Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 138
138
eftir að ísöld lauk. <Þetta útskýrir einnig að nokkru hina
óreglulegu tilkomu ísalda í jarðsögunni, ef gert er ráð fyr-
ir, að það upplausnarástand, sem ríkt hefur nú um hríð í
flokki halastjarnanna, sé tímabundið og gerist ekki nema
endrum og eins í sögu jarðarinnar.
Athygli skal vakin á því, að þessi tilgáta gengur út frá,
að allsherjar hitabreytingar verði samtímis á jörðinni. En
eins og fyr var vikið að, virðist þetta einmitt hafa átt sér
stað, því þess finnast merki að jökulmörk hafa lækkað í
öllum beltum jarðarinnar á ísöld.
9. Flutningur heimsskautanna. Þótt tilgáta sú, er síðast
var rakin, nái alllangt, til að skýra ísaldarfyrirbærið, valda
hinar eldri ísaldir nokkrum erfiðleikum. Það er ekki að-
eins sú staðreynd, að ísöld hefur orðið á jörðinni fyrir 150
til 200 millj. ára, heldur það, að hún hefur verið á allt
öðrum svæðum hnattarins heldur er Kvartæra ísöldin. Leif-
ar eftir þessa ísöld liafa sem sé fundist á Indlandi, Suður-
Afríku, Suður-Ameríku (Brasilíu) og Ástralíu. Sums staðar
hafa fundist tvær til þrjár mórenur, aðskildar af milliísald-
arlögum og sýnir það, að þessi ísöld hefur skipzt í fleiri
ísaldarskeið, aðskildum af hlýviðrisskeiðum, rétt eins og
síðasta ísöld. Ekki verður heldur séð, að ísrennsli þetta, sem
skilið hefur eftir sig öll venjuleg ísskriðsmerki, svo sem
rispaðar klappir og steina, aðflutta bergmola, langt að
komnum o. s. frv., hafi staðið í sambandi við sérstakt há-
lendi. Það virðist benda eindregið til meginlandsjökuls,
sem flatzt hefur út af eigin þykkt og þunga á tiltölulega
flötu landi og gengið hefur fram í grunnsævi. Þannig er
þetta að minnsta kosti í Suður-Afríku, þar sem ísmiðjan
virðist hafa legið langt í norðri. Þaðan hefur ísskjöldurinn
flatzt út til allra hliða. Þannig hafa merki eftir hann fund-
ist norður af Angola, í austanverðri Congo, Uganda og á
Madagarcar. Á þremur fyrst nefndu stöðunum hefur jök-
ullinn komið sunnan að.
Á Indlandi, langt austan miðbaugs, hefur ísrennslið kom-