Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 29
3i
a. Reynir (Sorbus aucuparia).
Hann hefir hepnast mæta vel, og á félagið nú mörg þús-
und plöntur, sem eru á því vaxtarstigi að gott væri að flytja
þær til og gróðursetja á þeim stöðum, þar sem þær eiga
að vaxa til fulls. Vonandi er, að menn noti nú tækifærið
til að gróðursetja hjá sér hin fögru reynitré. Vér þorum
óhræddir að ábyrgjast, að þau geti þrifist víðast hvar á
Iandinu sé farið eftir þeim Ieiðbeiningum, sem vér gefum,
þá þess er æskt.
b. Björk (Betulu odorata).
Af því höfum vér nokkurar plöntur, sem hæfar eru til
gróðursetningar. Hins vegar er mikið meira vandkvæði á
að ala upp góðar birkiplöntur en reyni.
c. Elri (Alnus incana).
Af því hafa nokkurar plöntur náð allmiklum þroska.
d. Siberiskt baunatré (Caragana arborescens).
Af því eru og til allmargar plöntur í góðum þroska.
e. Rósir (Rosa rubrifolia).
Það er runni, af honum eigum við nú mörg þúsund,
af góðum plöntum. Rósir þrífast hér ágætlega, og ættu
menn allmennt að rækta þær.
- f. Barrfré.
Allvel hefir hepnast að ala þau upp, en þar eð tíminn
er svo stuttur síðan byrjað var með þessar tilraunir, verð-
ur eigi enn sagt með vissu, hvort þau muni geta þrifist
hér á landi.