Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Page 6
Fundargerð
Aðalfundar Ræktunarfélags Norðurlands 10. júní 1939.
Ár 1939, laugardaginn 10. júní var aðalfundur Ræktun-
arfélags Norðurlands haldinn í húsi félagsins á Akureyri.
Fundurinn hófst kl. 10.20 f. h.
Fundarstjóri var kosinn formaður félagsins Sig. Ein.
Hlíðar og fundarritarar Árni Jóhannsson og Ármann Dal-
mannsson.
Þetta gerðist:
1. Kosin kjörbréfanefnd. Kosnir voru Brynleifur Tobias-
son, Stefán Stefánsson, járnsmiður, Kristján S. Sigurðs-
son.
Fundarstjóri gaf fundarhlé meðan kjörbréfanefnd starf-
aði. Hafði nefndin ekkert við kjörbréf mættra fulltrúa að
athuga.
Þessir fulltrúar voru mættir:
Frá æfifélagadeild Akureyrar:
Ármann Dalmannsson, Árni Jóhannsson, Stefán Stef-
ánsson, Kristján S. Sigurðsson, Brynleifur Tobiasson.
Stjórn félagsins var öll mætt og ennfremur fram-
kvæmdastjóri þess, sem formaður Búnaðarsamb. Eyja-
fjarðar.
2. Reikningar félagsins. Framkvæmdastjóri las upp
reikninga félagsins fyrir árið 1938 og gerði grein fyrir
hverjum sérstökum lið þeirra. Sýndu reikningarnir;