Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Page 34
að hægt sé að halda þvottavökvanum 75—80° C heitum í
þær 10—15 mín., sem þvotturinn varir, má með þeim ná
mjög góðum árangri.
Ef ekki eru tök á að hita upp þvottavatnið, verður að
lokum að dæla sótthreinsandi legi gegnum tækið. Spena-
hylkin mega þá bíða í tækinu til næstu mjalta.
Nauðsynlegt er að hafa gott eftirlit með þvotti vélanna
í þvottatækjunum og jafnvel endurtaka þvottinn lið fyrir
lið öðru hvoru, til þess að tryggja að hirðingin sé í lagi.
Að leggja i bleyti er ein aðferðin, sem notuð er við
hreinsun mjaltatækjanna og til að létta störfin. Mjaltatæk-
in eru þá þegar að mjöltum loknum lögð í 40° C heitt vatn,
sem í hefur verið hlandað þvottaefni. Það, sem ekki er hægt
að leggja í bleyti, er þvegið á venjulegan hátt.
Eftir að tækin hafa legið um eina klst. í vatninu, eru þau
flutt í annað vatnsbað, hvar í er að minnsta kosti 500 mg
(Vt gr) af virkum klór uppleystur í hverjum lítra, og eru
ílátin látin liggja þar fram til næstu mjalta. í báðum böð-
unum eru tækin lögð þannig niður, að loftbólur séu ekki
í slöngum og leiðslum.
Forsvarsmenn þessarar aðferðar telja óþarft að nota
bursta við hreinsunina. Þó er viðurkennt, að stundum geti
komið húð í tækin, sem fjarlægja verði með burstum eða
sköfum.
Affitun gúmmisins. Þær slöngur mjaltavélarinnar, sem
mjólkin rennur gegnum, verða fyrir stöðugum áhrifum af
fituefnum volgrar mjólkurinnar og þetta þola aðeins allra
beztu gerðir af gúmmíi.
Rautt ndttúrlegt gúmmi er mjög viðkvæmt fvrir fituefn-
unum og á því alls ekki að notast í mjólkurleiðandi slöngur,
þar sem völ er á betri gerðum.
Svart tilbúið gúmmi verður fyrir mjög litlum áhrifum af
mjólkurfitu, ef um beztu gerðir er að ræða. Það hentar því
vel sem mjaltagúmmí.
CAærar plastslöngur verða fyrir engum áhrifum af mjólk-