Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 35
35
urfitunni og henta því vel í löngu mjólkurslönguna. Sá ljóð-
ur er þó á plasti, að það verður stíft og óþjált í kulda.
Dagleg hirðing á að hreinsa alla fitu, er sezt á innra borð
mjólkurslangnanna, en þegar gúmmíið fer að eldast, verð-
ur hrjúft og sprungið, verður fituhreinsunin ófullnægjandi.
Þetta hefur mikil áhrif á endingu gúmmísins.
Affitun mjólkurgúmmísins getur orðið fullkomin ef vítis-
sódi (natriumhydroxyd) er notaður og látinn breyta fitunni
í sápu. Þetta má gera með tíu mínútna suðu í tvö % lút
eða með því að geyma gúmmíin í vítissódaupplausn.
í síðara tilfellinu er aðferðin þannig: Höfð eru tvenn
gúmmí í takinu og skipt um vikulega, alltaf sama dag.
Gúmmíin, sem ekki eru í notkun, eru lögð í tvö % natron-
lút (200 gr af vítissóda í 10 lítra af vatni). Eftir fimm daga
eru þau tekin úr leginum. Öll fita er þá orðin að sápu, er
þekur gúmmíið eins og þunn himna. Himnan er þvegin
vandlega af og gúmmíin síðan látin þorna. Þá eru þau þurr
og auðvelt að setja þau á, þegar þau á sjöunda degi eru tek-
in í notkun í stað þeirra, er notuð hafa verið síðustu sjö
dagana og nú eru lögð í vítissódaupplausnina.
Þessi aðferð heldur gúmmíunum hreinum og eykur end-
ingu þeirra. Bæði vítissódinn og upplausn hans brenna
bert hold og verða því að notast með fyllstu varúð. Bezt er
að geyma lútinn í lokaðri plastfötu, þar sem börn eða dýr
geta ekki komizt að honum. Sömu upplausnina er hægt að
nota í allt að tvo mánuði.
Dauðhreinsun mjaltatækfa.
Rækilegur þvottur mjaltavélanna og annarra mjólkur-
tækja á að fjarlægja öll óhreinindi og þann smáverugróður,
sem í þeim dylst, en geta þvottar og þvottaefna til dauð-
hreinsunar er mjög takmörkuð. Þvotturinn drepur ekki
bakteríurnar og þær lifa góðu lífi í þvottavatninu. Mjalta-
vélin og önnur mjaltatæki verða að dauðhreinsast að þvotti
3*