Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 3
3
sem eru svo langt leiddir, að þeir verða að teljast ólæknandi.
Júgurbólgu, er orsakast a£ breytilegum sýklum, verður
hins vegar aðeins haldið í skefjum með náinni samvinnu
gripaeigenda og mjaltara. Ekki er hægt að gera ráð fyrir,
að þessi júgurbólga hverfi af sjálfu sér. Þvert á móti er það
sennilegast, að aukin tækni við framleiðslu mjólkurinnar,
auki hættuna á júgurbólgusýkingu, sé ekkert aðhafzt til að
vinna gegn því.
Sem betur fer er hægt að vinna gegn þessari hættu og
það þarf hvorki að vera kostnaðarsamt eða erfitt. Urræðin
eru: Aukið hreinlæti í fjósunum og betri mjaltir.
Hreinlceti i fjósum.
Það er augljóst, að björt, hrein og þurr fjós eru heilnæm-
ari en dimm og rök fjós. Auk þessa hefur reynslan sýnt, að
með vissum dreifiefnum má því sem næst dauðhreinsa fjós-
gólfin, traðir og bása. Eftirfarandi tafla, úr amerískri til-
raun, sýnir undraverðan árangur af dreifiefnum:
Dreifi- efni Ástand bása og traða Bakteríufjöldinn á cm“
Fyrir dreif. Eftir 1 mín. Eftir 3 mín. Eftir 5 mín. Eftir 10 mín. Eftir 15 mín. Eftir 30 mín.
I.oftleskjað J Þurrt 600.00 2000 1400 1300 800 110 30
kalk J Vott 1.900.000 800 160 90 50 20 10
Super- Þurrt 700.00 1000 800 600 600 590 570
fosfat J Vott 2.000.000 780 700 460 200 180 173
Auk þessa hafa dreifiefnin bætandi áhrif á loftið í fjós-
unum, hreinsa úr því stækju. Enn fremur þurrka þau gólf-
in og draga ekki aðeins úr viðkomu sýklanna, heldur einnig
flugna.