Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 21
VI.
Ci/raunasfar/semi félagsins,
A. Áburðartilraunir.
Tilraunir þær, sem félagið hefir Iátið gera í ár með
áburðarefni, hafa verið fremur fáar og aðallega með til-
búin áburðarefni eins og að undanförnu. Hafa nokkurar
þeirra verið gerðar í hinum föstu tilraunastöðvum félags-
ins, en sumar hjá einstökum mönnum.
Hingað til hafa þessar tilraunir einkum leitast við að
fá svarað hvaða jurtanæringarefni einkum vanta í jarð-
veginn. Virðast allar þessar tilraunir benda í sömu átt að
í vanalegum holtajarðvegi og á vallendi séu það einkum
2 efni, sem auki eftirtekjuna að nokkurum verulegum
mun. Þessi tvö efni eru fosforsýra og köfnunarefni, sem
fást í áburðartegundunum superfosfati og Chilisaltþétri
o. fl. Hversu mikið þurfi að bera á af hinum einstöku
áburðarefnum hefir enn þá ekki verið svarað til fullnustu
með tilraunum, en þó virðist nokkuð benda á, að hægt
sé að komast af með minni áburð en hingað til hefir
verið notaður, en með sama árangri.
Skýrsla sú um áburðartilraunir, er hér fer á eftir, er
frá árinu 1906. Tilraunirnar eru gerðar í Aðaltilraunastöð
Ræktunarfélagsins á Akureyri. Orasið af hverjum reit er
vegið hrátt og er gert ráð fyrir, að í því séu 70 °/o af
vatni. Eftir því er reiknað út þurt hey af dagsláttu. Enn
fremur er hvert heypund reiknað á 292 eyri.