Dagblaðið - 09.09.1981, Síða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1981.
Silfurverðlaun
Lindu
ílangstökki
— á Andrésar Andar
leikunum íNoregi
Andrésar-Andar-leikarnir fyrir 13—
14 ára i frjálsum iþróttum voru háðir i
Kóngsbergi í Noregi um siðustu helgi.
Þrír þátttakendur voru frá íslandi.
Linda Loftsdóttir, FH, varð önnur í
langstökki í 13 ára flokki, stökk 5,21
m. Hún átti einnig að keppa i 800 m
hlaupi en hætti við þátttöku þar.
Hlaupið var á sama tima og úrslitin í
langstökkinu. Sigurvegari í lang-
stökkinu varð Karcn Skagseth, Noregi,
stökk 5,30 m.
Svanhildur Kristjónsdóttir, UBK,
varð fimmta I langstökki i flokki 14
ára. Stökk 5,02 m. Þá varð hún fjórða í
úrslitum í 60 m hlaupi á 8,1 sek. í und-
anrás hljóp hún á 7,9 sek., og það var
sami timi og úrslitahlaupið vannst á.
Viggó Þórisson, FH, varð sjötti í
800 m hlaupi f flokki 14 ára. Hljóp á
2:07,5 min. Hlaupið var í þremur
riðlum og réðu tímar röð keppenda.
Viggó sigraði í sínum riðli en f öðrum
riðli fengu fimm keppendur betri tíma.
Jacobsen
fer hvergi
Eins og fram kom hér á síðunni i gær
bauð v-þýzka liðið Niirnberg stórfé í
norska landsliðsmanninn Pal Jacobsen
sem leikur með Valerengen frá Osló.
Nurnberg, sem er neðst í v-þýzku
Bundesligunni, gaf Jacobsen 48 stunda
frest til að skrifa undir samning. Jacob-
sen neitaði, fresturinn var of stuttur.
Tilboð Ntlmberg er það langbezta
sem Jacobsen hefur fengið og eru þau
þó allmörg. í samtali við norska Dag-
blaðið sagði Jacobsen að frestur Þjóð-
verjanna hefði verið alltof stuttur.
,,Hér heima hef ég vinnu og íbúð að
hugsa um og svo skil ég ekki þýzku. Ég
fer ekki að undirrita samning sem ég
skil ekki.” Forráðamenn Valerengen
eru mjög ánægðir með svar Jacobsen
en félagið kom hvergi nærri samninga-
umleitununum. Allt bendir þvi til að
Jacobsen leiki með Valerengen í fimm
síðustu umferðunum í 1. deildinni
norsku en Valerengen er í öðru sæti,
þremur stigum á eftir Rosenborg.
-VS.
Borg sigraði
Björn Borg, Svíþjóð, sigraði
Frakkann Yannick Noah í fjórðu
umferð opna, bandariska meistara-
mótsins í tennis í New York i gærkvöld.
Fjórar lotur, 6-7, 6-4, 6-3, og 6-3.
Meistarinn tvö sfðustu árin á mótinu,
John McEnroe, USA, hefur sigrað létl
f leikjum sinum á mótinu eins og Borg.
Allir nálægt
sínu bezta
í gærkvöldi fór fram ínnanfélags-
mót IR f kringlukasti á Fögruvöllum.
Náðist þar mjög góður áangur og allir
nálægt sfnu bezta. í efstu sætum urðu
þessir:
Karlar:
Helgi Helgason, USAH 50,17 m
Elias Sveinsson, Ármanni 45,53 m
Óskar Thorarensen, KR 40,59 m
Ólafur Unnsteinsson, HSK 39,70 m
Gísli Sigurðsson, UMSS 39,55 m
Stefán Hallgrímsson, KR 37,55 m
Konur:
Guðrún Ingólfsdóttir, KR 51,16 m
Margrét Óskarsdóttir, ÍR 36,88 m
-VS.
VÍKINGUR -
B0RDEAUX
EFTIR8DAGA
ris Grönfeldt, unga stúlkan úr Borgarfirði, hefur stöðugt veríð að bæta Islandsmetið f spjótkasti.
Um helgina kastaöi hún 47,24 metra og bætti eldra met sitt um 24 sm. Á Evrópumeistaramóti
unglinga i Utrecht i Hollandi siðast i ágúst varð tris í 11. sæti f úrslitakeppninni. Myndin að ofan
var tekin á þvi móti. írís er aðeins 17 ára.
Mótherjar Fram íEvrópukeppninni 16. september: r
Dundalk — bikarmeistarar Irlands
Á miðvikudaginn kemur leikur Fram við
írska liðið Dundalk i Evrópukeppni bikar-
hafa á Laugardalsvellinum. Er þetta i
fyrsta sinn sem islenzkt félag mætir liði frá
irska lýðveldinu i Evrþumótunum í knatt-
spyrnu.
írsk lið hafa aldrei verið hátt skrifuð á
evrópskum mælikvarða. Þau þykja áþekk
að styrkleika og norður-írsk félög en af
þeim höfum við öllu meiri reynslu. Má þar
benda á að árið 1978 sló ÍBV n-írska liðið
Glentoran úr UEFA-keppninni.
írsku félögin eiga yfirleitt erfitt upp-
dráttar. Þau sterkari eru á mörkum hálf-at-
vinnumennsku og áhugamennsku en hebta
vandamál íra er að stóru félögin á Bret-
landseyjum laða að sér flesta efnilegustu
knattspyrnumennina. Nægir þar að nefna
leikmenn eins og Liam Brady, David
O’Leary og Frank Stapleton sem eru með
þekktustu knattspyrnumönnum í Evrópu.
Síðustu ár hefur Dundalk verið í fremstu
röð irskra knattspyrnuliða. Árið 1976 varð
liðið írskur meistari og gerði þá jafntefli
við hollenzka stórliðið PSV Eindhoven í
Evrópukeppni meistaraliða. Bikarmeistar-
ar 1977, og í kjölfar þess vann Dundalk
góðan sigur yFir júgóslavneska liðinu
Hadjuk Split á heimavelli, 1—0, en tapaði
síða'n útileiknum 0—4. Árið 1979 gerði
Dundalk sér lítið fyrir og vann bæði deild-
ina og bikarinn írska. Veturinn eftir komst
liðið í átta liða úrslit í Evrópukeppni meist-
araliða og veitti skozka liðinu Celtic þar
harða keppni. Celtic vann 3—2 í Skotlandi
en leiknum í Dundalk lauk 0—0. Tvö
síðustu ár hefur liðið hafnað í 2. sæti deild-
arinnar, auk þess að vinna bikarinn s.l. vor
og tryggja sér þar með sæti í Evrópukeppni
bikarhafa þar sem mótherjarnir nú eru
Fram.
Eins og sjá má af ofangreindu er lið
Dundalk mjög erfitt heim að sækja.
Nokkur af þekktustu liðum Evrópu hafa
snúið þaðan án sigurs. Róðurinn verður
því eflaust þungur fyrir Fram, sérstaklega í
leiknum ytra. Fram er eina íslenzka liðið
sem á raunhæfa möguleika á að komast í 2.
umferð Evrópumótanna í ár. Miðvikudag-
inn 16. september nk. verða Framarar að
ná hagstæðum úrslitum, helzt að sigra, til
að möguleikarnir haldist raunhæftr.
-VS.
Deilur í knattspyrnunni á Spáni:
Ollum leikjunum aflýst
— Dönum til mikillar ánægju, vegna HM-leiksins við Júgóslavíu
Fyrstu umferð i 1. deild spænsku knatt-
spyrnunnar, sem vera átti um helgina, var af-
. lýst. Mörg félaganna skulduðu leikmönnum
laun og þegar samtök atvinnuknattspyrnu-
manna á Spáni settu fram kröfu um að félög-
in greiddu leikmönnum áður en keppnistíma-
bilið hæfist greip spænska knattspyrnusam-
FIMM LEIKMENN KA
FARNIR í SUMARFRÍ
— og leika ekki í lokaumferð 1. deildar
„Það er rétt, nokkrir sterkustu leikmanna
okkar verða ekki með i leiknum gegn Fram á
laugardag,” sagði Gunnar Kárason hjá
knattspyrnudeild KA i samtali við DB. „Vlð
erum þó bjartsýnir og ætlum okkur sigur.
Nokkrum annars flokks piltum verður
sennilega gefið tækifæri i leiknum.”
Af 16 manna hópi KA-liðsins eru nú
fimm erlendis. Fjórir eru í skólaferðalgi á
Krít, þar á meðal tveir lykilmenn, Ásbjörn
Björnsson og Erlingur Kristjánsson. Þá er
gamla kempan Eyjólfur Ágústsson í fríi á
ítaliu. Ekki er að efa aö fjarvera þessara
þriggja veikir lið KA nokkuð og er þá ekki
verið að vanmeta annars flokks piltana á
nokkurn hátt. Möguleikar Fram á sigri í
leiknum ættu að vera meiri fyrir vikið. Fram
verður að ná báðum stigunum úr þessari
viöureign til að eiga möguleika á íslands-
meistaratitilinum og verður fróðlegt að
fylgjast með viðureign liðanna sem fram fer
á Laugardalsvellinum nk. laugardag kl. 14.
Þá má geta þess að Pétur Ormslev, lands-
liðsmaðurinn sterki hjá Fram, verður ekki
með. Hann mun afplána eins leiks bann
vegna lOrefsistiga.
-VS.
bandið Inn I og aflýsti öllum leikjum i fyrstu
umferð. Ljóst var að stór hluti félaganna gat
ekki komið til móts við kröfu samtakanna og
þvi var gripið til þessa neyðarúrræðis.
Spánverjar eru að sjálfsögðu lítt hrifnir af
þessum aðgerðum en sömu sögu er ekki að
segja um frændur vona, Dani. Tveir af
snjöllustu knattspyrnumönnum Dana, Allan
Simonsen og Frank Arnesen, leika nefnilega
með spænskum liðum og í kvöld leika Danir
mjög þýðingarmikinn landsleik i undan-
keppni HM við Júgóslavíu á Idrætsparken í
Kaupmannahöfn. Þeir félagar studdu að
sjálfsögðu kröfur hinna spænsku félaga
sinna og flýttu sér síðan heim til Danmerkur
til undirbúnings fyrir landsleikinn. Hætta á
meiðslum er mikil i spænsku knattspyrn-
unni, sérstaklega hjá stjörnum eins og Sim-
onsen og Arnesen. Danir eru því himinlif-
andi og gera sér nú vonir um enn einn lands-
leikssigurinn í ár. Róðurinn verður þó
þungur gegn hinu sterka liði Júgóslava, sem
vann fyrri leik liðanna í Belgrad 2—1.
Staðan í 5. riðli fyrir leikinn í kvöld er nú
þessi:
Italía
Júgóslavía
Danmörk
Grikkland
Luxemburg
5 4 0 1 9—3 8
4 3 0 1 12—4 6
6 3 0 3 10—7 6
5 3 0 2 6—7 6
6 0 0 6 1 — 17 0
Eins og sjá má, eru möguleikar Dana
fremur litlir en tvö lið komast áfram í loka-
keppnina. Danir eiga eftir, auk leiksins í
kvöld, erfiðan leik í Grikklandi svo þeir
verða að sigra Júgóslava til að eiga mögu-
leika á sæti í úrslitunum. Aðgerðirnar á
Spáni ættu að auka þá möguleika.
-VS.
Bayern Munchen
efst á blaði
— f Evrópubikarnum
Samkvæmt útreikningum SSP Overseas
veðstofunnar i London eru vestur-þýzk lið
sigurstranglegust í Evrópumótunum í knatt-
spyrnu í vetur. í Evrópukeppni meistaraliða
er Bayern Munchen efst á blaði með mögu-
ieikana 2 á móti 11. Eintracht Frankfurt er á
toppnum í Evrópukeppni bikarhafa með 1 á
móti 5, og f UEFA-bikarnum er Hamburger i
fararbroddi ásamt Real Madrid og Ipswich
með 1 á móti 10.
Til gamans má geta að sænsku liðin eru
ekki talin eiga sérlega mikla möguleika.
Öster, sænsku meistararnir, fá töluna 1/60,
bikarmeistarar Kalmar 1/300 og Malmö FF,
sem komst í úrslit i Evrópukeppni meistara-
liða 1979, fær 1/200. Fróðlegt væri að sjá
hve mikla möguleika þessi ágæta veðstofa
gefur fslenzku iiðunum!
-VS.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1981. 15
Asgeir slasaðist á
ökkla í leik Bayem
— Þjálfari Fortuna Köln lagði hart að Janusi Guðlaugssyni
að gefa ekki kost á sér í HM-leikinn við Tyrki
Frá Viggó Sigurðssyni í Leverkusen:
Ásgeir Sigurvinsson slasaðist á fæti i
leik Bayern Miinchen og Karlsruhe í v-
þýzku Bundesligunni i gærkvöldi. Ás-
geir lenti i samstuði við einn leikmanna
Karlsruhe snemma i leiknum. Ekki var
um brot að ræða og samstuðið ekki
harðara en gengur og gerist en Ásgeir
féll strax við og virtist mjög kvalinn.
Ásgeir var fluttur í sjúkrahús í
rannsókn. Þar kom í ljós að meiðslin
voru ekki alvarleg. Tognun í sin í
ökklanum en að sögn Ásgeirs mun
hann fara til sérfræðinga áður en
ákveðið verður hvort ökklinn verður
settur í gips eða ekki. Meiðslin eiga
ekkert skylt við þau, sem hann hlaut i
úrslitaleik belgísku bikarkeppninnar í
vor.
í leiknum gegn Karlsruhe var Beyern
mun betri aðilinn, enda á heimavelli,
og sigraði 4—0. Karl-Heinz Rummen-
igge náði forystunni fyrir Bayern á 40.
mín. en Wolfgang Schuler jafnaði fyrir
Karlsruhe fljótlega í síðari hálfleik.
Paul Breitner skoraði síðan tvö mörk
með stuttu millibili, brauzt sjálfur í
gegn af miklu harðfylgi í bæði skiptin.
Klaus Augenthaler innsiglaði síðan
sigur Bayern á 89. mín. Staða efstu liða
í Bundesligunni er nú þessi:
Bayern 5 5 0 0 17—6 10
Hamburger 5 3 2 0 13—6 8
Bochum 5 4 0 1 11—5 8
Stuttgart 5 3 0 2 9—7 6
Gladbach 5 2 2 1 9—8 6
Athyglisvert er að sigrar Bayern hafa
allir verið gegn liðum í neðri helmingi
deildarinnar. Enginn efast um styrk-
leika meistaranna en án efa hefur pró-
gramm þeirra hingað til verið léttara en
annarra toppliða. f næstu umferð
mætir Beyern næstneðsta liði deildar-
innar, Braunschweig, á útivelli.
í v-þýzkum blöðum hefur komið
fram að þjálfari Fortuna Köln hafi lagt
mjög hart að Janusi Guðlaugssyni
að gefa ekki kost á sér í HM-leikinn
Ásgeir Sigurvinsson — slasaðist i leik
með Bayern Múnchen f gærkvöid.
gegn Tyrkjum. Janus hefur átt við
meiðsli að stríða en hefur þó ávallt
leikið með Fortuna. Af þeim sökum
vildi þjálfari liðsins ekki fyrir nokkurn
mun að Janus færi heim.
Núrnberg, neðsta félagið í Bundes-
ligunni, rak þjálfara sinn, Heinz Elzn-
er, í gær og kemur Udo Klug, Eintracht
Frankfurt, i hans stað til bráðabirgða.
Núrnberg hefur tapað öllum fimm
fyrstu leikjum sínum í Bundesligunni í
sumar. -Viggó/VS.
Þriðji sigur
Sheff. Wed.
Þrír leikir voru háðir í knatt-
spyrnunni á Englandi í gærkvöld.
Úrslit urðu þessi:
2. deild
Leicester-Barnsley 1—0
Sheff. Wed.-Rotherham 2—0
Deildabikararnir
Chester-Plymouth 1—1
Skotar
sigruðu Svía
Skotar sigruðu Svia í Evrópukeppni
landsliða 21 árs og yngri 4—0 í
Edinborg í gærkvöldi. Andy Blair náði
forystunni fyrir Skota á 19. mín. en
siðan gekk ekkert fyrr en á 71. mín.
þegar Alan Brazil skoraði annað
markið. John MacDonald, sem var
nýkominn inn á sem varamaður,
skoraði þriðja markið með hjólhesta-
spyrnu af 20 metra færi og Paul
Sturrock bætti fjórða markinu við á
86. min. eftir sendingu frá Blair.
í sömu keppni berðu Noregur og
England jafntefli 0—0 i gærkvöld.
Norski markvörðurinn átti frábæran
leik og framherjum Englands, Justin
Fashanu og Steve McKenzie, tókst
ekki að skora þrátt fyrir góð tækifæri.
Þá vann Frakkiand Belgíu 2—1 i La
Louviere i Belgíu og tryggði sér þar
með rétt i úrslit Evrópukeppninnar.
-VS.
HM-leikur íslands og Tyrkiands veröur á Laugardalsvellinum i dag og hefst kl.
18.15. Það má búast við jöfnum og. tvfsýnum lcik. t fyrri leik landanna I 3. riðli f
Izmir sigraði tsland 3—1. Atli Eðvaldsson verður i eldlfnunni f dag en myndin að ofan
er frá landsleik Danmerkur og íslands á Indrætsparken f ágúst. Atli, til vinstri, er þar
í baráttu við Frank Olsen.
Enskir með sterkt lið
—í HM-leiknum gegn Norðmönnum
Enski landsliðseinvaldurinn í knatt-
spyrnunni, Ron Greenwood, valdi í
gær lið sitt i HM-leikinn við
Norðmenn í Osló í kvöld. Liðið er
þannig skipað. Clemence, Tottenham,
Neal og Thompson, Liverpool, Osman
og Mills, Ipswich, Robson, WBA,
McDermott, Liverpool, Hoddle,
Tottenham, Francis, Man. City,
Mariner, Ipswich, og Keegan,
Southampton, Steve Coppell, Man.
Utd. og Dave Watson, Southampton,
eiga við meiðsli að stríða. Meðal
varamanna eru Shilton, Forest,
Brooking, West Ham og Wilkins, Man.
Utd.
Þrir norskir leikmenn, sem leika
með erlendum liðum, verða í norska
landsliðinu m.a. Einar Aas, F'orest.
HEIMS- 0G EVRÓPUMET FÉLLU í SPLIT
Kæru Skaga-
manna hafnað
Sérdómsstóll Knattspyrnuráðs
Reykjavfkur hafnaði f gær kæru
Akurnesinga vegna KR-leiksins sl.
fimmtudag um, að KR-ingar hefðu
leikið með ólöglegum leikmanni eftir
ranga innáskiptingu.
A fundi aganefndar KSÍ í gær var
Óskar Ingimundarson, KR, dæmdur í
þriggja leikja bann en það var einmitt
hann, sem kom við sögu í kærumáli
Skagamanna. Fékk rautt spjald utan
vallar. Dómari leiksins, Vilhjálmur Þór
Viihjálmsson, hefur viðurkennt að þar
hafi verið um mistök að ræða. Þá voru
Guðjón Hilmarsson, KR, Heimir
Karlsson, Viking og Ingólfur
Sveinsson, ÍBV, dæmdir í eins leiks
bann.
banna.
Lið Svía
og Skota
Liðin á Hampden Park i Glasgow i
kvöld i HM-ieik Skotiands og
Svíþjóöar verða þannig skipuð.
Skotland: Rough, Partick, McGrain,
Celtic, Gray, Leeds, Wark, Ipswich,
McLeish, Aberdeen, Hansen, Liyer-
pool, Provan, Celtic, Dalglish, Liver-
pool, Jordan, AC Milano, Hartford,
Everton og Robertson, Nottm.
Forest. Sviþjóð: Ravelli, Erlendsson,
Borgesson, Hysen eða Ravelin,
Fredriksson, Borg, Nilsson, Björúlund,
Larsson, Sjöbert og Svensson.
Ute Geweniger, 17 ára austur-þýzk
stúlka, setti nýtt heimsmet i 100 m
bringusundi kvenna, þegar hún sigraði
i sundinu á Evrópumeistaramótinu i
Split í Júgóslaviu i gær. Synti á 1:08,60
min. og hafði þó litla keppni i úrslita-
sundinu. Hún átti sjálf eldra heimsmet-
ið, 1:09,39 min., sett fyrr á þessu ári.
í úrslitum í 200 m flugsundi kvenna
setti Imes Geissler, Austur-Þýzkalandi,
nýtt Evrópumet. Synti vegalengdina á
2:08,50 min. Mjög góður árangur
náðist á Evrópumeistaramótinu í Split
eins og á fyrsta keppnisdeginum á
mánudag. Úrslit.
100 m bringusund karla.
1. Yuri Kis, Sovét, 1:03,44
2. Arsen Miskarov, Sovét, 1:03,63
3. Gerald Mörken, V-Þýzk. 1:03,85
4. Adrian Moorhouse, Bret. 1:04,13
5. Peter Lang, V-Þýzk. 1:04,19
6. Janos Dzvonyar, Ung. 1:04,44
7. Raffaele Avangnano, ít. 1:04,51
8. Olivier Borios, Frakk. 1:05,97
Hans Bergquist, Svíþjóð, varð 12. á
1:05,67 mín. og Olaf Assmann, A-
Þýzkalandi, sextándi á 1:08,00 mín.
100 m bringusund kvenna.
1. UteGeweniger, A-Þýzk. 1:08,60
2. Susannah Brownsdown,
Bret. 1:11,05
3. Larisa Belokny, Sovét, 1:11,05
4. van Staveren, Hollandi, 1:12,39
5. EvaHakonsson, Svíþjóð, 1:12,41
6. Ayshkute Buzelite, Sovét, 1:12,51
7. Sabrina Seminatore, Ítalíu, 1:12,71
8. Silke Hörner, A-Þýzk. 1:12,98
Susannah Brownsdown setti nýtt
brezkt met.
200 m flugsund kvenna
1. Imes Geissler, A-Þýzk. 2.08,50
2. Heike Dáhne, A-Þýzk. 2:09,59
3. Agnieszka Czipek, Póll. 2:13,47
4. Petra Zindler, V-Þýzk. 2:14,51
5. Carole Brook, Sviss, 2:14,61
6. Ann Osgerby, Bretlandi, 2:14,72
7. Doris Wiebke, V-Þýzk. 2:14,81 7. Daniel Machek, Tékk. 4:29,51 7. Italía 3:55,91
8. Agnieszka Falinska, Pól. 2:18,05 8. Ivan Gritti, Ítalíu, 4:38,03 8. Frakkland 3:58,51
400 m fjórsund karla. 4 x 100 m skriðsund kvenna í dýfingum kvenna af þriggja metra
1. Sergei Feo...ko, Sovét, 4:22,77 1. Austur-Þýzkaland 3:44,37 bretti varð Zhanna Tsirulnokova,
2. Leszek Gorski, Póllandi, 4:23,62 2. Vestur-Þýzkaland 3:47,42 Sovétríkjunum, Evrópumeistari með
3. Giovanni Francsechi, ít. 4:24,82 3. Holland 3:49,65 499,74 stig. Martina Jaschke, A-Þýzka-
4. Vladimir Shemetov, Sovét, 4:26,86 4. Bretland' 3:51,06 landi, varð önnur með 492,18 stig og
5. Jens Berndt, A-Þýzk. 4:28,42 5. Sovétríkin 3:51,80 Irina Kalinina, Sovét, þriðja með
6. Stephen Boulter, Bretl. 4:28,50 6. Svíþjóð 3:52,07 467,31 stig.
BILAR
Seljum
í dag
SAAB 900 GL '80,3ja dyra, grænsanseraður, ekinn 15 þús. km.
SAAB 900 GLE '80,5 dyra, grænsanseraður, sjálfskiptur með vökva-
stýri, ekinn aðeins 8 þús. km.
SAAB 99 GL '80,4 dyra, rauður, ekinn 12 þús. km.
SAAB 99 GL '79,2ja dyra, gulur, ekinn 14 þús. km.
SAAB 99 GL '78,2ja dyra, brúnn, ekinn 64 þús. km.
SAAB 99 GL '77,2ja dyra, hvítur, ekinn 53 þús. km.
SAAB 99 GL '77,4ra dyra, grænn, ekinn 65 þús. km.
SAAB 99 GL '76,2ja dyra, Ijósgrænn, ekinn 56 þús. km.
SAAB 99 L '75,2ja dyra, blár, ekinn 85 þús. km.
LAIMCIA A112 '80,3ja dyra, grænn, ekinn 2.400 km.
TOCGUR HF.
SAABUMBOUD
BÍLDSHÖFÐA 16.
SIMI 81530