Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1961, Blaðsíða 93
hann frá tilraunum, sem gerðar hafa verið, í þessum sömu
efnum, í nokkrum öðrum löndum, og birti niðurstöður
þeirra.
Erindi tilraunastjórans var þakkað með almennu lófataki.
Að erindi H. Land Jensen afloknu hófust almennar um-
ræður út af ræðu hans. Margar fyrirspurnir voru bornar
fram, og svaraði fyrirlesarinn þeirn öllum greiðlega.
8. Fjárhagsnefnd hafði lokið störfum, og gerði Jón Sig-
urðsson á Reynistað grein fyrir störfum nefndarinnar. Hafði
nefndin athugað fjárhagsáætlun félagsins, er stjórnin lagði
fyrir fundinn, og fallizt á áætlunina í höfuðdráttum. Lögðu
þeir til, að áætlunin væri samþykkt óbreytt. Ennfremur af-
henti framsögumaður eftirfarandi tillögu, sem leggjast skyldi
fyrir fundinn:
„Fundurinn felur stjórn Ræktunarfélags Norðurlands að
vinna að því, að yfirlitsskýrslur um landbúnað og búnaðar-
framkvæmdir í hverju búnaðarsambandi á félgssvæði Rækt-
unarfélagsins verði framvegis birtar í Arsriti félagsins fjórða
hvert ár, og skorar jafnframt á stjórnir hlutaðeigandi búnað-
arsambanda að hlutast til um, að þessi skipun komist í
framkvæmd árið 1961. Jafnframt semji stjórn Ræktunarfé-
lags Norðurlands við stjómir héraðssambandanna, í hverri
röð búnaðarsamböndin sendi Ársritinu yfirlitsskýrslur sín-
ar.“ — Samþykkt samhljóða .
Fjárhagsáætlun sú, er lögð var fyrir fundinn og skráð er
í fundargerð stjórnarinnar 3. jiilí s.l., var samþykkt óbreytt
og svohljóðandi: