Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 32
32
faldlega komið í ljós, að sýklar þeir, sem valda júgurbólgu
í kúnum, eru í spenahylkjunum, sem kýrnar liafa verið
mjólkaðar með.
Það er augljóst að tilvera júgurbólgubaktería í spena-
hylkjunum er alvarleg ógnun, sem getur valdið því, að
sjúkdómurinn breiðist út í fjósunum.
Það eru þess vegna ekki aðeins samlögin, sem eiga að
hafa áhuga fyrir hreinlæti í meðferð mjólkurinnar. Þetta
er mál er snertir kúaeigendurna miklu fremur og þeir ættu
því að gera sitt ýtrasta til þess, að meðferð mjólkurinnar
verði sem hreinlegust og bezt.
Áður hefur verið rætt um mjaltirnar sjálfar og hvað
hægt er að gera til þess að halda sýklagróðri fjósanna í skefj-
um. Hér við mætti bæta, að miklu skiptir að hindra melt-
ingartruflanir, er valda kúnum þunnlífi og dreifa mykju-
slettum víðsvegar. Sé þetta allt í góðu lagi er fenginn traust-
ur grundvöllur undir heilnæma mjólkurframleiðslu.
Eitt er þó enn, sem taka verður með í reikninginn, en það
er hirðing mjaltatækjanna, svo mjólkin spillist ekki af
snertingunni við þau, og að þau valdi ekki júgurbólgusmit-
un á kúnum, sem mjólkaðar eru með þeim.
Hirðing mjaltavélanna.
Það er einkum mjaltavélin, sem orðið getur háskaleg
sjúkdómsuppspretta, og J)ví er ástæða til að ræða hirðingu
hennar nákvæmlega.
Skolun mjaltavélanna meðan þær eru enn þá votar og
volgar eftir mjaltirnar, fjarlægir mjólkurleifarnar að mestu
og auðveldar hreingerningu vélanna mjög mikið. Þótt vél-
in standi aðeins örstutta stund eftir mjaltirnar óskoluð,
þorna mjólkurleifarnar og verður þá mjög erfitt að fjar-
lægja þær. Bezt er að skola úr 40° C heitu vatni. Skolun úr
köldu vatni veldur storknun smjörfitunnar, en heitt vatn
hleypir eggjahvítuefnin, svo þau límast í leiðslurnar.