Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Page 108
lögum, sem samþykkt eru í árslok 1971, breytist þetta og er
nú framlag ríkisins fyrst verulegra lægra en búnaðarsam-
bandanna. Hefur verið unnið að því á annað ár að fá á
þessu nokkra leiðréttingu, og hefur nú fengist munnlegt
loforð fyrir því á æðri stöðum að við Þórarinn Lárusson
komumst á ráðunautakjör hjá ríkinu frá næstu áramótum.
Verðum við ráðunautar allra búnaðarsambandanna á Norð-
urlandi undir stjórn Ræktunarfélags Norðurlands. Við
væntum þess að staðið verði við þetta loforð og vonum að sú
ráðstöfun að við verðum ráðunautar, geti enn aukið tengsl
okkar við bændur hér Norðanlands og búskap þeirra og
störf okkar megni að koma þeim að nokkru gagni.
Texti í ofanrituðum kafla er orðréttur eins og hann var í
skýrslu fyrir aðalfund 1973. Eins og þar kemur fram voru
fyrir því loforð að við Þórarinn kæmust á ráðunautakjör
hjá ríkinu frá 1. jan. 1974. Við þetta var staðið og störfum
við nú sem ráðunautar allra búnaðarsambandanna á Norð-
urlandi.
II. SKÝRSLA ÞÓRARINS LÁRUSSONAR
Líkt og áður, hef ég gert ýmislegt annað en að efnagreina
hey, þótt drýgstur tími fari í það. Annars má skipta störfun-
um niður þannig:
1. Heyefnagreiningar.
2. Sérstök rannsóknarverkefni.
3. Fundir og ferðalög.
4. Ýmislegt s.s. viðtöl við bændur og fleiri aðila, úr-
vinnsla niðurstaðna, lestur fagrita, bréfaskriftir o. fl.
Hér á eftir verður reynt að gera þessum atriðum nokkur
skil, ásamt með nokkrum orðum um niðurstöður þjónustu-
heyefnagreininga, notagildi þeirra og framtíðarhorfur.
111