Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1961, Blaðsíða 62
02
liluti með stuðlum og stærðfræðliegum formúlum. Slíkt get-
ur gengið í hreinar öfgar, og ef ekki tekst að gera öllu með-
algreindu fólki réttmæti þessara reikningskúnsta skiljan-
legt, getur farið svo, að á þær verði litið sem nýja Sölva
Helgasonar heimspeki. Særðfræðin á um fram allt að skýra
málin en ekki að flækja þau og hér virðist mér liggja beint
við bæði auðskildari og auðfarnari leið, er drepið var á hér
að framan, að gera samanburð á dætrum þeirra nauta, er
rannsaka á, og jafnöldrum þeirra undan reyndum nautum
á hverjum tíma.
HVERS VEGNA BÆNDUR EIGA AÐ FÆRA
MJÓLKURSKÝRSLUR.
1. Þær eru undirstaða réttrar fóðrunar. Fóður kúnna á
hverjum tíma verður að miðast við afköst þeirra, mjólk og
fitu.
2. Þær vísa bóndanum á stirtlurnar, sem ekki borga fóðr-
ið sitt og sem hann á að losa sig við, og þær vísa honum líka
á beztu kýmar, sem hann á að ala upp undan.
3. Þær geyma margar þýðingarmiklar dagsetningar um
aldur kúnna og uppruna, hvenær Jieim er haldið, hvenær
þær bera, fara út eða eru teknar inn, verða geldar, um kyn
kálfsins, föður hans, notkun o. s. frv.
4. Við kaup og sölu á kúm, veita skýrslurnar mikilsverðar
leiðbeiningar. Að öðru jöfnu er skýrslufærð kýr verðmætari
en sú, sem engin skýrsla er um.
5. Við val á nautamæðrum eru skýrslur ómissandi. Þær
eru grundvöllur nautgriparæktarinnar.
Ó. J.