Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Síða 58

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Síða 58
63 síður sýnir hún greinilega, að þaksléttan er dauðadæmd ræktunaraðferð eins og nú hagar til með vinnuafl og kaupgjald. B. UncLirbúningsrœktunin. Eins og áður hefur verið getið um, þá átti að reyna undirbúningsræktun eða for- ræktun á einum lið tilraunarinnar. Þetta mistókst þó að mestu leyti og hefi eg ekki séð ástæðu til að gera þessum lið nein skil hér. Fyrsta árið var höfrum sáð í þennan lið og þar sem árangurinn var athyglisverður, tek eg hann hér með. Þessi liður fékk samskonar áburð og undirbún- ing eins og aðrir liðir tilraunarinnar. Sáðmagn var 300 kg. Segerhafrar á ha. Uppskeran varð í 100 kg. heyh. pr. ha. af grænum höfrum. Fornræktað. Nýræktað. Búfjáráb. Tilb. áburður Búfjáráb. Tilb. áburður 190.4 195.4 153.4 98.4 Hafrarnir spretta nokkurnveginn jafnvel af búfjár- áburði og tilbúnum áburði í fornræktinni, þar sem forði er fyrir af lífrænum sambiindum, en uppskeran verður ákaflega misjöfn í nýræktinni, þar sem slíkan forða vant- ar. Tilraun þessi sýnir því Ijóslega, að hafrarnir nota ágætlega jurtanæringu úr torleystum samböndum og í mögrum nýræktarjarðvegi, þarf fjarska mikið af tilbún- um áburði til þess þeir gefi góða uppskeru, þar notast búfjáráburðurinn tiltölulega mikið betur. í fornræktinni, þar sem nægur forði af jurtanæringu, í lífrænum sam- böndum, er fyrir í jörðinni, vegnar tilb. áb. alt eins vel eins og búfjáráburði. Við getum því sagt, að hafrar þurfi næringu í lífrænum samböndum, til þess að gefa góða grœnfóðuruppskeru. C. Gróðurinn. Það er eðlilegt, að gróðurinn verði harla óh'kur á tilrauninni. Þaksléttan og græðisléttan eru vaxn- ar óvöldum, lágvöxnum, innlendum gróðri einvörðungu og gætir þar margra grasa, þótt grastegundirnar: Túnving-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.