Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Blaðsíða 15
Sýnatökur.
Til athugana á árstíðabreytingum jarðvegsfánunnar voru,
árið 1970, tekin sýni á sama staðnum, að jafnaði hálfsmán-
aðarlega, á tímabilinu frá 1. maí til 20. október.
Athugunarstaðurinn var í útjaðri gamals túns við merkin
milli Ytri-Víkur og Víkurbakka á Árskógsströnd, þar sem
jafnan var lítið eða ekki borið á og sjaldan slegið á seinni
árum. (Þetta ár var hvorki slegið né borið á blettinn). Gróð-
ur á athugunarstaðnum var blanda af lágu grasi og mosa með
fáeinum blómjurtum á stangli.
Aðaltegundir: snarrót, vallarsveifgras, hálíngresi, hvít-
smári, engjamosi (Rhytidiad. squarrosus), brekmosi (Brac-
hythecium sp.) og fagurmosi (Mnium sp.) Aukategundir:
vallhumall, vegarfi, skarifífill, túnfífill o. fl.
Eins og vanalega voru tekin 5 deilisýni í lóðréttri röð nið-
ur í moldina, hvert um 2,5 sm þykkt, og 20 sm2 að flatar-
máli eða 50 sm3. M-sýnin (maurar & mordýr) voru tekin í
samfelldri röð frá yfirborði til 12,5 sm dýpis, en O-sýnin
(ornidýr) í dýptunum 0—2,5; 2,5—5,0; 7,5—10,0; 15,0—17,5;
og 22,5—25,0 sm (nema við tvær síðustu sýnatökur, þá voru
þau tekin í röð niður).
Við fyrstu sýnistöku, þann 1. maí, var enn nokkurt frost
í jörðu á athugunarstaðnum, en um 12 sm lag var orðið þítt
ofan frá. Við næstu athugun (18. maí) var frostið alveg
horfið þarna. Við síðustu sýnistökuna (20.—22. okt.) var
nýlega komið um 2 sm frostlag.
Sumarið 1970 var veðurfar mjög óvanalegt. Júnímánuð-
ur var óvenju hlýr og sólríkur, en júlí hins vegar fádæma
kaldur (3,5° neðan við meðallag á Akureyri). Af þeim sök-
um m. a. þótti nauðsynlegt að endurtaka árstímabundnar
athuganir á jarðvegslífinu.
Fóru þær athuganir fram árið 1973 á Víkurbakka. Voru
þá tekin sýni af sama blettinum, mánaðarlega, á tímabilinu
15. maí til 3. nóvember. I það sinn voru aðeins tekin sýni
fyrir liðdýr (maura 8c mordýr), á sama hátt og áður var lýst
fyrir M-sýnin, nema 5. deilisýninu var sleppt. Rannsóknar-
17
2