Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Blaðsíða 142
142
Eina leiðin til að láta þetta ríma virðist vera sú, að grípa
til landaflutningakenningar Wegeners, en samkvæmt henni
á meginlöndin að hafa rekið um veraldarhöfin, eins og
stóra ísjaka, aðeins miklu hægar og að sjálfsögðu á mjög
löngum tíma. Kenning þessi er meðal annars studd af því,
hve útlínur sumra hinna miklu meginlanda virðast sniðn-
ar hver eftir annari, rétt eins og löndin hafi gliðnað hvert
frá öðru. Samanber strandlínurnar beggja vegna Atlants-
hafsins. Ennfremur þeirri staðreynd, að berg er meira og
minna „plastiskt“, teigjanlegt og sveigjanlegt, einkum í sér-
stöku ástandi og við viss skilyrði. Biilkur meginlandanna er
úr öðru og léttara bergi heldur en grunnur þeirra og botn
hinna djúpu úthafa. Lengra verður ekki kenningin rakin.
Gerum nú ráð fyrir, að öll þau svæði, er nú geyma minj-
ar hinnar fornu ísaldar, hafi legið miklu sunnar á hnett-
inum en nú. Nánar tiltekið hnappast utan um Suðurskauts-
landið og póllinn legið í jaðri þess, skammt suður af Góðra-
vonarhöfða, þá er ofur eðlilegt og auðskilið, að öll þau
landsvæði, er nú geyma minjar þessarar ísaldar, hafi verið
jöklum hulin samtímis. (Þessi kenning gerir líka auðskilið,
hvers vegna þá var ríkjandi heittemprað loftslag um norð-
anverða Evrópu, á Grænlandi og um norðanverða Ameríku,
Þessi landsvæði lágu þá sunnaráhnettinum en nú. (S.mynd).
Síðan gerðist það, að meginlöndin rak til norðurs frá
Suðurskautslandinu. Lönd þau, sem áður voru ísi þakin,
nálguðust miðjarðarlínu og fengu hitabeltisloftslag, en
landsvæði, á norðlægum slóðum, er áður höfðu heittempr-
að loftslag, fengu kaldtemprað eða arctiskt veðurlag.
Hvar var norðurpóllinn þegar ísöld geisaði á suðlægum
breiddargráðum? Talið er, að hann hefi verið nærri því,
þar sem Hawai en nú, umkringdur víðáttumiklu hafi á
alla vegu. Þess er því engin von, að þaðan sé mikil merki
um ís að finna. Nánasta land við þennan stað, þar sem slíks
gat verið að vænta, var Alaska og svo einkennilega vill til,
að þar hafa fundizt jökulruðningar frá þessum tíma.