Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Page 82
82
Ástæðurnar til þessara ummæla voru eftirfarandi:
1. í grein (). J. í Ársriti Rf. Nl., 1.—2. hefti 1959: Frá
starfi S.N.E. Afkvœmarannsókn 1957— 58, er sýnt í aðal-
töflu II, hve mörgum kg mjólkur með 4% fitu hvor hópur
fyrir sig skilaði að meðaltali á innistöðu, og í sömu töflu er
sýnt, hve margar fóðureiningar til mjólkur hvor hópur
fékk að meðaltali á kú á sama tíma. Tölur þessar eru sýnd-
ar í töflunni hér á eftir og út frá þeim reiknað, hver mjólk-
urframleiðslan varð á hverja afurðafóðureiningu hjá hvor-
um hóp fyrir sig.
Mjólk með Fóðureiningar Kg mjólkur
4% fitu til mjólkur á fóðurein.
Ægisdætur 2231 901 2.48
Vallardætur 1801 721 2.50
MismunurÆ —V. 430 180 0.02
Eins og sést á þessum tölum, hafa Vallardætur gefið að-
eins meiri mjólk fyrir hverja afurðafóðureiningu heldur en
Ægisdætur. Er þvf óhætt að fullyrða, að Vallardætur
breyttu því afurðafóðri, sem þær fengu, jafnauðveldlega í
mjólk og Ægisdætur, og þess sjást engin merki á þessum
tölum, að Vallardætur hafi gefið lítinn mjólkurauka fyrir
síðustu afurðafóðureininguna.
2. Mismunurinn á meðaldagsnyt hópanna við burð var
um 0.5 kg, Ægisdætrum í vil, skv. mynd 4 í grein Ó. J. um
niðurstöður þessara rannsókna, en samkvæmt sömu mynd
var Vallardætrum gefið 0.5 kg minna kjarnfóður á dag
heldur en Ægisdætrum vegna þessa munar á nythæð. Eftir
því sem leið frá burði jókst munurinn á bæði nythæðinni
og kjarnfóðurgjöfinni smám saman. Var mismunurinn á
dagsnyt um 3.1 kg að meðaltali, þegar meðaltal er tekið af
nythæð í byrjun 4., 5., 6. og 7. viku eftir burð samkvæmt
mynd 4, en mismunur á kjarnfóðurgjöf um 1.3 kg á dag
sömu daga.