Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Síða 41
ÓLAFUR JÓNSSON:
Búnaðarhagfræði.
Inngangur.
Líklega er enginn þáttur búnaðarfræðslu okkar jafn van-
ræktur og lítið kynntur sem búnaðarhagfræðin. Gengur
þessi vöntun á leiðbeiningum svo langt, að ég efa, að bænd-
um almennt sé það ljóst hvað í hugtakinu felst og ekki hef-
ur enn þá, að ég bezt veit, komið fyllilega til álita, að Bún-
aðarfélag íslands, eða önnur bændasamtök, hefðu í þjón-
ustu sinni búnaðarhagfræðilegan ráðunaut, nema ef nýlega
stofnað ráðunautsembætti hjá Stéttarsambandi bænda bein-
ist í þá átt. Því miður hefur enn þá ekki verið gerð opin-
berlega nægileg grein fyrir starfssviði og viðfangsefnum
þessa ráðunauts, en það er skaði, ekki sízt fyrir þá, sem eiga
að hafa not af starfi hans.
Það ætla ég, að einhver vísir að búnaðarhagfræði sé
kenndur á bændaskólunum, eða svo var það fyrir löngu
síðan þegar ég var þar nemandi, en lengs af mun heldur
lítil rækt hafa verið lögð við þessa námsgrein, bæði af kenn-
urum og nemendum. Þó mun færsla búreikninga, sem er
nátengd hagfræðinni, hafa um langt skeið verið kennd all
rækilega, að minnsta kosti á Hvanneyri, en því veldur fyrst
og fremst, að skólastjórinn þar hefur lagt sérstaka rækt við
þennan þátt búfræðinnar. Ekki hefur þó þessi viðleitni bor-