Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 40
40
EFTIRMÁLI ÞÝÐANDA.
Svo sem margir eyfirzkir bændur vafalaust minnast, þá mætti I. C.
Christensen, ráðunautur frá Árósum, hér á fundum, er haldnir voru
í öllum deildum S. N. E. í ágúst 1961 og flutti þar erindi um iúgur-
bólgu, mjaltir og meðferð mjaltavéla. Það hygg ég, að flestir, sem á þau
erindi hlýddu, hafi fundið, að þar talaði maður, sem hafði mikla
reynslu í starfinu og hæfileika til að veita ljósa og hagkvæma fræðslu.
Var þá þegar rætt um að gefa erindi þessi út á íslenzku. Vegna ann-
rlkis höfundarins hefur þó ekki getað orðið af þessu fyrr en nú, en
það ætti ekki að vera úrhættis. Þvert á móti er það mjög tímabært, því
hætt er við, að þau mörgu góðu ráð og ábendingar, sem Christensen
gaf á áðurnefndum fundum, séu tekin að fymast hjá þeim, sem þar
mættu og því nauðsynlegt að fríska þau upp.
Fyrir þá, sem hvorki heyrðu eða sáu Cliristensen, meðan hann dvaldi
hér, ætti þessi fróðleikur að vera nokkurt nýnæmi og ekki síður gagn-
legur en hinum, er áttu þess kost að sækja fundina og komast í per-
sónulega snertingu við ráðunautinn, þótt það væri líka mikilsvert.
Útgáfa þessa erinda er að minnsta kosti tilraun til að fylgja eftir
þeirri fræðslu, sem hafin var með heimsókn Christensens, og útbreiða
hana sem mest.
Síðastliðið sumar lét Mjólkursamlag K. E. A. fram fara athugun á
mjólkurkerfum á framleiðslusvæði samlagsins. Mun sú athugun einkum
hafa beinst að soginu í lögnunum og lagfæringu á því. Mun hafa kom-
ið í ljós, að víða var lagfæringa þörf. Er æskilegt, að slíku eftirliti verði
haldið áfram og því beint jafnframt að stillingu vélanna og hirðingu
mjaltatækjanna. — O. J.