Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 73
75
um, og það sézt, að þær hafa ekki að eins tafið og tefja fyrir
ræktun landsins, heldur ná áhrif þeirra miklu lengra og þrengja
að öllum búhag bænda vorra.
. , Þúfurnar eru meinvættur, sem staðið hefir og
Þungar sak-
argiftir * * framvegis mun standa gegn öllum verulegum
framförum í landbúnaði vorum, þar sem þær ná
til með áhrif sín.
Þetta eru þungar sakargiftir, og skal þvt' málið rökstutt
lítið eitt.
Áburður Því verður ekki neitað, að margir bændur hafa
á þúfur. lagt á sig allmikið erfiði til þess að reyna að rækta
Khningur. þýfig á túnum sínum. Þeir hafa borið vel á þúf-
urnar og með ýmsu móti reynt að haga áburðinum þanning,
að hann kæmi sem bezt að notum. Hér áður fyrri báru ýmsir
á þýfi svonefndan klíning. A hvern þúfukoll var þá látin dá-
lítil mykjusleta, sem að vorinu var mulin með höndum ofan í
þúfuna.* Þetta var mikið verk og seinlegt. Ekki spruttu þúf-
urnar vel, þó þannig væri að farið, en þó nokkuru betur en
ella mundi verið hafa og almennt gerðist, eða svo sagðist
þeim mönnum frá, sem til þektu og að þessu unnu.
Útbleyttur Stundum var reynt að bera útbleyttan áburð á
áburður þúfurnar. Aburðurinn var þá hrærður út í vatni
og leginum síðan ausið yfir þúfnakollana. Að bera
útþyntan áburð á þýfið var seinlegt verk, en væri það vel gert,
þá bar það nokkurn árangur. En hvorki gat klíningur né út-
þyntur áburður komið varanlegri rækt í þúfurnar.
Þúfur borga Þúfumur hafa jafnan borgað áburð og ávinnslu
áburð illa. l^a> en krafist mikillar vinnu í öllu því, er á-
burðurinn á þœr snertir.
Þúfurnar * * Séu vatnsveitingar viðhafðar á þýfðu landi, koma
spitla árangri þær ekki nær því að sömu notum sem á slétt-
vatnsveitinga. íendi. í uppistöðum kemur rot í grasið á milli
* Þegar eg veturinn 1879—1880 dvaldi í Danmörku, þá sagði Guð-
rún móðir Gísla háskólakennara Brynjólfssonar mér, að á æsku-
árum sínum hefði klíningur verið borinn á Möðruvallatún í Hörg-
árdal, þar sem þýft var, og allur mulinn með höndum. Samskonar
sögur um klíningsáburð hafa nokkurir fleiri gamlir menn sagt mér.