Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 76
Vangaveltur um Ársritið og fleira
Það er ekki nýtt, þótt tilvera og íramtíð Arsrits Rf. Nl.
beri á góma. Undirrót þeirra umræðna er sú staðreynd, að
enginn fjárhagslegur grundvöllur virðist finnaniegur fyrir
áframhaldandi útgáfu þess, en því veldur kaupendafæð og
vanskil, er lýsa sér á þann hátt, að sífellt láta margir þeirra,
er gerzt hafa áskrifendur, póstkröfurnar þegjandi og hljóð-
laust endursendar, án skýringa og eru strikaðir út.
Ekki er þó ástæðan sú, að ritið sé svo dýrt eða hafi verið,
en sjálfsagt finna þessir menn enga þörf hjá sér fyrir ritið
eða það efni, sem það flytur og væri þetta í sjálfu sér afsak-
anlegt, ef reynslan sýndi ekki, að sama gildir að nokkru eða
öllu um flest eða öll þau búfræðirit, sem út koma á landinu.
Því virðist þannig háttað, að ekki sé hægt að gefa hér út
búfræðilegt rit og láta það bera sig.
Elzta búfræðiritið er Búnaðarritið, en það fá menn raun-
verulega gefins. Ársrit Rf. Nl. mun næst elzt og það heíur
verið gefið út lengst af með halla, sem fer vaxandi. Þá er
það Freyr. Þrátt fyrir mikla útbreiðslu og hagkvæma inn-
heimtuaðstöðu er hann sífellt gefinn út með verulegum
halla og raunverulega miklu meiri halla, en séð verður í
fljótu bragði. Líklega kemst Vasabók bœnda næst því að
bera sig, en þó mun nokkuð á skorta, ef allur kostnaður
væri frarn talinn. Arbók landbúnaðarins er gefin út af
Framleiðsluráði landbúnaðarins, þótt ég viti ógerla um
fjárhag hennar, þori ég að fullyrða, að hún er gefin út með
verulegum halla. Þá er það Búnaðarblaðið, sem er langsam-
lega yngst þessara rita, en virðist hafa barizt í bökkum efna-
hagslega, þrátt fyrir það, þótt það sé að nokkru gefið út
sem fylgirit með fjöllesnu vikublaði, og verð þess þá að