Eigenbröd, Ole Kjær, Ole Madsen, Ole Rasmussen, Allan Hansen, Lars Lund- quist og Wilhelm M. Nielsen. -hsím. Ragnar Margeirsson var heldur betur á skotskónum gegn Þrótti. Hann gerði öll mörk Uðs sfns f leiknum, þrjú að tölu. Ragnheiflur Ólafsdóttir. i grindahlaupinu í fyrra. Róðurinn verður sennilega erfiðari fyrir íris og Kristján. Bæði verða þau að bæta sinn bezta árangur verulega til að hafa möguleika á að komast i úrslit. Lá- marksafrek fyrir úrslitin i langstökkinu eru til dæmis 7,25 m. Kristján á þar Egill Eiflsson. bezt 7,12 m, sem er islenzkt unglinga- met. Eins og áður segir verður Ólafur þjálfari og fararstjóri og þá er Sveinn Sigmundsson, gjaldkeri frjálsiþrótta- sambandsins, fararstjóri. - hsim. Þrenna Ragnars fleytti Keflvík- ingum á toppinn ÍBK sigraði Þrótt 3-0 í 2. deild í gærkvöld og von Þróttar, Reykjavík um sæti í 1. deild nær brostin Afl öflrum ólöstuflum var þafl Ragnar Margeirsson sem lyfti ÍBK að nýju i efsta sæti 2. deildar. Hann skoraði öil mörldn i leiknum gegn Þrótti, R. suður i Keflavfk i gærkvöldi, efla samtals þrjú. Eitt i fyrri hálfleik en tvö í hinum seinni, þar af þriflja markið úr vitaspyrnu eftir afl Guðmundur Er- lingsson markvörflur Þróttar haffli gripið i fót hans og fellt hann i vita- teignum. Annars átti Óli Þór Magnússon drjúgan þátt í mörkunum, sendi knött- inn til Ragnars í öll skiptin og var sam- vinna þeirra til mikillar fyrirmyndar. Þróttarvörninni stóð ávallt mikill stuggur af þeim tvímenningunum og áttu kempur eins og Jón Pétursson og Jóhann Hreiðarsson í miklum erfið- leikum með að hefta för þeirra. Framan af fyrri hálfleik var leikurinn fremur jafn. Þróttarar lögðu þó sýni- lega mesta áherzlu á varnarleikinn en smám saman tóku þeir að sækja meira en á þessum tima áttu Keflvíkingar tvö tækifæri, þeir Óli og Ragnar. Á 40. minútu, eftir að Kristján Jóns- son bakvörður Þróttar hafði bjargað á marklinu, tókst Ragnari að skora fyrsta mark sitt. Það sem eftir var til hlés máttu Þróttarar þakka sinum sæla fyrir að fá ekki á sig eitt mark eða tvö tU viðbótar. Undan suðvestankaidanum hefði mátt ætla að Þrótturum gengi betur en 1 fyrri hálfleik, en sú varð ekki raunin á. Keflvikingar höfðu leikinn i hendi sér ef svo má að orði komast. Nokkur bið var þó á mörkunum sem komu ekki fyrr en langt var liðið á ieikinn. Vöm Keflvíkinga var mjög traust með Gisla Eyjólfsson og Kára Gunn- laugsson sem beztu menn. Einar Ás- bjömsson og Sigurður Björgvinsson voru drjúgir á miðjunni og félagarnir Ragnar og Óli Þór vom menn kvðldins. Fljótir og sterkir, sérstaklega Ragnar. Hjá Þróttar-liðinu bar Ásgeir Elias- son nokkuð af hinum með leikni sinni og útsjónarsemi. Valur Helgason átti einnig mjög góðan leik í stöðu bak- varðar. Einnig má minnast á Baldur Hannesson, hinn knáa framherja, sem átti ágætan leik. Páll Ólafsson var í leikbanni og munar þar um minna hjá Þrótti. Dómari var Kjartan Tómasson og dæmdi af öryggi og festu. Áhorfendur voru 650 og hefur farið fjölgandi eftir því sem liðið hefur á sumarið. Vorum að fá nýja sendingu af orginal myndefni fyrir Leigjum vídeótæki með VHS kerfi Ath. opið frá kl. 18.00-22.00 alla virka daga nema laugardaga frá kl. 14.00-20.00 og sunnudaga kl.14.00-16.00 VÍDEÓ MARKAÐURINN Digranesvegur 72 Kóoavoqi Sími40161

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.