Dagblaðið - 17.09.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981.
Veðrið
Gert er róð fyrir austanátt, svipað
og verið hefur. Regnsvœði gongur
yfir iandíð (dag en rigning er mest á
Austur- og Suðausturiandi.
Kl. 6 var f Roykjavik noröaustan 3,
rigning og 12; Gufuskálar suösuö-
austan 5, rigning og 9; Galtarviti
austan 3, hálfskýjað og 7; Akureyri
logn, þoka í grennd og 8; Raufarhöfn
logn, skýjað og 7; Dalatangi suösuö-
austan 4, þoka og 8; Höfn austan 3,
úrkoma ( grennd og 8; Stórhöfði
austan 8, súld og 8.
í Kaupmannahöfn hálfskýjaö og 9,
Osló skýjað og 8, Stokkhólmur
skýjað og 4, London alskýjað og 15,
Hamborg láttskýjað og 9, París
rigning og 9, Madrid láttskýjað og 18,
Lissabon alskýjað og 18 New York
láttskýjaöog 15.
V
Andlát
L....... .. ■ : ...
Thomas R. Roberls andaðist 31. ágúst í
St. Lukes Hospital, Kansas City, USA.
Hann var fæddur í Bandaríkjunum 1.
janúar 1914, foreldrar hans voru
Thomas David Roberts og Ora
Roberts. Thomas starfaði lengst af hjá
Douglas-flugvélaverksmiðjunum. Árið
1949 kom hann til íslands og kynntist
þá eftirlifandi konu sinni, Önnu H.
Roberts, þau eignuðust eina dóttur
Annoru Kolbrúnu.
Helga Jónsdóttir andaðist i Borgar-
spitalanum 6. september. Hún var
fædd i Reykjavík 14. mai 1901, elzt
systkina sinna. Hún starfaði tæp 50 ár
hjá O. Johnson & Kaaber. Útför Helgu
fór fram í kyrrþey, að hennar eigin ósk.
Björn Bergmann fyrrum bóndi á
Svarðbæli, Miðfirði, verður jarðsung-
inn frá Melstaðarkirkju laugardaginn
19. september kl. 14.
Jón Úlfarsson bifreiðarstjóri, Borgar-
nesi, verður jarðsunginn frá Borgar-,
neskirkju laugardaginn 19. september
kl. 14.
Þórarinn Guðmundsson, Heiðarvegi 2
Selfossi, áður í Sandprýði Stokkseyri,
verður jarðsunginn frá Stokkseyrar-
kirkju laugardaginn 19. september kl.
14.
Björn Grétar Ólafsson, Kirkjubraut 8
Innri-Njarðvik, verður jarðsunginn frá
Innri-Njarðvikurkirkju laugardaginn
19. september kl. 14.
Lýður Guðmundsson bóndi, Fjalli
Skeiðum, verður jarðsunginn 19.
september frá Ólafsvallakirkju kl. 14.
Guðríður S. Ingólfsdóttir Conley,
1209 Plato Ave, Orlando Florida, and-
aðist 15. september.
Helgi Björnsson, Skúlagötu 72 Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 18. september kl.
13.30. Jarðsett í kirkjugarðinum við
Suðurgötu.
Rósa Lilly Jónsdóttir lézt á gjörgæzlu
Landspitalans 9. september. Útför
hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
föstudaginn 18. september kl. 13.30.
75 ára er i dag Jakob H. Richter. Hann
fæddist að Tangagötu 6 á ísafirði. For-
eldrar hans voru Ingibjörg Magnús-
dóttir og Stefán Richter. Hann hefur
starfað yfir 50 ár hjá Slippfélagi
Reykjavikur en lærði skipasmíði í Iðn-
skólanum í Reykjavík. 2. maí 1931
kvæntist hann Gythu Guðmundsdótt-
ur, þau eiga 5 börn.
50 ára er i dag Gunnar Sigfús Kárason.
Hann er fæddur að Finnastöðum í
Saurbæjarhreppi, Eyjafjarðarsýslu.
Foreldrar Gunnars voru Kári Guð-
mundsson bóndi og kona hans Fríður
Jónsdóttir. Gunnar var annar í röð
fjögurra barna, en eitt systkina hans
lézt af slysförum 1934. Hann ólst upp
hjá Sesselíu H. Sigmundsdóttur að Sól-
heimum í Grímsnesi. Á Sólheimum var
mikil leiklistarstarfsemi og hefur
Gunnar starfað þar sem leikari og
sviðsmaður.
70 ára er i dag Jóhann Ólafur Jónsson
járnsmíðameistari, Reykjavíkurvegi 70
Hafnarfirði. — Hann ætlar að taka á
móti gestum sínum í kvöld, eftir kl.
20.30, í Veitingahúsinu Gafl-Inn við
Reykjanesbraut í Hafnarfirði.
Útivistarferðir
Föstudagur 18. sept. kl. 20.
Kjalarferð með Jóni I. Bjarnasyni. Gist i húsi.
Laugardagur 25. sept. kl. 20.
Þórsmörk.haustlitaferð, grillveizla. Gist i húsi.
Upplýsingar og farseðlar á skrifstofunni, Lækjar-
götuóa, sími 14606.
Sunnudagur 20. sept.
kl. 10. Skálafell.
kl. 13 Botnsdalur-Glymur, haustlitir.
Ferðafélag íslands
Helgarferðir:
18. —20. sept.: kl. 20 Landmannalaugar.
19. —20. sept.: kl. 08 Þórsmörk — haustlitaferð.
Farmiðasala og allar upplýsingar á skrifstofunni,
Öldugötu 3.
AA-samtökin
Í dag, fimmtudag, veröa fundir á vegum AA-sam-
takanna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010),
græna húsið kl. 14 og 21 (ungt fólk), Tjarnargata 3
(s. 91-16373), rauða húsið kl. 21, 1 augameskirkja
safnaðarheimili kl. 21, Kópavosskirkja kl. 21,
Akureyri, Geislagata 9 kl. 21, Dalvik, Hafnarbraut 4
kl. 21, Blönduós, Kvennaskóli. kl. 21, Patreks-
fjörður, Ráðhúsinu við Aðalstræti kl. 21, Sauöár-
krókur, Aðalgata 3 kl. 21, Seyðisfjöröur, Safnaðar-
heimili kl. 21, Vestmannaeyjar Heimagata 24 kl.
20.30. Staðarfell Dalasýslu, Staðarfell kl. 19, og
Vopnafjörður, Hafnarbyggð 4 kl. 21.
Á morgun, föstudag, veröur fundur í hádeginu að
Tjarnargötu 5, kl. 12 og 14.
Aðaifundir
Aðalfundur Sambands veit-
inga- og gistihúsa
var haldinn 9. og 10. september sl. að viðstöddum
fulltrúum viðsvegar aðaf landinu.
Stjórn S.V.G. var endurkjörin. í henni eiga sæti:
Formaður Áslaug Alfreðsdóttir, Hótel Heklu, aðal-
menn: Bjarni I. Árnason, Brauðbæ, Einar Olgeirs-
w
I
GÆRKVÖLDI
Um raddir og sitthvað fleira
Fréttamannaráðningar, svo og'
ráðningar annarra starfsmanna sjón-
varpsins og útvarpsins, hafa jafnan
verið í sviðsljósinu. Er þá venjulega
deilt um hvaða umsækjandi hafi
mestu menntun og reynslu og svo
framvegis, sem auðvitað er góð
viðmiðun. Hitt ber að_ minna á, hvort
þeir menn sem ráðnlr efu, þrátt fyrir
alla sína menntun, hafi eitthvað í sér
til þess að starfa við þessa fjölmiðla.
Þegar þulir eru ráðnir t.d. fara
fram reynsluupptökur og sú sem
þykir standa sig bezt í henni fær
starfið. Þar ríður á að hafa góða og
skýra rödd og gott útlit sakar ekki
heldur, að minnsta kosti ekki í sjón-
varpinu. Sömu kröfúr ætti vitanlega
að gera til fréttamanna sjónvarpsins.
Það rann upp fyrir mér í gær að einn
fréttamannanna, sem þó hefur starf-
að nokkur ár og hefur því nægjan-
lega reynslu, er ennþá að stama út úr
sér spurningunum.
Að sjálfsögðu er þetta atriði verst
fyrir viðkomandi fréttamann því
áhorfendur vilja að fréttamenn spyrji
ákveðið og með réttum áherzlum,
ella vill fréttin verða langdregin og
leiðinleg. Þá er ekki síður leiðinlegt
að hlusta á frétt sem lesin er eins og
verið sé að æfa sig í hæglestri.
Hjá útvarpinu verður maður varla
var við að slíkt komi upp nema hjá
þeim sem eru að tala í fyrsta sinn og
þá heyrir maður venjulega ekki í
þeim aftur í lengri tíma. Fréttamenn
ættu allir að vera eins og Stefán Jón
Hafstein. Hann hefur frábæra rödd
sem svo sannarlega Iætur mann
hlusta. Auk þess sem hann SPYR
viðmælendur sína án þess að hika.
Sjónvarpið hefur nokkuð gert að
þvi að fá stjórnendur umræðuþátta
utan úr bæ sem vissulega er sjálfsagt.
En að setja mann i beina útsendingu
sem aldrei fyrr hefur komið í sjón-
varp, eins og í þættinum um skyndi-
hjálp í fyrrakvöld, þá er engum
greiði gerður. Sízt af öllum stjórn-
andanum sem hálfpartinn gerir sig
að hálfvita.
Nóg um raddir. Sjónvarpið var
með sína venjulegu miðvikudagsdag-
skrá í gærkvöldi. Ég vona að sál-
fræðingar, siðferðis- og menningar-
postular og önnur menningarsnobb
fái ekki slag þó ég segi að ég horfi á
Dallas og mér þykja Tommi og Jenni
frábærir. Mætti gjarnan endursýna
þá eftir Barbapapa á sunnudögum
fyrir þau litlu sem eru farin að sofa
klukkan að verða níu á kvöldin.
son, Hótel Esju, Emil Guðmundsson, Hótel Loft-
leiðum, Gunnar Karlsson, Hótel KEA, Ólafur Lauf-
dal, Hollywood og Skúli Þorvaldsson, Hótel Holti. í-
varastjórn eru Arnþór Björnsson, Hótel Reynihlíð
og Guðni Jónsson, Nausti, en framkvæmdastjóri er
Hólmfríður Ámadóttir.
Til umræðu var m.a. sá skortur sem er á starfs-
fólki með verkmenntun til ýmissa starfa á veitinga-
og gistihúsum. Hótel- og veitingaskóli íslands býður
aðeins nám í matreiðslu og framreiðslu; öðrum
sviðum veitingarekstrar og öllum þeim störfum, sem
gistihúsarekstri fylgja, er engu sinnt í skólum lands-
ins.
Samþykkti fundurinn tilmæli til menntamálayfir-
valda þess efnis, að kennsla sú, er húsmæðraskólar
bjóða upp á, og Ijóst er af dræmri aðsókn, að rót-
tækrar endurskoðunar þarf með, verði löguð að
þörfum veitinga- og gistihúsa, með því næðist
þrennt: nýting á aðstöðu og kennslukröftum, sem
fyrir hendi eru, nýir möguleikar fyrir ungt fólk til
þess að afla sér sérhæfingar til starfa i vaxandi at-
vinnugrein, og framboð af starfsfólki til þess að full-
nægja þörfum greinarinnar.
Gestur fundarins, Birgir Þorgilsson, markaðs-
•stjóri Ferðamálaráðs, spjallaði í fróðlegu erindi um
móttöku erlendra ferðamanna, verðlagsmál ferða-
þjónustunnar og það átak, sem nauðsynlegt er að
gera í markaösmálum.
Aðalfundur S.V.G. var haldinn í hinu nýja hóteli í
Stykkishólmi. Voru aðstæður og þjónusta eins og
bezt verður á kosið. Hótel Stykkishólmur er fjöður í
hatt bæði sveitarfélagsins og ferÖaþjónustu lands-
manna í heild. Sannast þar hverju áræði og framsýni
fá áorkað til uppbyggingar við erfiðar aðstæður.
Spilakvöld
Spilakvöld
verður haldið á vegum Kvenfélags Kópavogs,
fimmtudagskvöld 17. september kl. 20.30 að
Hamraborg 1, Kópavogi. Spilakvöldið er haldiö til
styrktar Hjúkrunarheimili Kópavogs. Allir
velkomnir. Nefndin.
Basarundirbúningur.
Félag fatlaðra
f Reykjavik og nágr.
Nú líður óðum að basar félagsins, sem verður i
fyrstu viku desembermánaðar. Basarvinnan er
komin i fullan gang, komið er saman öll
fimmtudagskvöld, kl. 20, í félagsheimilinu, Há-
túni 12. Við vonumst eftir stuðningi frá velunnurum
félagsins, eins og undanfarin ár.
iþrötlir
Opnir kappleikir
Golfsambands íslands
16.-20. scplembfr FIAT THROPY
19.-20. september Golfklúbbur Reykjavíkur, ÍSAL í
öllum flokkum.
Golfklúbbur Vestmannaeyja, fyrirkomulag
óákveðið.
Knattspyrna
Skrá yfir leiki sem enn eru óleiknir í 2. fiokki vegna'
frestana, einnig leikir samkvæmt mótaskrá og leikir
í úrslitum íslandsmótsins sem K.R.R. sér um.
Fimmtudagur 17. september.
R.m. Framvöllur Fram-Þróttur kl. 19.
Föstudagur 18. september.
ísl.m. KR-völlur KR-Þróttur kl. 19.
Laugardagur 19. september.
ísl.m. Framvöllur Þróttur N.-Fram kl. 14.
R.M. Þróttarv.Þróttur-ÍR kl. 14.
Sunnudagur 20. september
ísl.m. Framv. ÍBK-Þróttur N. kl. 14.
Mánudagur 21. september
R.m. KR-vöUur KR-Fylkir Akl. 18.30.
R.M. KR-völlur KR-Fylkir B kl. 20.00.
Fataúthlutun
hjá Hjálpræðishernum föstudag. 18. september frá
kl. 10—17. Verið velkomin.
Skátadagur 19. sept.
í Háaleitis-, Bústaða-, Smáíbúða- og Fossvogshverfi
er starfandi Skátafélagið Garðbúar. í félaginu eru
nú um 300 skátar á aldrinum 9 til 25 ára. Markmið
skátafélagsins er aö efla æskulýðsstarf í hverfinu og
þroska ungt fólk til félagsstarfa. Nú í september er
að hefjast nýtt starfsár, af því tilefni mun félagið
halda skátadag í sinu hverfi og verður hann laugar-
daginn 19. september milli kl. 2 og 4. Verður reist
tjaldbúð að skátahætti á opna svæðinu á mótum
Réttarholtsvegar og Hæðargarðs (fyrir ofan Vík-
ingsheimilið). Tilgangur skátadagsins er tvíþættur. í
fyrsta lagi að kynna skátafélagið Garðbúa fyrir
öllum yngri og eldri ibúum hverfisins og í öðru lagi
að minna á innritunina sem er þessa sömu helgi í
skátaheimili Garðbúa sem er í kjallara barna-
heimilis Staðarborgar v/Mosgerði. Árgjald fyrir
starfsárið er kr. 160, einnig er veittur systkinaafslátt-
ur.
Vonast stjórn félagsins að sem flestir íbúar hverf-
isins sjái sér fært að kynnast starfi þess og þiggja
veitingar að skátahætti.
Unglingameistaramótið í skák
að hefjast
Unglingameistaramót íslands í skák hefst næstkom-
andi föstudag og stendur skráning keppenda nú yfir
hjá Skáksambandi íslands daglega og hjá Taflfélagi
Reykjavíkur á kvöldin. Mótið verður haldið í húsi
Taflfélagsins að Grensásvegi og er öllum yngri en 20
ára opin þátttaka.
Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, og
fá keppendur eina klukkustund á fyrstu þrjátíu
leikina og svo 20 mínútur til að Ijúka skákinni.
Fyrsta umferð verður tefld nk. föstudagskvöld,
önnur og þriðja á laugardaginn, fjórða og fimmta á
sunnudaginn og sjötta og sjöunda á mánudags-
kvöldið. í fyrstu verðlaun verður ferð á gott skák-
mót erlendis og bókaverðlaun verða fyrir 2.-5. sæti.
Til að flýta fyrir, vildu forráðamenn
Skáksambandsins koma því á framfæri, að menn
tilkynntu þátttöku sína tímanlega.
Styrkveiting úr Menningar-
sjóði Sambandsins
Sl. föstudag voru afhentir styrkir úr Menningarsjóði
Sambandsins er úthlutað var fyrr á árinu.
Menningarsjóðurinn var stofnaður á aðalfundi
Sambandsins árið 1919. Sjóðurinn veitir árlega
styrki til ýmissa aðila er vinna að menningar- og vel-
ferðarmálum, í samræmi við það markmið sam-
vinnuhreyfingarinnar, að efla menningarlíf í Iand-
inu.
Að þessu sinni nam styrkfjárhæðsamtals 105.000'
kr. og hlutu eftirtaldir aðilar styrki:
Gigtarfélag íslands 25.000 kr.
Sjálfsbjörg,
félag fatlaðra á Akureyri 25.000 kr.
Styrktarfélag vangefinna 25.000kr.
ICYE — Alþjóðleg
kristileg ungmennaskipti 15.000 kg.
Flugbjörgunarsveitin 15.000 kr.
Valur Amþórsson, stjórnarformaður Sambands-
ins, afhenti fulltrúum þessara aðila styrkina í
höfuðstöðvum Sambandsins að viðstöddum for-
stjóra Sambandsins og Eysteini Jónssyni fulltrúa í
stjórn sjóðsins.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 176 17. SEPTEMBER 1981 KL. 09.15. Ferðamanna- gjaldoyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7.706 7.728 8.500
1 Steriingspund 14.260 14.301 15.731
1 Kanadadollar 6.405 6.424 7.066
1 Dönskkróna 1.0652 1.0683 1.7151
1 Norskkróna 1.3213 1.3251 1.4576
1 Sœnskkróna 1.3901 1.3941 1.5335
1 Rnnsktmark 1.7309 1.7358 1.9094
1 Franskur f ranki 1.3960 1.4000 1.5400
1 Belg. franki 0.2046 0.2052 0.2257
1 Svissn. franki 3.9018 3.9129 4.3042
1 HoHenzk florina 3.0285 3.0371 3.3408
1 V.-þýzktmark 3.3526 3.3622 3.6984
1 ítöisk l(ra 0.00660 0.00662 0.00728
1 Austurr. Sch. 0.4774 0.4788 0.5267
1 Portug. Escudo 0.1177 0.1181 0.1299
1 Spánskur peseti 0.0819 0.0822 0.0904
1 Japansktyen 0.03399 0.03409 0.03749
1 Irskt ound 12.212 12.247 13.471
SDR (sérstök dráttarréttlndi) 01/09 8.9250 8.9503
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
. sdms'Q*. I
v
ksi *